Morgunblaðið - 17.12.1999, Qupperneq 69

Morgunblaðið - 17.12.1999, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999 69 ---------------------------r Gönguferð- ir á Þing- völlum á aðventu ÞJÓÐGARÐURINN á Þingvöllum hefur nú á aðventunni boðið upp á gönguferðir með leiðsögn um hverja helgi. Farið er rólega yfir og vetrar- búningur náttúrunnar skoðaður jafnframt því sem rifjaðar eru upp sögur af mannlífi í Þingvallahrauni og undirbúningur jóla áður fyrr. Gönguleiðirnar eru valdar með það fyrir augum að hæfi sem flestum en nauðsynlegt er að vera vel búinn til vetrargöngu og gott er að hafa heitt á brúsa meðferðis. Laugardaginn 18. desember verð- ur farið í síðustu ferðina sem jafn- framt er sú síðasta á þessu ári. Geng- ið verður um Gjábakkastíg á Hrafnagjá og skógarreitina undii- Hrafnagjárhalli. Ferðin hefst við Vellandakötlu kl. 13 og tekur 2-3 klst. Jólaball Fylkis og Arbæjar- kirkju JÓLASVEINNINN kemur á jóla- ball Fylkis og Arbæjarkirkju sunnu- daginn 19. desember kl. 13. Sam- verustund verður í kirkjunni og dansað í kringum jólatré í safnaðar- heimilinu. Allir fá eitthvað gott í gogginn. Jólasveinar verða á ferð og flugi með pakka á aðfangadag. Pabbi, mamma, afi og amma geta pantað jólasveina í Fylkishöll. Jólakort með hálendis- myndum MÁL og menning hefur gefið út átta póstkort með ljósmyndum eftir Guð- mund Pál Ólafsson. Póstkortin eru öll gefin út í tilefni bókar Guðmundar Páls, Hálendið í náttúru íslands, sem er væntanleg vorið 2000. Áður hafa komið út bæk- urnar Perlur í náttúru íslands, Fugl- ar í náttúru íslands og Ströndin í náttúru íslands. Á hverju þessara nýju póstkorta er ljósmynd sem Guðmundur Páll hefur tekið uppi á hálendinu og hugleiðing hans eða til- vitnun í skáldskap sem tengist myndefninu. Kortin eru prentuð í Prentsmiðj- unni Odda hf. og kosta 99 kr. hvert. Jólapakkamót TR J ÓLAPAKKAMÓT TR fer fram í fé- lagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12, laugardaginn 18. des- ember nk. og hefst kl. 14.00. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monradkerfi með 10 mín. umhugsunartíma og er mótið opið fyrir börn og unglinga 14 ára og yngri. Veitt verða þrenn verðlaun fyrir drengi og stúlkur, en auk þess verða nokkrir keppendur leystir út með jólapökkum sem dregnir verða út af handahófi, óháð árangri í mótinu. Boðið verður upp á léttar veitingar og öllum áhugasömum gefst kostur á að kynna sér starfsemi félagsins og hvað sé framundan í félagsstarfinu. Bjarni Finnsson, nýr aðalræðismaður Hollands, og Ólafur Ragnarsson, fráfarandi ræðismaður. Leonardo-styrkir 1999 53 milljónir koma í hlut íslenskra verkefna FYRSTA hluta í Leonardo da Vinci-starfsmenntaáætlun ESB er að ljúka, en nú nýverið var styrkj- um úthlutað í fimmta og síðasta sinn. 1. janúar 2000 tekur Leo- nardo II, næsti hluti áætlunarinn- ar, við. Sem fyrr rekur Rann- sóknaþjónusta Háskólans Landskrifstofu Leonardo á ís- landi. Að þessu sinni hlutu fimm verk- efni undir íslenskri verkefnastjórn styrk, alls tæplega 39 milljónir. Því til viðbótar úthlutar Lands- skrifstofa Leonardo tæplega 14 milljónum til mannaskipta sem gefa fólki tækifæri á að afla sér starfsmenntunar í öðru Evrópu- landi, en aukin áhersla verður lögð á mannaskiptaverkefni í Leonardo n. Árangur Islendinga í fyrsta hluta áætlunarinnar hefur verið mjög góður, 16 tilraunaverkefni, 2 yfirfærsluverkefni, og 1 rann- sókna- og greiningarverkefni hafa hlotið yfir 200 milljónir í styrk, segir í fréttatilkynningu. Opið í Kringlunni fram á kvöld til jóla VERSLANIR og veitingastaðir í Kringlunni verða opnir til kl. 22 á hverju kvöldi fram að Þorláks- messu, en þá er opið til kl. 23. Bíla- stæðum við Kringluna hefur nú verið fjölgað verulega. Þessa daga fram að jólum verður í Kringlunni ýmislegt um að vera til að gleðja gesti. Bílastæðum fyrir viðskiptavini hefur verið fjölgað við Kringluna, en nýtt bílastæðahús, sem rúmar 420 bíla, hefur verið tekið í notkun. Nýja bílastæðahúsið er bak við Borgarleikhúsið. Þá eru stæði bak við Sjóvá-Almennar, sem tengist Kringlunni með göngubrú yfir göt- una. Einnig hafa stæði starfs- manna bak við Kringluna verið rýmd þannig að viðskiptavinir geta nú lagt bílum sínum á stæðin. Auk þess hafa verið útbúin stæði fyrir viðskiptavini Kringlunnar á gras- flöt fyrir norðan Hús verslunarinn- ar. Einnig er gestum bent á að heimilt er að leggja á kvöldin á stæðum fyrirtækja i nágrenni Kringlunnar. Nú eru því um stæði fyrir um 3.200 bila við og í ná- grenni Kringlunnar. Verslanir og veitingastaðir í Kringlunni verða opnir alla daga til jóla til kl. 22 á kvöldin, en á Þorláksmessu er opið til kl. 23 og á aðfangadag frá kl. 9 til 12. Veit- ingastaðir hússins eru opnir leng- ur. Málstofa í stærðfræði MÁLSTOFA í stærðfræði verður haldin í dag, föstudaginn 17. des- ember. Sigurður Helgason, próf- essor við Massachussetts Institute of Technology, heldur fyrirlestur sem hann nefnir „Poisson-tegrið og Röntgen- geislavörpun". Rannsóknir Sigurðar á heildis- ummyndunum eru gott dæmi um niðurstöðu í hreinni stærðfræði sem hefur hlotið óvænta hagnýt- ingu, í þetta skipti í læknisfræéi. Einnig má minna á að Sigurður er sá íslenski vísindamaður sem hefur fengið flestar tilvitnanir, samkvæmt nýrri könnun. Fyrir- lesturinn hefst kl 13:30 í stofu 158 í húsi verkfræði- og raunvísinda- deildar. FÓLK Nýr aðal- ræðismaður Hpllands á Islandi • BEATRIX Hollandsdrottning hefur útnefnt Bjarna Finnsson, framkvæmdastjóra Blómavals, nýjan aðalræðismann Hollands á íslandi, frá 1. nóvember sl. að telja. Drottningin hefur jafnframt veitt Ólafi Ragnarssyni bókaút- gefanda Iausn frá störfum aðal- ræðismanns að hans eigin ósk. Ól- afur hefur gegnt starfinu undanfarin átta ár en hyggst nú snúa sér alfarið að framtíðar- uppbyggingu Vöku-Helgafells hf. og mun verða stjórnarformaður 10 ára afmæli UNIFEM á íslandi Boðið upp á kakó og piparkökur á Laugaveginum UNIFEM á íslandi á 10 ára afmæli á laugardaginn. Af því tilefni bjóða fé- lagar í stjórn félagsins gestum og gangandi á Laugaveginum upp á heitt súkkulaði og piparkökur fyrir utan húsakynni félagsins að Lauga- vegi 7 á milli kl. 15 og 17 á afmælis- daginn. Uppi á Mannhæðinni á Laugavegi 7 getur fólk aflað sér frek- ari upplýsingar um UNIFEM, nálg- ast nýtt afmælisrit, ski’áð sig í félagið og hlýjað sér. Laugardaginn 18. desember eru liðin 10 ár frá stofnun UNIFEM á íslandi og 18. desember eru líka liðin 20 ár síðan alþjóðasamningur gegn afnámi alls ofbeldis gegn konum var samþykktur. UNIFEM, sem er þró- unarsjóður Sameinuðu þjóðanna til styrktar konum í „þróunarlöndum“ starfar nú í 19 löndum víðs vegar um heiminn. Sjóðurin styrkir í dag þró- unarverkefni kvenna í 60-70 löndum. Lýst eftir vitnum LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir eftir vitnum að árekstri sem varð á gatnamótum Fjarðarhrauns og Flatahrauns í Hafnarfirði sunnu- daginn 5. desember klukkan 18.50. Þá rákust saman dökkblá Mazda með númerinu R-44548 og rauð Toyota Landcruiser jeppabifreið með númerinu EF-236. Þeir sem gætu gefið sig fram sem vitni eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við rannsóknardeild lögreglunnar í Hafnarfiröi. fyrirtækisins í fullu starfi. Bjarni Finnsson er fæddur í Reykjavík 15. ágúst 1948, stund- aði nám við Garðyrkjuskóla ríkis- ins 1966-1968. Hann stofnaði Blómaval v/Sigtún 1970, ásamt Kolbeini bróður si'num og fjöl- skyldum og var framkvæmda- stjóri þess frá þeim tíma. Bjarni var formaður Kaupmanna- samtaka íslands 1991-1995 og varaformaður þess í fjögur ár þar á undan. Auk þess hefur Bjarni gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, einkum fyrir verslunina. hann er formaður stjórnar Umhverfissjóðs verslunarinnar. Bjarni er giftur Hildi Baldurs- dóttur og eiga þau tvö börn. Hollenska aðalkonsúlatið á Is- landi verður framvegis í húsi Blómavals að Sigtúni 40, Reykja- vík, og verður skrifstofan opin frá kl. 9-12 á virkum dögurn. Konsú- latið er í beinu samstarfi við send- iráð Hollands í London en sendi- herra Hollands á Islandi, Baron W. O. Bentinck Van Schoonheten, hefur aðsetur þar. Vitni vantar UMFERÐARÓHAPP varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Sundlaugavegar miðvikudaginn 15. desember sl. um kl. 21.10. Þarna var BMW-bifreið ekið norð- ur Kringlumýrarbraut. Þarna mun rauðri Mazda 323-bifreið hafa verið ekið suður Kringlumýrarbraut og beygt til austurs í veg fyrir BMW- bifreiðina. Árekstur varð ekki þar sem BMW-bifreiðin beygði frá og lenti á staur. Ökumaður bifreiðarinnar sem olli tjóninu þ.e. Mözdu-bifreiðar- innar er beðinn að gefa sig fram við rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík svo og þeir sem urðu vitni að óhappinu. Sænskir kalk- tínar í Nóatúni NÓATÚN hefur í dag, föstudaginn 17. desember, sölu á sænskum kalk- únum. Alls verða seld um 5.000 kg og verðið verður sannkallað Evrópu- verð eða kr. 370 pr. kg þrátt fyrir háa innflutningstolla á kjötvörum. Allur þessi innflutningur er í sam- ræmi við samning íslands við Gatt- alþjóðaviðskiptastofnunina þar sem kveðið er á um að heimilt sé að flytja til landsins ákveðna prósentu af landsframleiðslu í hveni tegund. Innflutningurinn er gerður í nánu samstarfi og undir eftirliti embættis yfirdýralæknis. Nákvæmlega er far- ið eftir öllum skiljrðum er varðar fóðrun á eldistímanum, heilbrigði, verkun og frágang. Meðal annars má nefna að fuglunum hefur aldrei verið gefið vaxtaraukandi lyf á eldistíman- um og að þeir eru verkaðir í sam- ræmi við ströngustu reglur Evrópu- bandalagsins um slátrun og meðferð alifugla, segir í fréttatilkynningu frá Nóatúni. Oraunhæfar yfírlýsingar um rekstur sjúkrahusa STJÓRN læknaráðs Landspítalans, stjórn læknaráðs Sjúkrahúss Reykjavíkur og stjórn hjúkrunar- ráðs Sjúkrahúss Reykjavíkur hafa sent frá sér eftirfarandi ályktun: ,Á árunum 1997 og 1998 sömdu læknar og hjúkrunarfræðingar ann- ars vegar og fjármálaráðuneytið hins vegar um kjarabætur sem fólu í sér löngu tímabæra leiðréttingu á launum þessara stétta. Öllum hlaut*- að vera ljóst að rekstrarkostnaður heilbrigðisstofnana myndi aukast við þetta enda ekki gert ráð fyrir sam- drætti í þjónustu. Þess vegna þurftu aukafjárveitingar að koma til. Þegar sjúkrahúsin í Reykjavík hafa verið borin saman við sambæri- leg sjúki'ahús í nági’annalöndum, t.d. í nýlegri könnun landlæknis, hefur komið í ljós að afköst heilbrigðis- starfsfólks á Islandi hafa verið jafn- mikil eða meiri en hjá sambærileg- um stéttum á sambærilegum sjúkrahúsum á Norðurlöndum. Hefðbundið er þá að líta til þess hve mörgum sjúklingum er sinnt og hver meðallegutími sjúklinga er á við- komandi sjúkrahúsum. ^ Yfirlýsingar aðila, þar á meðal nokkurra þingmanna, sem allir ættu að þekkja vel til mála, hafa því komið á óvart og eru óraunhæfar í ljósi staðreynda." Tónleikar umhverfís- vina í kvöld MORGUNBLAÐIÐ áréttar að tón- leikar Umhverfisvina, sem sendir verða út í beinni útsendingu á Skjá 1, verða haldnir í kvöld, föstudag, milli klukkan 20.30 og 23.00. Yfirskrift tónleikanna er Eigi að bakka og eru þeir tileinkaðir þeirri umræðu sem á sér stað um Fljótsdalsvirkjun og Eyjabakka. Fjölmargar hljómsveitir og skemmtikraftar koma fram, þar á meðal Sigur Rós, Quarashi, Maus, Ensími, Daníel Ágúst í Gus Gus, KK, Magnús Eiríksson, Páll Óskar, Skapti Ólafsson o.fl. Tónleikana er hægt að hlusta á í beinni útsendingu á Netinu á vefsíðu Morgunblaðsins, mbl.is. Hjálmar Árnason, formaður iðnaðamefndar, mun mæla með framkvæmdinni í stuttu ávarpi og Stefán Jón Hafstein mun einnig taka til máls. Tónleikarnir eru haldnir í mynd- veri Nýja bíós, Skipholti 31, Reykja- vík. 200 miðar verða seldir á tónleik- ana og eru þeir til sölu hjá Umhverfisvinum, Skipholti 34. LEIÐRÉTTING Ekki samið við _ rafiðnaðarmenn hjá ISAL Að sögn Stefáns Guðmundssonar, aðaltrúnaðarmanns Rafiðnaðar- sambandsins hjá ÍSAL, hefur ekki verið gengið frá samningi við rafiðn- aðarmenn sem starfa hjá ÍSAL í _ Straumsvík um vinnu um áramót sem tengist 2000-vandanum. Sjónmenntavettvangair I Sjónmenntavettvangi mínum hér í blaðinu í gær, er ég var að svara Tryggva Árnasyni og Eiríki Þorláks- syni, vegna, að þeiiTa mati, margi’a og ljótra ávirðinga minna, raskaðist ýmislegt á leiðinni á síður blaðsins, sem rétt er að færa í heilan búning. í þriðja dálki kemur fram, rass- bagan, umlegt fleipur, sem á auðvit- að að vera aumlegt fleipur. í fjórða dálki verða 2 M> ár í Handíða- og " myndlistarskólanum að 2 árum og munar nokkru. Afleitast er hnjaskið í lokin er hendanleg atburðarás, verð- ur að endanlegii atburðarás (!) sem er giska annað. Að slíkt geti gerst á tímum hátækni er ofar skilningi mín- um, en á rangsnúningi ber að sjálf- sögðu að biðjast velvirðingar. Bragi Ásgeirsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.