Morgunblaðið - 17.12.1999, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FANGAPRESTUR
SEGIR FRA
|| Einstök sjálfsævisaga séra Jóns
Bjarmans. Dómur lesenda: „Ber-
: orð, skemmtileg, eftirminnileg og
fjfa frábærlega vel skrifuð." Séra Jón
' 1 var fangaprestur í Geirfinnsmál-
inu, sem sjúkrahúsprestur
JSj líknaði hann sjúkum, í Laufási
Y í Eyjafirði stundaði Jón fjár-
búskap og vestan hafs gætti
iyi; hann sálna.
Einstök bók, um einstakan
K N*::,.' mann.
■EK' ATAKANLEG
DAGBÓK UNGLINGS
Dagbók Anne Frank tilheyrir heims-
bókmenntunum. Nú í fyrsta sinn
óstytt á íslandi. Einlæg og sönn saga
ungrar stúlku sem lýsir vaxandi
áhuga hennar á hinu kyninu, j
baráttunni við að verða fúllorðin
og vaxandi einsemd tánings í fári
heimsstyrjaldar.
„Óhætr er að scgja að öllum sc hollt að lcsa
dagbók Anne Frank.“ Hávar Sigurjónsson,
Morgunblaðið 7. desember 1999. f
Dagbók Anne Frank lætur
engan ósnortinn.
Bók eftir íslenskan næringarfræðing
Ólaf G. Sæmundsson, sniðin að
íslenskum staðháttum fyrir alla þá
sem vilja lifa betra lífi í sátt við
líkama sinn.
Lífsþróttur er ómissandi öllum er
vilja ástunda heilbrigða lífshætti.
Þetta er einfalt: Ef þér stekkur ekki
bros við lestur þessara gamansagna af
íslenskum aJþingismönnum þá ætla
Jón og Guðjón að éta hattinn sinn.
Og gleymdu ekki að lesa blaðsíðu Jj
26, þar er að finna besta húmor
íslendings - Jón Baldvin kemur á
óvart og Davíð hnýtur enn og
aftur um Bermúda-skálina. Af J
hverju sparkaði Árni Johnsen ®S8
í rassinn á Össuri?
Unglingar, hér er hún metsölubókin
erlendis. Mögnuð draugasaga um
tvíbura sem gæddir eru miðilshæfi-
i leikum.
I „!>ýðing Ásdísar er mjög góð.... Sannkölluð
■ spennubók.“Sigurður Haukur,
g& Morgunblaðið 16. nóvember 1999.
Dans hinna dauðu,
unglingabókin í ár.
Metsölubók í sínum flokki og gefur hinum
tveimur ekkert eftir. Frábær kveðskapur,
klúr og fyndinn, snjail og eftirminnilegur.
BOKAUTGAFAN HOLAR
tjyggif þér ogþínutn góð bókajól - Gleðileg jóL
JÖRFABAKKA 24, REYKJAVÍK, . BYGGÐAVEGI 101 B, AKUREYRI
SÍMI 557 9215. SÍMI 462 2515.
2. PREN’TUN KOMIN
LOKSINS LOKSINS
2. PRF.NTUN UPPSELD
ERLENT
Tillögur um aflaheimildir imian ESB á næsta ári
40% niðurskurður
London, Brussel. Reuters.
FASTLEGA er búist við því að sjáv-
arútvegsráðherrar Evópusambands-
ríkja muni í dag samþykkja tillögur
framkvæmdastjómar ESB um stór-
felldan niðurskurð á aflaheimildum
fyrir árið 2000. Þess er vænst að nið-
urskurðurinn verði að meðal tali 40 af
hundraði miðað við þær heimildir
sem samþykktar voru fyrir þetta ár.
Samtök fiskimanna í Bretlandi
lýstu í gær áhyggjum af minnkandi
tekjum og hærra fiskverði nái tillög-
ur framkvæmdastjórnarinnar fram
að ganga. Lögðu samtökin til að nið-
urskurðurinn fyrir næsta ár yrði
helmingi minni en framkvæmda-
stjórnin hefur mælt með.
Framkvæmdastjórnin byggir til-
lögur sínar á ráðleggingum vísinda-
manna Alþjóða hafrannsóknastofn-
unarinnar (ICES). Gengið er nokkru
skemur í niðurskurðinum en vísinda-
menn höfu mælt með en í fréttatil-
kynningu framkvæmdastjórnarinnar
segir að í tveimur tilvikum hafi ekki
verið álitið ráðlegt að fara fram úr
því aflamagni sem vísindamennirnir
ráðlögðu. Ohjákvæmilegt sé talið að
draga venilega úr þorskveiðum í Ir-
landshafi og verða engar beinar veið-
ar á þorski heimilaðar þar á næsta
ári. Einungis verður leyft að veiða
1.700 tonn af þorski í írlandshafi og
er það magn það sem áætlað er að
veiðist með öðrum afla á svæðinu.
Einnig er í tillögunum dregið mikið
úr veiðum á ansjósum í Biskaí-flóa.
I fréttatilkynningu framkvæmda-
stjórnarinnar segir að ljóst sé að til-
lögumar muni ekki verða vinsælar
meðal fiskimanna en að niðurskurð-
urinn sé nauðsynlegur til að tryggja
skynsamlega nýtingu fiskistofna.
Veiðiheimildir fiskiskipaflota ESB
hafa minnkað ár frá ári en ákvörðun
ráðherraráðsins hefur jafnan farið
fram úr því magni sem framkvæmda-
stjómin hefur lagt til.
Kína - Bandaríkin
Samkomulag
um bætur
Blocher ekki
ráðherra í Sviss
Bern. AFP.
SVISSNESKI þjóðarflokkurinn,
sem vann mikið á í kosningunum í
haust, fékk ekki annað ráðherra-
embætti í ríkisstjórninni eins og
hann hafði þó vonað. Meirihluti þing-
manna kaus að hafa á sömu skipan
og verið hefur sl. 40 ár.
Er þessi niðurstaða mikil von-
brigði fyrir auðkýfinginn Christoph
Blocher, leiðtoga flokksins, en flokk-
urinn var sá minnsti fyrir kosning-
arnar en sá stærsti að þeim loknum.
Vora helstu stefnumálin andstaða
við Evrópusambandið, Sameinuðu
þjóðirnar og innflytjendur.
í Sviss hefur setið samsteypu-
stjóm fjögurra flokka um langan
aldur, allt frá 1959, og ákvað mikill
meirihluti þingsins, að ráðherrar síð-
ustu stjórnar, sjö að tölu, skyldu
gegna embættunum áfram. Þrír
stóm flokkarnir, sem áður vom, hafa
tvo menn hver en Þjóðarflokkurinn
einn. Fulltrúi hans er Adolf Ogi og
fer hann nú með varnar- og íþrótta-
mál.
Sigur Svissneska þjóðarflokksins í
kosningunum í haust, hann fékk 23%
atkvæða, vakti mikla athygli og
nokkrar áhyggjur jafnt utan lands
sem innan, ekki síst vegna þess, að
hann kom á hæla sigurs hins hægri-
sinnaða Frelsisflokk Jörg Haiders í
Austurríki.
Peking. AP.
BANDARÍSK stjómvöld hafa fallist
á að greiða Kínverjum rúmlega tvo
milljarða ísl. kr. í bætur fyrir árásina
á kínverska sendiráðið í Belgrad. Þá
mun Kínastjóm bæta fyrir þær
skemmdir sem unnar vom á banda-
ríska sendiráðinu og ræðismanns-
skrifstofum í Kína. Er þar um að
ræða 212 millj. kr.
Aður hefur Bandaríkjastjóm
greitt nærri 300 millj. kr. til ættingja
kínversku blaðamannanna þriggja,
sem létust í árásinni, og til 27 ann-
arra manna, sem slösuðust mismikið.
Hafa Bandaríkjamenn ávallt hald-
ið því fram, að árásin hafi verið mis-
tök en á það hafa Kínverjar aldrei
fallist.