Morgunblaðið - 17.12.1999, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Ásdís
Unnið hefur verið að endurbótum á kirkjuklukkunum í Landakot skirkju og Dómkirkjunni á þessu ári og lýkur verkinu fyrir
jólin. Asgeir Long var að vinna í Landakotskirkju í gær.
Kirkjuklukkur
lagfærðar
Reykjavík
VERIÐ er að laga kirkju-
klukkurnar í Landakots-
kirkju og Dómkirkjunni um
þessar mundir og hafa
framkvæmdirnar staðið yfir
í nokkurn tíma, en stefnt er
að því að þeim ljúki á næstu
dögum.
„Stóra klukkan í Landa-
kotskirkju er um 1.200 kfló
og hefur verið í kirkjunni
frá upphafi, hinar minni eru
aftur á móti yngri, sagði Ás-
geir Long, sem unnið hefur
við endurbæturnar, en hann
hefur flutt inn kirkjuklukk-
ur í 40 ár.
„Núna erum við að tengja
rafmagnið við klukkuna,
þetta eru 3 mótorar, hamar
og stjórntölva, en í dag er
þetta allt tölvustýrt.
I Dómkirkjunni var allt
tekið í gegn og er því verki
að mestu lokið. Ég rafvæddi
klukkurnar fyrir um 40 ár-
um, en nú var ég m.a. að
smíða sjálfvirkan opnunar-
búnað á hljómopin, en það
eru hlerarnir sem opnast og
lokast þegar klukkurnar
hringja.
Það er um 100 ára gömul
lóðarklukka sem drífur
gangverkið í Dómkirkjunni
áfram og var hún nú endur-
nýjuð þannig að hún dugar í
að minnsta kosti í 100 ár í
viðbót.“
Ásgeir sagði að úrskífurn-
ar utan á Dómkirkjunni
væru nýjar.
„Gömlu úrskífurnar voru
gjörsamlega ónýtar þegar
farið var að skoða þær og
voru því gerðar nákvæmar
eftirlíkingar af þeim úti í
Belgíu. Einnig voru klukk-
urnar sem eru framan á
turninum og slá stundar-
slögin lagaðar, en allt var
þetta gert í nákvæmlega
þeirrri mynd, sem það var
upphaflega.“
Vélarverkstæði Jóhanns
Olafs í Hafnarfirði annaðist
mikinn hluta verkanna
ásamt Ásgeiri Long.
Tennisvellir
Laugardalur
INNAN skamms hefst jarð-
vegsvinna við gerð tveggja
tennisvalla í Laugardal.
Framkvæmdirnar, sem munu
alls kosta 19 m.ki-., eru liður í
samningum borgarinnar við
íþróttafélagið Þrótt en félagið
fékk aðstöðu í dalnum í skipt-
um fyrir lóð sína við Sæviðar-
sund, þar sem fjölbýlishús ei-u
nú risin.
Ki-istinn J. Gíslason, verk-
efnisstjóri íþróttamála hjá
byggingardeild borgarverk-
fræðings, sagði í samtali við
Morgunblaðið að á svæði
Þróttar við Sæviðarsund
hefðu verið þiír tennisveilir
en samningur félagsins við
borgina gerði ráð fyrir að í
stað þeirra yrðu gerðir tveir
vellir í Laugardal.
Vellirnir verða við Val-
bjarnarvöll. Lagður verður
göngustígur að þeim frá nýja
Þróttarhúsinu við gervigras-
völlinn. Gróðurbelti skilja
tennisvellina frá opnum svæð-
um og göngustígakerfi dals-
ins.
Vegna þess hve djúpt er
niður á fast í Laugardalnum
er jarðvegsvinnan tímafrek,
að sögn Kristins. Grafið verð-
ur niður, skipt um jarðveg og
sett farg, grúspúði, ofan og
síðan settir við það sigmælar,
sem mæla hve mikið sígur í
jarðvegsfyllunni þegar frost
fer úr jörðu næsta sumar. Eft-
ir að lesið hefur verið af mæl-
unum verður hægt að ákveða
framhald framkvæmdanna.
Tennisvellir Þróttaranna
verða upphitaðir eins og vell-
ii'nir við Sæviðarsund.
20 millj. í minjagarð
Garðabær
FRAMKVÆMDIR við
minjagarð í landi Hofsstaða í
Garðabæ hefjast í vor, en
fundist hafa fornleifar á svæð-
inu sem ætlunin er að vernda
og hefur bæjarstjórnin ákveð-
ið að veita 20 milijónir í verk-
ið.
Hofsstaðir í Garðabæ er
gömul jörð og virðast forn-
leifarannsóknir benda til þess
að þar hafi verið byggð frá
fyrstu tíð íslandsbyggðar. Að
sögn Ingimundar Sigurpáls-
sonai- bæjarstjóra verður
svæðið byggt upp í kringum
fornminjarnar og er ráðgert
að ljúka framkvæmdunum
næsta haust. Hann sagði að
reynt yrði að gera svæðið sem
aðgengilegasþ fyrir almenn-
ing þannig að fólk gæti komið
þangað til að njóta minjanna
og umhverfisins. Hlaðið yrði í
kringum minjarnar, sett yrðu
upp upplýsingaskilti, sem
tengdu minjarnar sögunni, og
malbikað.
Minjagarðurinn kemur til
með að vera hluti af nýjum
bæjargarði í Garðabæ, en
hann verður umhverfís nýja
tónlistarskólann og mun
skiptast í þrjá hluta.
V atnsleikj agarður
Garðabær
BÆJARSTJÓRN Garða-
bæjar hefur samþykkt að
veita 2 milljónir króna í
hönnun vatnsleikjagarðar,
sem ráðgert er að byggja við
sundlaugina í bænum á ár-
unum 2002 til 2003, en garð-
urinn mun samanstanda af
rennibrautum og pottum.
Ingimundar Sigurpálsson-
ar bæjarstjóri sagði að lengi
hefði staðið til að fara út í
þessar framkvæmdir, enda
væru vatnsleikjatæki nánast
orðin staðalbúnaður í öllum
helstu sundlaugunum. Að
sögn Ingimundar verður
einnig hugað að frekar end-
urbótum á íþróttasvæðinu á
næstu árum. Byggja á
geymsluskúr fyrir íþrótta-
miðstöðina, sem og bæta
lagnakerfið í sundlauginni
og þá verður aðstaðan í
kringum íþróttamiðstöðina
löguð.
Tilboð opnuð vegna einkaframkvæmdar við leikskóla og grunnskóla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilboð í einkaframkvæmd vegna nýs grunnskóla í Áslandi voru opnuð í gær að viðstöddum fulltrúum bjóðenda, embættis-
mönnum og bæjarfulltrúum, bæjarstjóra og skólanefnd.
FM-htis ehf. fengu hæstu
einkunn fyrir grunnskóla
Hafnarfjörður
FM-hús fengu hæstu einkunn
við mat á tilboðum í einka-
framkvæmd við byggingu nýs
grunnskóla fyrir um 500 böm í
Aslandi í Hafnai*firði. Istak og
Nýsir áttu lægsta tilboð í
byggingu og rekstur leikskóla
við Háholt. Tilboð vegna
einkaframkvæmdanna voru
opnuð í gær.
Hvað varðar grunnskólann
var um að ræða tilboð í hús-
byggingu og leigu og viðhald
húsnæðis og lóðar. M.a. er
innifalin umsjón með þrifum
og umsjón og viðhald húsnæð-
isins, húsgagna og búnaðar,
umsjón lóðar, sorphirða og ör-
yggisgæsla.
Fjórir aðiiar gerðu tilboð í
verkið. Tilboðunum var gefin
einkunn fyrir ýmsa þætti. Ein-
kunnir voru birtar í gær en yf-
irferð yfir aðra þætti tilboð-
anna en hina fjárhagslegu var
lokið fyrir nokkru.
Aðilarnir fjórir sem sendu
inn tilboð voru: FM-hús'ehf.,
Nýsir hf. og ístak hf. sameig-
inlega, Rekstrarhús, sem er
heiti félags sem að standa
Verkfræðiþjónusta Magnúsar
Bjarnasonar ehf., Búnaðar-
banki Islands og fleiri aðilar,
og loks Islenskir aðalverktak-
ar, Armannsfell og Securitas
hf. sameiginlega.
Að sögn Sigurðar Haralds-
sonar, deildarstjóra bygginga-
deildar H afnaríJ arðarbaij ar,
sem starfaði með dómnefnd-
inni, var lagt mat á ýmsa þætti
í tilboðunum.
Gefnar voru einkunnii* fyrir
þjónustu, innra skipulag, frá-
gang, tæknilega lausnh*, lóð,
viðhald, rekstur og umsjón
húss. Þessir þættir giltu sam-
tals 60%.
Fjárhagslegi þátturinn gilti
40%. Heildai-einkunnir bjóð-
endanna voru þannig að FM-
hús fengu 9,4, Nýsir og ístak
fengu 9,2, Rekstrarhús fengu
8,7 og ÍAV, Armannsfell og
Seeuritas fengu 8,1.
Arkitekt FM-húsa var
Bjarni Snæbjörnsson hjá
Teiknistofunni ehf., Landmót-
un voi*u landslagsarkitektar.
Kostnaðaráætlun vegna
byggingaiánnai* var 125,2
m.kr. Þar buðu FM-hús
108,239 m.kr., ístak og Nýsir
buðu 108,244 milljónir,
Rekstrarhús buðu 111,920
m.kr. og ÍAV-Ármannsfell-
Securitas buðu 130,548 m.kr. í
byggingarkostnað.
Sigurður sagði að næsta
skref í málinu yi*ði að fara nán-
ar yfir tilboðið áður en ákvörð-
un yrði tekin en að því væri
stefnt að ganga til samninga
við þann aðila, sem fékk hæstu
einkunn. Bærinn ætlar sér 6
vikur til að fara yfir tilboðin.
Stefnt er að því að fyrsti
áfangi skólans verði tilbúinn
haustið 2001 og skólinn verði
fullbúinn 2002. í skólanum
verða 2 bekkjardeildir í hverj-
um árgangi en möguleiki á
þremur deildum í yngstu
bekkjum. Nemendur verða
400-500 talsins.
fstak og Nýsir buðu
lægst í leikskóla
I gær voru einnig opnuð til-
boð í einkaframkvæmd við
byggingu og rekstur fjögurra
deilda leikskóla fyrir 90 börn
við Háholt í Hafnarfirði. Út-
boðið var miðað við verðlauna-
teikningu Albínu Thordarson
frá því í samkeppni á síðasta
ári og er verkfræðihönnun
hússins lokið.
Þrjú tilboð bárast að loknu
forvali.
ístak og Nýsir buðu sam-
eiginlega 21,1 m.kr. FM-hús
ehf. buðu 23 m.kr. Byggða-
verk hf. og Hjallastefnan ehf.
buðu 37,8 m.kr. sameiginlega.
Kostnaðaráætlun var um 18,5
m.kr. og segir Sigurður frávik
frá kostnaðaráætiun skýrast
af því að áætlanagerð var ekki
jafnnákvæm og ef bærinn
hefði haft í huga að byggja
húsið sjálfur.
Skólinn er fullhannaður og
tiiboðin miðast við að aðili
byggi og eigi leikskólann en
bærinn greiði leigu í 25 ár.
Byggingaraðilinn sjái jafn-
framt um viðhald húsnæðis og
lóðar, þrif, öryggisgæslu,
sorphh’ðu og fleira. Tilboðin
verða nú yfirfarin og send
bæjaryfiivöldum til ákvörðun-
ar en stefnt er að því að taka
leikskólann í notkun í desem-
ber árið 2000.