Morgunblaðið - 17.12.1999, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Miklar gengishækkanir á hátæknifyrirtækjum á Norðurlöndunum
Allt að
500% verð-
hækkun
Gengi hátæknifyrirtækja á Norðurlöndum,
einkum í Svíþjóð, hefur hækkað mjög ört á
undanförnum vikum. Dæmi eru um að
gengi sænskra netfyrirtækja hafí hækkað
um allt að 500% á nokkrum vikum,
skrifar Bragi Smith. Nokkur stærstu
ráðgj afarfyrirtæki á sviði netþjónustu
. ■ —— 7
heimsins eru á Norðurlöndum. A undan-
förnum 6 mánuðum hefur markaðsverð-
mæti þessara ráðgjafarfyrirtækja
í Svíþjóð hækkað margfalt.
Allt frá
því 6
stærstu net-
fyrirtækin
(Adera, Cell Network,
Connecta, Framfab,
Icon Medialab og In-
formation Highway)
birtu afkomutölur
fyrstu 9 mánuði ársins
hefur gengi þeirra
hækkað um nærri
100%. Nokkrar ástæð-
ur liggja að baki þess-
um hækkunum. Gengi
fyrirtækja innan sama
geira í Bandaríkjunum
hefur hækkað mikið
sem hefur leitt til gengishækkunar í
Svíþjóð. Þessi sænsku fyrirtæki eru í
stöðugri sókn bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum og hafa m.a. yflrtek-
ið fyrirtæki á heima-
markaði til að efla sókn
inn á markaði utan
Norðurlandanna. Ein
meginástæðan fyrir
þessari miklu gengis-
hækkun er aukin eftir-
spurn eftir þjónustu í
þessari nýju ört vax-
andi atvinnugrein.
Þróun nettenginga á
árunum1999-2003
Spáð er 100% meðal-
vexti á netfyrirtækjum
í heiminum milli ára-
nna 1999-2003. Til þess
að ná árangri á alþjóða-
vettvangi leggja fyrirtæki sífellt
meiri áherslu á Netið. Samkvæmt
könnun International Data Corpora-
tion (IDC), verður vöxtur netteng-
Bragi Smith
_ tt
Tríumfih
jókundíríöt
írá
AGUSTARMANNhf
UMBOOS- 06 HEIIDVBRSIUN
SUNUABCWCi 84 - HKWJAVti
KYNNING
í das frá kl. 14-19 1
snyrtivöruversluninni
Söndru
Fjármunir til þróunar
Netsins árið 1998
Hlutfall af vergri landsframl.
SVÆÐI 0 1% 2% 3% 4% 5%
Bandaríkin
— T !
Svíþjóð
Bretland
Noregur
Finnland Japan
j i
Þýskaland r
ftalía Spánn g
I I
Heimild: EITO 1999
Fjármunir til þróunar
Netsins árið 1998
Evmr á mann
SVÆÐI 0 200 400 600 800 1.000 1.200
Bandaríkin
V-Evrópa
Sviss
Danmörk
Svíþjóð
Noregur
Japan
Bretland
Finnland
Þýskaland
Italía
Spánn
Heimild: EITO 1999
Hlutfali netnotenda
á nokkrum svæðum
Banda-
ríkin
Evrópa
33%
Finnland ISEá "f A''*' 141 %
Svíþjóð ir . 28%
Þýskaland 12%
ítalia t]4%
Heimild: eStats 1999
DEMANTAHUSIÐ
Nýju Kringlunni, sími 588 9944
Fjöldi netnotenda
og spá fram tii 2003
IM-fi N-Ameríka I I Asia/Kyrrah.svæði
laaa Evrópa IM Önnur svæði jarðar
350 milljónir
300
250
200
150
100
1998 1999 2000 2001 2002 2003
________________spá spá spá spá
Heimildir: eSlals 1999, Camegie fíesearch
inga mestur í Evrópu, eða 60% á
næstu 2-3 árum. Bandaríska grein-
ingarfyrirtækið eStats (www.emai-
keter.com) hefur sérhæft sig í grein-
ingu á netmarkaðnum og hefur sagt
fyrir um þróun hans um allan heim.
Samkvæmt spám eStats voru 95
milljónir manna tengdar Netinu árið
1998. Spáð er að 350 milljónir manna
verði nettengdar árið 2003 (sjá mynd
1). Þó svo að aðeins 5% mannkyns
búi í Bandaríkjunum er þar að finna
50% af öllum þeim sem tengdir eru
Netinu. í Bandaríkjunum er mark-
aðurinn smám saman að mettast og
er talið að á næstu árum verði vöxt-
urinn mestur í Evrópu og Asíu. Til
samanburðar má geta þess að í dag
hafa u.þ.b. 80% Islendinga aðgang
að Netinu. Nú þegar eru netnotend-
ur á íslandi, Finnlandi og í Svíþjóð
fleíri en í Bandaríkjunum ef miðað er
við höfðatölu (sjá mynd 2).
IDC telur að netmarkaðurinn hafi
verið metinn á 2.500 milljarða doll-
ara árið 1996 en spáð er að þessi tala
verði komin í 43.600 milljarða dollara
árið 2002. í dag eru Norðurlöndin
fremst í heiminum hvað varðar áskr-
ift að Netinu og netverslun. Ástæður
þess eru nokkrar. Nettenging á
Norðurlöndunum er talsvert ódýrari
en í öðrum Evrópuiöndum. Fjars-
kiptakerfi á Norðurlöndum eru í
fremstu röð í heiminum og notkun sí-
mtækja, t.d. GSM-síma, eykst dag
frá degi. Til dæmis er GSM-sími á
85% finnskra heimila.
Árið 1998 eyddu Norðurlöndin
TTÍemantafiúsid
Urval jólagjafa
Stórliöfóa 17, við Gullinbrú,
simi 567 4844.
www.flis(í/''flis.is • nctfang: flis(í/'itn.is
meiri fjármunum í þróun Netsins, ef
miðað er við höfðatölu, en önnur lönd
í Evrópu, fyrir utan Sviss (sjá mynd
3). í bæði Bandaríkjum og Sviss hafa
bankar og aðrar stórar fjármála-
stofnanir lagt mikla fjármuni í upp-
byggingu Netsins, enda eru netfyrir-
tæki í þessum löndum með þeim
fremstu í heiminum. Svíþjóð sker sig
úr hvað varðar fjárfestingar í Net-
inu. Á árínu sem senn er að ljúka
vörðu Svíar meiri fjármunum í Netið
sem hlutfall af vergri þjóðarfram-
leiðslu en nokkur önnur þjóð, utan
Bandaríkjanna (sjá mynd 4). Tölvu-
eign er algengari á Norðurlöndum,
en í öðrum löndum Evrópu. Það má
m.a. rekja til þess að í Svíþjóð voru
álögur á tölvur lækkaðar árið 1998
og í framhaldinu jukust tölvukaup til
muna. Svipaðrar þróunar hefur einn-
ig gætt í Danmörku og Noregi á
þessu ári.
Gengi netfyrirtækja
margfaldast i Svíþjóð
Flestir fjármálasérfræðingar eru
sammála um að erfitt sé að meta
virði netfyrirtækja. Formúlur á borð
við A/H-, V/E- og V/H-hlutfall gefi
ekki lengur rétta mynd af gengi fyr-
irtækjanna og beita verði öðrum ráð-
um til að finna hið raunverulega
virði. Sérfræðingar hafa velt fyrir
sér þróun Netsins og hvert netmark-
aðurinn á Norðurlöndum stefnir.
Undanfarna tvo mánuði hefur gengi
flestra netfyi'irtækja á sænska
hlutabréfamai’kaðinum hækkað
margfalt. T.d. hafa sex þau stærstu
hækkað úr 15 milljörðum sænskra
króna í 30 milljarða króna á örfáum
vikum. Á sama tíma og sænsk fyrir-
tæki keyptu upp önnur fyrirtæki í
Evrópu til að komast inn á fleiri
markaði, hækkaði verðmæti sams-
konar fyrirtækja í Bandaríkjunum.
Margir helstu fjölmiðlar í Svíþjóð
greindu frá því í þyrjun nóvember að
gengi helstu netfyrirtækja landsins,
s.s. Adera, Cell Network, Connecta,
Framfab, Icon Medialab og Infor-
mation Highway, væri lægra en
samskonar fyrirtækja í Bandaríkj-
unum. Þetta hefur orðið til þess að
gengi sænsku fyrirtækjanna hefur
hækkað mikið. Þannig var gengi á
hlutabréfum Icon Medialab 104
sænskar krónur um miðjan nóvem-
ber á síðasta ári en er yfir 1.300
krónur í dag. Eins var gengi hluta-
bréfa Connecta í kringum 100
sænskar ki’ónur í byrjun október en
var 320 í byrjun þessa mánaðar.
Þegar borin eru saman sænsk og
bandarísk netráðgjafarfyrirtæki
kemur í ljós að markaðsverðmæti
þeirra amerísku er hærra. Ástæða
þess er einfaldlega sú að heima-
markaður í Bandaríkjunum er mun
stærri. Samkeppni er álíka eða jafn-
vel meiri í Bandaríkjunum en á móti
kemur að kostnaður er minni. Mark-
aðssókn sænsku fyrirtækjanna er
kostnaðarsöm, m.a. yfirtökur fyrir-
tækja á nálægum mörkuðum, og
kostnaður þeirra því mun meiri en
hjá samskonar fyrirtækjum í Banda-
ríkjunum. Áðumefnd sex sænsk
netráðgjafarfyrirtæki hafa aðeins
verið skráð á hlutabréfamarkaði í
rúmt ár að meðaltali. Á sama tíma og
gengi hlutabréfanna hefur margfald-
ast hafa sum þessara fyrirtækja átt í
rekstrarerílðleikum. Icon Medialab
hefur t.d. tilkynnt að endurskipu-
leggja þurfi hluta starfseminnar á
þessu ári til að fylgja eftir stefnu fyr-
irtækisins.
Aukin hætta
Margir telja að þróun Netsins sé
rétt að byrja og vöxturinn verði mjög
hraður næstu árin. Hröðust verði
þróunin í Evrópu og Asíu þar sem
markaðir í þessum heimsálfum geti
lært af mistökum markaðarins í
Bandaríkjum. Hraður vöxtur þess-
ara fyrirtækja felur hinsvegar í sér
meiri áhættu. Áhættan felst einkum
í því að þessi fyrirtæki komist ekki
nógu hratt inn á nálæga markaði og
nái ekki að ráða nógu hæft starfs-
fólk. Ein mesta áhættan er að fyrir-
tækin missi af framtíðarsýn vegna
örs vaxtar á þessum markaði. Það
verður að teljast líklegt að sum net-
fyrirtæki á Norðurlöndum muni ekki
standast samkeppnina og leggja upp
laupana. Önnur fyrirtæki munu aft-
ur á móti ná inn á alla helstu markaði
og verða í fremstu röð í heiminum.
Hvert verður framhaldið?
Að undanförnu hafa flest netráð-
gjafarfyrirtæki í Svíþjóð yfirtekið
fjölda samkeppnisaðila í Evrópu.
Stjórnendur fjögurra þessara fyrir-
tækja; Icon Medialab, Framfab, Cell
Network og Adera, hafa sagt að eftir
fáein ár muni aðeins fimm stór fyrir-
tæki stjórna heimsmarkaðnum. Þrjú
þessara fyrirtækja telja sig verða
meðal þeiira stærstu.
Margir telja að þessi mikli vöxtur
taki enda innan skamms og að gengi
hlutabréfanna muni lækka. Á sama
tíma og fjárfestar í netgeh’anum
hafa margfaldað fé sitt hefur al-
menningur deilt á lífeyrissjóði í Sví-
þjóð sem fæstir hafa fjárfest í há-
tæknifyrirtækjum. í enda hvers árs
verða stjórnendur lífeyrissjóða í Sví-
þjóð að greina frá því í hvaða fyrir-
tækjum þeir fjárfestu fyrii* almenn-
ing. Það kemur þess vegna ekki á
óvart að þessir sömu sjóðsstjórar
hafa undanfarið keypt hlutabréf í
þessum tæknifyrirtækjum. Það hef-
ur orðið til þess að hlutabréfin halda
áfram að hækka enda hafa lífeyris-
sjóðirnir yfir miklu fjármagni að
ráða.
Þegar álíka þróun átti sér stað í
Bandaríkjunum fyrir fáum árum, þ.e
gengi hlutabréfa í tæknifyrirtækjum
margfaldaðist á skömmum tíma, var
meðalaldur fjárfesta lágur. Sama
þróun hefur einnig orðið í Svíþjóð. I
dag kaupa eldri fjárfestar hlutabréf í
tæknifyrirtækjum í síauknum mæli
og það eykur enn á eftirspurn og
gengishækkanir.
Flestir helstu fjármálasérfræð-
ingar í Evrópu eru sammála um að
hagvöxtur verði hærri á Norður-
löndunum en í öðrum löndum
Evrópu á allra næstu árum. Spáð er
4% hagvexti í Svíþjóð árið 2000.
Einnig er spáð skattalækkun á
næsta ári sem talið er að muni hafa
mikil áhrif á hlutabréfamarkaðinn
þar í landi. Vegna þess hve vöxtur
þessara fyrirtækja hefur verið ör má
færa fyrir því rök að gengishækkan-
ir í netfyrirtækjum bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum að undanförnu séu
réttlætanlegar og viðbúið sé að
gengi hlutabréfa haldi enn áfram að
hækka.
Höfundur er sérfræðingur í erlend-
um hlutabréfuni hjá Verðbréfastof-
unni hf.