Morgunblaðið - 07.03.2000, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bretland
Netaðgangur
fyrir 1.200
kr. á ári
ALTAVISTA-netleitarvélin hyggst
bjóða brezkum neytendum ótak-
markaðan aðgang að Netinu fyrir
tíu sterlingspund á ári, eða 1.160
krónur. Petta mun, að sögn vefút-
gáfu RBC-fréttastofunnar, valda
uppstokkun á brezka netþjónustu-
markaðnum og veita milljónum
Breta, sem ekki hafa nettengzt
fram að þessu, tækifæri til að
tengjast Netinu á ódýran hátt.
Aform hins bandaríska Alta-
vista-fyrirtækis ganga út á að net-
áskrifendur greiði aðeins fast ár-
gjald og eitt tengigjald í upphafi
uppá 36 pund (4.000 kr.), en hafi
með þessu ótakmarkaðan aðgang
að Netinu með því að tengjast
ókeypis innhringinúmeri (sem
byrjar á 0800).
I stað þess að innheimta visst
hlutfall af þeim kostnaði sem síma-
línunotkun netnotendanna veldur
eða visst mánaðargjald hyggur
Altavista á að fá upp í kostnað með
auglýsingum og aukinni netverzl-
un. Keppinautar halda því hins
vegar fram að þessi áform Alta-
vista, sem til stendur að komizt í
framkvæmd eftir um þrjá mánuði,
muni ekki geta leitt til annars en
mikils taps.
Talsmenn Altavista segjast gera
ráð fyrir að áskrifendur að hinni
nýju þjónustu muni geta sparað
sér, miðað við núverandi möguleika
á netþjónustumarkaðnum, allt að
700 pund, eða um 80.000 kr., á ári.
-------------------
Mótmæla
afskiptum
Rangún. AP.
ZIVADIN Jovanovic, utanríkisráð-
herra Júgóslavíu, sagði í Rangún, höf-
uðborg Búrma, um helgina að þar-
lend stjórnvöld styddu að Júgóslavía
fengi aftur aðild að Alþjóðasamtökum
ríkja utan hemaðarbandalaga og öðr-
um alþjóðastofnunum.
Jovanovic gagnrýndi veru her-
sveita Atlantshafsbandalagsins í
Kosovo-héraði harkalega og sagði að
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna væri
eina stofnunin sem mætti taka
ákvarðanir um beitingu hervalds í al-
þjóðlegum deilumálum.
„Ekkert land eða svæðisbundin
stofnun hefur rétt til afskipta af inn-
anríkismálum annarra landa undir yf-
irskyni mannréttindaverndar," sagði
Jovanovic, og endurspeglaði með
þessum orðum einnig stefnu Búrma-
stjómar. Stjómvöld beggja landanna
hafa lengi legið undir hörðu ámæli
umheimsins fyrir mannréttindabrot,
en talsmenn þeirra leggja áherzlu á
að utanaðkomandi sé óheimilt að
skipta sér af innanríkismálum þeirra,
þar með talið hvernig farið er með
pólitíska andófsmenn af hálfu ríkis-
valdsins.
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000 27
Netbanki íslandsbanka hefur veriö sérsniðinn að þörfum gjaldkera húsfélaga
og er aðgangur að honum alls staðar, allan sólarhringinn þar sem tenging við Netið
er fyrir hendi. ( Netbankanum er hægt að sinna allflestum þeim bankaviðskiptum
sem húsfélög þurfa á að halda. Meðal þæginda sem felast í þvf að nota
Netbankann má nefna að nú geta gjaldkerar:
• Haldið utan um fjármál félagsins á Netinu.
• Greitt reikninga, skoðað stöðu félagsins eða fengið úttekt fyrir einstaka greiðendur.
• Breytt flokkun gjalda.
• Prentað út greiðsluseðla sem hafa glatast.
• Fækkað ferðum í bankann.
■ Mætt á aðalfund með allt á hreinu.
Netbanki íslandsbanka - fyrir öll félög
Þau félög sem hafa nýtt sér Netbanka íslandsbanka geta með
einu símtali fengið aðgang að Félagabankanum.
Gott mál
Kynntu þér málin á heimasíðu (slandsbanka
www.isbank.is, í næsta útibúi eða f
Símaþjónustu íslandsbanka f síma 5 75 75 75.
(slandsbanki styrkir
(þrótta og Ólympíu-
OOO samband (slands
ISLAN DSBAN Kl
www.isbank.is
Netbanki tfyrir húsfélög
Hi
gm 1
Æfingastöivaii
8515 æfingastöð
Fimm stöðvar í einni. Alhliöa æfinga-
stöð með yfir 30 æfingamöguleikum.
Pressu/togbekkur ásamt þrekstiga
með tvívirkum dempurum. Einföld í
notkun, fyrirferðalítil, engar plötu- eða
víraskiptingar. Æfir og stælir allan
líkamann.
Staðgreítt kr. 85.815,
verð kr. 90.332.
Stærðir: L. 145 x br. 94 x h. 188 cm.
Mikið úrval æfingastöðva ásamt mesta urvali
landsins af allskyns þrek- og æfingatækjum.
Aðeins topp-merki.
ÖRNINNf*
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifunni 11, sími 588 9890