Morgunblaðið - 17.12.1999, Qupperneq 70
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999
Dyraglens
Hundalíf
Smáfólk
íYES, YOUR HONOR^ THIS Y0UN6 LAPV') \I5MV CLIENT^/ we're heré to sue THE WOLF WHO ATE HER SRANPMOTHER.. /VeS,SÍR,|'Ll\ V^ASK HER..y
í M-_JLsáfr J
1 1
HE 10AKJT5 TO KNOW
WHV VOU'RE WEARINö
THAT5TÖPIP LOOKIN6
REP RIP/N6 HOOP ÍN
THE COURTROOM.
Já, herra dóraari. Við ætlum að sækja til Já herra, ég Hann vill fá að vita af hveiju
Þessi unga stúlka saka úlfinn sem át skal spyija hana. þú sért með þessa bjánalegu
er skjólstæðingur minn. ömmu hennar. rauðu hettu í dómsalnum.
BREF
TIL BLAÐSINS
Krintrlunni 1 103 Revkiavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hvað er þokka-
legt veður ?
Frá Guðmundi Bergssyni:
EG ER búinn að heyra talað um veð-
ur frá því ég man eftir mér enda al-
inn upp á sjávarbakka og þaðan voru
stundaðir róðrar. Öll árin sem ég var
til sjós var ekki um meira rætt um
borð en veðrið. Eftir að ég hætti til
sjós hef ég alla tíð fylgst með veðri af
gömlum vana þar til á þessu ári að
veðurfréttir hættu að vera á venju-
legu mannamáli. Það er kannski
sama hvort sagt er hpa eða millibör
ef það er það sama eins og mér skilst.
Þegar farið er að tala um metra á
sekúndu í stað gömlu góðu orðanna
allt frá golu og upp í rok og allt þar á
milli, þá er ég kominn út úr kortinu
eins og sagt er. Það kom nokkrum
sinnum fyrir þegar ég reri í Eyjum
að það voru 12 vindstig á Stórhöfða
en það voru 64 hnútar eða fárviðri
eins og veðurstofumenn sögðu í þá
daga. Nú er gefin út viðvörun í metr-
um á sekúndu, þannig er nú það.
Trausti Jónsson gaf út bók um veður
á íslandi í 100 ár. Þar hef ég ekki
rekist á þokkalegt veður en það tala
veðurfræðingar oft um í veðurfregn-
um. Því spyr ég, hverskonar fyrir-
bæri er það sem kallað er þokkalegt
veður, en þetta fyrirbæri tröllríður
þjóðfélaginu í daglegu máli en ég hef
samt ekki hugmynd um hvað það
merkir. Veðurfræðingar tala um að
lægðir fari allar götur í kring um
landið, hvað sem það merkir. Þeir
tala líka um lægðarbólur sem mér
virðist að sé öfugmæli, nær væri að
tala um lægðarpoll en hæðarbóla
væri frekar við hæfi. Þótt ég sé gam-
all og fastheldinn á það gamla er ég
ekki á móti breytingum ef þær eru til
bóta en þessi breyting er það ekki,
að ég held, en gaman væri að heyra
álit t.d. sjómanna hvort þeir eru
ánægðir með breytinguna, þá þarf
ég ekki að hafa fleiri orð um þetta.
Þegar ég var ungur stóðu karlarnir
undir hjöllunum þegar ekki gaf á sjó
og tóku í nefið og spáðu í veðrið,
einkanlega á jólaföstu. Þá sögðust
þeir vera lesa vetrarbrautina og það
dugði fram að páskum. Ekki veit ég
hvernig spádómar þeirra rættust
enda þýðir ekki fyrir mig að hugsa til
að spá í veður. Eg á engan hjall og
hef aldrei tekið í nefið. Eg horfi bara
út á morgnana og spái í einn dag í
einu enda er ég orðinn einsdagsmað-
ur
Veðrið rokkar vítt og breitt
Veldur nokkrum trega
En það flokkast yfirleitt
Alveg þokkalega.
GUÐMUNDUR BERGSSON
Sogavegi 178, Reykjavík.
Er barnið þitt í
neyslu, þarftu hjálp?
Frá Guðríði Haraldsdóttur:
ÞEGAR foreldrar komast að því að
barnið þeirra hefur ánetjast fíkni-
efnum getur það haft í för með sér
mikla sjálfsásökun og sektarkennd,
ofan á sjálft áfallið. Fordómar ann-
arra hafa alltaf verið fyrir hendi og
oftar en ekki er félagslegu umhverfi
barnsins kennt um, uppeldi þess og
heimilishögum. Rannsóknir hafa þó
sýnt hið gagnstæða eða að börn úr
öllum stéttum þjóðfélajgsins geti
ánetjast fíkniefnum. Astríkt og
reglusamt heimilislíf tryggir ekki
endilega að barnið fari ekki út í
óreglu. Eftir að foreldrarnir hafa
komist yfir mesta áfallið byija þeir
oftast á því að leita aðstoðar fyrir
barn sitt. Þá getur hafist þrauta-
ganga því hvar er rétta aðstoðin?
Opið allan
sólarhringinn, alltaf!
Foreldrahúsið við Vonarstræti 4b
í Reykjavík var opnað fyrir tæpu ári.
Þangað eru allir foreldrar vel-
komnir til að fá upplýsingar um þau
úrræði sem til eru fyrir barnið
þeirra. Ekki þarf að panta tíma þar
og engar skýrslur eru teknar. Til að
geta stutt barn sitt í gegn um erfitt
ferli þurfa foreldrarnir að búa yfir
styrk og í Foreldrahúsinu má finna
hann. Þar er einnig boðið upp á nám-
skeið og viðtöl hjá fagfólki. Nám-
skeiðin ei'u m.a. fólgin í að styrkja
foreldra í því að setja mörk og
standa við þau. Foreldrahúsið er op-
ið öllum foreldrum frá kl. 9-17 virka
daga og eftir það er foreldrasíminn,
581-1799, opinn allan sólarhringinn.
Ekki kostar foreldra neitt að koma í
Foreldrahúsið til að leita sér aðstoð-
ar og verði einkaviðtala og nám-
skeiða er mjög stillt í hóf.
Fjársöfnun Caritas
fyrir Foreldrahúsið
Nú á aðventunni stendur yfir fjár-
söfnun hjálparstofnunar kaþólsku
kirkjunnar á Islandi, Caritas, og
rennur allur ágóði hennar óskiptur
til Vímulausrar æsku og Foreldra-
hópsins sem reka Foreldrahúsið.
Hafi Caritas innilega þökk fyrir.
Starfsemi Foreldrahússins hefur
m.a. skilað miklum og góðum ára-
ngri við að byggja upp sjálfstraust
þeirra foreldra sem þangað hafa leit-
að. Eg hvet almenning til að styrkja
þetta góða og þarfa málefni. Reikn-
ingsnúmer söfnunarinnar er 202500
við íslandsbanka í Lækjargötu.
GUÐRÍÐUR
HARALDSDÓTTIR
ritstjóri og útvarpskona.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa eí'ninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Fasteignir á Netinu ^mbl.is
ALL.TAf= eiTTH\SA4D tJÝn