Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL VALBERG ÓLAFSSON frá Dagverðartungu, Hörgárdal, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 24. febrúar kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hans, láti líknar- stofnanir njóta þess. Hulda Snorradóttir, Gylfi Pálsson, Rósa María Björnsdóttir, Ragna Pálsdóttir, Ævar Ragnarsson, Gísli Pálsson, Stefanía Þorsteinsdóttir, Snjólaug Pálsdóttir, Þorsteinn Sigurðsson, Snorri Þ. Pálsson, afabörn og langafabarn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BENEDIKT VALGEIRSSON, Árnesi II, Árneshreppi, sem lést sunnudaginn 13. febrúar, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju miðvikudaginn 23. febrúar kl. 15.00. Hávarður Benediktsson, Þórstína Benediktsdóttir, Einar Benediktsson, Valgeir Benediktsson, Þorgeir Benediktsson, G. Ingólfur Benediktsson, Sesselja Benediktsdóttir, barnabörn og Sveindís Guðfinnsdóttir, Brynhildur Bjarnadóttir, Hrefna Þorvaldsdóttir, Halla Hauksdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir, Þorgeir Pálsson, barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN PÁLSSON skipstjóri, frá Vestmannaeyjum, til heimilis á Dalbraut 18, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 16. febrúar, verður jarðsunginn frá Áskirkju miðvikudaginn 23. febrúar ki. 15.00. Ósk Guðjónsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir, Heiðmundur Sigurmundsson, Ragnhildur Jóhannsdóttir, Gunnlaugur Vignir Gunnlaugsson, Steínar Jóhannsson, Ingigerður Axelsdóttir, Herjólfur Jóhannsson, Dagný Másdóttir, afabörn og langafabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, TORFA SIGURÐSSONAR frá Bæjum, Grensásvegi 52, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeild- ar Sjúkrahúss Reykjavíkur. Ragnheiður Torfadóttir, Sigurður Kr. Finnsson, Ingibjörg Sara Torfadóttir, Guðmundur Pálmason, Rún Torfadóttir Smith, Murray Smith. barnabörn og barnabarnabörn. + Við þökkum af alhug öllum þeim fjölmörgu, er sýnt hafa okkur samúð og kærleiksríka vináttu við andlát og útför EYJÓLFS SVANS PÁLSSONAR frá Starrastöðum, Skagafirði. Sérstakar þakkir til Álftagerðisbræðra og Karlakórsins Heimis. Guð blessi ykkur öll. María Reykdal, Guðrún Kristjánsdóttir, Arnar Páll Eyjólfsson, Elín Ólafsdóttir, Sara R. Einarsdóttir, Sveinn Úlfarsson, Þórunn Eyjólfsdóttir, Margrét Eyjólfsdóttir, Páll Starri Eyjólfsson, Stefanía Guðrún Eyjólfsdóttir, Ólafur S. Pálsson, Sigurður Pálsson, Reynir Pálsson, Ingimar Pálsson og fjölskyldur. greiningunni, sem var mikið áfall, en þá var vörn snúið í sókn, mataræðið tekið fyrir og hollusta sat í fyrirrúmi, þar var Sigga í broddi fylkingar. Þegar séð var að ekki var við sjúk- dóminn ráðið, varð að taka því og einn dagur tekinn í einu. Sigga stóð eins og klettur við hlið eiginmanns síns og vék ekki frá honum, hún lagði alla áherslu að Stjána liði sem best. Aldrei heyrði maður þau kvarta. Okkur finnst svo ósanngjamt að Stjáni fengi ekki að njóta lengri tíma eftir flutninginn til Reykjavíkur, með alla ástvini sína í nálægð við sig. Þessi góði maður var hrifinn burtu frá ástvinum sínum einmitt þegar hann naut nálægðarinnar við þá. Ef við snúum við blaðinu og förum í svolítinn Pollýönnuleik, þá getum við séð allt í öðru ljósi, hve það var gott að einmitt þessi nálægð við ástvini þessi síðustu ár hafi verið honum dýrmæt, hve við ættingar og vinir hans vorum lánsöm að hafa hann svo nálægt okkur, hve við vorum lánsöm að eiga hann sem eiginmann, föður, tengdaföður, afa, bróður og vin. Allt hefur sinn tilgang, þó að oft sé erfitt að sjá hann þegar ástvinur er tekinn frá okkur. Við erum sorgmædd nú, en við eigum minningamar um góð- an mann, þeim höldum við, enginn tekur þær frá okkur. Elsku Stjáni, hversu erfitt er að kveðja þig, kæri vinur. Við áttum eftir að gera svo margt saman, fara í Skorradalinn og til Skotlands aftur og halda upp á fimmtugsafmæli Siggu. Þessar ferðir verða famar, en án þín, elsku vinur. Við viljum að lok- um kveðja þig með þessum versum sem okkur finnst svo falleg: Vinur kæri vegir sldjja hér, vakir sífellt hjá oss minning þín, gegnum dauðans dapra hliðið, er dagur æðri heima til vor skín, augum vorum lýsir hann frá harmi heim að drottins miida fdðurarmi. Ástarþakkir, kæri vinur vor vorar hjartans óskir fylgja þér, þó oss séu þung og erfið spor þig að kveðja. I trúnni sjáum vér endurfunda áfangana oss lýsa, upp af hafi saknaðar er rísa. Blómastofa Friðjtnns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. Guðs í friði far þú, vinur kær, fagnaðarins bjarta landið á. Eins og vorsins blíður morgunblær berast til þín kveðjur vinum frá, þar til brostnu tengslin tengir aftur tilverunnar alheimsríkis kraftur. (Ágúst Jónsson.) Elsku Sigga og Kristján Einar, Jón og fjölskylda, Gabriela og fjöl- skylda, við Rútur sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Með ykk- ar einstöku og traustu fjölskyldu- böndum komist þið saman yfir sáru sorgina og saman yljið ykkur yfir góðum minningum um ástríkan og góðan eiginmann, föður, tengdaföð- ur og afa og biðjum góðan Guð að gefa ykkur styrk. Rútur og Bergljót. Góður vinur minn, Kristján Jóak- imsson frá Hnífsdal, fyrrverandi stýrimaður og skipstjóri, lést hinn 13. febrúar sl. eftir langvarandi bar- áttu við sjúkdóm. Við Kristján kynntumst fyrst nokkuð á unglings- árum en síðar miklu betur enda báð- ir stýrimenn og síðar skipstjórar á bátum frá ísafirði og Hnífsdal. Síðan urðum við samskipa á skipunum Guðrúnu Guðleifs IS og Páli Páls- syni IS sem Jóakim Pálsson, útgerð- armaður frá Hnífsdal, faðir Krist- jáns, gerði út í þrjá áratugi. Kristján Jóakimsson starfaði með mér í tvo áratugi sem stýrimaður, lengst af á skuttogaranum Páli Pálssyni IS frá Hnífsdal. Við urðum fljótt góðir vinir og minnist ég þess ekki að nokkurn tíma hafi ósætti orðið okkar á milli þótt við hefðum ekki sömu skoðanir á öllum málum. Það er erfitt að minnast góðs vin- ar, sem fellur frá á miðjum aldri þeg- ar þeir tímar ættu að vera að menn geti byrjað að líta yfir farinn veg með nokkru stolti og ánægju sem gleður hug og hjarta þess sem á góða fjölskyldu, eiginkonu, börn og barnabörn. Oll höfum við okkar kosti og galla. Getum verið þver, hörð, erf- ið eða ljúf í lund og viðmóti. Ég er viss um að Kristján vinur minn var ljúfur maður með gott hjartalag og greiðvikinn svo af bar. Vildi öllum hjálpa sem bágt áttu ef því varð við komið. Sæi hann hins vegar að vand- ræði fólks stöfuðu af leti eða fram- Gróðrarstöðin B EimHÚÐ ♦ Hús blómanna Blómaskreytingar við öll tækifæri. Dalvcg 32 Kópavogi sími: 564 2480 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir OUen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 « Sími 581 3300 AUan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Vn-j'Ai 'Uidlú; bat ud iii jilduiJl Útfararstofan annast meginhluta allra útfara á höfuSborgarsvæSinu. Þarstarfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu. AlúSleg þjónusta sem byggir ú langri reynslu jr Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf. Vesturhlfð 2-Fossvogi-Sími 551 1266-wvwv.utfarastofa.com mj taksleysi að hans mati, kom það hreint fram í orðum hans, jafnt við félaga hans og vini, sem aðra. Ég á ekki von á því að nokkur maður sem Kristjáni kynntist beri með sér ann- að en væntumþykju í hans garð. Ég er viss um að allir þeir sem með okk- ur störfuðu í tvo áratugi við fiskveið- ar minnast hans sem góðs félaga og vinar. Glaðs félaga sem kunni vel að segja sögur af sjálfum sér og öðrum, fullviss þess að maður er manns gaman og vinur sá sem satt segir, en skilur samt að stundum má kjurt liggja og óþarfi að særa menn. Kristján Jóakimsson vissi vel að hverju dró með vegferð sína í þessu lífi. Hann bar það eins og hetja sem tekur því sem að höndum ber. Ég bið honum guðs blessunar. Sigríði Harð- ardóttur, eiginkonu hans, börn og barnabörn, systkini og vini bið ég góðan guð að styrkja í sorg þeirra og söknuði. Sjálfur kveð ég góðan vin og félaga sem ég oft mun sakna. Það verður samt oft stutt í brosið því það góða og skemmtilega fylgir minning- unni um Kristján Jóakimsson frá Hnífsdal. Blessuð sé minning hans. Guðjón A. Kristjánsson. Hann Stjáni Jóa var með glaðvær- ari mönnum, alltaf að segja sögur af körlunum í Hnífsdal. Það hvein hátt í honum þegar hann lék karlana með tilþrifum og maður veltist um af hlátri. Hann var einn af þeim sem voru stöðugt að gera öðrum til geðs, bæði með því að létta lundina og eins með greiðasemi og velvilja. Fjöl- skyldur okkar frændanna voi’u ávallt í miklum tengslum og heimsóknir tíðar. Við hétum eftir sama frændan- um, föðurbróður feðra okkar, og því í uppáhaldi í Pálshúsi. Við fórum oft með afa gamla á sjóinn og fengum mikið út úr því að vera í samskiptum við gamla manninn. Leiðir okkar í æsku lágu einnig saman í sveitinni þegar við vorum saman í Nesi í Gunnavík hjá þeim öðlingssystkin- um sem þar bjuggu. Þar var Stjáni í miklu uppáhaldi enda hann þeim sérstaklega handgenginn. Sjómenn- skuna drukkum við báðir í okkur með móðurmjólkinni enda mikil sjó- mannsselta í Hnífsdalsblóðinu. Stjáni varð fljótt skipstjóri og var hann sérstaklega farsæll og hafði hag áhafnarinnar ávallt að leiðar- ljósi. Get ég sagt af eigin reynslu að í skiprúmi með honum var einstak- lega gott að vera. Arin hans Stjána á togaranum Páli Pálssyni urðu því mörg og byggðu meðal annars grunn að því veldi sem Hraðfrystihúsið í Hnífsdal stendur á í dag. Stjáni fór í land fyrir nokkrum árum og fannst mér eins og hann kynni aldrei alveg við breytinguna. Það er oft þannig með okkar duglegustu sjómenn að þeim finnst ekkert vinna nema að vera úti á sjó. Ég veit að Sigríður, börnin og bamabörnin fögnuðu því þegar Stjáni kom í land en velferð fjölskyldunnar honum ávallt efst í huga. Heimili þeirra Sigríðar og Stjána er mjög myndarlegt og þau höfðingjar heim að sækja. Fyrir fjöl- skylduna er ótímabært fráfall Stjána því mikill missir. Veikindi sín barðist Stjáni við með sinni léttu lund fram til hins síðasta. Minningin um góðan dreng lifir. Ég og fjölskylda mín vottum þér, Sigga mín, Jón, Gabríela og Kristján og fjölskyldur okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Kristjáns Jóakimssonar. Kristján Pálsson. • Fleirí minningargreimir um Kristján Jóakimsson bíða birt- ingar ogmunu birtast íblaðinu næstu daga. hF H H h h h h h h h h h h h h h h mnimniiii Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 3C H H H H H H H H H H H H jxxxjxixxixitxxxjC
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.