Morgunblaðið - 12.03.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 12.03.2000, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Þriðja kantötuguðsþjónustan í Hallgrímskirkju Morgunblaðið/Arni Sæberg Gísli Magnason og Benedikt Ingólfsson syngja einsöng með Schola cantorum í Hallgrímskirkju í dag. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Gréta S. Guðjónsdóttir, Bára Kristinsdóttir og Anna Fjóla Gísladóttir, nýr formaður LÍ, hlutu viðurkenningu á sýningu Ljósmyndarafélagsins. Nýr formaður Ljós- myndarafélags Islands Eitt af elstu söng- verkum Bachs ANNA Fjóla Gísladóttir var kjörin formaður Ljósmyndarafélags Is- lands á aðalfundi félagsins á dögun- um. Þetta er í fyrsta skipti í 74 ára sögu félagsins að kona gegnir þeirri stöðu. Anna Fjóla er auglýs- ingaljósmyndari í Reykjavík og tek- ur við af Þór Gíslasyni, ljósmynd- araáHúsavík. Á fyrstu samsýningu LÍ og Blaða- ljósmyndarafélags Islands fyrir réttu ári tók LÍ upp á þeirri ný- breytni að bjóða sýningargestum uppá að vera með í sýningunni á þann hátt að velja, á til þess gerðan miða, eigulegustu mynd sýningar- innar. Var þessi leikur endurtekinn í ár. Að þessu sinni var óháðri nefnd bætt við og með atkvæða- hlutfall til hliðsjónar voru þremur ljósmyndurum veitt verðlaun þann 9. mars sl. Verðlaunin hlutu Gréta S. Guðjónsdóttir, Anna Fjóla Gísla- dóttir og Bára Kristinsdóttir. Við samatækifæri voru Þjóðminjasafni íslands afhentar til varðveislu fund- argerðarbækur frá Ljósmyndarafé- laginu. Sýningin er í Gerðarsafni og lýkur 19. mars. Sérstakur gestur sýningarinnar er Vigfús Sigur- geirsson en hann á 100 ára fæðing- arafmæli á þessu ári.. ÞRIÐJA kantötuguðsþjónusta Bach- ársins í Hallgrímskirkju verður hald- in í dag, sunnudag, kl. 17, en þá flytur kammerkórinn Schola cantorum kantötu nr. 131 eftir Johann Sebasti- an Bach. Fram úr röðum kórfélaga stíga tveir einsöngvarai', bassinn Benedikt Ingólfsson og tenórinn Gísli Magnason, og syngja aríur kantöt- unnar. Kammersveit Hallgríms- kirkju leikur með í kantötunni og ein- leikari á óbó er Daði Kolbeinsson. Kjölfesta athafnarinnar er kantatan, en í guðsþjónustunni mun organist- inn Eyþór Jónsson leika forspil og eftirspil eftir Bach, auk þess sem fluttar verða nýjar sálmaútsetningar eftir Hörð Áskelsson, sem stjómar tónlistarflutningnum. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar. Kantötuna nr. 131, ,Aus der Tiefen rufe ich, Herr, zu dir“, samdi Bach ár- ið 1707 í Múhlhausen í Thúringen, þar sem hann starfaði sem organisti um tíma við upphaf ferils síns. „Sagnir herma að verkið hafi verið flutt við iðrunarguðsþjónustu í kjölfar mikils eldsvoða í borginni í maí 1707. Að því er sumir telja er hér um að ræða fyrstu kantötu Bachs og hún er all- tént meðal elstu varðveittu söng- verka meistarans. Það er þó sannar- lega engan byrjendabrag að finna á verkinu. Bach gjóir vissulega augun- um í átt að eldri fyrirmyndum, en frumleiki tónsmiðsins og fullkomið vald hans á efniviðnum er þegar til staðar,“ segir í kynningu. Kjarnaatriði fagnaðarerindisins Uppistaða texta kantötunnar er þýsk þýðing Marteins Lúters á sálmi nr. 130 í Gamla testamentinu, „Ur djúpinu ákalla ég þig, Drottinn". „Þessi sálmur hefur verið mjög vin- sæll innan kirkjunnar frá ómunatíð. Lúter hafði miklar mætur á þessum sálmi og komst svo að orði að hann geymdi í raun kjamaatriði fagnaðar- erindisins; að maðurinn frelsaðist ekki fyrir eigin verðleika, heldur fyrir náð Guðs. Það kemur skýrt fram í kantötunni að maðurinn ætti sér harla litla von ef Drottinn fylgdist með hverri misgjörð hans - það er Drottinn sem fyrirgefur og þar liggur von mannsins," segir Benedikt. Gísli segir kantötuna mjög fallega og áheyrilega. „Það væri gaman að fá að gera meira af því að syngja kantöt- ur,“ segir hann. Báðir hafa þeir félag- ar verið í Schola cantorum allt frá stofnun kórsins árið 1997. Gísli var áður í Kór Langholtskirkju en Bene- dikt kveðst hafa hlotið sitt tónlistar- uppeldi hjá Herði Askelssyni í Mót- ettukómum. Gísli hefur lagt stund á söngnám hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðar- dóttur og Rut Magnússon, en Bene- dikt er í námi hjá John Speight og stefnir að burtfararprófi á næstunni. Næstu viðburðir Bach-ársins em flutningur Jóhannesarpassíunnar í dymbilviku og Uppstigningaróratór- íunnar á uppstigningardag. Kvöld með Kamban í TENGSLUM við sýningu Þjóðleik- hússins á leikritinu „Vér morðingj- ar“ verður fjallað um höfund þess, skáldið Guðmund Kamban, ævi hans og verk í Listaklúbbi Leikhúskjall- arans mánudagskvöldið 13. mars kl. 20.30. Leikin verða atriði úr sýningunni og sýnd brot úr sjónvarpsmynd Við- ars Víkingssonar. Umsjón hefur Þórhallur Sigurðs- son, leikstjóri. Guðmundur Kamban Fyrstu tónleikar nýstofnaðs tónlistarhóps Eldri tónlist og nútíma- tónlist teflt saman Á SVIÐINU í Salnum í Kópavogi er aragrúi af hljóðfæram; blokkflautur af öllum stærðum og gerðum, gömb- ur tvær, sellófiðla, lúta og ásláttar- hljóðfæri ýmisskonar. Hinn nýstofn- aði tónlistarhópur Contrasti er að æfa fyrir tónleika sem haldnir verða næstkomandi þriðjudagskvöld kl. 20.30. Hópurinn var stofnaður að frumkvæði Camillu Söderberg blokkflautuleikara. Hún segir markmið hópsins vera að tefla saman eldri tónlist og nú- tímatónlist á einum og sömu tónleik- unum og gefa hlustendum innsýn í gjörólíkt tónmál þessara tíma. „Margt fólk er dálítið skeptískt á nú- tímatónlist og myndi aldrei koma til hugar að sækja tónleika með slíkri tónlist," segir Camilla og bætir við að svo sé hka fólk sem hlustar bara á nútímatónlist og þekkir minna til hinnar eldri. Þessa hópa vill hún sameina á tónleikum, lauma nútíma- tónlist að unnendum eldri tónlistar og eldri tónlist að þeim sem fyrst og fremst hlusta á nútímatónlist. Nafn hópsins, Contrasti, vísar til þessara andstæðna. „Það er tvennt í gangi á þessum tónleikum," segir Camilla. Ekki nóg með það, heldur má líka finna andstæður innan tíma- bilanna, þar sem skiptist á „eitthvað mjög hresst og mjög dapurlegt,“ eins og hún orðar það. Nýtt íslenskt tónverk pantað fyrir hverja tónleika Contrasti-hópurinn er skipaður þeim Mörtu Guðrúnu Halldórsdótt- ur sópransöngkonu, Camillu Söder- berg blokkflautuleikara, Snorra Erni Snorrasyni lútu- og gítarleik- ara, Steef van Oosterhout slagverks- leikara, Ólöfu Sesselju Óskarsdótt- ur, sem leikur á selló og bassagömbu og Hildigunni Halldórsdóttur, sem leikur á fiðlu og tenórgömbu, en síð- astnefnda hljóðfærið er fengið að láni hjá Hans Jóhannssyni fiðlu- smiði. Á efnisskrá þessara fyrstu tón- leika Contrasti er endurreisnartón- list frá Spáni, Þýskalandi, Ítalíu og Englandi, þjóðlagaútsetningar eftir Benjamin Britten, verk eftir kín- verska tónskáldið Isang Yun og svissneska flautuleikarann og tón- skáldið Hans Martin Linde. Þáverða frumflutt tvö ný tónverk eftir þá Atla Heimi Sveinsson og Svein Lúðvík Bjömsson, en þeir sömdu verkin sérstaklega fyrir þessa tónleika að beiðni Camillu. Hún segir að ætlunin sé að panta nýtt verk hjá íslensku tónskáldi fyrir hverja tónleika. Fyrirlestur um íslenskar nútímabókmenntir ERIK Skyum-Nielsen, bókmennta- fræðingur við Konunglega danska bókasafnið í Kaupmannahöfn, heldur opinberan fyrirlestur í boði heim- spekideildar Háskóla íslands í stofu 101 í Lögbergi, miðvikudaginn 15. mars kl. 17.15. Fyrirlesturinn nefnist íslenskar nútímabókmenntir á Norð- urlöndum - útbreiðsla og viðtökur. Erik Skyum-Nielsen er kunnur þýðandi og bókmenntagagnrýnandi í Danmörku. Hann hefur þýtt talsvert af íslensk- um skáldsögum og Ijóðum á dönsku, m.a. eftir Steinunni Sigurðardóttur, Fríðu Á. Sigurðardóttur, Einar Má Guðmundsson og Thor Vilhjálmsson og hafa þýðingar hans á íslenskum bókmenntum vakið verðskuldaða at- hygli, segir í fréttatilkynningu; Hann var sendikennari við Háskóla íslands á árunum 1974-78. Fyrirlesturinn verður haldinn á ís- lensku og er öllum opinn. Morgunblaðið/Ami Sæberg Tónlistarhópurinn Contrasti, umkringdur hljóðfærum si'num. Camilla Söderberg, Marta G. Halldórsdóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir, Snorri Örn Snorrason, Steef van Oosterhout og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.