Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Millibilsástand í innanlandsfluginu og færri komast að en vilja
Ferðum til Akureyrar fækkar
NOKKURT millibilsástand er í innanlandsflug-
inu á flugleiðinni milli Reyjavíkur og Akureyr-
ar þessa dagana og komast færri en vilja á milli
staðanna og þá sérstaklega í kringum helgina.
Ferðum á milli Akureyrar og Reykjavíkur hef-
ur fækkað nokkuð eftir að Islandsflug hætti í
innanlandsfluginu og sumaráætlun Flugfélags
íslands tekur ekki gildi fyrr en mánudaginn 3.
apríl en þá fjölgar ferðum á ný.
íslandsflug áætlaði að fljúga innanlands fram
til 1. apríl, eða dagsins í dag en hætti að fljúga
27. mars sl. Félagið bauð upp á fjórar ferðir
suma daga til Akureyrar og þrjár ferðir aðra
daga og þá flýgur Flugfélag Islands sex ferðir
á dag í vetraráætlun sinni.
Þegar best lét voru því 10 ferðir í boði á milli
Akureyrar og höfuðborgarinnar en þær verða
ekki nema 8 þegar sumaráætlun Flugfélags Is-
lands tekur gildi í næstu viku. Þessu til viðbót-
ar hefur áætlunarflug til Húsavíkur lagst af en
um eitt þúsund farþegar fóru um Aðaldalsflug-
völl á mánuði. Húsvíkingar og aðrir Þingeying-
ar þurfa því að fljúga frá Akureyri en á sama
tíma hefur ferðum til Reykjavíkur fækkað það-
an. Þess ber þó að geta að sætanýting miðað
við 10 ferðir suma daga vikunnar var oft mjög
léleg.
Aspirnar
snyrtar
HANN Ingólfur Jóhannsson fór
fímlega með vélsögina þar sem
hann sveif um í krana og var að
snyrta aspir við Hciðarlund á Akur-
eyri í gær. Hæstu aspirnar þarna
voru allt að 10 metrar á hæð eða
þar til Ingólfur hafði strokið þær
með söginni. Hann sagði þennan
árstúna alveg kjörinn til þessara
verka og að ekki væri betra að bíða
öllu lengur fram á vorið.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli á morgun, sunnudag, kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14 á morgun.
Kaffitónleikar Kórs Akureyrar-
kirkju í Safnaðarheimili eftir
messu. Fundur Æskulýðsfélagsins
kl. 17 á morgun. Biblíulestur í Safn-
aðarheimili kl. 20 á mánudagskvöld.
Morgunsöngur kl. 9 á þriðjudags-
morgun. Mömmumorgunn í Safnað-
arheimili kl. 10 til 12 á miðvikudag.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11 á morgun,
sunnudag. Elín Stephensen kennari
flytur hugleiðingu fyrir hönd Síðu-
skóla. Börn úr Síðuskóla flytja leik-
þátt um kristnitökuna. Barnakór
Glerárkirkju syngur. Fundur
æskulýðsfélagsins kl. 20 um kvöld-
ið. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl.
18.10 á þriðjudag. Hádegissamvera
kl. 12 til 13 á miðvikudag, orgelleik-
ur, fyrirbænir og sakramenti. Opið
hús fyrir mæður og börn alla
fimmtudaga frá 10 til 12.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjöl-
skyldusamkoma kl. 11 á sunnudag.
Engin samkoma kl. 17. Unglinga-
samvera kl. 20 um kvöldið. Heim-
ilasamband kl. 15 á mánudag.
HRÍSEYJARPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun í
Stærra-Arskógskirkju. Sunnudaga-
skóli í Hríseyjarkirkju kl. 11 á
morgun, sunnudag.
HVÍ TASUNNUKIRKJAN:
Brauðsbrotning kl. 20 í kvöld, laug-
ardag, ræðumaður verður Erling
Magnússon. Sunnudagaskóli fjöl-
skyldunnar á morgun, sunnudag,
kl. 11.30. Kennsla úr Orði Guðs fyr-
ir alla aldurshópa. Reynir Valdi-
marsson kennir. Almenn vakninga-
samkoma á sunnudag kl. 16.30,
Erling Magnússon predikar. Fyrir-
bænaþjónusta og barnapössun.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á morgun,
sunnudag, kl. 11 í kirkjunni við
Eyrarlandsveg 26.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundarskóla kl. 13.30 á morgun,
sunnudag. Almenn samkoma á
Sjónarhæð kl. 17. sama dag. Barna-
fundur á Sjónarhæð, Hafnarstræti
63, kl. 18 á mánudag.
Morgunblaðið/Kristján
SAMKEPPNISHÆFNI
í SJÁVARÚTVEGI
ALÞJÓÐLEG RÁÐSTEFNA Á
VEGUM SJÁVARÚTVEGSDEILDAR
HÁSKÓLANS Á AKUREYRI
irlesarar ó róosíerunni verða
nokkrir aí okkor þekktusfu
séríræoingurn um rrsálefní
sins og islensks sjávarútvegs,
q bekktír erlenajr vísindornenn
http://www.unak.is
Páll Eyjólfsson gftarleikari
Námskeið
og einleiks-
tónleikar á
Akureyri
PÁLL Eyjólfsson gítarleikari verð-
ur með námskeið fyrir gítarnem-
endur í Tónlisí arskóla Akureyrar
um helgina og heldur í framhaldi af
því einleikstónleika í Listasafninu á
Akureyri.
Námskeiðið hefst laugardaginn
1. aprfl kl. 10.00 í sal Tónlistarskól-
ans á Akureyri og er haldið í sam-
vinnu Tónlistarskólans á Akureyri
og Tónlistarskóla Húsavíkur. Nám-
skeiðið endar með nemendatónleik-
um á laugardeginum kl. 18.00 í sal
Tónlistarskólans á Akureyri og er
öllum heimili ókeypis aðgangur.
Tónleikar Páls verða sunnudags-
kvöldið 2. aprfl kl. 20.30 í Listasafn-
inu á Akureyri og er miðaverð kr.
1.000,-. Aðgangur er ókeypis fyrir
alla nemendur á hvora tveggja tón-
leikana.
Á efnisskránni eru m.a. verk eftir
Luis de Narváez, F. Tarrega, F. M.
Torroba, Isaac Albeniz og Mist
Þorkelsdóttur. Verk hcnnar heitir
Bifreiðastj órar
Hafið bílabænina í bílnum
og orð hennar hugföst
þegar þig akið.
Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31,
Hljómveri og Shellstöðinni
v/Hörgárbraut, Akureyri, Litla
húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri.
Verð kr. 200.
Orð dagsins, Akureyri
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Páll Eyjólfsson gítarleikari.
Dans og er samið fyrir einleiksgít-
ar. Verkið samdi hún fyrir Pál vet-
urinn 1985 og var það frumflutt í
Norræna húsinu það ár á vegum
Musica Nova.
Páll lauk einleikaraprófi frá Gít-
arskólanum og Tónlistarskólanum í
Reykjavík og hólt að því búnu til
framhaldsnáms á Spáni þar sem
hann dvaldi íþrjú ár. Hann hefur
notið leiðsagnar margra af helstu
gítarleikurum heimsins. Hann
starfar nú sem gítarkennari í
Reykjavík og hefur verið virkur í
fslensku tónlistarlífi síðustu ár.
Deiliskipulag á
Gleráreyrum
Þrjár athuga-
semdir bárust
ÞRJÁR athugasemdir bárust um til-
lögu að deiliskipulagi verslunarlóðar
og athafnasvæðisins á Gleráreyrum
en frestur til að gera athugasemdir
rann út í vikunni.
Að sögn Árna Ólafssonar skipu-
lagsstjóra Akureyrarbæjar verða at-
hugasemdirnar teknar til umfjöllun-
ar á fundi skipulagsnefndar í dag,
föstudag, en hann sagði jafnframt
stefnt að því að ljúka afgreiðslu
málsins á fundinum.
Orgelsjóður
Glerárkirkju
Fjáröfl-
unartón-
leikar
FJÖLDI listamanna kemur
fram á fjáröflunartónleikum
til styrktar orgelsjóði Gler-
árkirkju, en þeir verða í
kirkjunni annað kvöld, sunnu-
dagskvöldið 2. apríl kl. 20.30.
Meðal þeirra sem fram
koma eru Kór Glerárkirkju,
Álftagerðisbræður, Kross-
bandið, Kór Akureyrarkirkju,
Karlakór Arnarneshrepps,
Þuríður Vilhjálmsdóttir, sópr-
an, Jóhann Smári Sævarsson,
bassi, Óskar Pétursson, tenór,
Helena Guðlaug Bjarnadóttir,
píanóleikari, og Sveinn. Arnar
Sæmundsson orgelleikari.
Allur ágóði af tónleikunum
rennur í orgelsjóð Glerár-
kirkju sem hjónin Áskell
Jónsson og Sigurbjörg Hlöð-
versdóttir stofnuðu en
markmið hans er að stuðla að
smíði pípuorgels í Glerár-
kirkju. Þeim sem vilja styrkja
sjóðinn er bent á reikning í
Brekkuafgreiðslu Landsbanka
íslands, nr. 164-18-450018.
Erindi
Everestfara
HALLGRÍMUR Magnússon,
einn Everestfaranna, flytur er-
indi um ferðina í húsnæði Vetr-
aríþóttahátíðar ÍSÍ við Kaup-
vangsstræti 1 kl. 16 í dag,
laugardag.
Þar er einnig sýndur útbún-
aður sá sem notaður var í göng-
unni sem og búnaður Suður-
pólsfara og stúlknanna sem
gengur yfir Grænlandsjökul.
Sýning á þessum munum er op-
in daglega frá kl. 16 til 18.