Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 44. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Nær 100 þúsund Albanar mótmæla skiptingu borgarinnar Kosovska Mitrovica Brynvagnar friðargæslu- liðanna hindruðu átök Kosovska Mitrovica, Pristina, París. AFP, AP, Reuters. AP Tugþúsundir Kosovo-Albana ganga undir fánum Albaníu og Atlantshafsbandalagsins frá Pristina til Kosovska Mitrovica í gær. Markmið göngumanna var að andmæla því að héraðinu yrði skipt milli þjóðarbrotanna. TALIÐ er að hátt í hundrað þús- und Kosovo-Albanar hafi tekið þátt í mótmælagöngu frá Pristina, hér- aðshöfuðstað Kosovo, til borgarinn- ar Kosovska Mitrovica í norður- hluta héraðsins í gær. Efnt var til göngunnar vegna þess að Serbar á svæðinu reyna nú með ýmsum ráð- um að gera norðurhluta Mitrovica að hverfi sem eingöngu verði byggt Serbum. í suðurhlutanum búa hins vegar aðallega Albanar og skiptir áin Ibar borginni milli þjóðarbrot- anna. Friðargæslulið Atlantshafs- bandalagsins, KFOR, kom í veg fyrir átök milli þjóðarbrotanna í gær. 12 stunda útgöngubann gekk í gildi í Mitrovica klukkan sex eftir hádegi að staðartíma og héldu þá flestir á brott en talsmenn Serba í borginni hótuðu að virða ekki út- göngubann um nóttina og verjast árásum Albana sem eru mun fjöl- mennari í borginni. „Átta mánuðum eftir að KFOR kom til Kosovo er hluti landsins okkar enn undir stjórn serbneskra glæpamanna sem hafa undanfarna daga efnt til herferðar með það að markmiði að reka Albana af heimii- um sínum í norðurhluta Mitrovica," stóð á dreifimiða göngumanna í Pristina. Á spjöldum voru slagorð gegn skiptingu héraðsins í sjálf- stæðar kantónur, eins og sumir Serbar hafa krafist. Hvatt til breytinga Bernard Kouchner, sem fer með yfirstjórn mála í héraðinu á vegum Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær til þess að stjórnarfarslegri stöðu þess yrði breytt en formlega heyrir Kosovo enn undir Júgóslavíu. Sjálf- ur sagðist hann ekki geta ímyndað sér að héraðið gæti orðið alveg sjálfstætt en „útilokað er að það geti aftur samlagast eða orðið hluti af Sambandsríkinu (Júgóslavíu)“. Franskir, breskir og danskir her- menn úr friðargæsluliði KFOR komu í veg fyrir að meginhluti göngumanna kæmist að brú yfir Ib- ar. Nokkur þúsund manna hópur komst þó alla leið í gegnum varnir franskra gæsluliða að brúnni og ógnaði þúsundum Serba er söfnuð- ust saman handan við ána. Beitt var táragasi til að stöðva þá göngu- menn sem fremstir fóru. Nokkrir Albanar höfðu áður kastað grjót- hnullungum í hermennina. Ekki kom til beinna átaka milli deiluaðila enda voru 25 brynvarðir vagnar breskra KFOR-manna á brúnni og fjöldi hermanna reiðubúinn að ganga á milli. Á húsaþökum sáust leyniskyttur úr röðum gæsluliðsins. Upphaflega lögðu um 10.000 manns upp um níuleytið í gær- morgun frá Pristina sem er um 40 kílómetra frá Mitrovica. Kalt var í veðri og hvasst en á leiðinni bættist stöðugt í hópinn fólk úr þorpum og bæjum við veginn. Margir héldu á fánum Albaníu en einnig voru sum- ir með fána Bandaríkjanna og Þýskalands. Liðsmenn KFOR gerðu mikla vopnaleit í Mitrovica í gær og á sunnudag en afraksturinn varð lít- ill. Bandaríski hershöfðinginn Wes- ley Clark, yfirmaður herafla NATO í Evrópu, sagði í Pristina að banda- lagið myndi „grípa til allra þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar eru“ til að kveða niður átökin milli þjóð- arbrotanna í Mitrovica. Vopnaleitin hefði ekki síst beinst gegn vopnuð- um sveitum Serba í norðurhverfun- um. George Robertson, fram- kvæmdastjóri NATO, sagði í Brussel í gær Slobodan Milosevic, forseta Júgóslavíu, standa að baki ýmsum ögrunum Serba í Kosovo. AP Sex fórust í snjóflóðum SNJÓFLÓÐ féllu í svissnesku, austurrísku og ítölsku Ölpunum í gær með þeim afleiðingum að a.m.k. sex manns fórust og þrír slösuðust. í Alto Adige á Ítalíu sópaði snjóflóð með sér tveimur hópum skíðamanna, þrír menn fórust og tveir slösuðust. Þá létu þrír til við- bótar lífið og einn slasaðist í snjó- flóði nærri Davos-skíðasvæðinu í Sviss. Leitarflokkar í Davos, sem sjást hér á myndinni, hættu leit undir kvöld og var talið að tekist hefði að finna alla þá sem lentu í flóðinu. Tilkynnt var að 15 ára drengs væri saknað eftir að snjóflóð féll í Týrol í Austurríki í gær, en leit björgunarmanna bar ekki árangur. Utlit fyrir sigur umbótasinna Teheran. Reuters, AFP, AP. ALLT bendir til að umbótasinnar hljóti stórsigur í írönsku þingkosn- ingunum, en nýjustu tölur sýna að þeir hafa hlotið 86% atkvæða, eða 158 af 218 þingsætum. í höfuðborg- inni Teheran, þar sem 15% atkvæði höfðu verið talin, leit til að mynda út fyrir að umbótasinnar hefðu náð 26 af 30 þingsætum. Mohammad-Reza Khatami, leið- togi eins stærsta flokks umbóta- sinna (IIPF) og bróðir Mohammad Khatamis, forseta Irans, hafði hlotið mikinn meirihluta atkvæða í Teher- an og skildu um 80.000 atkvæði á milli hans og næsta manns. Hann er því talinn eiga raunhæfa möguleika á að verða næsti þingforseti íranska þingsins. En flokkur hans hefur lát- ið í ljós vilja til að gera breytingar á bæði dóms- og kosningakerfi írans. Sigur umbótasinna er talinn tryggja hugmyndum Khatamis for- seta fyrir auknu frjálsræði og lýð- ræði í íran stuðning á þingi, en harðlínumenn, sem ráðið hafa lög- um og lofum á þinginu sl. 20 ár, stóðu í vegi fyrir mörgum endur- bótahugmynda hans. Þá vöruðu þeir ítrekað við þeirri hættu sem ísl- ömskum gildum stafi af slíkum hug- myndum. Sigur umbótasinna er einnig talinn líklegur til að binda enda á pólitíska einangrun írans frá vesturlöndum. Evrópusambandið hefur lýst yfir ánægju með væntan- lega breytingu á írönsku stjórninni og hið sama hefur fjöldi rílg'a, m.a. Þýskaland, Ítalía og Rússland gert. Slíkt kann að koma Khatami forseta vel í tilraunum hans til að auka áhuga erlendra fjárfesta á íran. Almenn ánægja virtist ríkja með- al íbúa Teheran með þær tölur sem fyrir lágu og lýstu margir yfir von- um um frjálslegri ríkisstjórn sem legði færri trúarleg höft á líf al- mennings. ■ Vatnaskil/25 Sveitir Tsjetsj- ena um- kringdar Moskva. AFP. RÚSSNESKAR hersveitir hafa umkringt helstu stríðs- herra Tsjetsjena og sérsveitir þeirra í suðurhéruðum Tsjet- sjníu að því er rússneskar fréttastofur greindu frá á mánudag. Uppreisnarmennirnir eru umkringdir í fjalllendi Suður- Tsjetsjníu og hafa þeir gert tilraunir til að komast yfir ná- læg landamæri Georgíu til að flýja undan rússneskum her- sveitum að því er haft var eft- ir yfirmönnum rússneska hersins, sem sögðu Aslan Maskadov, forseta Tsjetsjníu, og stríðsherrann Shamil Basajev vera í þessum hópi. Tsjetsjnía „frelsuð" Vladimir Pútín, starfandi forsætisráðherra Rússlands, hefur heitið því að uppreisn- armönnum í Tsjetsjníu verði ekki sýnd nein miskunn og eru yfirmenn rússneska hers- ins hvattir með loforði um stöðuhækkun til að „ljúka verkinu". „í dag getum við sagt fyrir víst að aðgerðum gegn skæruliðum í Tsjetsjníu verður fylgt að fullu eftir - þar til Tsjetsjnía og aðrir hlutar Rússlands hafa verið frelsaðir undan þeim stiga- mönnum sem hafa komið sér fyrir þar,“ sagði Pútín í sjónvarpsræðu í gær. Þá hef- ur verið haft eftir Igor Ser- gejev, varnarmálaráðherra Rússlands, að Tsjetsjníustríð- inu sé um það bil að ljúka. • €g fæ ferðapunkta þegarég borga tryggingarnar með boðgreiðslum! MORGUNBLAÐH) 22. FEBRUAR 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.