Morgunblaðið - 17.12.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. DÉSEMBER 1999 ' 29
ERLENT
Mannréttindadómstóll Evrópu um bresku
drengina sem myrtu James Bulger
Fengu ekki réttláta
málsmeðferð
jrt of Human Rights
~>f Europe
Cour eu
Reuters.
Tveir fulltrúar breskra stjórnvalda hlýddu á er forseti Mannréttinda-
dómstóls Evrópu, Luzius Wildhaber, las upp úrskurðinn.
Strassborg. AP.
MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL
Evrópu úrskurðaði í gær að mál
tveggja breskra drengja, sem voru
dæmdir fyrir morð 1993 er þeir voru
11 ára gamlir, hefði ekki fengið eðli-
lega og réttláta meðferð. Fyrir
Breta þýðir dómurinn, að þeir verða
að gera ýmsar breytingar á réttar-
venjum sínum.
í úrskurði Mannréttindadómstóls-
ins segir að sú ákvörðun þáverandi
innanríkisráðherra Bretlands að
hækka lágmarksrefsinguna úr átta
ára fangelsi í 15 ára fangelsi hafi
brotið gegn réttindum Roberts
Thompsons og Jons Venables en
þeir voru 11 ára gamlir 1993 er þeir
voru dæmdir fyrir að myrða James
Bulger, tveggja ára gamlan dreng.
Auk þess segii-, að það hljóti að hafa
verið „óskiljanlegt og yfirþyrmandi"
fyrir 11 ára gamla drengi að vera yf-
irheyrðir í rétti, sem ætlaður er full-
orðnu fólki. Með því hafl verið brotið
á rétti þeirra á sanngjarnri máls-
meðferð.
Refsivald ráðherra
afnumið?
I úrskurði Mannréttindadómstóls-
ins, sem Bretar eru aðilar að, er
dómurinn yfir þeim Thompson og
Venables ekki ómerktur en líklegt
er, að hann muni neyða bresk stjórn-
völd til að breyta ýmsum réttarvenj-
um, t.d. þeirri, að ráðherra geti
ákveðið refsingu fólks undir lögaldri,
og einnig því, að fjallað skuli um
börn í rétti fyrir fullorðna.
Þeir Thompson og Venables voru
dæmdir fyrir að hafa leitt James
Bulger, tveggja ára gamlan, burt úr
verslunarmiðstöð og að járnbrautar-
teinum í þriggja km fjarlægð þar
sem þeir drápu hann. Þótti glæpur-
inn svo skelfilegur, að rétt þótti að
taka hann fyrir í rétti fyrir fullorðna.
Mannréttindadómstóllinn efast
líka um, að drengirnir hafi haft þá
lagalegu aðstoð, sem þeir þurftu,
enda ekki líklegt, að þeir, aðeins
böm að aldri, „óþroskaðir og tilfinn-
ingalega heftir", hafi verið færir um
að tjá sig við lögfræðingana í ein-
rúmi, hvað þá í yfirfullum réttarsal.
Lögfræðingar Thompsons og
Venables fögnuðu úrskurði Mann-
réttindadómstóisins en sögðu, að
hann hefði ekki komið á óvart.
Þeir Thompson og Venables eru
nú 17 ára gamlir en úrskurður
Mannréttindadómstólsins getur
þýtt, að upphafleg lágmarksrefsing,
átta ára fangelsi, verði nú látin taka
til þeirra í stað 15 áranna, sem ráð-
herrann ákvað. Þeim yrði þá sleppt
fljótlega.
Denise Fergus, móðir James Bul-
gers, kvaðst í gær vera mjög von-
svikin með úrskurð Mannréttinda-
dómstólsins.
Afl til að breytast
Athyglisverð bók sem minnir mann
á að það er þrennt sem skiptir höfuð
máli til að ná árangri í lífinu; skipulag,
sjálfsagi og markmið .
Linda Pétursdóttir
HVlTTfíLSVÍflT
tiannun fU^^prentun
Breyttu hugsun þinni - breyttu líkama þínum - breyttu lífi þínu