Morgunblaðið - 22.02.2000, Page 4

Morgunblaðið - 22.02.2000, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ r FRETTIR BHM kærir uppsögn fjármálastjóra Þjóðminjasafns Tveir stjórnendur safns- ins segja upp störfum HJÖRLEIFUR Stefánsson, minjastjóri Þjóð- minjasafnsins, hefur sagt upp störfum og laetur af starfi 1. júní nk. Segist hann ekki sætta sig við að vinna við þær aðstæður sem nú ríki í safninu. Þá hefur Guðný Gerður Gunnarsdóttir safnstjóri til- kynnt munnlega að hún ætli að segja upp. Þór Magnússon þjóðminjavörður staðfesti þetta í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Bandalag háskóla- manna hefur sent menntamálaráðherra stjórn- sýslukæru vegna uppsagnar Hrafns Sigurðssonar, fjármálastjóra Þjóðminjasafnsins, í seinustu viku og krafist þess að hún verði afturkölluð. Hjörleifur og Guðný hafa setið í framkvæmda- ráði Þjóðminjasafnsins ásamt Þór Magnússyni þjóðminjaverði og Hrafni Sigurðssyni fjármála- stjóra sem nýlega var vikið frá störfum vegna þess að safnið fór fram úr fjárveitingum á fjárlögum. Þjóðminjaráð kom saman til fundar í gær þar sem rætt var um þá óánægju og deilur sem hafa risið vegna ákvörðunar þjóðminjavarðar að segja fjármálastjóranum upp störfum. Að sögn Þórs voru engar ákvarðanir teknar á fundinum og sagði hann að beðið yrði svars menntamálaráðuneytisins við þeirri greinargerð sem ráðuneytinu var send, en vonast er til að það berist í þessari viku. Aðspurður um uppsagnir Hjörleifs og Guðnýjar sagði Þór að Hjörleifur hefði formlega lagt fram uppsagnarbréf en Guðný hefði tilkynnt munnlega að hún myndi láta af störfum. Þór sagði slæmt að missa góða starfsmenn, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um uppsagnir þeirra. Rýrt trúverðugleika safnsins Hjörleifur Stefánsson segist ekki sætta sig við að vinna við þær aðstæður sem nú ríki í Þjóðminja- safninu. „I nokkur ár, síðustu þijú árin, hefur meg- inhluti starfsmanna Þjóðminjasafnsins unnið að því að bæta safnið og rífa það upp úr ákveðnum öldudal sem það var í. Okkur hefur orðið nokkuð ágengt. Þessi aðgerð, að reka fjármálastjórann, er að nokkru leyti ómerking og skemmd á þessu starfi okkar. Trúverðugleiki okkar bíður hnekki,“ segir Hjörleifur. Hann segir að meirihluti þeirra sem sitja í fram- kvæmdaráði hafi boðist til að axla ábyrgð á þessari framúrkeyrslu, að því leyti sem ábyrgðin sé þeirra, en tekur fram að ábyrgðin sé að verulegu leyti ann- arra. Hins vegar hafi verið ákveðið að gera einn úr hópnum að blóraböggli og að ósekju gefið í skyn að um fjármálaóreiðu væri að ræða. „Ég sætti mig ekki við að vinna við svona aðstæður," segir Hjör- leifur. Hjörleifur segir að vissulega hafi atburðarásin öll rýrt trúverðugleika Þjóðminjasafnsins og þess góða starfs sem þar hafi verið unnið. Hann telur að ekki hafi verið tekið á málinu með réttum hætti. Allur hópurinn, framkvæmdaráð og þjóðminjaráð, hefði átt að snúa bökum saman og laga það sem úr- skeiðis fór enda beri margir ábyrgð á fjárhagsstöð- unni. Segir Hjörleifur að meinsemdin, það sem að var, sé óbreytt. „Safnið er stjómlítið og ekki ríkir traust milli yfirstjórnar þess og framkvæmdaráðs annars vegar og þjóðminjaráðs og menntamála- ráðherra hins vegar,“ segir Hjörleifur Stefánsson. Telja stj órnsýslureglur brotnar Að sögn Gísla Tryggvasonar, framkvæmda- stjóra BHM, hefur bandalagið einnig óskað eftir rökstuðningi þjóðminjavarðar fyrir uppsögn fjár- málastjórans. Gísli sagði að fjármálastjóranum hefði ekki verið veitt áminning eins og skylt væri að gera þegar ríkisstarfsmenn ættu í hlut. ,Andmæla- réttar var heldur ekki gætt. Honum var bara sagt upp fyrirvaralaust. Þá hefur svokölluð meðalhófs- regla, um að ekki skuli farið harðar í sakimar en til- efni er til hverju sinni, einnig verið brotin og að öll- um líkindum rannsóknarreglan, sem kveður á um að rannsaka skuli mál nægilega, áður en ákvörðun er tekin,“ segir Gísli. Aðspurður um þessa kæm sagði Þór Magnússon að henni yrði svarað eins og lög segðu fyrir. I Leifur Friðriksson Fórst með Gunna RE MAÐURINN sem fórst með Gunna RE-51, sem sökk um 4 sjómílur suðvestur af Akra- nesi 14. febrúar sl., hét Leif- ur Friðriksson. Hann var til heimilis á Ein- arsnesi 42a í Reykjavík. Leif- ur var fæddur 18. maí 1962. Hann lætur eftir sig tvö börn, 16 og 17 ára. Morgunblaðið/Yann Kolbeinsson Nó/yiC'V' cifi í nfrfviPuM I/iivm' Til sölu Audi A4 station nýskráður 19/12/1996 sjálf- skiptur, 1800 vél, silfurgrár ekinn 30,000 km. Ásett verð 2.190.000. Ath, skipti á ódýrari. Nánarí upplýsingar hjá Bíla- þingi Hekiu, sími 569 5500. Opnunartlmi: Manud. - röstud. kl. y-18 laugardagar kl. 12-16 BÍLAÞING JEKLU Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500 www.bila1hiiít|.iíi ■ www.bifjithiritj.is ■ wwvy.bil.ilhiiKj.is Sendlingar í Örfirisey Þeir voru værðarlegir sendlingarn- ir í Örfirisey er ljósmyndarinn átti þar leið um á dögunum. Flestir þeirra virtust sofa en einn stóð þó vaktina og gaf vegfarendum auga. Slapp ómeidd- ur eftir bflveltu ÖKUMAÐUR jeppabifreiðar slapp ómeiddur eftir bílveltu í Björgunum, rétt utan Reyðarfjarðar, í gær. Þeg- ar lögreglumenn komu að urðu þeir að skera ökumanninn niður úr bíl- beltunum, en þar hékk hann fastur þegar bifreiðin stöðvaðist á þakinu eftirveltuna. Maðurinn var að koma upp brekku um fjórðungi fyrir klukkan 15, er hann missti annað framhjólið út í ruðning með þeim afleiðingum að bifreiðin valt. Utanríkisráðherrar Islands og Bretlands hittast á föstudag Málefni Sella- field á dagskrá HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra mun eiga fund með Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, í London á föstudag og verða ör- yggismál í kjarnorku- endurvinnslustöðinni í Sellafield þar meðal má- lefna á dagskrá. Halldór greindi frá þessu í óund- irbúnum fyrirspurna- tíma á Alþingi í gær. Það var Þórunn Svein- bjarnardóttir, þingmað- ur Samfylkingar, sem hafði spurst fyrir um það hjá utanríkisráðherra hvort ríkisstjórnin hygð- ist taka málefni Sellafield upp við bresk stjórnvöld í kjölfar þeirra válegu tíð- inda, sem borist hefðu í síðustu viku, um að nið- urstöður öryggisprófana í Sellafield hefðu verið falsaðar með kerfis- bundnum hætti. Þórunn sagði að sér væri ljóst að Siv Frið- leifsdóttir umhverfisráð- herra hefði þegar skrifað John Prescott, varafor- sætisráðherra og ráð- herra umhverfismála í Bretlandi, bréf um þetta efni en að hún teldi brýna nauðsyn til að málið yrði tekið upp með öðrum hætti einnig. Gífurlegir hagsmunir væru í húfi fyrir land og þjóð og því dygðu engin vettlingatök, breska kjarnorkueftirlitið hefði af- hjúpað lögbrot á alþjóðlegum samn- ingum. „Bresk stjórnvöld verða að svara því skýrt og skorinort hvernig skuli brugðist við,“ sagði Þórunn. Halldór Ásgrímsson sagði í svari sínu við fyrirspurn Þórunnar að frá því síðastUðið haust hefði verið í und- irbúningi fundur á milli hans og Rob- ins Cooks, utanríkisráðherra Bret- lands. Akveðið væri að þessi fundur færi fram í London næstkomandi föstudag. ,Á þessum fundi verða rædd ýmis tvíhliða málefni land- anna,“ sagði Halldór. „Og áður en þessar fréttir komu til, þess- ar nýjustu fréttir um Sellafield, var það mál komið á dagskrá þess fundar. Þannig að þetta mál verður að sjálfsögðu rætt á þessum tvíhliða fundi næstkomandi föstu- dag £ London. Og það er enn meiri ástæða en nokkru sinni fyrr til þess að ræða þetta mál tvíhliða milli landanna og það verður gert eins og efni standa tíl.“ Islendingar and- vígir Sellafield- stöðinni Þórunn innti ráð- herra í framhaldinu eftir því hvaða kröfur hann myndi gera á fundi sínum með Cook og sagði Hall- dór þá að það lægi ljóst fyrir að Islend- ingar væru andvígir kjarnorkuendur- vinnslustöðinni í Sellafield og að þeir vildu helst sjá hana hverfa. „Við gerum okkur ekki mikl- ar vonir um það, en það hlýtur að vera eðlileg og réttlát krafa af okkar hálfu að fyllsta öryggis sé gætt og allar upplýsingar um rekstur stöðv- arinnar liggi fyrir og allar skýrslur séu réttar þannig að við gerum okk- ur grein fyrir hinu raunverulega ástandi.11 Kvaðst Halldór vænta þess að þingmenn gætu verið sammála um slíkar áherslur. Þórunn tók undir það í lokaorðum sínum að skynsamlegast væri ef Sellafield-stöðinni yrði lokað. Taldi hún að það ætti að vera skýr krafa af hálfu íslenskra stjómvalda og að sú afstaða ætti að koma skýrt fram á fundi Halldórs með Cook á föstudag. Robin Cook

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.