Morgunblaðið - 17.12.1999, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 17.12.1999, Blaðsíða 66
o6 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Skortur á kvensöðlum í heiminum Hver hefði trúað því nú á tímum að það væri skortur á kvensöðlum í heiminum. Asdís Haraldsdóttir komst að því að þótt íslensk- ar konur ríði varla í söðli nú til dags nema á sýningum eru til samtök þeirra sem ríða í söðli víðs vegar í heiminum og það eina sem kemur í veg fyrir að meðlimum fjölgi virðist einmitt vera þessi skortur á söðlum. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Ekki láta kúrekarnir sitt eftir liggja. Anita Sepko á Surti. Endurvakinn áhuga kvenna á að ríða í söðli má rekja til ár- sins 1974 þegartvær breskar konur þær Janet Medonald og Val Francis rituðu grein í tímaritið Horse and Hound til að velga athygli á að reiðmennska í söðlum væri að deyja út. Nú eru um 1200 manns í bresku samtökunum en auk þess er búið að stofna félög í um ellefu öðr- um löndum í Evrópu, Ameríku, Astralíu og Suður-Afríku. Eins og enskar hefðarkonur á refaveiðum Mikil hefð hefur skapast í kringum þessa reiðmennsku sem byggist á gömlum grunni og er enska hefðin mest í heiðri höfð. I kjölfar þess að bresku samtökin voru stofnuð var farið að leita að söðlum og fundust hundruð gamalla en vel varðveittra söðla. Vandamálið er hins vegar að hestar hafa stækkað mikið á þessari öld og erfltt er að láta söðlana passa. Söðlar voru gjarnar sérsmíðaðir fyr- ir ákveðinn hest og ákveðna konu. Ensku söðlarnir eru mjög ólíkir þeim íslensku. Þeir voru ekki með slá fyrir aftan sætið og fótstig eins og þeh- ís- lensku. Konur sem sátu í enskum söðli sneru beint fram með vinstri fótinn í ístaði og smám saman þróað- ist enski söðullinn þannig að á honum voru tvö horn. Annað til að styðja við vinstri fótlegginn og hitt var ofar til að styðja við hægri fótlegginn. Þetta gerði það að verkum að knapinn gat setið mjög stöðugur í söðlinum enda veitti ekki af því í kringum 1920 var algengt að konur tækju þátt í refa- veiðum með öllu þvi hindrunarstökki sem þeim fylgja og þá var eins gott að hafa einhvern stuðning í söðlinum. Sá klæðnaður sem notaður var við refaveiðarnar er einmitt fyrirmyndin af þeim klæðnaði sem notaður er nú til dags. íslenskar konur og kúrekakonur En hver kannast ekki við sögur af íslenskum konum í upphafi aldarinn- ar sem þeystu á hestum sínum eða tóku þá til kostanna þrátt fyrir að ís- lenski söðullinn veitti lítinn stuðning. Georg H.F. Schrader segir í bók sinni Hestar og reiðmenn á íslandi sem gefin var út hér á landi árið 1915: „Það er gaman að sjá konur og börn á hestbaki. Gamlar konur sitja fastar í söðli eins og unglingar og með þeim ríða drengir og stúlkur frá sex ára aldri og hika sér hvergi. Aldraðar bóndakonur í síðum, víðum, oftast dökkbláum reiðfötum með háu mitti eru skringilegar ásýndum. Ungar konur eru oftast kraftlalega vaxnar, bera lágan reiðhatt og vefja um hann hvítri eða dökkri blæju, sem fer vel og hylur oft andlit þeitra að mestu líkt og á konum í Austur- löndum; þær eru oft glæsilegar ásýndum. Þegar regn er eða kuldi sveipa margar konur um sig svörtu eða brúnu sjali, og fá þær við það enn meiri austurlenskan, enda skugga- legan blæ...“ Mikill áhugi hefur einnig vaknað á að ríða í söðli í Bandaríkjunum og hafa mörg félög verið stofnuð þar. Enska hefðin er þar algeng en einnig í svokallaðri „Wetern“-reiðmennsku. Söðlarnir eru þá mjög líkir kúreka- hnökkum, mikið skreyttir, en hafa sumir hverjir horn til stuðnings eins og ensku hnakkamir. A stórum hestasýningum þar í landi eru yfir- leitt kynntar þessar mismunandi hefðir. Það var einnig gert á sýning- unni Equine Affair sem undirrituð fór á á síðasta ári. Þar á meðal var Anita Sepko á íslenska hestinum sín- um, Surti. Hún reið hins vegar ekki í íslenskum söðli heldur nýjum söðli með ensku lagi. Hún klæddist auk þess venulegum reiðfötum og bentu nokkrar íslenskar konur henni á að athuga hvort hún gæti ekki nálgast íslenskan söðul og fatnað í stíl til að koma fram á sýningum sem þessum. Hálf milljón fyrir nýjan söðul En þrátt fyrir að mörgum söðlum hafi verið bjargað frá eyðileggingu er skortur á þeim kannski helsta vandamálið í sambandi við að breiða út þessa reiðmennsku í heiminum. Konur höfðu riðið í söðlum frá örófi alda en eftir seinni heimstyrjöldina voru lang flestai' konur farnar að ríða í venjulegum hnökkum eins og karlmenn. Smám saman þótti það sjálfsagt að konur riðu klofvega eins Hattar, húfur, alpahúfur, 2 STÆRRIR. ELDHU SG ARDl NUR Mikið úrval af tilbúnum eldhúsgardinum og köppum Allt fyrir gluggann Ráðgjöf Benedikt Þorbjörnsson hestamannsins og Sigurður Sigurðarson verða viðskiptavinum MR -búðarinnar til ráðgjafar laugardaginn 18. desemberfrá kl. 10:00-17:00 MRbúóin Lynghálsi 3 • 110 Reykjavík Sími: 5401125 -Fax: 5401120 Ávallt í leiðinni ogferðarvirði • Sængurföt • Gardínuefni • Servíettur • Dúkar • Klútar m á m í m ó textílsmiðja - gallerí t r y gg v a g a t a 1 0 • * . 5 5 1 1 8 0 8 8 T U n D 8 T U n D Áttu eftír að fá þér aldamótafötín? Ótrúlegt úrval samkvseinísefna fyrír dömuna og herrann. Qvirka IVIörkin 3, sími 568 7477 Mörkinni 6, s. 588 5518.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.