Morgunblaðið - 17.12.1999, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 17.12.1999, Qupperneq 30
I rg weiHNHM'jRnn ti iittoaoutpö'j ntfi/ rw,OM 30 FÖSTUDÁGUR 17. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Monica Lewinsky ber vitni í réttarhöldum yfír Lindu Tripp „Þetta skelfdi mig“ Ellicott City í Maryland-ríki. AP. MONICA Lewinsky bar í gær fyrir ! rétti að hún hefði orðið skelfd þegar I hún sá fyrstu fréttina þar sem vitn- | að var í innihald samtala hennar við Lindu Tripp um Bill Clinton forseta ; sem sú síðarnefnda tók upp á laun. „Eg var alveg miður mín,“ sagði Lewinsky, Hvíta húss-lærlingurinn i fyrrverandi, við upphaf vitnisburð- ar síns fyrir dómi í máli sem háð er \ gegn Tripp fyrir að brjóta lög með | hinum leynilegu upptökum. „Mér varð það strax ljóst að þetta kom úr trúnaðarsamtölum sem ég hafði átt við Lindu Tripp,“ svaraði Reuters Monica Lewinsky yfirgefur dómhúsið, þar sem hún bar vitni í dómsmálinu gegn Tripp í gær. Lewinsky þegar saksóknari spurði hana um hvað henni hefði fundizt þegar hún sá fyrst eigin orð prent- uð í Newsweek fyrir tveimur árum. „Þetta skelfdi mig,“ sagði Lew- insky. Þegar rannsókn óháða saksóknarans Kenneths Starrs á málum Clintons forseta tók að vinda upp á sig á síðasta ári lauk Lewinsky vitnisburði sínum fyrir kviðdómi með orðunum: „Eg hata Lindu Tripp.“ Nú hefur hún tæki- færi til að ná sér niðri á þessari fyrrverandi vinkonu sinni. Heilnæm- ir drykkir Bonds KANADÍSKIR vísindamenn við Western Ontario-háskólann hafa kannað hollustuáhrif áfengis og segja að hófdrykkja virðist draga úr hættunni á æðasjúkdómum, hjartaslagi og vagli á auga. Geti ástæðan verið að í áfengi er efni sem „drekk- ur“ í sig súrefnishlaðnar sam- eindir er geta skaðað frumur og valdið sjúkdómum. Þeir könnuðu mismunandi áhrif hristra og hrærða Martini- kokkteila en sem kunnugt er drekkur hin fræga njósnahetja James Bond ávallt hristan Martini. Reyndist hristur kokkteill hafa meiri hollustu- áhrif. Gæti það verið skýringin á því að Bond er alltaf eins og rúmlega fertugur maður í góðu líkamsástandi þótt hann sé nú orðinn 75 ára gamall, ef marka má sögur Ians Flemings. Geta svarað kjamaárás INDVERJAR sögðust í gær vera færir um að endurgjalda kjarnorkuárás af hálfu Pakist- ana ef til hennar kæmi. George Femandes varnarmálai'áð- herra sagði ljóst að Pakistanar réðu ekki aðeins yíir kjamorku- vopnum heldur einnig eldflaug- um. Jaswant Singh, utanríkis- ráðherra Indlands, sagði á miðvikudag að Pakistanar hefðu notið aðstoðar Norður- Kóreumanna og Kínverja við smíði langdrægra eldflauga. Biður um fé til Kosovo- starfa BERNARD Kouchner, yfir- maður borgaralegrar aðstoðar alþjóðasamfélagsins í Kosovo, hvatti í gær aðildarríki Atlants- hafsbandalagsins og samstarfs- ríki þeirra til að veita aukið fé til að vinna að friði í héraðinu. Kom þetta fram er hann ræddi við fréttamenn í Brassel í tengslum við fund utanríkisráð- herra NATO. Kouchner sagði að þörfin væri geysilega mikil, án aukins fjár yrði ekki hægt að koma aft- ur á eðlilegu lífi í Kosovo. Eink- um skorti peninga til að greiða opinbemm starfsmönnum, kennumm og lögi’eglumönnum laun. Vill hraða dómsupp- kvaðningu Upplýsingamálaráðherra ír- ans, Ali Yunesi, hvatti í gær til þess kveðinn yrði sem fyrst upp sanngjarn dómur í máli Þjóð- veijans Helmuts Hofers sem er í haldi í landinu, nú sakaður um að hafa móðgað fangelsisvörð. Hofer var fyrst handtekinn árið 1997 og sakaður um að hafa ver- ið í ástarsambandi við innlenda konu. Var hann dæmdur til dauða en dóminum breytt og hann látinn greiða um eina og hálfa milljón króna sekt. Hofer á að koma fyrir rétt 20. janúar og um sama leyti verður í Berlín réttað í máli írana sem sakaður er um að hafa njósnað um útlæga, íranska stjómar- andstæðinga í Þýskalandi. r
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.