Morgunblaðið - 01.04.2000, Síða 26

Morgunblaðið - 01.04.2000, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIR íslenskir aðalverk- hf. hagnast jAk íslenskir aðalverktakar hf. Úr reikningum samstæðu árið 1999 Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) Hagn. af reglul. starfsemi f. skatta 6.230.7 5.944.8 -49,4 236,4 3.980,1 3.844,5 92,5 228,1 +56,5% +54,6% +3,6% Reiknaðir skattar 29,6 104,3 -71,6% Hagnaður ársins 206,9 123,8 +67,1% Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting Eignir samtals Milljónir króna Eigið fé 9.412,5 4.876,6 +93,0% 2.766,9 2.418,6 +14,4% Hlutdeild minnihluta 95,8 47,4 +102,1% Skuldir 6.549,8 2.410,5 +171,7% Skuldir og eigið fé samtals 9.412,5 4.876,6 +93,0% Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting Eiginfjárhlutfall Veltufjárhlutfall Veltufé frá rekstri Milljónir króna 29,4% 1,53 538,6 49,6% 1,86 258,1 +108,7% takar HAGNAÐUR samstæðu íslenskra aðalverktaka eftir skatta nam 206,8 milljónum króna á síðasta ári en var 123,8 milljónir árið 1998. Stjórn íslenskra aðalverktaka hf. hefur samþykkt að leggja til að greiddur verði 7% arður til hlut- hafa. Rekstrartekjur samstæðunnar námu samtals 6.2230 milljónum króna á síðasta ári en 3.980 millj- ónum árið 1998. Rekstrargjöld jukust einnig eða úr 3.845 milljón- um árið 1998 í 5.945 milljónir á síðasta ári. „Afkoma félagsins á árinu 1999 er viðunandi að mati stjórnenda þótt hún nái ekki að fullu þeim markmiðum um arðsemi sem félagið setur sér til lengri tíma,“ segir í frétt frá ÍAV. Árið 1999 er ekki að fullu sam- anburðarhæft við fyrri ár í starf- semi íslenskra aðalverktaka hf., að því er fram kemur í frétt frá félag- inu. Félagið fjárfesti verulega í samræmi við stefnumótun stjórnar og undirbjó sókn inn á svið sem það hefur ekki sinnt áður. Á árinu keypti félagið m.a. allt hlutafé í tveimur byggingarverktakafyrir- tækjum, Ármannsfelli og Álftarósi, og hafa þau öll verið sameinuð í eitt verktakafyrirtæki IAV. I til- kynningunni kemur fram að kostn- aður við sameiningu félaganna hafi verið umtalsverður en stjórnendur gera ráð fyrir að jákvæð áhrif sameiningar skili sér á síðari hluta þessa árs. Fram kemur að dótturfélög hafi orðið fyrir áföllum í einstökum til- boðsverkefnum sem tekið er tillit til í ársreikningi og er einkum vís- að til Náttúrufræðahúss háskólans og lokafrágangs við byggingu Bláa lónsins. í báðum þessum verkum hefur stjórnin ákveðið í varúðar- skyni að færa umtalsverðar gjald- færslur vegna uppgjörs þar sem óvissa ríkir um endanlegar niður- stöður. Varðandi horfur í rekstri ÍAV segir að verkefnastaða félagsins sé góð og gert er ráð fyrir að velta samstæðunnar á árinu 2000 aukist talsvert frá árinu 1999 en þá nam hún 6,2 milljörðum. Hjá ÍAV starfa um þessar mundir á áttunda hundrað starfs- menn. Bolur 2.490- Buxur 2.690- Kögun stærsta félagið í safni Islenska hugbúnaðarsjóðsins ÍSLENSKI hugbúnaðarsjóðurinn hf. hefur keypt hlut í Kögun hf., að verðmæti fjórar milljónir króna að nafnverði. Fyrir átti sjóðurinn hlut í Kögun og eftir aukninguna nemur hluturinn tæpum 11 milljónum króna, eða 11,89% af heildarhlutafé í félaginu. Er Kögun nú orðið stærsta félagið í hlutabréfasafni íslenska hugbúnaðarsjóðsins og er eignar- hluturinn um það bil 330 milljónir á bókfærðu verði. Sigurður Smári Gylfason, stjóm- armaður í íslenska hugbúnaðar- sjóðnum, segir kaupverð hlutarins vera í kringum 200 milljónir króna. Hann segir að hugbúnaðarsjóðurinn hafi metið Kögun sem góðan fjár- festingarkost enda hafi margt já- kvætt gerst í rekstri íyrirtækisins síðan sjóðurinn kom fyrst inn í það í desember. Aðspurður segir Sigurður að gríð- arlega mikil gróska sé í þeim fyrir- tækjum sem sjóðurinn eigihlut í núna. Jafnframt sé sjóðurinn sífellt að skoða spennandi fjárfestingar- kosti en þeir séu fjölmargir í dag. árg. 02/99, 17 þ.km, silfurgrár, 5 gíra, 17" felgur, leður, abs, Bose hljómkerfi o.fl. Verð: 3.950.000. Tilboð: 3.690.000. árg. 10/99, ek. 5 þ.km blár, sjálfsk.(steptronic) álfelgur, leður, topplúga, abs, spólvörn o.fl. Verð: 4.100.000 Tilboð: 3.890.000 www.benni.is - Vagnböfða 23, símí 587 0587 BÍLASALAN SKEIFÁN, BILDSHOFÐA 10, s. 577 2800/587 1000 Kaupfélag Eyfirðinga Úr ársreikningi 1999 SAMSTÆÐA Rekstrarreikningur 1999 i 1998 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna 10.858 10.581 +2,6% Rekstrargjöld -10.159 -10.030 +1,3% Afskriftir -603I -727 -17.1% Fjármagnsliðir -335 -658 -94,7% Skattar af reglulegri starfsemi -32 46 Afkoma af regl. starfsemi eftir skatta -271 -788 -65.6% Aðrar tekjur og gjöld 667 231 +188,7% Áhrif dótturfél. og hlutdeild minnihluta -13 29 Hagnaður (tap) tímabilsins 383 -528 Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting Eignir samtals Milljónir króna 11.811 12.464 -5.2% Eigið fé 2.497 2.083 +19,9% Skuldir 8.526 10.107 -15,6% Skuldir og eigið fé samtals 11.811 12.464 -5,2% Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting Eiginfjárhlutfall 21,1% 16,7% Veltufjárhlutfall 0,9 0,8 Veltufé frá rekstri Milljónir króna -2L -31 +10% Hag*naður KEA 383 millj. króna HAGNAÐUR af rekstri Kaupfélags Eyfirðinga og dótturfélaga á síðasta ári nam 383 milljónum króna að teknu tilliti til skatta og annarra tekna. Þetta er mun betri afkoma en árið 1998 þegar félagið var gert upp með 528 milljóna króna tapi. Tap varð af reglulegri starfsemi KEÁ samstæðunnar að fjárhæð 271 millj- ón króna, samanborið við 788 milljón- ir árið áður. I tilkynningu frá KE A kemur fram að rekstrartekjur samstæðunnar námu 10.857 milljónum króna og rekstrargjöld fyrir afskriftir og vexti námu 10.159 milljónum króna. Miðað við fyrra ár var afkoma fyrir afskrift- ir og fjármagnsliði betri sem nemur 147 milljónum króna, 698 milljóna króna hagnaður samanborið við 551 milljónar króna hagnað árið 1998. Fjármagnsliðir lækkuðu milli ára um 323 milljónir króna. Tap af reglu- legri starfsemi fyrir skatta nam 239 milljónum króna og lækkaði um 595 milljónir króna. Rekstrartekjur móð- urfélagsins námu 7.014 milljónum króna og hækkuðu um 449 milljónir króna. Rekstrargjöld fyrir afskriftir og vexti námu 6.878 milíjónum króna, fjármagnsliðir voru neikvæðir um 94 milljónir króna en voru neikvæðir um 186 milljónir króna árið 1998. Tap af reglulegri starfsemi móður- félagsins fyrir skatta nam 202 millj- ónum króna og eru meginástæðurn- ar fyrir neikvæðri afkomu áhrif þeirra breytinga sem félagið hefur verið að ganga í gegnum. Veltufé frá rekstri er nú 431 milljón króna en var neikvætt um 31 milljón króna árið 1998. Mun betri afkoma dótturféiaga Afkoma dótturfélaga á liðnu ári var mun betri en á árinu 1998, eink- anlega urðu mikil umskipti í rekstri sjávarútvegsfyrirtækisins Snæfells. Þar skiptir mestu endurskipulagning í rekstrinum sem KEA kom að með því að stofna, í samvinnu við Síldar- vinnsluna í Neskaupstað, hlutafélag- ið Barðsnes. Það tók við þeim hluta af rekstri Snæfells sem fólst í veiðum og vinnslu uppsjávarfisks og við það lækkuðu m.a. skuldir Snæfells veru- lega. Einnig var hlutafé í félaginu aukið á árinu. Nú stendur fyrir dyr- um sameining við sjávarútvegsfyrir- tækið BGB sem hafa mun enn frekari hagi’æðingu í för með sér. Einhverjir mestu breytinga- tímar i sögu félagsins Eiríkur S. Jóhannsson kaupfélags- stjóri segist vera í öllum aðalatriðum sáttur við útkomuna á liðnu ári. Fé- lagið hafi gengið í gegnum einhverja mestu breytingatíma í sögu þess og samtímis hafi náðst að snúa rekstrin- um til betri vegar. Við skoðun árs- reikningsins yrði að hafa í huga allar þær breytingar sem urðu á árinu og valda því að ekki er allt sem sýnist. Sumir kunni t.d. að setja spurningar- merki við þá útkomu að tap móðurfé- lagsins fyrir fjármagnsgjöld eykst á milli ára. Þessi niðurstöðutala ein og sér gefi ekki rétta mynd af rekstrin- um og eigi sínar eðlilegu skýringar. Eiríkur segir að þær miklu breyt- ingar sem félagið sé nú að ganga í gegnum kosti töluverð fjárútlát í dag sem talið sé að muni skila sér í bætt- um rekstri í framtíðinni. Til að mynda losni móðurfélagið ekki strax við allan kostnað við rekstur hinna einstöku deilda sem séu að breyta um form eða hafi verið seldai- út úr félag- inu. Aðalfundur KEA verður haldinn laugardaginn 15. apríl nk. Loðnuvinnslan hf. rekin með 180 millj. kr. tapi LOÐNUVINNSLAN hf. var rekin með 180 milljóna króna tapi á árinu 1999 og þar af er tap vegna sölu fastafjármuna 55,8 milljónir króna. Aðalástæðan fyrir rekstrartapinu 1999 er verðhrun á mjöl- og lýsis- mörkuðum í kjölfar nýlegra fjárfest- inga, en árið 1999 er aðeins fjórða rekstrarár hinnar nýju fiskimjöls- verksmiðju félagsins. M/s. Hoffell SU 80 var selt Kaup- félagi Fáskrúðsfirðinga 15. desem- ber 1999 fyrir 450 milljónir króna með veiðarfæíum. Eigið fé Loðnu- vinnslunnar í árslok er 584 milljónir króna sem er 54% af niðurstöðu efnahagsreiknings. Hlutafé í árslok var 500 milljónir, en það var aukið um 70 milljónir króna á árinu vegna kaupanna á Hoffelli og selt á geng- inu 2,0. Hlutabréf LVF voru skráð á Vaxt- arlista Verðbréfaþings Islands 1. júní 1999 og fóru fyrstu viðskiptin fram á genginu 2,3 en í árslok var gengi bréfanna 1,5. Hluthafar voru um áramót 245 og áttu 10 stærstu hluthafarnir 82% hlutafjár. Stærsti hluthafinn er Kaupfélag Fáskiúðs- firðinga með 41,87%.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.