Morgunblaðið - 12.03.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. MARS 2000 49.
BREF TIL BLAÐSINS
Sönn saga úr Reykjavík
Frá Methúsalem Þóríssyni:
VINUR minn einn er búinn að dvelja
á sjúkrahúsi frá í fyrrasumar vegna
þess að hann fær hvergi húsnæði.
Þrátt fyrir að hann hefði getað út-
skrifast einum til tveimur mánuðum
eftir að hann var lagður inn er hann
enn á spítalanum. Þessi langa
sjúkrahúsvist er nú farin að ganga
nærri heilsu hans, ekki síst vegna
þess að það hefur ekki farið fram hjá
honum frekar en öðrum hversu heil-
brigðismálin liggja þungt á ríkis-
sjóði. Þetta ástand hefur varað í
bráðum 9 mánuði þrátt fyrir að hann
hafi þrásinnis beðið embættismenn
Reykjavíkurborgar hjálpar, jafnt
lága sem háa.
Ekki sakar að geta þess að vinur
minn er fæddur og uppalinn í stríðs-
hrjáðu landi á Balkanskaga og
sjúkrahúsið sem hér um ræðir er
geðdeild Landspítalans á Kleppi.
Nýjustu fréttir af húsnæðisstríði
þessa nýja íslendings eru að félags-
málayfirvöld Reykjavíkurborgar,
sem nú kallast Félagsþjónusta,
auglýstu eftir íbúð fyrir hann í dag-
blaði. Mæltust þau til þess í auglýs-
ingunni að væntanlegir leigusalar
hringdu í hann á Kleppi og falbyðu
leiguíbúðir sínar. Eitthvað voru við-
brögð við auglýsingunni dræm, þó
hringdi ein kona og bauð 2 herbergja
íbúð fyrir 55 þúsund krónur á mán-
uði.
Ekki var þó hægt að þiggja þetta
kostaboð enda þótt það væri miklu
lægra en daggjöld spítalans og jafn-
vel mun lægra en gisting á Hótel
Holti.
Hér við situr.
Getur einhver góð manneskja
bent okkur á úrræði í þessu máli?
METHÚSALEM ÞÓRISSON,
Grenimel 28, Reykjavík.
Solusyning
á nýjum og gömlum handhnýttum, austurlenskum
gæðateppum á Grand Hótel Sigtúni
í dag, sunnudag,
frá kl. 13-19
Ný sending - Glæsilegt úrval - Gott verð
HOTEI,
REYKJAVIK
10% staðgreiðslu-
afsláttur
RADGREIBSLUR
sími 861 4883
FéLag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga
Hagnýting upplýsingatækni til bættrar
ákvarðanatöku í rekstri fyrirtækja
(Enhandng the Dedsion Making Process
Through Advanced IT Development)
Fimmtudaginn 16. mars verður haldinn hádegisverðarfundur á vegum Félags viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga kl. 12:00 - 13:30 á Radisson SAS, Hótel Sögu, Ársal, 2. hæð.
Aðalframsögumaður verður Fredrik Prien, framkvæmdastjóri Cognos Nordic.
Haraldur Hjaltason, framkvæmdastjóri Deloitte & Touche Ráðgjafar ehf., mun annast
fundarstjórn og flytja inngangserindi.
Haraldur Hjaltason mun í inngangi sínum fjalla um innihald kenninga um samhæft
mælingakerfi og þann ávinning, sem þær fela í sér fyrir fyrirtæki og rekstur þeirra.
Fredrik Prien mun fjalla um hvernig bæta má ákvörðunartökuferli innan
fyrirtækja með því að tvinna saman kosti hefðbundinna upplýsingakerfa
(Enterprice Resource Planning (ERP)) og stjórnunarkenninga eins og
samhæft mælingakerfi (Baianced Scorecard) við nýjar og öflugar lausnir í
Business Intelligence hugbúnaði.
Prien hefur sl. 15 ár öðlast víðtæka reynslu í notkun og beitingu Business
Intelligence hugbúnaðarlausna, bókhaldskerfa (fjárhagsupplýsingar og
áætlanakerfi) og upplýsingakerfa fyrir stjórnendur (Executive Information
Fredrik Prien System (EIS)).
Verð með hádegisverði fyrir skuldlausa
félagsmenn FVH er kr. 1.900 og kr. 2.500
fyrir aðra.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma
568 2370 eða með tölvupósti fvh@fvh.is.
Opinn fundur - allir velkomnir
éfé
Nature's Prescription For Shine
Nú eru þær komnar til íslands amerísku úrvals CITRÉ SHINE
hársnyrtivörurnar sem m.a. eru unnar úr safa og berki sérvalinna
sítrusávaxta sem stuðla að auknum gljáa hársins og
gefa því heilbrigt og lifandi útlit.
CITRÉ SHINE vörurnar eru á sérlega hagstæðu verði, en í háum
gæðaflokki og standast fyUilega samanburð við aðrar dýrari tegundir
hársnyrtivara.
CITRÉ SHINE hársnyrtivörurnar fást á yfir 50.000 sölustöðum í
Bandaríkjunum einum saman, auk þess sem þær eru fáanlegar
víðar um heim, svo sem í Suður-Ameríku, Kanada, Ástralíu, Evrópu,
þar á meðal á hinum Norðurlöndunum, í Austurlöndum
- og nú á íslandi!
Margir íslandingar kannast við suma þekkta sölustaði CITRÉ SHINE
í Bandaríkjunum og má þar t.d. nefna risafyrirtækin K-Mart,
Walgreens, Revco, Eckard, Rite Aid, CVS og Albertsons.
♦
CITRE
Nature's Prescription For Shtne
REVITALIZING
SHAMPOO
Mega-Vitamin Formula
Nourishes & Strengthens
IHMMAStíao~
FOR ALL HAfR TYPES
474
Þessi sjampóflaska er í raunverulegri stærð,
innihald 474 ml. CITRÉ SHINE hársnyrtivörurnar
eru gæddar einstaklega léttum, ferskum ilmi og
eru afar drjúgar í notkun.
lCosfJ'hvC'fc’
Sfðumúla 17 • 108 Reykjavík
Sími: 588 3630 • Fax: 588 3731
Netfang: kosmeta@kosmeta.is
Netverslun (Amerísku undrakremin): www.kosmeta.is
GAUKUR