Morgunblaðið - 17.12.1999, Page 33

Morgunblaðið - 17.12.1999, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999 33 Fjarar undan John Prescott innan breska Verkamannaflokksins Seinheppinn vara- leiðtogi í vanda UMSKIPTIN í stefnu Verkamanna- flokksins breska síðustu árin undii- forystu Tony Blairs hafa ekki gengið átakalaust fyrr sig. Er hann var kjörinn leiðtogi varð mörgum hefð- bundnum vinstrimanninum um og ó og leist ekki á tal nýja leiðtogans um markaðsvæðingu og endurskoðun ííkisumsvifa. En ein af tryggingunum sem vinstrimenn höfðu fyrir því að haft yrði taumhald á hægrihneigð nýju forystunnar var John Prescott. Þegar flokkurinn myndaði stjórn varð hann varaforsætisráðherra og fékk auk þess ráðuneyti samgöngu- mála, umhverfismála og svæðis- bundinna málefna eins og borga- skipulags í sinn hlut. Nú þykir margt benda til þess að hann sé smám saman að missa völd sín og áhrif í flokknum, verið sé að ýta honum út á jaðarinn. A mánu- daginn tók einn af dyggum stuðn- ingsmönnum Blairs, Macdonald lá- varður, í reynd við daglegri stjórn samgöngumálanna, samtímis var kynnt 10 ára áætlun um endurbætur á samgöngukerfmu er kosta á allt að 100 milljarða punda. Macdonald hef- m- að sögn heimildarmanna gegnt þessu starfi í reynd en samt sem áð- ur þykir ljóst að um álitshnekki sé að ræða fyrir Prescott. Átti að auka áhrif Prescotts Stjórnarliðar sögðu hins vegar að skipulagsbreytingin hefði verið lengi á döfinni og Prescott hefði varið „meiri tíma en hann teldi æskilegt“ í samgöngumálin. Heimildamienn benda einnig á að Verkamannaflokk- urinn hafi gert mistök þegar ráðu- neytin þrjú voru sameinuð á einni hendi til að auka áhrif Prescotts í stjórninni 1997 og friða þannig vinstriarminn. Varaforsætisráðhen'ann hefur að undanförnu sætt harðri gagnrýni stjórnarandstöðunnar sem sakar hann um að bera ábyrgð á umferðar- öngþveiti á vegunum og lélegum járnbrautasamgöngum. En að sögn vikuritsins The Economist eru tillög- ur íhaldsmanna illa grundaðar, þeir eru m.a. sagðir mæla með því að um- ferð einkabíla á mestu álagsvegun- um verði beint yfu- í kerfi almanna- samgangna sem þegar sé ofhlaðið. Sjálfur hefur Prescott lagt áherslu á að draga úr mengun, stuðla að notkun nýi-ra orkugjafa eins og vetn- is og gefið í skyn að rétt væri að minnka hættuna á umferðarteppu með því að skattleggja meira þá sem nota mest vegina. Hann hætti þó skyndilega við að leggja á vegatolla en hækkaði skatta á bensín sem nú er dýrara í Bretlandi en flestum öðr- um Evrópuríkjum. Prescott hefur lent í miklum and- byr í þessum efnum. Áhrifamenn- flokksins óttast hörð viðbrögð bílnot- enda sem finnst að álögur á þá séu þegar allt of miklar. Þótt Prescott þyki harla fastheld- inn á hefðbundin, sósíalísk viðhorf hefur hann stundum verið hug- myndaríkur í ráðuneytisstarfinu en átt á brattann að sækja þegar hann hefur viljað fá aukið fé, t.d. til um- bóta á járnbrautakerfinu sem er langt á eftir því sem best gerist á meginlandi Evrópu. Vinsæll skotspónn Ráðheirann hefur um hríð verið vinsæll skotspónn fjölmiðla sem hafa ekki síst haft unun af að gera grín að tökum hans á enskri tungu sem þykja slök. Hann var lítill námsmað- ur í grunnskóla og féll á lokaprófi, var sjómaður um árabil og hefur síð- an verið talinn sannur fulltrúi verka- lýðsstéttarinnar í forystunni, eins konar mótvægi við menntamannalið- ið sem Blah- hefur safnað um sig. Hann hefur verið vörður hinna sí- gildu sanninda í flokknum sem Blair hefur reynt að kveða í kútinn, gild- anna sem tryggðu flokknum póli- tíska eyðimerkurgöngu um tveggja áratuga skeið utan stjórnar. Þau gildi eru þó enn öflug í röðum gam- Tilvalin Gufustraujárn • Álbotn • 1400W • Vatnsúði Jólatilboð 1.795 kr. 3~?m. alla liðsmanna. Prescott lauk síðar háskólanámi í viðskiptafræði, að nokkru í bréfaskóla. Hann þykir oft seinheppinn. Fyrir skömmu sagði faðir hans að sonurinn væri búinn að svíkja sína stétt, hann væri nú genginn til liðs við yfirstétt- ina. Lenti ráðherrann í þeirri lítt öf- undsverðu stöðu að rífast um þetta flókna efni við föður sinn með full- tingi fjölmiðlanna sem veltu sér upp úr málinu. Sumir fréttaskýrendur bentu á að heppilegi'a hefði verið fyr- ir Prescott yngri að neita alveg að tjá sig um ummæli föðurins. Hneigð hans til að reyna að tjá sig á myndrænan hátt hefur komið í bakið á honum. Prescott var meðal- keppinauta hins umdeilda Peters Mandelsons, núverandi ráðherra Norður-írlandsmála, um áhrif í flokknum. Mandelson gengur undir auknefninu „Svarti prinsinn" og er kennt um margar refj- ar af hálfu flokksins og stjórnar Blairs, einkum þykir hann ásamt fjölmiðlafulltrúa Blairs, Alistah’ Campbell, vera ýtinn við að tryggja þægilega umfjöllun í fjölmiðlum. Segja þá andstæðingar flokksins og fleiri að ekki sé hik- að við að beita þvingun- um og jafnvel óþverra- brögðum til að múl- binda fjölmiðla. Mandelson líkt við krabba En varaleiðtoginn var ekki sagður nægilega háttvís þegar hann líkti Mandelson við krabba. Einnig hefur hann rætt um „andlitslausu snilling- ana“ sem starfi fyrir forsætisráð- hen-a og hafi varað sig við auknum álögum á bíleigendur. Hann hefur gert gys að svonefndri þriðju leið Blairs og gagnrýnt samstarfið við flokk frjálslyndra demókrata. Loks er tímasetning hans oft undarleg; hann hrósaði t.d. opinberum starfs- mönnum fyrir störf þeirra rétt eftir að Blair hafði fundið að þeim fyrir fastheldni. Á flokksþingi Verkamannaflokks- John Prescott ins í Bournemouth komust fjölmiðlar í feitt. Upp komst að Prescott og eiginkona hans, sem bjuggu á hót- eli í innan við 200 metra fjarlægð frá þingstað, höfðu látið aka sér þangað í Jaguar-vagni embættisins.Var sagt að ráðherrann hefði óttast að hárgi’eiðsla eiginkonunnar aflagað- ist en mörgum fannst að talsmaður þess að menn ofnotuðu ekki blikkbeljurnar svo- nefndu hefði átt að gera eins og aðrir þingfulltrúar, einfald- lega ganga. Prescott hefur ávallt lagt mikið upp úr embætti varaforsætisráð- herrans. En honum hefur gengið misjafnlega að sanna sig í emb- ættinu. Síðastliðið sumar hljóp hann í skarðið fyrir Blair í fyrirspurna- tíma á þingi og að sögn The Econom- ist virtist þriggja áratuga þingseta Prescotts ekki stoða neitt, hann hafi staðið sig dæmalaust illa. Annars velviljaður greinahöfundur hafi sagt að „í siðuðu þingi“ hefðu sérsveitar- menn birst á þingpöllunum og bjarg- að ráðherranum í örugga höfn. HUSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Mikið úrval af (TÖLSKUM herraskóm í stærðum 40-46 £ o Q o CQ 3 00 Kringlunni ♦ Sími 553 2888 ♦ www.valmiki.is CO LU Q < Qá 3 Q s< mM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.