Morgunblaðið - 12.03.2000, Page 8
8 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sr. Gunnar Björnsson hótar biskupi málaferlum vegna tilflutnings:
Þekkið þér þennan, herra biskup. Þér verðið að bjóða upp á eitthvað
betra en þýðingar úr norsku.
Fermist
Glæsitega hönnuð hljómtækjastæða. Framúrstefnuleg og
kraftmikil með 2 xlOO W útgangsmagnara, Power Bass
hátalara - funky blá baklýsing, einingar sem auðvelt er að
taka f sundur, gegnsætt lok fyrir CD-spilara og allt það sem
þú vilt hafa í alvöru hljómtækjastæðu, og meira til
emu smm
jn'fiirn• M
w ^ll SB&gjm ] i
s ‘Wm Éb s 1 ]l
n S H
E Ær ^ i
kj
IJj ;m
' nHKy 1 —^ - .-.--r-i 1
bJl
Blómleg starfsemi AFS á íslandi
Alþjóðleg
menntun
mikilvæg
SENN rennur út um-
sóknarfrestur um
dvöl fyrir skipti-
nema á vegum AFS í lönd-
um, þar sem brottför er á
bilinu júní til september.
Að sögn Petrínu Ásgeirs-
dóttur, framkvæmdastjóra
AFS á íslandi, er hér bæði
um að ræða ársdvöl, hálfs
árs dvöl og sumardvöl.
„Ég vil einnig vekja at-
hygli á því að núna um
helgina stendur yfir nám-
skeið fyrir sjálfboðaliða
okkar af öllu landinu sem
haldið verður á Úlfljóts-
vatni og aðalfundur félags-
ins.“
- Hvað eiga þessir sjálf-
boðaliðar að gera ?
„Þeir koma að umsókn-
arferli og undirbúningi fyr-
ir senda nema og þeir taka þátt í
fjölskylduöflun fyrir nema sem
koma hingað og stuðningi við þá.
AFS eru sjálfboðaliðasamtök sem
hafa að markmiði að veita fólki
tækifæri til að læra um ólíka
menningarheima í þeim tilgangi að
aðstoða það við að þróa þá þekk-
ingu, hæfileika og skilning sem
þarf til að skapa réttlátari og frið-
sælli heim. Þetta er takmark okkar
- við skilgreinum okkur sem írið-
arsamtök, menntasamtök og sjálf-
boðaliðasamtök.“
- Er mikiU áhugi á starfí ykkar
hér?
„Já, árlega fara á vegum félags-
ins rúmlega hundrað ungmenni á
aldrinum 15 til 18 ára til dvalar í
um tuttugu löndum og þau snúa
heim með margvíslega reynslu,
þekkingu og tungumálakunnáttu
sem eykur starfsmenntunarmögu-
leika þeirra bæði hérlendis og er-
lendis. A tímum alþjóðlegra sam-
skipta þykir okkur hjá AFS þessi
alþjóðlega menntun vera mjög
mikilvæg bæði fyrir einstaklinga
og þjóðfélagið."
- Koma margir skiptinemai•
hingað?
„Já, AFS á íslandi tekur árlega
á móti 35 til 40 erlendum skipti-
nemum frá tólf löndum. Þau ung-
menni dvelja hjá íslenskum fjöl-
skyldum, ganga í íslenska
framhaldsskóla og snúa heim með
mikla þekkingu á landi og þjóð sem
tengir þau og þeirra nánustu við
ísland ævilangt. Nú erum við að
byrja að leita að fjölskyldum fyrir
nema sem koma hingað í ágúst
nk.“
- Hafa þeii• útlendu nemai- sem
hingað koma mikil samskipti sín á
milli?
„Já, við höldum fjögur námskeið
fyrir nemana yftr árið þar sem þeir
fá tækifæri til þess að meta reynslu
sína af dvölinni hér og eru nám-
skeiðin liður í því að hjálpa þeim til
að aðlagast landi og þjóð. Núna,
síðustu helgina í mars,
munu nemarnir einmitt
koma saman, en um
helmingur þeirra býr á
höfuðborgarsvæðinu
en hinn helmingurinn
býr annars staðar á landinu. í
þessari ferð munu þeir heimsækja
ýmsar menningarstofnanir hér í
Reykjavík og síðan fer hópurinn
ásamt sjálfboðaliðum á Snæfells-
nes og verður þar yfir helgina."
- Gengur vel að fá sjálfboðaliða
til starfa hérfyrirAFS?
„Já, það gengur mjög vel. Sjálf-
boðaliðar hafa unnið og vinna mik-
ið og ósérhlífið starf í þágu samtak-
anna. Margir af þeim sem hafa
farið út á okkar vegum koma síðar
til starfa með samtökunum sem
► Petrma Ásgeirsdóttir fæddist
í Reykjavík 1956. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum
við Sund 1976 og lauk prófi í fé-
lagsráðgjöf frá Noregi 1980. Hún
starfaði sem félagsráðgjafi frá
þeim tíma fram til 1997 en þá
gerðist hún framkvæmdastjóri
AFS (alþjóðleg fræðslusam-
skipti) og gegnir því starfi í dag.
Petrína hefur lokið þriggja anna
rekstrar- og viðskiptanámi frá
Endurmenntunarstofnun HÍ og
hefur einnig lagt stund á
finnskunám við HÍ og háskólann
í Helsinki. Petrína er gift Pétri
Jóhannessyni rafmagnsverk-
fræðingi og eiga þau eina dóttur.
sjálfboðaliðar og sumir hafa starf-
að með AFS í áratugi. Einnig
koma fósturfjölskyldur gjarnan
inn sem trúnaðarmenn fyrir er-
lenda nema eða að starfinu að öðru
leyti. Fósturfjölskyldur eru einn af
mikilvægustu samstarfsaðilum
okkar, þær taka nema inn á sitt
heimili eingöngu áhugans vegna,
ekki er greitt fyrir dvöl nemanna í
peningum en fjölskyldurnar fá
dýrmæta reynslu og gjaman
tengsl við fósturbam ævilangt.
Sjálf á ég fósturson í Venesúela og
átti þess kost að heimsækja hann
síðastliðið haust og var mjög
ánægjulegt að hitta hann og fjöl-
skyldu hans.“
- Hvemig gengur skiptinemun-
um erlendu að stunda nám hér í
skólum?
„Nemamir eru á aldrinum 15 til
18 ára þegar þeir koma til landsins
og það gengur yfirleitt mjög vel
fyrir þá að aðlagast í skólum hér.
Við eigum mjög gott samstarf við
marga framhaldsskóla vegna þess
ama og sjá skólarnir sér á vissan
hátt hag í því að taka á móti er-
lendu nemunum þar sem það eyk-
ur fjölbreytni í skólalíf-
inu, þó það vissulega
geti kallað á ákveðna
vinnu fyrir skólana."
- Hvernig gengur ís-
lensku nemunum að að-
lagast í sínum dvalarlöndum ?
,Að öllu jöfnu gengur það vel en
auðvitað koma alltaf upp einhver
vandamál þegar fólk frá ólíkum
menningarheimum þarf að eiga
mikil samskipti og það tekur tíma
að aðlagast. Mér finnst að þessi
tækifæri sem við veitum ungu fólki
séu þýðingarmikil og sjálf á ég 16
ára dóttur sem nú er skiptinemi í
Astralíu - ég lít svo á að dvöl henn-
ar þar sé liður í menntun hennar -
og menntun er jú mikilvæg fjár-
festing.“
Veitir dýr-
mæta reynslu
og náin tengsl