Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ h Samiðn og Rafiðnaðarsambandið Stefna að skammtíma- samningi við borgina SAMIÐN og Rafiðnaðarsambandið stefna að því að gera skammtíma- samning við Reykjavíkurborg sem felur í sér nýtt launakerfi. Guðmund- ur Gunnarsson, formaður Rafiðnað- arsambandsins, telur ekki ólíklegt að slíkur samningur geti orðið fyrir- mynd að samningi við ríkið. Áhugi er bæði hjá Samiðn og Raf- iðnaðarsambandinu að taka upp nýtt launakerfi fyrir félagsmenn sem starfa hjá Reykjavíkurborg. Borgin hefur lýst yfir vilja til að gera slíkan samning, en hún hefur áður gengið frá samningum, sem fela í sér nýtt launakerfi, við háskólamenn, Starfs- mannafélag Reykjavíkurborgar og nú síðast við Eflingu. Samningur um nýtt launakerfi Guðmundur sagði að unnið væri að gerð slíks samnings og allar líkur væru á að Rafiðnaðarsambandið og Samiðn myndu hafa samstarf í þess- um viðræðum. Hann sagði að hug- myndir RSÍ væru á þann veg að samningurinn innihéldi flata hækk- un launataxta og að á næsta sex mánaða tímabili yrði gert samkomu- lag um nýtt launakerfi. Jafnframt þyrfti að nást samkomulag um hve mikið svigrúm yrði fyrir launabreyt- ingar við innröðun manna í nýtt launakerfi. Guðmundur sagði að lítil hreyfing hefði verið í viðræðum við ríkið, en sagðist telja líklegt að samningur við Reykjavíkurborg yrði fyrirmynd að samningi við ríkið. Finnbjörn A. Hermannsson, for- maður Samiðnar, sagði að talsverðri vinnu væri ólokið áður en ljóst væri hvort samkomulag tækist um skammtímasamning við Reykjavík- urborg. Hann tók fram að samning- ur borgarinnar við Eflingu gæti ekki orðið fyrirmynd að samningi við Samiðn. Eimskip skipu- leggur Skugga- hverfíð 16 kíló af hassi fund- ust í kjölfar alvarlegs slyss HÁSETI á Helgafelli, skipi Sam- skipa, liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í Bremerhaven í Þýska- landi eftir slys sem varð um borð í skipinu þar sem það lá við bryggju í Bremerhaven hinn 16. febrúar síðast- liðinn. í fréttatilkynningu frá Samskipum segir að grunsemdir hafi vaknað um að slysið hafi átt sér stað í tengslum við tilraun til að fela fikniefni um borð. Maðurinn var í reykháfi skipsins þeg- ar slysið varð og mun hafa hrapað um 10 metra með fyrrgreindum afleiðing- um. Áhöfn skipsins fann tösku sem í voru fíkniefni og málið var kært til lögreglu í Þýskalandi. Hún hefur staðfest að um hafi verið að ræða 16 kg af hassi. Þýsk lögregluyfirvöld annast frekari rannsókn málsins. STJÓRNENDUR Eimskipafélags íslands hafa rætt við borgaryfirvöld um samstarf við skipulagningu íbúð- arhverfis á fyrrverandi athafna- svæði Eimskips við Skúlagötu. Hug- mynd stjómenda félagsins er að deiliskipulag nái yfir stærri hluta Skuggahverfis, eða allt svæðið milli Skúlagötu og Hverfisgötu, frá Frakkastíg að Klapparstíg. Eimskip hefur yfir að ráða 10 þúsund fermetra lóð við Skúlagötu. Þar var um tíma ætlunin að byggja hótel en frá því var horfið fyrir all- löngu. Að sögn Þorkels Sigurlaugs- sonar, framkvæmdastjóra þróunar- sviðs Eimskips, er nú hafinn undirbúningur að uppbyggingu blandaðrar byggðar á lóðinni, þó einkum íbúðarhúsnæðis, samkvæmt því deiliskipulagi sem var í gildi áð- ur en hugmyndir um hótelbyggingu komu upp. Athafnasvæði Eimskips nær yfir meginhluta svæðisins milli Skúla- götu og Lindargötu, frá Frakkastíg að Klapparstíg. Þorkell segir ljóst að einnig sé þörf fyrir einhverja uppbyggingu á svæðinu frá Lindar- götu að Hverfisgötu og þykir þeim eðlilegt að tekið sé tillit til þess svæðis við skipulagningu bygginga á reit félagsins. Því hafi verið óskað eftir samvinnu við Reykjavfkurborg um skipulagningu alls svæðisins og segir Þorkell að því hafi verið vel tekið enda slíkt áhugavert fyrir alla aðila. Eimskip mun því hafa framkvæð- ið að undirbúningi deiliskipulags fyrir svæðið í heild, í samvinnu við Reykjavíkurborg. Um þriðjungur launafólks með lítinn veikindarétt ALLT að þriðjungi félagsmanna hjá sumum landssamböndum Alþýðu- sambands íslands flytur sig árlega á milli vinnuveitenda. Þorri þessa fólks flytur ekki veikindaréttindi með sér á milli vinnustaða og því er þetta fólk í mjög mörgum tilfellum með lítinn eða engan veikindarétt. Formenn landssambanda ASÍ ræddu í gær um tillögu þess efnis að launamenn sem skipta um vinnu héldu vissum lág- marks veikindarétti. Á formannafundinum í gær voru lagðar fram tölur um hreyfingu vinnuafls á vinnumarkaði. Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðnar, sagði að fyrirfram hefðu menn talið að hreyfanleiki væri mestur meðal stétta eins og trésmiða, en í Ijós hefði komið að hreyfanleikinn væri ekki minni meðal stétta eins og verka- manna og verslunarmanna. í dag öðlast launafólk tveggja daga veikindarétt fyrir hvern mánuð sem það starfar hjá sama vinnuveit- anda fyrsta árið. Eftir eitt ár er veik- indarétturinn frá einum mánuði upp í þrjá mánuði. Sum félög hafa reynd- ar samið um allt að eins árs veikinda- rétti. Kjarasamningar flestra félaga gera ekki ráð fyrir að launamenn flytji þessi réttindi með sér þegar þeir skipta um starf eða flytja sig á milli vinnuveitenda. í kjarasamning- um Samiðnar og Rafiðnaðarsam- bandsins era þó ákvæði sem tryggja betur veikindarétt félagsmanna. Guðmundur Gunnarsson, formað- ur Rafiðnaðarsambandsins, sagði að það hefði komið mönnum mjög á óvart hve stór hluti launafólks skipti árlega um vinnu. Þetta fólk væri meira og minna án nokkurs veikinda- réttar. Morgunblaðið/Ásdís Veist var að Ásdísi Jennu Ástráðsdóttur, sem er fjölfötluð, í Kringlunni á föstudaginn og stolið af henni farsíma. Marfn Hjörv- arsdóttir, aðstoðarmaður, var með henni í Kringlunni. V eittist að fj ölfatlaðri konu í hj ólastól UNGUR piltur veittist að fjöl- fatlaðri konu í hjólastól í Kringl- unni á föstudaginn og hrifsaði af henni farsíma. Konan, Ásdís Jenna Ástráðsdóttir, hreyfir hvorki hendur né fætur og er því algerlega varnarlaus í svona aðstöðu. Ástráður Hreiðarsson, læknir og faðir konunnar, sagð- ist vera mjög undrandi á því að svona nokkuð gæti gerst. Hann sagði að ekki væri enn búið að ná piltinum, en að málið hefði verið tilkynnt til lögreglunnar. „Ég hélt að svona væri ekki til,“ sagði Ástráður. „Reiðar- slagið er ekki að missa símann, því það cr alltaf hægt að kaupa nýjan síma, reiðarslagið er að vita af því að það skuli vera til fólk, sem leggst svo lágt að ræna ósjálfbjarga stúlku. Maður skilur ekki sálarlífíð hjá svona fólki.“ Marín Hjörvarsdóttir, aðstoð- armaður Ásdísar Jennu, var með henni í Kringlunni þegar farsímanum var stolið, en fars- íminn er sérstaklega útbúinn fyrir Ásdísi Jennu og einna helst notaður sem öryggistæki. „Við vorum búnar að vera að versla í Kringlunni og vorum á leiðinni út þegar ég heyrði Ás- dísi byrja að öskra,“ sagði Mar- ín. Ég áttaði mig ekki á því hvað var í gangi fyrr en hún gat farið að tjá sig, en hún gat það ekki strax því hún var í svo miklu uppnámi." Marín sagði að Ásdis Jenna hefði sagt að um 15 ára gamall piltur, ljósskolhærður, grann- vaxinn og með gleraugu, hefði verið að verki. Hann hefði veist að henni og hrifsað í farsímann, sem hefði verið fastur við stól- inn, og hlaupið í burtu. Marín sagðist ekki hafa tekið eftir þessu, þar sem hún hefði snúið baki í Ásdisi Jennu þegar þetta gerðist. Að sögn Marínar hafði piltur- inn verið í hópi með öðrum og fylgst með Ásdísi í nokkurn tíma áður en hann lét til skarar skríða. Hún sagði því greinilegt að fleiri vissu eitthvað um mál- ið. Fátt lágkúrulegra Ómar Smári Ármannsson að- stoðaryfirlögregluþjónn sagðist halda að svona nokkuð hefði ekki áður komið upp á. „Ég man ekki eftir því að veist hafi verið að fötluðum í hjólastól áður,“ sagði Ómar Smári. „Enda fátt til lágkúrulegra og sá sem gerir slíkt þyrfti væntanlega að leita sér aðstoðar." Ómar Smári sagði að það væri tilgangslaust að stela far- si'mum þar sem þeir nýttust engum nema eigendunum sjálf- um. Hann sagði að þegar lög- reglan fengi tilkynningu um stolna farsíma hefði hún um tvennt að velja, annars vegar að slökkva á símanum og símkort- inu, en hinsvegar að láta sím- ann ganga í smátíma og rekja sfmtalið, þannig að hægt væri að ná þjófinum. liKammAufsiwife . Heimili FASTEIGNIR Arnar Grétarsson með tilboð frá belgíska liðinu Lierse B16 : ••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• • Reykjaneshöll: Bylting fyrir íslenska | knattspyrnu B2, B3, B4 : Fylgstu www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.