Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Fyrstu íbúarnir fluttir inn í hið nýja Teigahverfí á Eyrarlandsholti Fer ósköp vel um okkur Morgunblaðið/Kristj án Fyrstu íbúamir í Teigahverfí á Eyrarlandsholti fluttir inn. Lengst til vinstri er Sveinn Heiðar Jónsson byggingaverktaki og þá hjónin Sumar- rós Garðarsdóttir og sr. Birgir Snæbjömsson í stofunni að Holtateig 48. „HÉR er alveg yndislegt að vera,“ sögðu hjónin Sumarrós Garðars- dóttir og sr. Birgir Snæbjörnsson en þau eru fyrstu íbúarnir í nýju hverfi, Teigahverfi á Eyrarlands- holti. Þau munu raunar vera einu ibúar hverfisins fyrst um sinn, eiga ekki von á að næstu nágrannar flytji inn fyrr en eftir um einn mánuð. Hafist var handa við uppbygg- ingu hverfisins síðasta sumar en það var einmitt sr. Birgir sem tók fyrstu skóflustunguna að nýja hverfinu, þ.e. að svonefndum reit 1 sem Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars hefur til umráða á Eyrar- landsholtinu. Að sögn Sveins Heið- ars Jónssonar framkvæmdasijóra verða reist þar 27 raðhús, öll á einni hæð með bflskúr. „Við gemm ráð fyrir að þetta verði tveggja ára verkefni," sagði hann og bætti við að það væri líka afar skemmtilegt. Húsin eru byggð með nýrri byggingaraðferð sem verið hefur í þróun síðustu sex ár, en húsin era að mestu byggð inni á verkstæði og flutt á byggingarstað þar sem húshlutarnir eru settir saman. Eft- ir að lokið er við að steypa grunn er burðarvirki úr timbri og þak flutt á staðinn og tekur uppsetning húsanna einungis örfáa daga. Eng- ar lagnir eru inni í burðarvirkinu en þess í stað er sérstakur lagna- kjallari í hverjum grunni sem gólf er byggt ofan á. Öllum lögnum er komið fyrir í sérstökum stokkum þar sem auðvelt er að komast að þeim. Þetta gerir m.a. að verkum að auðvelt er síðar að færa milli- veggi, t.d. þegar fækkar í heimili. Sveinn Heiðar sagði að mikil spurn væri eftir fbúðunum í Teiga- hverfinu og þegar eru margar þeirra pantaðar. „Við leggjum mikla áherslu á að okkar kaupend- ur lendi ekki í hrakningum vegna flutninga og því reisum við húsin eftir hendinni, enda getum við með þessari aðferð stýrt þessu mikið sjálfir og erum ekki háðir veðri,“ sagði hann. Frábært útsýni á Súlur „Það fer ósköp vel um okkur hérna, útsýnið er dásamlegt, við getum fylgst með golfvellinum og horft upp í hesthúsahverfið í Breiðholti og kannski það sem mest er um vert þá er frábært út- sýni upp á Súlur," sagði sr. Birgir. Sumarrós bætti við að í óveðurs- kaflanum á dögunum hefðu þau lokast inni, hvorki komist lönd né strönd, en um leið og veðri slotaði hefði verið mokað heim að dyrum til þeirra. „Þetta var bara nota- legt, það er afskaplega rólegt hérna og gott að vera,“ sagði hún. Fleiri byggingarfélög eru einnig að reisa hús í hverfinu, m.a. Hyrna, SS-Byggir og þá eru Búseti og Búmenn að byggja þar. Morgunblaðið/Kristján Slökkviliðsmenn sem tóku þátt í námskeiðinu á Akureyri æfa sig með klippibúnaðinn eftir sviðsett umferðarslys. Slökkviliðsmenn á námskeiði Héraðsdómur Norðurlands eystra Tíu mánaða fangelsi fyrir ffkniefnabrot SLÖKKVILIÐSMENN frá Akur- eyri, Reykjavík, Hafnarfirði, Kefla- vík og Hveragerði luku á laugar- dag tveggja vikna námskeiði sem ber yfirskriftina; Slökkviliðsmaður II. Námskeiðið var haldið á vegum Brunamálaskólans en fyrri vikan var í umsjá Slökkviliðs Reykjavík- ur en sú seinni var í umsjá Slökk- viliðs Akureyrar. Á námskeiðinu voru teknir fyrir ýmsir þættir sem tengjast starfi slökkviliðsmanna, reykköfun, yfir- tendrun, brunahönnun, eldvarnar- eftirliti, viðvörunar- og vatnsúðun- arkerfi, slökkviliðsáætlunum og fleiru. Verklegar æfingar voru keyrðar sem útköll, leki á hættu- legum efnum, umferðarslys og brunaútköll. Vegna fjölda þátttakenda er haldið annað námskeið og hófst það í Reykjavík í gær, mánudag en lýkur á Akureyri 4. mars nk. Um 10 slökkviliðsmenn taka þátt í hvoru námskeiði. Slökkviliðsmenn sem hefja störf sem atvinnuslökkviliðsmenn taka fjögurra vikna grunnnám á einu ári frá því þeir hefja störf. Náminu er skipt í tvennt, Slökkviliðsmann I og II. Vegna fjölda þátttakenda þurfti einnig að halda námskeið í Slökkviliðsmanni I fyrir áramót og var fyrri vikan í umsjá Brunavarna Suðurnesja en sú seinni í umsjá Slökkvliðs Reykjavíkur. Fram til þess hafa námskeiðin ávallt verið haldin í Reykjavík en að þessu sinni var fyrirkomulaginu breytt og þeim skipt milli slökkviliða. Birgir Finnsson, aðstoðarslökkviliðsstjóri á Akur- eyri, sagði að margir úr slökkviliði bæjarins hafi komið að námskeiðs- haldinu og að vel hafi tekist til. Næsti hópur kemur svo til Akur- eyrar næsta mánudag. RÚMLEGA tvítugur maður á Ak- ureyri hefur í Héraðsdómi Norður- lands eystra verið dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Gerð voru upp- tæk fíkniefni sem hann hafði undir höndum, um 228 grömm af hassi, 9,6 grömm af amfetamíni og 1,51 gramm af kókaíni. Annar piltur, tæplega tvítugur hlaut sektardóm í sama máli og var gert að sæta upp- töku á óverulegu magni af hassi. Þriðja manninum, 25 ára gömlum Ólafsfirðingi var ekki gerð refsing í málinu. Fleiri komu við sögu í fíkniefnamálum tengdum þessum piltum en þar var um að ræða neyslu efna. Sá sem hlaut þyngsta dóminn var handtekinn í bifreið sinni á Norðurlandsvegi við Hlíðarbæ en hann var þá að koma frá Reykjavík til Akureyrar með um 100 grömm af hassi. Pilti sem með honum var í bílnum var gefið að sök að hafa ek- ið bifreiðinni á 150-200 kílómetra hraða frá Varmahlíð, um Öxnadals- heiði og í Öxnadal. Þetta var í októ- ber mánuði síðastliðnum. Hann lauk málinu með greiðslu 90 þús- und króna sektar og því að sæta ÞRÍR piltar um tvítugt hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra til greiðslu sektar vegna brota gegn valdsstjóminni en þeim var gefið að sök að hafa hindrað lög- reglumenn við skyldustörf og að hafa gripið í lögreglumann þar sem hann var að handtaka félaga þeirra. Einn þeirra hlaut 30 daga fangelsis- dóm, skilorðsbundið til tveggja ára. Atburðurinn átti sér stað á Þórshöfn aðfaranótt 27. desember 1998. Málavextir eru þeir að eftir að al- mennum dansleik í Félagsheimilinu Þórsveri lauk, en þar voru piltarnir ásamt fleira fólki, kastaðist í kekki ökuleyfissviptingu í eitt ár. Þá var maðurinn sem um ræðir ákærður fyrir að hafa í fórum sínum al- sælutöflu síðasta sumar, að hafa reykt hass á heimili sínu á Akur- eyri og að hafa í ágúst í fyrrasumar flutt með sér 127 grömm af hassi, 9,6 grömm af amfetamíni og kókaín en lögregla lagði hald á fíkniefnin á Akureyrarflugvelli. Loks var mað- urinn ákærður fyrir tilraun til fjár- svika með því að framvísa stolnum víxli í banka í Reykjavík. Mennirnir sem við sögu komu játuðu allir brot sitt skýlaust fyrir dómi þannig að brot þeirra þóttu nægilega sönnuð. Maðurinn sem hlaut þyngsta dóminn í málinu hefur hlotið tólf refsidóma frá miðju ári 1994 til síð- ustu áramóta. Með þeim brotum sem fjallað var um í Héraðsdómi nú síðast rauf hann skilorðsdóm sem hann hafði hlotið á miðju ári 1998. Til þess var litið að þrátt fyr- ir ungan aldur átti maðurinn að baki alllangan brotaferil og þótt refsing hans því hæfilega ákveðin 10 mánaða fangelsi og þóttu skil- yrði ekki vera fyrir hendi að skil- orðsbinda hana. milli tveggja pilta. Lögreglu var gert viðvart um atgang piltanna, en hún var á ferðinni með Ijósmóður staðar- ins. Þegar lögregla kom á staðinn hópaðist hópur ungmenna að bifreið- inni og nokkur læti urðu, m.a. gekk einn piltanna ítrekað fyrir bifreið lögreglunnar og annar greip í upp- handlegg lögreglumanns sem þá var að handtaka mann á vettvangi. Fyrir dómi báru piltamir fyrir sig minnisglöpum sökum áfengis- drykkju þá um kvöldið og nóttina. Með framburði vitna þótti sök þó nægilega sönnuð, þrátt fyrir að einn piltanna neitaði sök. Sekt fyrir að hindra valdsstjórnina LANDIÐ Festu bfl í óveðri BJÖRGUNARSVEITIR voru kall- aðar út í Ólafsvík og Hellissandi á laugardagskvöld til að leita að hjón- um með ungt barn sem ekki höfðu skilað sér heim úr ferð um Snæfells- nes. Rétt fyrir klukkan 1 aðfaranótt sunnudags fundu sveitirnar fólkið heilt á húfi í bíl sínum sem hafði lent utan vegar í illviðri og ófærð á þjóð- veginum við Saxhól utan Jökuls, vestast á Snæfellsnesi. Lífog' gleði í Oræfum Höfn - Fyrir nokkru barst karl- mönnum í Öræfum bréf þar sem þeim var boðið að taka þátt 1 karla- kvöldi á Hótel Skaftafelli. Að sögn Önnu Maríu Ragnars- dóttur, hótelstjóra á Hóteli Skafta- felli, hittast karlmennirnir í sveitinni mun sjaldnar en konur sem skreppa frekar hver til annarrar í heimsókn og eiga á margan hátt auðveldara með að eiga samskipti hver við aðra. Því hafi forsvarsmönnum hótelsins þótt ástæða til að gefa karlmönnun- um tækifæri til að hittast og eiga kvöldstund saman. Af þeim 27 sem fengu bréf skiluðu sér 20 sem sýnir að áhuginn var fyrir hendi. Og þama var snæddur góður þorramatur og skrafað fram á rauða nótt. Þótti þetta lukkast svo vel að ekki er ólíklegt að hér sé kominn ár- legur siður. Framundan er góugleði í Öræfum sem er ein fjölmennasta samkoma sem haldin er þar á hveiju ári en tæplega þrjú hundruð manns sækja þá skemmtun árlega sem haldin er í félagsheimili Öræfinga, Hofgarði. ------*_4-4----- Morgunblaðið/Egill Egilsson í handverkshúsinu Brynjubæ. RKÍ styrkir Brynjubæ á Flateyri Flateyri - Þetta er mikil lyftistöng íyrir starfsemina segii’ Sigríður Magnúsdóttir, formaður Rauða- krossdeildar Önundarfjarðar, en Brynjubær hlaut 1.000.000 kr. styrk til starfseminnar frá Rauða krossi ís- lands. Að sögn Sigríðar mun þessi styrkur koma sér vel bæði fyrir rekstur handverkshússins og starf- seminnar sem þar fer fram. Biynjubæ var upphaflega komið á laggimar eftir snjóflóðin mann- skæðu, í þeim fróma tilgangi að di*eifa huga íbúanna eftir snjóflóðið. Síðan hefði starfsemin eflst og síðustu árin hefði orðið mikil aukning hvað varð- aði þáttöku yngri sem eldri aldurs- hópa. Boðið hefði verið upp á mörg mismunandi námskeið og handverk stæði með miklum blóma á Flateyri í framhaldi af námskeiðunum Einn angi af starfsemi Brynjubæjar væri einmitt handverksverslunin Purka þar sem hægt er bæði að skoða og versla handverk eftir félagsmenn. Rauði kross Islands hefur frá upp- hafi stutt starfsemina í Brynjubæ. Með tilkomu þessa styrks væri ekki annað hægt en að vera bjartsýnn á framtíðina og halda áfram á sömu braut.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.