Morgunblaðið - 17.12.1999, Page 30
I
rg weiHNHM'jRnn ti iittoaoutpö'j ntfi/ rw,OM
30 FÖSTUDÁGUR 17. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Monica Lewinsky ber vitni í réttarhöldum yfír Lindu Tripp
„Þetta skelfdi mig“
Ellicott City í Maryland-ríki. AP.
MONICA Lewinsky bar í gær fyrir
! rétti að hún hefði orðið skelfd þegar
I hún sá fyrstu fréttina þar sem vitn-
| að var í innihald samtala hennar við
Lindu Tripp um Bill Clinton forseta
; sem sú síðarnefnda tók upp á laun.
„Eg var alveg miður mín,“ sagði
Lewinsky, Hvíta húss-lærlingurinn
i fyrrverandi, við upphaf vitnisburð-
ar síns fyrir dómi í máli sem háð er
\ gegn Tripp fyrir að brjóta lög með
| hinum leynilegu upptökum.
„Mér varð það strax ljóst að þetta
kom úr trúnaðarsamtölum sem ég
hafði átt við Lindu Tripp,“ svaraði
Reuters
Monica Lewinsky yfirgefur dómhúsið, þar sem hún bar vitni
í dómsmálinu gegn Tripp í gær.
Lewinsky þegar saksóknari spurði
hana um hvað henni hefði fundizt
þegar hún sá fyrst eigin orð prent-
uð í Newsweek fyrir tveimur árum.
„Þetta skelfdi mig,“ sagði Lew-
insky.
Þegar rannsókn óháða
saksóknarans Kenneths Starrs á
málum Clintons forseta tók að
vinda upp á sig á síðasta ári lauk
Lewinsky vitnisburði sínum fyrir
kviðdómi með orðunum: „Eg hata
Lindu Tripp.“ Nú hefur hún tæki-
færi til að ná sér niðri á þessari
fyrrverandi vinkonu sinni.
Heilnæm-
ir drykkir
Bonds
KANADÍSKIR vísindamenn
við Western Ontario-háskólann
hafa kannað hollustuáhrif
áfengis og segja að hófdrykkja
virðist draga úr hættunni á
æðasjúkdómum, hjartaslagi og
vagli á auga. Geti ástæðan verið
að í áfengi er efni sem „drekk-
ur“ í sig súrefnishlaðnar sam-
eindir er geta skaðað frumur og
valdið sjúkdómum.
Þeir könnuðu mismunandi
áhrif hristra og hrærða Martini-
kokkteila en sem kunnugt er
drekkur hin fræga njósnahetja
James Bond ávallt hristan
Martini. Reyndist hristur
kokkteill hafa meiri hollustu-
áhrif. Gæti það verið skýringin
á því að Bond er alltaf eins og
rúmlega fertugur maður í góðu
líkamsástandi þótt hann sé nú
orðinn 75 ára gamall, ef marka
má sögur Ians Flemings.
Geta svarað
kjamaárás
INDVERJAR sögðust í gær
vera færir um að endurgjalda
kjarnorkuárás af hálfu Pakist-
ana ef til hennar kæmi. George
Femandes varnarmálai'áð-
herra sagði ljóst að Pakistanar
réðu ekki aðeins yíir kjamorku-
vopnum heldur einnig eldflaug-
um. Jaswant Singh, utanríkis-
ráðherra Indlands, sagði á
miðvikudag að Pakistanar
hefðu notið aðstoðar Norður-
Kóreumanna og Kínverja við
smíði langdrægra eldflauga.
Biður um fé
til Kosovo-
starfa
BERNARD Kouchner, yfir-
maður borgaralegrar aðstoðar
alþjóðasamfélagsins í Kosovo,
hvatti í gær aðildarríki Atlants-
hafsbandalagsins og samstarfs-
ríki þeirra til að veita aukið fé til
að vinna að friði í héraðinu.
Kom þetta fram er hann ræddi
við fréttamenn í Brassel í
tengslum við fund utanríkisráð-
herra NATO.
Kouchner sagði að þörfin
væri geysilega mikil, án aukins
fjár yrði ekki hægt að koma aft-
ur á eðlilegu lífi í Kosovo. Eink-
um skorti peninga til að greiða
opinbemm starfsmönnum,
kennumm og lögi’eglumönnum
laun.
Vill hraða
dómsupp-
kvaðningu
Upplýsingamálaráðherra ír-
ans, Ali Yunesi, hvatti í gær til
þess kveðinn yrði sem fyrst upp
sanngjarn dómur í máli Þjóð-
veijans Helmuts Hofers sem er
í haldi í landinu, nú sakaður um
að hafa móðgað fangelsisvörð.
Hofer var fyrst handtekinn árið
1997 og sakaður um að hafa ver-
ið í ástarsambandi við innlenda
konu. Var hann dæmdur til
dauða en dóminum breytt og
hann látinn greiða um eina og
hálfa milljón króna sekt.
Hofer á að koma fyrir rétt 20.
janúar og um sama leyti verður
í Berlín réttað í máli írana sem
sakaður er um að hafa njósnað
um útlæga, íranska stjómar-
andstæðinga í Þýskalandi.
r