Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 61
I DAG
BRIPS
Umsjón Guðmundur
I'áll Arnar.son
BRIDSHÁTÍÐ fór fram í
nítjánda sinn á Hótel Loft-
leiðum um helgina og var
þátttaka mjög góð eins og
endranær, 124 pör í tví-
menningnum og 79 sveitir í
Flugleiðamótinu. Þeir sem
tóku þátt í báðum mótum
hafa afgreitt tæplega 200
spil, misjafnlega eftirminni-
leg, eins og gengur. Brids-
þátturinn verður helgaður
spilum frá hátíðinni á næstu
dögum og við byrjum á
slemmutækifæri úr tví-
menningnum:
Spil 76. Suður gefur; AV á
hættu (áttum breytt).
Norður
* RG96 ¥ AG63 ♦ KG2
Vestur + D8 Austur
A 752 + D1083
v K954 ¥ D72
♦ 865 ♦ D1073
* 973 Suður + Á4 *G4
¥ 108 ♦ Á94
+ AK10652
Slemma er nokkuð góð í
NS, en náðist ekki víða.
Flest pörin enduðu í þremur
gröndum og fengu tólf slagi
eftir hjarta út. Sagnhafi á
ellefu slagi í upphafi og fær
þann tólfta með þvi gefa
austri á hjartadrottningu og
svína svo fyrir kónginn í
vestur.
Tólfti slagurinn er lang-
sóttari með öðru útspili, því
austur liggur með öll lykil-
spilin í spaða og tígli á eftir
blindum. En ef sagnhafi les
rétt í spilin getur hann alltaf
unnið slemmu. Segjum að út
komi spaðasjöa, eins og
gerðist á nokkrum borðum.
Sagnhafi reynir níuna, drep-
ur tíu austurs með kóng og
prófar laufið. Að því loknu
spilar hann hjartatíu. Vest-
ur leggur á og sagnhafi tek-
ur með ás. Síðan eru tveir
efstu í tígli teknir og öll lauf-
in. Hugmynd sagnhafa er að
ná upp þriggja spila endast-
öðu þar sem blindur á KG i
spaða og hjartagosa. Hann
gerir ráð fyrir að austur fari
niður á Dx í spaða og hjarta-
drottningu, og meiningin er
að spila hjarta og neyða
austur til að spila upp í
spaðagaffalinn. En áður en
að þessu kemur þvingast
austur í þremur litum, því
hann á líka D10 í tígh og
verður að henda báðum spil-
unum. Sem þýðir að sagn-
hafi fær slag á tígulníu.
Fleiri leiðir liggja að tólf
slögum, en sagnhafi virðist
þó alltaf þurfa að gefa sér
einhverjar forsendur um
leguna.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga íyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
simanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj@mbl.-
is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Arnað heilla
P A ÁRA afmæli. í dag,
Ö vl þriðjudaginn 22.
febrúar, verður sextugur
Gunnar B. Bjartmarsson,
Þiljuvöllum 29, Neskaup-
stað. Hann verður að heim-
an í dag en tekur á móti
gestum á heimili fósturdótt-
ur sinnar, Öldugötu 46,
Hafnarfirði, á afmælisdag-
pT A ÁRA afmæli.
l) U Fimmtugur er í dag,
þriðjudaginn 22. febrúar,
Einar Bragi Bergsson,
Mosarima 8, Reykjavik.
Eiginkona hans er Guðrún
Bernódusdóttir. Þau ætla
að taka á móti gestum í Há-
túni 12, Betri stofunni, laug-
ardaginn 26. febrúar nk. frá
kl. 15.30 til 20.
Með morgunkaffinu
Ast er.
£..
10-27
að nota sama
sparigrísinn
Þetta eru ómögulegar
bréfservíettur sem ég
keypti hérna. Þær
þola ekki þvott.
Ég leyfi Lúðvík stund-
um að ráða hvar hann
situr.
911 —
SKAK
llinsjóii Margeir
l'étiirxson
Hvítur á leik
ÞESSI staða
kom upp á milli
þeirra Alexand-
ers Morozevich,
hvítt, og Predrags
Nikolic á Corus-
ofurmótinu í Wijk
aan Zee. 36. Bh6!
Hg8 37. Hbdl!
Hbf8 38. Bxg7+!
Rxg7 38. - Hxg7
39. Dxf8+ Rxf8
40. b8=D leiðir
einnig til vinnings
fyrir hvítan. 39.
Dxf8! Hxf8 40. Hd8 Re6
Svartur verður mát eftir:
40. - Dxb7 41. Hxf8# 41.
Hxf8+ Rxf8 42. b8=D Kg7
43. Da7+ Kh6 44. Df7 og
svartur gafst upp.
UOÐABROT
ROKKVISA
Úr þeli þráð að spinna
mér þykir næsta indæl vinna;
eg enga iðn kann finna,
sem öllu betur skemmti mér.
Eg sit í hægu sæti
og sveifla rokk með kvikum fæti,
eg iða öll af kæti,
er ullarlopinn teygjast fer,
og kvæða kver
á skauti skikkju minnar
æ opið er,
því verð eg þrátt að sinna
rokkurinn meðan suðar sér-
rokkurinn suðar sér.
Jón Thoroddsen.
STJORMJSPA
eftir Francex Urake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert að mörgu leyti við-
kvæmur persónuieiki og
bjartsýni þín gengur stund-
um úrhófi fram. En þú ert
vinur vina þinna.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Maður á að rétta öðrum hjálp-
arhönd af því að mann langar
til þess en ekki til þess að
hljóta einhver laun fyrir.
Hafðu það ávallt að leiðarljósi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Jafnvel leiðinlegustu verk
geta reynst skemmtileg ef
maður bara nálgast þau með
jákvæðu hugarfari. Brostu
bara við heiminum og þá mun
heimurinn reynast þér vel.
Tvíburar ^
(21. maí - 20. júní) rtA
Varastu að gera nokkuð það
sem getur valdið misskilningi
um fyrirætlanir þínar. Það er
fyrir öllu að koma hreinskiln-
islega fram.
Krabbi
(21.júní-22.júlí)
Þú þarft að leysa ákveðið mál
heima fyrir og það þolir enga
bið svo þú verður hreinlega að
láta það ganga fyrir öllu öðru.
Taktu þvi með bros á vör.
Ljón
(23. júll - 22. ágúst) M
Þeir eru margir sem bíða í of-
væni eftir því að heyra hvað
það er sem þú hefur fram að
færa. Mundu að þú mátt eng-
um bregðast í frásögn þinni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er óþarfi að spara aurinn
og fleygja krónunni. Þú verð-
ur að taka þig á í fjármálunum
því annars færðu ekki við
neitt ráðið og allt fer úr skorð-
um.
Vog rrx
(23. sept. - 22. október) 4* 4*
Draumar eru til þess að láta
þá rætast svo nú skaltu bara
bretta upp ermamar og hefj-
ast handa við það sem þig hef-
ur alltaf langað til að gera.
Sþorðdreki ™
(23. okt. -21. nóv.) MR
Það getur verið erfitt að kom-
ast að niðurstöðu þegar málin
eru fjölbreytt og flókin. En þá
er bara að gefa sér tíma til að
kanna alla málavexti vand-
lega.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) ítS)
Ræktaðu þinn innri mann svo
að þú megir öðlast meiri
þroska og lærir að meta feg-
urð heimsins og það sem hann
hefur upp á að bjóða.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Það er ljóst að þú verður að
leggja á þig talsverða auka-
vinnu til þess að klára þau
verkefni sem þú hefur tekið
að þér. Reyndu svo að áætla
betur framhaldið.
Vatnsberi , .
(20. jan.r -18. febr.) Cáú
Það er allt í lagi með þau atriði
sem þú leggur mesta áherslu
á. Vertu þvi þolinmóður og
gefðu öðrum tíma til þess að
skilja um hvað málið snýst.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Mundu að það geta alltaf
komið upp vandamál og þá er
betra að taka þau strax fyrir
og leysa þau því ekkert er
verra en að sópa vandanum
undir teppið.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaYegra staðreynda.
FRETTIR
Fyrirlestur um kristni-
tökuna á Islandi
FJÓRÐI fundur Vísindafélagsins
veturinn 1999-2000 verður haldinn
í Norræna húsinu miðvikudaginn
23. febrúar 2000 kl. 20.30. Þar
flytur Hjalti Hugason fyrirlestur í
tilefni 1000 ára kristni í landinu
sem hann nefnir: Um kristnitök-
una á Islandi og rannsóknir á
henni.
Undanfarin ár hefur Hjalti
Hugason leitt vinnu við ritun Sögu
kristni á íslandi sem Alþingi mun
gefa út innan skamms í tilefni
þess að 1.000 ár eru liðin frá
kristnitöku. I fyrirlestrinum mun
hann gera grein fyrir ýmsum
vandamálum sem við er að glíma
við rannsóknir á kristnitökunni og
fjalla um kristntökuna sem ein-
stakan atburð og langtímaþróun.
í fréttatilkynningu segir: „í
kjölfar kristnitökunnar tók ís-
lenskt þjóðfélag og menning
margháttuðum breytingum, fram
kom fastmótuð stofnun - kirkja - í
Professionals
annars stofnunarsnauðu samfélagi.
Þjált ritmál ruddi sér til rúms í
samfélagi sem fram til þess tíma
hafði að mestu orðið að treysta á
munnlega miðlun menningar. Þá
komust á traust tengsl milli
kirkjunnar og höfðingjastéttarinn-
ar í landinu. Allt kann þetta að
hafa stuðlað að því að samstaða
landsmanna styrktist. Jafnframt
komust tengsl Islendinga við um-
heiminn á mun formlegri grunn en
verið hafði. Gildir þá einu hvort um
Niðarós eða Róm var að ræða. Af
þeim sökum urðu Islendingar nú t
að Evrópumönnum í eiginlegum
skilningi. Að öllu samanlögðu má
því segja að kristnitakan sé einn
afdrifaríkasti atburðurinn í elstu
sögu okkar Islendinga. Eða var
hún atburður?"
Fundurinn er öllum opinn. Að
fyrirlestri og umræðum loknum
verður kaffistofa Norræna hússins
opin.
Andlitskreni og
förðunarlína
Hvar færðu mest og best
fyrir peningana þína?
Gerðu verðsamanburð. Hjá okkur eru allar myndirnar
sem þú færð í myndatökunni stækkaðar og fullunnar.
Innifalið í myndatökunni 12 stækkanir 13x18 cm,
2 stækkanir 20x25 cm og ein stækkkun
30x40 cm í ramma.
Ljósmyndastofan Mynd sími, 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs sími, 554 3020.
Vatnsútsala
Vegna vatnsleka verðum við með 50-70% afslátt
af vörum í nokkra daga
Einnig veitum við 15% afslátt
af nýjum vörum á meðan
ít>.
£& Og Þtí
%k°x,l'Zur?o
^551-227/
wmmmMmmmmmm
Er heima best?
Flest slys gera boð á undan sér
Hafðu augun opin, finndu slysagildrurnar heima
hjá þér og komdu þeim fyrir kattarnef!
□ Lausar mottur
□ Hál gólf
□ Snúrur, dreglar og þröskuldar
□ Lyf og hreinsiefni
□ Þungir hlutir sem standa tæpt
□ Eggjárn á glámbekk
□ llla stillt eða biluð
blöndunartæki
□ Léleg eða röng lýsing
□ Rafhlöðulaus reyksynjari
Flest slys verða innan veggja heimilisins. Þar getur þú fækkað
slysunum. Gríptu í taumana áður en það verður of seint.
Landlæknisembættið
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu
www.landlaeknir.is