Morgunblaðið - 17.12.1999, Síða 48

Morgunblaðið - 17.12.1999, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR INGIBJORGINGI- MUNDARDÓTTIR tlngibjörg Ingi- mundardóttir var fædd að Hvallátrum í Rauðasandshreppi, nú Vesturbyggð, 8. febrúar 1918. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík hinn 10. desember síðastliö- inn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Ólöf Haflína Eggertsdótt- ir og Ingimundur Halldórsson. Systir hennar er Gróa Ingi- mundardóttir. Eigin- maður Ingibjargar var Helgi Elíasson, f. 18. apríl 1917, d. 4. október 1978. Börn: 1) Þórunn Björgólfsdóttir, hún er látin, hennar maður Ragnar Hall- dórsson, hún átti fjögur börn. 2) Jóna Guðmunda Helgadóttir, hennar maður er Pálmi Hlöðvers- son, þau eiga þrjú börn. 3) Barði Helgason, hann er látinn, hans kona Aldís Emih'a Gunnlaugsdótt- ir, hann átti sex börn. 4) Ingólfur Helgason, hans kona er Sólveig Elísabet Jónsdóttir, þau eiga þrjú börn. 5) Hall- dóra Helgadóttir, hennar maður er Friðrik Hafberg, þau eiga þrjú börn. 6) Elías Ingjaldur Helgason, hans kona er Freydís Sjöfn Magnúsdóttir, þau eiga fimm börn. 7) Gestur Helgason, hans kona er Krist- jana Ólöf Fannberg, þau eiga þrjú börn. 8) Valur Helgason, hans kona er Halldóra Kristín Emilsdóttir, þau eiga þrjú börn. 9). Elín Kristín Helgadóttir, hennar maður er Sveinn Svavar Gústafsson, þau eiga þrjú börn. 10) Stefnir Helga- son, hans kona er Unnur Ólafs- dóttir, þau eiga eitt barn. Utför Ingibjargar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13:30. Nú er elskuleg tengdamóðir mín ' farin yfir móðuna miklu. Farin á vit hins ókunna. Farin að hitta forfeð- urna, eiginmanninn, og tvö af börn- unum tíu. Það má segja að við hefð- um átt að sjá þetta fyrir. Við horfðum á mátt líkamans minnka smám saman. En dauðinn kemur samt alltaf á óvart. Síðastliðin þrett- án ár hafa þó verið Ingu tengda- mömmu fremur þung. Fyrir næstum réttum þrettán árum vann hún í fiski eins og sagt er, fullan vinnudag. Að- eins viku áður en áfallið kom hafði fólkinu verið sagt upp. Hráefnis- skortur. Svo sem ekki í fyrsta skipti. Þá fór fólk heim. „Það er enginn fískur í dag, þið getið farið heim og slappað af, tekið ykkur sturtu eða farið í bað,“ eins og Bubbi sagði. Inga var af þeirri kynslóð sem stóð sig, hvað sem á gekk, og gerði ekki kröfur, svo þetta var bara „part af programmet“. Tengslin við náttúr- una voru líka það sterk að ef ekki var fiskur þá var ekkert við því að gera. Maður slæst ekki við náttúruöflin. Lífið hafði svosem ekki verið neinn dans á rósum, en Inga var lífsglöð og létt, og það hjálpaði örugglega oft. Börnin hennar tíu voru það sem mestu máli skipti. Níu þeirra slitu fyrstu barnsskónum á Hvallátrum, þegar það tíunda fæddist hafði heim- ilið verið flutt á Tálknafjörð. Það má gera sér í hugarlund að lífið á Hval- látrum, áður en fjórhjóladrifsbflar, jeppar eða jepplingar voru í öðrum hverjum bflskúr, hefur verið svolítið annað en veruleikinn sem við borg- arbörnin þekkjum í dag. Það sem ekki fékkst á staðnum þurfti að sækja á Patreksfjörð, hvort sem það voru matvæli eða annað til heimilis- ins, eða læknishjálp vegna barns- burðar. Og enn þann dag í dag erum við ekki að tala um að vegurinn yfir sé beinlínis gi-eiðfær, ekki einu sinni okkar fjallabflum, hvað þá þess tíma farartækjum. Hvallátrar voru (eru) samt frá náttúrunnar hendi auðugri en margir aðrir staðir á landinu, og ég hef fyrir satt að þar hafi ábúend- ur alltaf haft nóg að bíta og brenna. Stutt á fiskimiðin. Fuglinn og eggin í bjarginu. Sel- urinn. Að ógleymdum kindunum sem alltaf voru nokkrar. Þegar við þetta bætist duglegt fólk og vinnu- fúsar hendur, hávær barnahópur og létt lund, þá held ég að lífið á Látr- um hafi alls ekki verið slæmt. Þau barnanna sem muna sig þar sjá stað- inn a.m.k. alltaf í ákveðnum dýrðar- Ijóma að mér virðist, og það hefur verið frábært að labba þar um með Tótu eða Mundu, þær leiðandi gönguferðina með „þarna er þetta og þetta heitir þetta og þarna er þessi steinn og hann heitir þetta“. Þangað til maðui' verður alveg rugl- aður og man ekki neitt af því sem verið er að reyna að segja manni. Allir hlutir á Látrum hafa sitt nafn og jafnvel sögu. Það að alast upp og búa á stað sem þessum hlýtur að móta fólk. Þegar ég hugsa um Ingu og ímynda mér hana á sínum yngri árum sé ég hana alltaf fyj'ir mér á Látrum, horfandi út á hafið. Annað hvort að vetri til með áhyggjusvip vegna þeirra sem voru að sækja björg í bú, eða að sumri til í góðu veðri, dragandi djúpt andann, njót- andi útsýnisins. Fjölskyldan flutti frá Hvallátrum á Tálknafjörð. Þar fæddist síðan yngsta barnið. Þar bjó hún til ársins 1973 er hún fluttist til Reykjavíkur. Fyrir 13 árum héðan í frá þegar Inga veiktist var hún fyrir þó nokkru orðin ein í heimili. Eftir að hafa þurft að setja stóra potta á eldavélina á hvei'jum degi, þurfti hún nú aðeins að elda handa einum. Böi-nin öll farin að heiman og eiginmaðurinn á vit forfeðranna. Viðbrigði, en börnin komu nú alltaf af og til í heimsókn, og voru flest þeirra ekki svo langt undan. A jólum skiptist hún á að vei'a hjá þeim, og gisti þá í nokkra daga. Það var nú heldur en ekki jóla- pakkaflóð! A.m.k. 1 frá hverju barn- anna, og svo frá barnabörnunum. Elsku Inga. Eg kveð þig með þökk fyrir allt sem þú varst mér. Megi allar góðar vættir fylgja þér þangað sem þú ert nú. Við sjáumst síðar. Unnur. Á kveðjustund langar mig að þakka tengdamóður minni Ingi- björgu Ingimundai'dóttur þær góðu stundir sem við áttum saman. Allt frá því að ég kom inn á heimili hennar og Helga tengdaföður míns, tók hún mér eins og sinni eigin dótt- ur. Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn og var langt frá minni móður, var Inga alltaf til staðar, til að leið- beina mér og hjálpa ef með þurfti. Alla tíð hafa samskipti okkar verið eins góð og í upphafi og væntum- þykja mín og virðing fyrir henni hef- ur vaxið með hverju ári. Nú blundar fold í blíðri ró, á brott er dagsins stríð, og líður yfu' land og sjó hin ljúfa næturtíð. Allt er svo kyrrt, svo undurrótt, um alheims víðan hring. Ver og í brjósti, hjaita, hljótt, og himni kvöldljóð syng. Þá mæða sálar hverfur hver, svo hvílst þú getur rótt, og sjálfur Drottinn sendir þér, er sefur, góða nótt. (Ingemann J. Helgason.) Minningin um þig mun lifa með okkur, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín tengdadóttir Halldóra Kristín. Elsku amma. Þegai' ég var lítil gafst þú mér barbídúkku sem ég kallaði Jóley. Mamma sagði að þér hefði fundist það mjög fyndið. Eg á hana ennþá, kjóllinn hennar rifnaði pínulítið en við lögum það. Mér þykir mjög vænt um alla púðana sem þú saumaðir og gafst mér, ég ætla að eiga þá alltaf. 0 Jesú, bróðir besti og barnavinur mesti æ, breið þú blessun þína á bamæskuna mína. (P. Jónsson) Ég vona að þér líði vel þar sem þú + Bái'ður Auðun- sson fæddist í Vestmannaeyjum 2. nóvember 1925. Hann lést á Hraun- búðum í Vestmanna- eyjum 10. desember síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Auðunn J. Oddsson, f. 25.9. 1893 á Þykkvabæjar- klaustri í Álftaveri, d. 29.12. 1969 á Hrafnistu í Reykja- vík, og Steinunn S. Gestsdóttir, f. 29.8. 1889 á Ljótarstöðum í Skaftártungu, d. 6.10. 1965 í Reykjavík. Systkini Bárðar eru: Gestur, f. 23.6. 1915; Sigurjón, f. 4.4.1917; Haraldur O., f. 9.1.1922, d. 17.1. 1997; Bergþór K., f. 8.5. 1923; Magnea E., f. 22.12.1929. Hinn 20. nóv. 1948 kvæntist Bárður Ebbu Þorsteinsdóttur frá Laufási í Vestmannaeyjum, f. 19.5. 1927, d. 14.10. 1987. Börn Mig langai- að minnast tengdaföð- ur míns, Bárðar Auðunssonar, » mokkrum orðum. Bárður ólst upp í Vestmannaeyj- um á þriðja og fjórða áratug þessar- ar aldar. Hann komst með áræði og dugnaði til mennta, og starfaði við báta- og húsasmíðar mestan hluta starfsævi sinnar. þeirra eru: 1) Stein- unn, f. 12.9. 1949, gift ísak Möller og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn. 2) Herjólfur, f. 29.3. 1953, kvæntur Ragn- hildi Mikaelsdóttur og eiga þau þijá syni. 3) Auður, f. 6.8. 1956, gift Þresti Björgvinssyni og eiga þau þrjár dæt- ur. 4) Elínborg, f. 26.5. 1960, gift Ólafi Þ. Gunnarssyni og eiga þau þrjá syni. 5) Ásta, f. 29.10.1961, gift Páli K. ís- berg og eiga þau þrjú börn. Bárður var skipasmiður í Vest- mannaeyjum og fluttist þaðan í gosinu 1973. Hann bjó síðan í Garðabæ en fluttist til Eyja á Hraunbúðir 1996. Útför Bárðar fer fram frá Garðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 11. Ég kynntist Bárði þegar við Elín- borg byrjuðum að í-ugla saman reyt- um fyrir 15 árum. Það var ljóst allt frá fyrstu kynnum að þar fór maður sem ekki þar tilfinningar sínar á torg, en við nánari kynni fann hver maður, að undir niðri var einstak- lega blíðui' maður sem mátti ekkert aumt sjá. Það var auðfundið á Bárði að honum var annt um vegferð barna sinna. Hann lagði á það áherslu að þau kæmust til mennta, til að geta staðið upprétt á eigin fót- um í lífinu. Líklega hefur hann reynt það á lífsins göngu að áreiðanleg- ustu hjálpai'hendurnar eru þær tvær sem skapai'inn hefur fengið manni . Hann var maður sem trúði því að hver maður væri sinnar gæfu smiður. Orðheldni var honum ákaf- lega mikilvæg, og heiðarleiki kostur sem hann mat mikils. Af hvoru tveggja átti Bárður nóg. Bárður var barngóður, og gaf sig að börnum sem komu í heimsókn. Síðustu ár ævinar dvaldi Bárður á Dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Hann hafðí veikst nokkrum árum fyrr af heilabilun, sem var orðin honum það erfið að hann gat ekki hugsað um sig af eigin rammleik. Slík veikindi eru oft aðstandend- um og vinum erfið, því að sá pers- ónuleiki sem menn hafa áður haft að geyma getur orðið undir eða týnst alveg. Þá er mikilvægt að muna að sá ástvinur sem kemur manni fyrir sjónir er breyttur vegna veikinda sinna, en gömlu minningarnar um sterkan mann og áræðinn, orðheld- inn og heiðarlegan eru jafngildar. Þannig ætla ég að minnast Bárðar. Guð geymi minningu Bárðar Auð- unssonar og veiti ættingjum og vin- um styrk._ Ólafur Þór Gunnarsson. Við andlát svila míns, Bárðar Auðunssonar skipasmíðameistara, langar mig að festa á blað nokkur orð til minningar um góðan og vask- an dreng. Bárður ólst upp í skjóli foreldra sinna og stórum hópi systk- ina að Sólheimum í Vestmannaeyj- um. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Æskuár hans liðu við margs kon- ar ærsl og leiki þar sem uppistaðan var dæmigerð um hætti æskufólks í þróttmikilli sjávarútvegsbyggð. Leikirnir voru oftast tengdir bátum og veiðiskap á sjó og í björgum. Þá var sá þáttur ekki smár er fólst í iðk- un allskonar íþrótta, en hjá drengj- um var það knattspyrna, sem var í öndvegi. Það var einmitt á þeim vettvangi er ég kynntist Bárði fyrst. Ekki voru þau kynni bundin því að við værum liðsmenn sama félags því hann var liðsmaður Týs er þetta gerðist en ég lék til margra ára með Þór. Bárði var stillt upp í liði Týs sem vamarmanni en mér sem fram- herja í liði Þórs. Það fór því ekki hjá því að á þessu sviði öttum við kappi hvor við annan til framgangs félög- um okkar hverju sinni. Mér er ljúft að minnast þessa, með tilliti til þess að Bárður gekk til leiksins af vask- leika og drenglyndi. Það kom fljótt í ljós að Bárður var hagleiksmaður og ungur að árum fékk hann áhuga á skipasmíðum. I framhaldi af því hóf hann nám hjá hinum kunna skipasmíðavölundi Gunnari Marel Jónssyni. Bárður lauk hinu verklega námi jafnhliða námi við Iðnskóla Vestmannaeyja, með góðum vitnisburði. Skömmu síðar sótti hann nám í teikningu tréskipa hjá þeim þekkta skipa- smíðameistara Bárði G. Tómassyni frá ísafirði. Samtíma Bárði í námi hjá Gunnari Marel voru skipasmíðameistararnir Eggert Ólafsson og Ólafur Jónsson. Allir unnu þeir, til margra ára, hjá Gunnari í Dráttarbraut Vestmanna- eyja. Þar kom að árið 1958 stofnuðu þessir félagar fyrirtækið Skipavið- gerðir hf. Eins og nafn fyrirtækisins ber með sér var markmiðið að halda uppi viðgerðum og viðhaldi tréfis- kiskipa, en að stærstum hluta var bátaflotinn þein'ar gerðar um þær mundir. Jafnhliða viðhalds- og við- gerðarverkefnum byggðu þeir 12 báta af ýmsum stærðum eða frá 15 til 160 rúmlesta. Bátar þessir vom allir, nema sá stærsti, smíðaðir eftir teikningu er Bárður hafði gert. Allir báru bátar þessir vitni um gott handbragð og sérlega góðan frág- ang. Seint á árinu 1972 slitnaði upp úr samstarfi þeirra félaga og gekk Bárður út úr fyrirtækinu en þeii' Eggert og Ólafur ráku það áfram við þann góða orðstír er það frá fyrstu tíð hefur notið. En Bárður var ekki af baki dottinn því i byrjun janúar 1973 stofnaði hann ásamt fleirum fyrirtækið Básar hf. Mai'kmið fyiir- tækisins voi’u alhliða skipasmíðar og viðhald skipa, ásamt alls konar smíði er varðaði hús og nýsmíði húsa. Þeii' félagar höfðu fengið vilyi'ði um lóð fyrir byggingu undir stai'fsemina í námunda við Básaskersbryggju og nokkrar viðræður höfðu farið fram um samstarf við Vélsmiðjuna Völ- und. En það átti ekki fyrir þeim fé- lögum að liggja að hefja starfsemi í Eyjum því nokkrum dögum eftir stofnun fyrirtækisins, eða nánar til tekið 23. janúar tók að gjósa í Heimaey með þeim aíleiðingum sem kunnar eru. Bárður og sameignar- menn hans voru ekki á því að gefast upp. Þeh' settu fyrirtækið á fót í Hafnarfirði og þar tókst þeim að smíða 5 báta, en þar kom að smíði tréfiskibáta var liðinn og hófu þeir þá margskonar trésmíðar en þar ber þó hæst smíði fjölda vandaðra sum- arhúsa, sem staðsett eru víðsvegar um land. Hinn 20. nóvember 1948 kvæntist Bárður Ebbu Þorsteinsdóttur, en hún var yngst 12 barna Elínborgar Gísladóttur og Þorsteins Jónssonar í Laufási. Bárður og Ebba hófu bú- skap á Kirkjubóli í Eyjum en íljót- lega byggðu þau íbúðarhús á Aust- urvegi 4. Hús þeirra einkenndist af myndarskap bæði utan sem innan. Svo fór um hús þetta að það eyðila- gðist í hamförum Heimaeyjargosins. Bárður lét ekki bugast við þetta mótlæti heldur hóf hann að byggja íbúðarhús við Hofslund í Garðabæ. Húsinu fylgdi hentug lóð til hvers- konar ræktunar blóma og trjáa. Með samstilltu átaki tókst Bárði og Ebbu að koma upp glæstum gróðri á lóð- inni. Ebba lést 14. október 1987. Við andlát hennar var sár harmur kveð- inn að Bárði og börnum þeirra. Nokkru eftir að Ebba lést fór að bera á sjúkdómi hjá Bárði, sem varð æ illvígari eftir því sem árin liðu. Nokkur síðustu æviárin dvaldi Bárð- ur í Hraunbúðum í Vestmannaeyj- um og naut hann þar góðrar umönn- unar. Við andlát Bárðar Auðunssonar biðjum við Bera honum allrar guðs- blessunar og sendum börnum hans og fjölskyldum þeirra ásamt öðrum aðstandendum samúðarkveðjur. Ingólfur Arnarson. Jarðarför föður míns og afa, SIGURÐAR PÁLSSONAR frá Skálavík, sem lést á Sjúkrahúsi Bolungarvíkur mánudaginn 6. desember, fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 18. desember kl. 14.00. Páll Arnór Sigurðsson og börn. BARÐUR AUÐUNSSON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.