Morgunblaðið - 17.12.1999, Blaðsíða 72
•~v2 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MA5TER
Hitablásarar
Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
Flísfóðraðir anorakkar
kr. 4.990
r y|
’flis
Laugavegi 54, s. 552 5201.
JÚLIN 1S9S
ALLIR FÁ PÁ EITTHVAÐ FALLEGT
JÓLASÝNING HANDVERKS OG HÖNNUNAR
223 AMTMANNSSTÍG 1 E7.11-1B.1H
:O30
xX □ PIÐ ALLA DAGA NEMA SUNNUDAGA 12.00-17.00
flistihús Rcgínu
Mjölnisholti 14, 3. hæð, sfmar 551 2050 og 8981492
óskar öííum [andsmönnum ofjferðaskrifstofum
fiCeðifegrar fiátíðar
opiö frá 18. desember til 10. janúar
Verö:
Lúxusíbúö m/öllum húsbúnaði kr. 9.000
3ja manna herb. frá kr. 5.900 m/morgunmat
2ja manna herb. frá kr. 4.800 m/morgunmat
Eins manns herb. frá kr. 3.500 m/morgunmat
Eitthvert besta úrval landsins af
vönduðum gömlum dönskum
húsgögnum og antikhúsgögnum
Er að setja inn uppgerða áður óséóa
muni í hverri viku, t.d. borðstofustóla
og -borð, skrifborð og margt fleira.
Gili, Kjalarnesi
s. 566 8963/892 3041
1
MARGT
SJALDSÉÐRA HLUTA
GOTT URVAL
BORÐSTOFUHÚSGAGNA
Opið lau.-sun. kl. 15.00-18.00
. . . og þri. og fimkvöld kl. 20.30-22.30 eða
^Ath. emungis ekta hlutir eftir nánara samkomulagi. Ólafur.^j
Jól í Skemmunní
Hafnarfírðí
íslensku jólasveínarnír skjótast á mílli
danskra jólaníssa meðan
jólakötturínn fylgíst með...
Einníg úrval annarrar
gjafavöru *
Reykjavíkurvegi 5 # sfmi 555 0455
Svissnesk gæði
ítölsk hönnun
Garðar Ólafsson
Úrsmiöur - Lækjargiitu
Sínii 551 0081
í DAG
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þroskaheftir
eru líka fólk
ÞROSKAHEFTUR mað-
ur hringdi í Velvakanda og
vildi koma á framfæri óá-
nægju sinni í garð þroska-
heftra. Hann sagði að þeir
fengju aldrei að vinna á
vinnubílum, til dæmis við
sorphreinsun eða að sanda
göturnar, þeir fengju ekki
einu sinni að prófa. Þeir
væru alltaf látnir ganga,
hvernig sem veðrið væri.
Hann sagði að drykkju-
menn væru teknir fram yf-
ir þá, en þeir væru ekkert
betri vinnumenn. Sagði
hann að sér fyndist að litið
væri á þroskahefta sem
aumingja og að hann væri
ekki ánægður með Islend-
inga.
Hvar er hug-
myndaflugið?
ÞAÐ hefur verið mikil um-
ræða að undanfórnu í fjöl-
miðlum um álverið á Reyð-
arfirði. Það hefur engum
dottið í hug að minnast á
hvað þetta kostar allt sam-
an. Þarna er verið að láta
mikil verðmæti fyrir lítið.
Það væri hægt að gera
margt fyrir allt þetta fé. Því
í ósköpum að eyðileggja
þennan fallega stað með
mengandi álveri? Hvað er
að þessum mönnum, geta
þeir ekki komið með neinar
aðrar hugmyndir? Til dæm-
is mætti byggja þama
heilsuheimili í þessu fallega
umhverfi og þarna er hreint
loft. Þarna gæti verið gott
fyrir eldri borgara að koma
og spila golf á golfVelli sem
væri búið að útbúa þarna.
Það mætti hafa þarna golf-
mót og mjög gott hótel í
tengslum við heilsuheimilið
með miklum þægindum,
sundlaugum, nuddi og ljós-
um. Nú, það mætti auglýsa
hótehð á erlendri grund
sem heilsuparadís fyrir er-
lenda gesti, sem eru vel efn-
um búnir. Hafa íþróttahá-
skóla, eða framhaldsmennt-
un, því fylgir mildl þjón-
usta. Það er svo margt
hægt að gera ef mikið er til
af peningum og hugmynda-
flugið er í lagi.
Hugmyndasmiður.
KEA-Nettó
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi vekja
athygli fólks á versluninni
KEA-Nettó í Breiðholti,
þó fyrst og fremst á hangi-
kjötshúsinu. Þar er farið
að óskum viðskiptavinar-
ins, fagleg þjónusta og af-
greiðsla. Hafið bestu þakk-
ir fyrir.
Akureyringur.
Deiglan - umræða
GUÐMUNDUR gat ekki
orða bundist eftir að hafa
horft á Deigluna, þátt sem
var á dagskrá Sjónvarps-
ins þriðjudagskvöldið 14.
desember sl. Þar geystist
fram ungur maður hjá Is-
landssíma, og þóttist eiga
hluti sem fólk hefur verið
að borga árum saman.
Fór hann fram á eignar-
upptöku á eignum, sem
hann hefur engan rétt á,
hann ætti að kynna sér
betur fjarskiptasögu
landsins. Fannst Guð-
mundi hann vera að gera
h'tið úr því sem byggt hef-
ur verið upp í gegnum tíð-
ina. Lýsti hann því þannig
að þetta væri eins og
hlaupari sem byrjaði við
endamarkið, en byrjaði
ekki hlaupið.
Hálka og slys
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi spyrja
búðareigendur og borgar-
yfirvöld, hver bæri
ábyrgðina ef maður dytti
og slasaðist. Hún sagðist
búa í Efra-Breiðholti og
þar væri glerhálka íyrir
framan verslanirnar.
Henni finnst að borgaryf-
irvöld gerðu alls ekki ráð
fyrir gangandi vegfarend-
Kalkúnafylling
frá Sigga Hall
ELÍSABET hafði samband
við Velvakanda vegna þess
að hana vantar svo bækling
sem Siggi Hall gaf út fyrir
nokkrum ánim með
kalkúnafyllingu. Ef einhver
getur séð af bæklingnum,
eða gefið henni einhverjar
upplýsingar varðandi upp-
skriftina, vinsamlegast
hringið í síma 899-6802, þá
getur hún haldið jól.
Tapað/fundið
GSM-sími týndist
GSM-sími af tegundinni
Motorolla slim light, týndist
á leið frá íþróttahúsi Haga-
skóla að Seltjamamesi
fostudaginn 10. desember
sl. Skilvís finnandi er vin-
samlegast beðinn að hafa
samband í síma 561-0008.
Svört taska týndist
SVÖRT taska týndist á
Skuggabarnum á Hótel
Borg aðfaranótt sunnu;
dagsins 12. desember sl. I
töskunni var peningaveski
með öllum skilríkjum,
snyi-tiveski og GSM-sími.
Skilvis finnandi vinsamleg-
ast hringi í Hildigunni í
síma 561-2278. Mjög góð
fundarlaun.
Morgunblaðið/Omar
Yíkveiji skrifar...
VÍKVERJI hefur skýrt frá þeim
vanda sínum að eiga erfítt með
að átta sig á öllum þeim óteljandi
möguleikum sem farsímar bjóða
upp á. Hann viðurkenndi að nýi
síminn hans væri því enn nokkur
leyndardómur en hefur nú borist
bréf frá Önnu Huld Óskarsdóttur í
þjónustuveri Tals. Hún segir að
Víkverji sé ekki einn um þennan
vanda, notkunarmöguleikarnir vilji
vefjast fyrir fólki.
„Margir sleppa því einfaldlega að
nota sér þessa möguleika vegna
kunnáttuleysis. Það er hálfgerð
synd því að GSM-símar geta létt
fólki samskiptin með svo margvís-
legum hætti.
Við hjá Tali höfum mætt þessu
með því að bjóða reglulega upp á
klukkutíma löng námskeið í notkun
GSM-símanna. Fjöldi á hverju nám-
skeiði er takmarkaður til að að allir
fái þá athygli sem þeir þurfa.
Næstu námskeið verða haldin í jan-
úar n.k. Þessi námskeið eru ókeypis
fyrir viðskiptavini Tals og er hægt
að skrá sig í þau hjá þjónustuveri
Tals,“ segir Anna Huld.
Nú getur Víkverji aðeins vonað
að þjónustufyrirtækið sem hann
skiptir við bjóði sömu þjónustu sem
fyrst. Annars heldur hann vafalaust
áfram að horfa öfundaraugum á þá
sem geta og kunna.
TEKJUR okkar íslendinga af er-
lendum ferðamönnum halda
áfram að aukast sem eðlilegt er þar
sem þeim fjölgaði um rúmlega 12%
fyrstu tíu mánuði ársins. Umskiptin í
þessum efnum síðustu áratugina eru
ótníleg. Þeir sem muna nokkra ára-
tugi aftur í tímann geta rifjað upp
ferðir á staði eins og Dettifoss, þar
voru þá ef til vill fáeinir útlendingar
eða engir. Og erlend bílnúmer, önn-
ur en á farartækjum vamarliðs-
manna, sáust ekki á vegunum af
þeirri einföldu ástæðu að ferjusigl-
ingar voru ekki hafnar milli Seyðis-
fjarðar og annarra landa.
En Víkverji rak augun í að far-
gjaldatekjur af ferðamönnunum hafa
dregist saman. Skýringin mun meðal
annars vera sú að erlend flugfélög
hafa sótt í sig veðrið í flugi hingað og
Atlanta hætt Þýskalandsflugi. En
einnig að verðlag á ferðunum hafi lít-
ið hækkað í prósentum vegna sam-
keppni. Þjóðai’búið fær því færri
krónur í sinn hlut en ella, á móti
kemur að við neytendur eigum auð-
veldara með að ferðast, kostum
minna til.
XXX
JÓLASVEINARNIR okkar gömlu
voru hinir verstu götustrákar eða
pörupiltar svo að notað sé þjóðlegra
orðfæri. Þeir voru þjófóttir, hlýddu
ekki foreldrum sínum, blessuðum
öðlingunum, og fleira mætti tína til.
En nú er Víkverji farinn að velta fyr-
ir sér hvort sumir nútímasveinkar
séu ekki fullt eins slæmir þótt þeir
séu nú flestir í fagurrauðum búning-
um og með vel hirt skegg.
Smekkurinn er auðvitað misjafn
en þótt til séu þjálfaðir sveinar sem
fari rétt með texta gömlu vísnanna
og geti sungið þokkalega er frammi-
staðan stundum verri í þessum efn-
um en hægt er að sætta sig við. A
ekki að sýna bömum sömu virðingu
og öðru fólki? Þau minnstu eru of lít-
il til að átta sig vel á gæðunum eða
skortinum á þeim en eiga samt sinn
rétt. Foreldramir eru oft of út-
jaskaðir af jólaundirbúningi til að
meta sönginn réttilega, reyna fyrst
og fremst að tryggja að ki-ílin
skemmti sér.
Jólasveinafélagið (er það ekki ör-
ugglega til?) verður því að halda
uppi sjálfsögun og efla metnaðinn
hjá félagsmönnum sínum.
Og svona í lokin, Víkverja finnst
að Akureyringar eigi að mótmæla
þegar Ketkrókur deilir út karamell-
um. Allir vita að hann vill sjálfur
ekkert nema hangiket og ætti að sjá
sóma sinn í að bjóða bömunum eitt-
hvað fleira en sætindi. Sveinki gæti
fengið á sig kæru fyrir tannskemm-
andi undirróður.