Morgunblaðið - 01.04.2000, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frestur
lengdur til
að stuðla
að fjölgun
rafrænna
framtala
„VIÐ töldum rétt að framlengja
frestinn, það hafa reyndar verið
ágæt skil, við höfum þegar
fengið inn með rafrænum hætti
rúmlega 25% fleiri framtöl en í
fyrra. En við sáum hins vegar á
tölunum um helgina að miðað
við fækkun á pappírsframtölum
að ennþá ætti eftir að skila sér
drjúgur hluti, enn væri eitthvað
í pípunum svo við töldum rétt
að lengja frestinn," sagði Indr-
iði Þorláksson ríkisskattstjóri í
samtali við Morgunblaðið um
þá ákvörðun embættisins að
framlengja framtalsfrest á Net-
inu um tíu daga.
„Við sjáum að á sjötta þús-
und manns hefur opnað framtöl
sín og tekið til við að telja fram
án þess að hafa lokið því. Við
vildum kappkosta að fá sem
mest af þessum óskiluðu fram-
tölum inn. Til að dreifa álaginu
á lengri tíma töldum við rétt að
framlengja frestinn. Þá var sú
ákvörðun og tekin með tilliti til
þess að því miður voru ákveðnir
tæknilegir hnökrar af og til;
einhverjir stirðleikar í vefþjón-
um er gerðu mönnum erfítt íyr-
ir.
Það er okkur og kappsmál að
fá sem flesta til að telja fram á
Netinu. Að því er visst hagræði
og léttir. Það sparar bæði
skráningu hjá skattstofunum
og þar að auki verður úrvinnsla
og yfirferð þessara rafrænu
framtala hagað með öðrum
hætti. Hún verður auðveldari
þar sem við beitum tölvutækni
við hana, keyrum ákveðin forrit
yfír þau sem uppgötvar m.a.
villm- og annað.
Þess vegna viljum við örva
þessa framtalsleið eins og hægt
er og verðum með upplýsinga-
þjónustu hér líka svona til þess
að auðvelda mönnum leikinn.
Hægt er að senda hingað inn
fyrirspumir. Þær hafa þegar
borist í stórum stíl og það tekur
tíma að sinna því öllu,“ sagði
Indriði.
AEs höfðu 21.448 manns talið
fram til skatts á Netinu á mið-
nætti í fyrrinótt að því er fram
kemur á heimasíðu ríkisskatt-
stjóra. Upphaflega átti frestur
til að telja fram á Netinu að
renna út í gærkvöldi en að því
er fram kemur á síðunni hefur
ríkisskattstjóri framlengt fram-
talsfrestinn um 10 daga, eða til
10. apríl.
Hús gjör-
ónýtt eftir
eldsvoða
EINBÝLISHÚS við Mávanes 2 á
Arnarnesi gjöreyðilagðist í eldi í
fyrrinótt. Húsið var mannlaust en í
upphafi var óttast að einhver væri
inni í brennandi húsinu og voru
reykkafarar því sendir inn til leitar.
Rannsóknardeild lögreglunnar í
Hafnarfirði fer með rannsókn á til-
drögum brunans, en samkvæmt
frumrannsókn á vettvangi bendir
ekkert til þess að um íkveikju hafi
verið að ræða.
Tilkynnt var um eldinn um
klukkan 4 í fyrrinótt og var
Slökkvilið Hafnarijarðar kvatt á
staðinn og var húsið þá alelda. Onn-
ur hús voru ekki í hættu vegna
brunans. Allt tiltækt lið var kallað
út og hjálp fengin frá Slökkviliðinu
í Reykjavík. Slökkvistörfum lauk á
áttunda tímanum og vakt, höfð við
rústirnar fram til hádegis.
Dómsmálaráðherra kynnt smíðalýsing nýs 105 metra varðskips
Smíðatími áætlaður 3-5 ár
Morgunblaðið/Kristinn
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra tók í gær við smíðalýsingu nýs varðskips. Frá hægri á myndinni eru
Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, skipherrarnir Sigurður Steinar Ketilsson og Halldór
Nellett og Haukur Óskarsson skipaverkfræðingur.
DÓMSMÁLARÁÐHERRA var í
gær afhent smíðalýsing að nýju 105 m
varðskipi sem fullbúið mun kosta um
2,4 milljarða króna.
Nefnd var skipuð í árslok 1997 til
að semja forsendur og hafa umsjón
með smíði nýs varðskips sem ríkis-
stjómin hafði þá samþykkt að skyldi
byggt. Hefur nefndin starfað síðan
undir forsæti Hafsteins Hafsteins-
sonar, forstjóra Landhelgisgæslunn-
ar og notið ráðgjafar Ráðgarðs - skip-
aráðgjafar ehf.
Nefndin skilaði smíðalýsingu nýs
skips í gær, 105 m og 3.000 tonna
varðskips sem búið verður fullkomn-
asta búnaði til gæslu- og björgunar-
starfa. Kostnaðaráætlun nefndarinn-
ar vegna nýs varðskips hljóðaði upp á
ríflega 2,4 milljarða kr., en nefndin
telur æskilegt að fjárfest verði einnig
í viðbótarbúnaði fyrir um 380 milljón-
ir og heildarkostnaður yrði því um 2,8
milljarðar.
Hún gerir þó ekki tillögu um slíkt
og ráðherra dómsmála upplýsti í gær
að farið yrði yfír óskir um viðbótar-
búnaðinn með sérfræðingum á næst-
unni áður en ákvörðun yrði tekin.
Skynsamlegt að byija sem íyrst
Fram kom á blaðamannafundi í
gær að smíðatími slíks skips yrði
væntanlega þijú til fimm ár, eftir því
hvar smíði skipsins færi fram. Þar af
myndi taka eitt ár að vinna smíða-
teikningar að skipinu eftir að samn-
ingar hafa tekist um smíði þess.
Fram kom í máli Sólveigar Péturs-
dóttur, dómsmálaráðherra á fundin-
um, að varðskipið Óðinn, sem er 910
brúttótonn, væri orðið 40 ára gamalt
og þyrfti að gera á því kostnaðarsam-
ar endurbætur, ef til áframhaldandi
reksturs ætti að koma, endurbætur
sem vafasamt væri að svöruðu kostn-
aði. Því virtist skynsamlegra að ráð-
ast sem fyrst í smíði nýs varðskips
sem kæmi í stað Óðins. Það þyrfti að
vera mun stærra en fyrri varðskip
sökum gæslustarfa á djúpmiðum og
aðstoðar við fiskiskipaflotann, en sí-
fellt bættust stærri skip í hann.
Ráðherra benti á að hin tvö varð-
skipin, Týr og Ægir, væru einnig
komin til ára sinna, þau væru um og
innan við 70 m að lengd og því væri
ljóst að hið nýja skip yrði aðalskip
Landhelgisgæslunnar - með ellefu
mánaða úthald á ári. Gert er ráð fyrir
að skipverjar í nýju skipi verði 27, eða
átta fleiri en í Oðni og aukinn kostn-
aður vegna þess nemi ríflega þremur
milljónum á mánuði.
Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, sagði að til-
koma slíks skips yrði bylting fyrir
Landshelgisgæsluna og myndi stór-
auka öryggi sjófarenda. Hann lagði
áherslu á að nefndin hefði haft til hlið-
sjónar áherslu á öryggi, en jafnframt
að öllu væri þó stillt í hóf.
Smíði nýs varðskips verður boðin
út á næstunni, að sögn dómsmálar-
áðherra. Ákveðið hafði verið að ís-
lenskar skipasmíðastöðvar myndu sjá
um smíðina, en eftirlitsstofnun EFTA
gerði athugasemdir við þá ákvörðun
þar sem þetta bryti að hennar mati
gegn EES-samningnum. Kom fram í
máli ráðherra að unnið væri við að
leysa úr þeim ágreiningi við Eftirlits-
stofnunina og vonandi yrði fljótlega
unnt að greina frá niðurstöðunni.
Frábært fermingartilboð
Orðabók og spil saman í pakka
Mél og monnlng|kÆl
malogmennlng.is I Wn I
Fullt verð: 10.970 kr.
Tilboðsverð: 6.980 kr.
Laugavegl 18 • Simi 515 2500 • Sföumúla 7 • Sími 510 2500
Morgunblaðið/Kristinn
Ólafur Ragnar Grímsson afliendir Sveini Guðmundssyni, forstöðulækni
Blóðbankans, skjal um alþjóðlega vottun starfsemi bankans. Sigríður
Þormóðsdóttir náttúrufræðingur fylgist með.
Blóðbankinn
hlýtur
alþjóðlega
gæðavottun
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, afhenti í gær Sveini Guð-
mundssyni, forstöðulækni Blóð-
bankans, skjal um alþjóðlega vott-
un starfsemi Blóðbankans en frá
árinu 1997 hefur verið stefnt að
vottun blóðsöfnunar og blóðhluta-
vinnslu bankans samkvæmt svo-
kölluðum ISO 9002 staðli. Með út-
tekt British Standards Institute
(BSI) í febrúar sl. hlaut svo Blóð-
bankinn staðfestingu á vottun starf-
seminnar. Blóðbankinn er fyrsti
blóðbankinn á Norðurlöndum til að
hljóta ISO 9002 vottun á starfsemi
sinni en slík vottun nær til að
mynda til skipulags gæðaeftirlits,
verkferla, verklagsreglna, ábyrgð-
ar stjórnenda og fullgildingar
nýrra tækja svo dæmi séu nefnd.
I tilkynningu frá Blóðbankanum
segir að starfsmenn og stjórnendur
bankans telji að með alþjóðlegri
vottun starfseminnar sé mikilvæg-
um áfanga náð og að þátt askil hafí
orðið í starfsemi blóðbankaþjónust-
unnar. I framhaldi af vottuninni
verði úttektaraðilinn með reglu-
lega eftirlitsskoðun til að tryggja
að gæðakerfinu sé haldið við með
eðlilegum hætti og aukið þar sem
það er talið þurfa. Erlend vottun
starfseminnar marki því ekki lok
gæðastarfs hjá Bankanum heldur
miklu fremur upphaf áframhald-
andi starfs og nýrra markmiða.