Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ 48 *.— PRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 UMRÆÐAN FRÉTTIR NÝVERIÐ voru kynntar áætlanir Há- skóla íslands um nýtt nám - MBA-nám, sem ætlunin er að kenna í fyrsta skipti á íslandi næsta haust. Röskva fagnar tilkomu nýrra námsleiða og MBA- ■■\nám er góð og hagnýt framhaldsmenntun sem fjölda stúdenta finnst spennandi. A náminu er hinsvegar einn verulegur galli. MBA-menntunin verð- ur aðeins í boði fyrir þá sem greiða rúma millj- ón króna við skráningu í námið. Háskólinn sveltur til hlýðni Hér er á ferðinni grundvallar- breyting á þeirri menntastefnu sem rekin hefur verið á íslandi allt frá því að Háskóli íslands var stofnaður í byrjun aldarinnar. Þessi stefnu- —vbreyting er afleiðing. Þetta eru neyðarúrræði Háskólans eftir ára- langt fjársvelti. Segja má að Háskól- inn hafi á undanförnum árum verið sveltur til hlýðni. Þrátt fyrir að þjóðin öll, AI- þingi, allir stjómmála- flokkar og stúdentar hafi margoft ítrekað andstöðu sína gegn skólagjöldum er Há- skóli Islands kominn í þá stöðu að geta ekki tekið upp nýtt nám án þess að nemendur greiði milijónir fyrir það. Háskólinn er svo illa staddur að til að geta tekið upp nýtt nám verður hann að brjóta lög og sigla í skjóli Endurmenntun- arstofnunar. Röskva vill sjá MBA-nám við Há- skóla íslands og allar þær námsleiðir sem nútímaháskóli þarf til að bera til að geta veitt nemendum sínum fyrsta flokks menntun og staðist samkeppni við erlenda háskóla. Þessi umræða snýst hinsvegar um grundvallaratriði - hvort taka eigi upp skólagjöld við Háskóla íslands. Skólagjöld Fleiri blikur eru á lofti. A háskóla- Stúdentaráð Röskva hafnar skóla- gjöldum alfarið, segir Haukur Agnarsson, hvort sem um grunn- nám eða framhaldsnám er að ræða. hátíð í haust sá menntamálaráðherra ástæðu til að eyða löngu máli í um- ræðu um skólagjöld. Engu að síður voru einungis nokkrir mánuðir liðnir síðan ákveðið var, vegna baráttu stúdenta, að ekki skyldi opnað fyrir skólagjöld í sérlögum um Háskól- ann. Ummæli menntamálaráðherra eru verulegt umhugsunarefni, enda ítrekaði Stúdentaráð að frumkvæði Röskvu andstöðu sína við skólagjöld strax eftir háskólahátíðina. Röskva vill jafnrétti til náms Ljóst er að eitt helsta baráttumál Stúdentaráðs næstu misserin verður baráttan fyrir því að skólagjöld verði ekki tekin upp við Háskóla Islands. Röskva hafnar skólagjöldum alfarið, hvort sem um grunnnám eða fram- haldsnám er að ræða. Það eru grundvallarmannréttindi allra ís- lendinga að geta aflað sér menntun- ar, á forsendum eigin verðleika og óháð efnahag. Röskva mun alltaf berjast af fullum krafti gegn upp- töku skólagjalda við Háskóla Is- lands. Nám við Háskólann á að vera öllum opið. Aðeins þannig verður Háskóli Islands áfram réttnefndur þjóðskóli. Höfundur skipar 4. sæti á lista Röskvu til Stúdentaráðs. TILBOÐSDAGAR GLERAUGNABÚDIN Heimout KrekUcr Laugavegi 36 í> Umgjarðir, gler og snertilinsur _ Röskva gegn skólagiöldum Haukur Agnarsson Lionsklúbburinn Eir Styrktarsýning1 í Háskólabíói LIONSKLÚBBURINN Eir í Reykjavík hefur undanfarin ár átt gott samstarf við Háskólabíó um for- sýningarrétt á kvikmyndum. Sam- starfið felst í því að Háskólabíó eða framleiðandi viðkomandi mynda eft- irláti Lionsklúbbnum sölu á frum- sýningu. Öllum ágóðanum ver síðan Lionsklúbburinn til ýmissa líknar- mála. Kvikmyndin sem sýnd verður að þessu sinni er úrvalsmyndin „Ang- ela’s Ashes“ miðvikudaginn 23. febr- úar. Aðalhlutverk er í höndum Emily Watson og Roberts Carlyle. Myndin er gerð eftir verðlaunasögu Frank McCourt. Sala aðgöngumiða er í höndum fé- lagskvenna og í anddyri Háskóla- bíós. Á síðasta ári var uppselt á sýn- inguna, og sýnir það mikinn áhuga kaupenda á að styðja góð málefni og leggja sitt af mörkum til líknarmála. „Angela’s Ashes“ fjallar um írska fjölskyldu sem flyst til Ameríku. Þar gengur lífsbaráttan ekki nógu vel svo fjölskyldan flytur aftur til ír- lands. Sagan segir frá lífsbaráttunni á írlandi milli 1930 og 1950. Þessi saga hefur verið mjög umtöluð, og má nefna að hún hefur m.a. verið kennsluefni í Kvennaskólanum í Reykjavík. I fréttatilkynningu segir: „Lions- klúbburinn Eir hefur frá upphafi varið stærsta hluta fjáröflunar sinn- ar til tækjakaupa fyrir fíkniefnadeild lögreglunnar. Það hefur verið ein- róma álit fíkniefnalögreglunnar að stuðningur Lionsklúbbsins hafi stuðlað að árangursríkara starfi hjá deildinni. Mörg þeirra tækja sem Lionsklúbburinn hefúr gefið lög- reglunni hafa komið sér mjög vel við rannsóknir og uppljóstranir. Barátta gegn fíkniefnum hefur frá stofnun klúbbsins verið aðalmálefni Eirar. Þá hefur klúbburinn einnig lagt mörgum öðrum líknarmálum lið.“ ----------------- Fyrirlestur um náms- örðugleika barna FYRIRLESTUR á vegum FABS, Félags aðstandenda barna með sér- þarfir í Hafnarfirði, verður miðviku- daginn 23. febrúar kl. 20. Fyrirlesari verður Ragna Freyja Karlsdóttir sérkennari og mun hún fjalla um nám barna sem eiga í nám- sörðugleikum og um samstarf kenn- ara og foreldra. Einnig mun hún fjalla um útivistarþjálfun. I lokin mun Ragna svara fyrirspurnum fundarmanna. Ragna Freyja starfar nú sem sérkennari í grunnskóla í Kópavogi. Hún hefur haldið fjöldan allan af fyr- irlestrum fyrir foreldra, fagfólk og aðra þá sem að börnunum koma. AlUr eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Danska útvarpshljómsveitin, ein besta sinfónluhljómsveit Norðurlanda, kemur við á fslandi á leið sinni í tónleikaferð til Bandaríkjanna. Stjórnandi á tónleikunum í Háskólabíói er hinn þekkti hljómsveitarstjóri Yuri Temirkanov, aðalhljómsveitarstjóri Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Pétursborg. Einnig verður með í förinni danska tónskáldið Paul Ruders, en á tónleikunum verður flutt verk hans, Concerto in Pieces. Á efnisskránni eru einnig Sinfónía nr. 4 eftir Carl Nielsen og Sinfónía nr. 2 eftir Jean Sibelius. Tryggið ykkur miða á þennan einstaeða tónlistarviðburð! HOTELS & RESORTS Miðasala virka daga kl. 9-17 Háskólabió v/Hagatorg Sími 562 2255 www.sinfonia.is Radisson SAS Hótel Saga stuðningsaðili menningarborgar Reykjavíkur 2000 Gisting á góðu verði! tengslum við tónleika Stórviðburður í íslensku tónlistarlífi Tónleikar Radiosymfoniorkestret í Háskólabíói mánudaginn 28. febrúar kl. 20 Hljómsveitarstjóri: Yuri Temirkanov HMM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.