Morgunblaðið - 17.12.1999, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999 39
LISTIR
Söngurinn göfgar
og glæðir
Operukór-
inn syngur
fyrir veg-
farendur
KÓR íslensku óperunnar syngur
fyrir vegfai'endur í miðborginni á
morgun, laugardag. Kórinn syngur
fyrst utandyra kl. 15.30 við Óperuna.
Þá syngur kórinn í Aðventkirkjunni
við Ingólfsstræti í u.þ.b. klukku-
stund frá kl. 16.
Kórinn mun, ásamt einsöngvurun-
um, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur,
Signýju Sæmundsdóttur, Þorgeiri
Andréssyni og Bergþóri Pálssyni,
syngja nokkra hátíðarsöngva sem
tengjast jólunum s.s. Ó, helga nótt,
Ave María eftir Kaldalóns, Laudate
dominum eftir Mozart, einnig vel-
þekkta óperukóra t.d. Fangakórinn
úr Nabucco, Steðjakórinn úr II
trovatore, Nessun dorma úr Turan-
dot.
Jólalögin gamalkunnu verða sung-
in og er gestum boðið að syngja með
kórnum. Nótum og textum verður
dreift til viðstaddra.
Stjórnandi kórsins er Garðar Cor-
tes og undirleikari Claudio Rizzi.
Lokatónleikar
Nýja tónlistar-
skólans
I SAL Nýja tónlistarskólans,
Grensásvegi 3, verða jólatón-
leikar nemenda haldnir kl. 18 í
dag, föstudag.
TONLIST
H1 j 6 m d i s k a r
KARLAKÓRINN HREIM-
UR
Stjórnandi: Robert Faulkner. Ein-
söngur: Asmundur Kristjánsson,
Baldur Baldvinsson, Sigurður Þór-
arinsson, Guðmundur Jónsson, Ein-
ar Hermannsson. Þrísöngur: Böðv-
ar Pétursson, Benedikt
Ai-nbjörnsson, Erlingur Bergvins-
son. Hljóðfæraleikur: Juliet Faulk-
ner (píanó, lágfiðla), Aðalsteinn Is-
fjörð (harmonika), Jaan Alavere
(fiðla), Valmar Valjaots (fiðla),
Þórarinn Reynir Illugason (bassi),
Erlingur Bergvinsson (gítar), Sig-
urður Rúnar Jónsson (mandolin).
Hljóðupptaka: Studio Stemma.
Upptökumaður: Sigurður Rúnar
Jónsson. Upptaka fór fram að Ydöl-
um í Aðaldal 24.-25. apríl 1999. Út-
gefandi: Karlakórinn Hreimur.
Dreifing: Japis. HR002
KARLAKÓRINN Hreimur, sem
fer að nálgast aldarfjórðungsaf-
mælið, sækir sína menn í flestar
sveitir Suður-Þingeyjarsýslu auk
Húsavíkur. Mikil endurnýjun hefur
verið í blómlegri starfsemi kórsins,
sem hefur farið í utanlandsferðir til
Færeyja, Noregs, Englands, Finn-
lands og Þýskalands. Einnig hefur
hann gefið út fjórar hljómplötur, að
þessari nýjustu meðtalinni.
Á þessum nýja diski „kennir ým-
issa grasa“, allt frá alþekktum
„karlakórsstandördum", svosem
einsog lög Björgvins Valdimarsson-
ar (Máttur söngsins og Sýnin), Þú
komst í hlaðið, Sefur sól hjá Ægi,
Ég bið að heilsa og Á Sprengisandi,
svo eitthvað sé nefnt. Fleiri alþekkt
og góð lög er að fmna á söng-
skránni, svosem írskt þjóðlag, sem
Georg Ólafsson hefur ort ljóð við,
sem hann nefnir í naust, í raddsetn-
ingu stjórnandans, og hér höfum
við Kvöldblíðuna lognværu (sem á
einkar vel við þingeyska sveitar-
sælu, ekki síst einsog hún gerist í
Aðaldalnum, svo ekki sé minnst á
Mývatn.) Og Draumalandið hans
Sigfúsar Einarssonar, og það yndis-
lega vöggulag Brahms, sem heitir
bara Góða nótt á íslensku, fallega
sungið - þótt ég kunni ekki all-
skostar að meta upphaf en einkum
endi (ég er ekki viss um að Brahms
hefði kunnað það heldur, en lagið
var nú samið fyrir einn söngvara en
ekki kór), Bí,bí og blaka - vel sung-
ið af Baldri Baldvinssyni og reynd-
ar fleiri lög á diskinum. Við höfum
hér líka Silunginn hans Schuberts
og Valsasyrpu (Rosen aus dem
Suden) eftir Johan Strauss. Hún
gerir reyndar diskinum mikið gott.
M.ö.o. býsna fjölbreytt söngskrá og
ekki of hátíðleg og þunglamaleg.
Ber að hrósa kór, einleikurum og
einsöngvörum fyrir það - og auð-
vitað stjórnandanum. Kórinn hefur
góðan hljóm, þó að bassinn sé e.t.v.
hans veikari hlið, og öll meðferð
hans yfirleitt aðlaðandi.
Óhætt er því að mæla með diskin-
um við þá sem elska karlakóra.
Ekki síst norðlenska.
Oddur Björnsson
Skráning nýrra deilda
Marksjóðsins hf. á VÞÍ
Marksjóðurinn hf.
Útgefandi Marksjóðurinn hf. kt: 680487-1629, Laugavegi 170,
105 Reykjavík
Umsjón og milliganga Fjárvangur hf., kt: 590789-2089, Laugavegi 170,
með skráningu 105 Reykjavík
Skráning Skráðar verða 4 nýjar deildir Marksjóðsins hf. Húsbréfa,
Spariskírteina, Bankabréfa og Fyrirtækjadeild. Deildirnar
verða skráðar á Verðbréfaþing íslands þann 22.12.1999
Tilgangur skráningar Tílgangur félagins með skráningu hlutdeildarskírteina á
VÞÍ er að auka seljanleika hlutdeildarskírteina félagsins
auk þess að bæta upplýsingastreymi til eigenda
hlutdeildarskírteina með því að gangast undir reglur VÞÍ
varðandi upplýsingaskyldu útgefanda skráðra verðbréfa.
Þegar er búið að skrá tvær af deildum Marksjóðsins hf.
Viðskiptavaki Fjárvangur hf. mun í eigin nafni setja fram kaup- og
sölutilboð á Verðbréfaþing íslands meðan sjóðurinn er í
vörslu fyrirtækisins.
Annað Lágmarkskaup í nýjum deildum Marksjóðsins hf„
er kr. 1.000.000- -krónur ein milljón-, þ.e. í Húsbréfa,
Spariskírteina, Bankabréfa og Fyrirtækjadeild.
Sá fyrirvari er þó hafður á að í framtíðinni getur
lágmarksupphæð inn í sjóðina lækkaðeða hækkað.
Engin lágmarkskaup eru í eldri deildum Marksjóðsins hf„
þ.e. Skyndisjóði og Marksjóði.
Frekari gögn Skráningarlýsingu, samþykktir Marksjóðsins hf.„
ársfjórðungsskýrslur, upplýsingar ofl. má nálgast á
skrifstofu Fjárvangs hf. Laugavegi 170,105 Reykjavík.
Þessi auglýsing er
eingöngu birt í
upplýsingaskyni.
[pn'
FJÁRVANGUR
lOEEilI VIBBBRtfAIYRIBIAKI
Laugavegur 170, sími 540 5060, fax 540 5061, www.fjarvangur.is
Nýkomin sending
Tegund Siena
Verö 12.990
Litur: Brúnir
Kringlunni, sími 568 9212, Domus Medica v. Snorrabraut, sími 551 8519, Rvík
STEINAR WAAGE
ENS
Siemens uppþvottavél.
Sannkölluð hjálparhella
í eldhúsinu.
Sérlega hljóðlát og sparneytin. Fjögur þvottakerfi,
tvö hitastig (nauðsynlegtfyrirviðkvæmtleirtau),
fjórföld flæðivörn með Aqua-Stop.
Þetta er uppþvottavél eins og þú vilt hafa hana.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík* Sími 520 3000 •www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt!