Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 Á---------------------------- HESTAR MORGUNBLAÐIÐ Tölurnar taka völdin Einu sinnigátum við opnað reiðhjólin okkar með því að muna „ inn-út-inn-inn- út“. Þá komu slöngulásar með tölum og við þurftum að hyrja að muna númer. Nú verður ekki lengur orða bundist - það er fokið í flest skjól. Nýjarboð- flennur hafa náð undirtökum í samfélaginu, fjölga sér jafnt og þétt og eru um það bil að ná fullkominni stjórn á lífí okk- Þessi lýsing hljómar kunnug- lega, eins og söguþráður í kvik- mynd þar sem geimverur, skordýr eða vélmenni reyna að sölsa undir sig mannheima. Kannski er of langt gengið að líkja tölustöfunum við slíkar plágur, en samt... Tölur eru gruggugir gestir og síaukin nærvera þeirra í nær öllum kim- um daglegs lífs hlýtur að vekja óhug. Innrás þessi hefur staðið yf- ir með vaxandi þunga um langt skeið en það er fyrst núna sem við áttum okkur á því að líf okkar er að meira eða minna leyti tekið að snúast í kring- VIÐHORF Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur um tölur. Kennitölur, leyninúmer og kóðar fylgja okkurvið hvert fótmál og sá sem ekki hefur gott talnaminni er svo gott sem glataður í nútímaþjóðfélagi. Þetta byrjaði rólega. Einu sinni voru öll símanúmer tveggja stafa, í mesta lagi þriggja. Um miðja öldina voru þau orðin fjögurra stafa, þá fimm og loks sjö stafa. Við hafa svo bæst númer GSM- síma, NMT-síma, boðtækja og tal- hólfa. Til þess eins að hafa einfóld samskipti í gegnum símalínur verðum við nú að muna tugi talna- raða sem bergmáia í kollinum og elta okkur inn í draumana um nætur. Lásar. Einu sinni gátum við opnað reiðhjólin okkar með því að muna „inn-út-inn-inn-út“. Þá komu slöngulásar með tölum og við þurftum að byrja að muna númer. Svo komu útvarps- og sjónvarpsstöðvar, kenndar við númer; FM 9,57, Stöð 2, Skjár einn. Og sjónvarpsþættir og vöru- merki; Beverly Hills 90210, Fiat 500, Nokia 6110. Aður fyrr töluðu menn um þverhandarbreidd, faðma og dag- leiðir þegar rætt var um lengdir og fjarlægðir. En svo rann upp öld nákvæmra mælitækja og eru allar mælieiningar því nú í tugabrotum með minnst einum aukastaf. Maraþonhlaup er 42,195 kílómetr- ar, frostið 2,6 gráður og gengi dollarans 72,36 krónur. Enn eitt vígið féll þegar Veðurstofan ákvað að útvarpa vindhraða í metrum á sekúndu í stað golu, kalda eða stinningskalda. Enn einu sinni tóku ópersónulegir tölustafir við af viðkunnanlegum orðum, menn- ingarbundnum og merkingar- þrungnum. Nú kunna margir að svara því til að bókstafir séu ópersónuleg tákn, ekki síður en tölustafir. Þetta er sannarlega rétt en tölur standa bókstöfum þó að baki því talnarunur bera ekki merkingar- auka á sama hátt og orð í tungu- málinu - þær eru ekki tungumál því enginn getur haldið uppi vit- rænum samræðum með tölum ein- göngu. Nema reyndar tölvur, og það er að líkindum þess vegna sem sum okkar hafa iilan bifur á tölum. Á samsetningum þeirra byggist nefnilega tölvubyltingin alræmda sem óðum er að dauð- hreinsa persónuleg samskipti. Tölumar eru þannig ljóst og leynt að leggja undir sig heiminn en ekki liggur á ljósu hvaða öfl liggja þar að baki. Kannski hafa tölurnar sjálfstæðan vilja og eigin hemaðaráætlun. Hugsanlegt er líka að einhverjir noti þær sem leppi til þess að seilast til áhrifa. Síðarnefnda skýringin hvarflar stundum að manni yfir kvöldfrétt- unum þar sem ráðamenn og hag- spekingar bregða fyrir sig tölum þegar þeir vita ekki rétt svör eða vilja ekki gefa þau upp. Tölur em nefnilega afar hentugar til þess að hagræða sannleikanum, það er nóg að bregða upp súluriti þar sem kvarðinn nær aðeins upp í 60% í stað 100% og stórkostleg áhrif eru vís. Og talnadýrkun í fjölmiðlum hefur aukist að undanförnu ef eitt- hvað er. Nú er t.a.m. farið að birta úrvalsvísitölu dagsins í hverjum kvöldfréttatíma á helstu sjón- varpsstöðvum, auk upplýsinga um hlutabréfaviðskipti. Hver hefur áhuga á þessum tölum? Eflaust einhverjir, en að hinum - sem vita ekki einu sinni hvað úrvalsvísitala er - læðist óþægilegur grunur um að þeir séu að missa af einhverju. Þeir upplifa sig annars flokks; finnst vont að hafa ekki skilning á því sem hljómar eins og lausn á lífsgátunni sjálfri. Staðreyndin er hins vegar sú að úrvalsvísitalan hefur einfaldlega smyglað sér inn í daglegar fréttir því það þykh- smart að kunna á tölur nú til dags. Bæði smart og merkilegt, sem sést best á því að þeir sem höndla með peninga og aðrar tölur ganga að mun hæni launum en fólk sem hugsar um manneskjur, menntun þeirra og umönnun. Tölumar era meira metnar en mannslífin, svo við orðum þetta hreint og klárt. Áherslan á tölurnar sjálfar er annars undarleg þegar haft er í huga að tölustafir eru ævinlega tákn fyrir eitthvað annað. Einu sinni versluðu menn með kýr, vað- mál eða góðmálma en þegar það fór að þykja of þungt í vöfum var fundið upp það snjallræði að prenta seðla í stað hinna dýrmætu gripa. Peningaseðlar eru ekki neitt í sjálfu sér, þeir eru alltaf ígildi einhvers sem ekki er á staðnum. Símanúmer eru heldur ekki neitt í sjálfu sér, þau eru að- eins kerfisbundin leið til þess að muna hvernig opna skal hljóð- samband milli tveggja símtækja. Við vitum þetta. Við vitum að númer eru einungis táknmyndir sem standa fyrir ólík táknmið eftir atvikum. Samt virðast tölustafim- ir hafa áunnið sér eins konar heigiblæ í sjálfum sér. Leyni- númer opna jú allar dyr og ártöl (t.d. 2000) valda erjum og alheims- kvíða. Tölustafir eru galdrastafir, sem birtist ekki síst í því að þeir virðast skipta milljónum en eru þó aðeins níu talsins. Plús 0, auðvitað. Þetta er skrýtið. Við setjum traust okkar á tölur en finnst samt fátt meira niðurlægjandi en að svara númeri í stað nafns, hvort sem er í fangabúðum eða banka- biðröðum. Við dýrkum tölur í dag- legu lífi en óttumst samt ekkert frekar en að enda ævina sem talnarunur í dulkóðuðum gagna- grunnum - óminnisstæð númer sem enginn tengir lengur við persónuleika okkar, hugarflug eða hjartalag. Raðinót hjá Snæfellingum Tvö mót voru haldin um helgina samkvæmt mótaskrá LH. Snæfell- ingar hófu keppni um helgina í því sem þeir kjósa að kalla Raðmót Snæfellings og er þar um íþróttamót að ræða sem verða þrjú talsins. Verðlaun eru veitt á hverju móti en samaniögð stigasöfnun eftir mótin þrjú segir til um það hver verður stigameistari Snæfellings þetta árið. Er þetta svipað fyrirkomulag og geysismenn hafa keppt eftir í nokkur ár. Andvari í Garðabæ var með vetrar- leika á Andvaravöllum í blíðuveðri á sunnudag. Keppnin átti að fara fram á laugardeginum en var frestað fram á sunnudag vegna veðurs. Þátttaka var mjög í öllum flokkum nema ung- mennaflokki og hafði dómarinn Sig- urður Kolbeinsson frá Mána á Suð- umesjum á orði að keppendur Andvara í barna og unglingaflokki gætu orðið sterkir á nýbyrjuðu keppnistímabili eftfr frammistöðu þeirra á sunnudag að dæma. Keppn- in fór fram á beinni braut með út- sláttarfyrirkomulagi og engar ein- kunnir gefnar. Fyrirhugað er að Andvari haldi sam- eiginlegt mót með Sörla í Hafnarfirði 25. mars nk. I mótskránni er gert ráð fyrir móti Andvara 18. mars en það mun falla niður. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort mótið verð- ur opið né hvaða greinum verður keppt í en að sögn Sigurðar Hall- dórssonar hjá Andvara verður það ákveðið nú í vikunni. Þá uppiýsti Sig- urður að fyrirhugaður væri fundur hjá Andvara í næstu viku um trygg- ingamál. Samskonar fundur verður haldinn hjá Mána á Suðumesjum næsta fimmtudag. Mánamenn voru eitthvað seinir á sér við að ákveða mótsdaga fyrir keppnistímabilið, virðist eftir því best verður séð vanta Efnilegt í yngri flokkum hjá Andvara öll mót félagsins inn á mótaskrána. Sigurður Kolbeinsson upplýsti hins- vegar að fyrsta mót þeirra yrði um næstu helgi, laugardaginn 26. febr- úar og fer það væntanlega fram á Mánagrund. Einnig verða Fákur og Hörður með sín fyrstu mót sama dag. Fákur á Víðivöllum og Hörður á Varmárbökkum en þar kallast mótið árshátíðarmót því um kvöldið verður haldin 50 ára afmælisárshátíð félags- ins. Fákskonur hyggjast hinsvegar slökkva þorsta fáksmanna í bjór þetta sama kvöld. Ónnur mót hjá Mána í vetur verða á þessa leið:18. mars verður árshátíð- armót félagsins, vetrarmót 1. apríl og firmakeppnin verður haldin 15. apríl. En úrslit helgarinnar urðu sem hér segir: Raðmót Snæfellings Fjórgangur bama: 1. Vilborg H. Sæmundardóttir á Bergdísi frá Grundarfirði, eig.: Helga R. Sæmundardóttir 2. Hallfríður G. Ragnarsdóttir á Kristal frá Kverná, eig.: Guð- finna Jóhannsdóttir Fjórgangur unglinga: 1. Hörður Ó. Sæmundarson á Smyrli frá Skeggsstöðum, eig.: Hörður Óli 2. Jóhann K. Ragnarsson á Dögg frá Kverná, eig.: Jóhann K. Ragn- arsson Fjórgangur opinn flokkur: 1. Lárus Á. Hannesson á Kolskör frá Magnússkógum, eig.: Guðbjörn Guðmundsson 2. Kristján Gunnlaugsson á Stormi frá Stykkishólmi, eig.: Kristján Gunnlaugsson 3. Sigurjón Björnsson á Gassa frá Stóra-Langadal, eig.: Sigmjón Helgason 4. Benjamín Markússon á Toppi frá Vesturholti, eig.: Benjamín Markússon 5. Gunnar Tryggvason á Sörla frá Grímsstöðum, eig.: Gunnar Tiyggvason Fimmgangur opinn flokkur: 1. Lárus Á. Hannesson á Soldáni frá Bjarnarhöfn, eig.: Lárus Hann- esson 2. Sigurjón Björnsson á Kópi frá Stóra-Langadal, eig.: Sigurjón Helgason 3. Gunnar Tryggvason á Freydísi frá Völlum, eig.: Gunnar Tryggvas. Tölt barna: 1. Vilborg H. Sæmundardóttir á Bergdísi frá Grundarfirði, eig.: Helga R. Sæmundardóttir 2. Erna R. Kristjánsdóttir á Styrni frá Stykkishólmi, eig.: Erna R. Kristjánsdóttir 3. Hallfríður G. Ragnarsdóttir á Kristal frá Kverná, eig.: Guð- finna Jóhannsdóttir Tölt unglinga: 1. Hörður O. Sæmundarson á Smyrli frá Skeggsstöðum, eig.: Hörður Ó. Sæmundsson 2. Jóhann K. Ragnarsson á Dögg frá Kvemá, eig.: Jóhann K. Ragn- arsson Tölt opinn flokkur: 1. Lárus Á. Hannesson á Kolskör frá Magnússkógum, eig.: Guðbjöm Guðmundsson 2. Gunnar Tryggvason á Sörla frá Grímsstöðum, eig.: Gunnar Tryggvason Oddur í heimsókn á heimaslóðum SÁ kunni töltari Oddur frá Blöndu- ósi mun þann 11. mars nk. mæta til keppni eða sýningar á heimavelli, ef svo má að orði komast, þegar vígð verður nýja reiðhöllin á Blönduósi. Þar munu margir af fremstu knöpum landsins mæta til leiks og má þar nefna auk Sigur- björns Bárðarsonar sem að venju verður með Odd sinn, Baldvin Ara sem hyggst mæta með Galsa frá Sauðárkróki og Sögu, Hafliði Hall- dórsson mun mæta með Nælu frá Bakkakoti og Valíant frá Hegg- stöðum, Einar Öder kemur með Odd frá Selfossi, Brynjar Stefáns- son mætir með Víking frá Voð- múlastöðum og Ragnar Ingólfsson mætir með Gust frá Hóli II. Hann verður því stjörnum skrýddur reið- salurinn á Blönduósi þennan dag ef að líkum lætur. Á laugardag var höllin prufu- keyrð og boðið upp á létta tölt- keppni þar sem 25 manns mættu með fáka sína og kepptu. Hæstan hlut bar Halldór Sigurðsson sem mætti með sína ágætu hryssu Rind frá Efri-Þverá en í öðru sæti var formaður Neista, Hjörtur Einars- son á Straumi frá Vogum sem er ógeltur og vakti athygli sem slíkur fjögra vetra gamall, hefur verið haltur í tvö ár en virðist nú vera að ná sér. Um 200 manns fylgdust með þessari fyrstu keppni sem þykir góð aðsókn á hestamóti á þessum tíma árs. Hjörtur sagði í samtali við hesta- Morgunblaðið/Valdimar Kriatinsson Sigurbjörn Bárðarson hyggst mæta með hinn þrautreynda og sigursæla töltara Odd norður á Blönduós, þar sem klárinn er fæddur, þegar vígð verður myndarleg reiðhöll þann 11. mars nk. I þáttinn að tilkoma þessarar glæsi- hvörfum í hestamennsku á félags- legu byggingar á Blönduósi ætti svæði Neista í Austur-Húnavatns- vafalaust eftir að valda straum- sýslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.