Morgunblaðið - 01.04.2000, Side 53

Morgunblaðið - 01.04.2000, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 53 Elsku systir mín, nú er komið að kaflaskiptum í lífi þínu. Þú hefur staðið traust og trú við hlið bónda þíns í blíðu og stríðu. Bið ég Guð að styrkja þig og alla ykkar afkomendur í nútíð og fram- tíð. Eftirlifandi systkinum, Helgu og Guðmundi, votta ég samúð. Ég kveð þig, Gestur minn, með söknuði og þakka allar góðu sam- verustundirnar. Guð geymi þig á eilífðarbraut. Nú lýkur degi, sól er sest. Nú svefnfrið jörðin þráir mest. Nú blóm og fuglar blunda rótt, og blærinn hvíslar, góða nótt. Hvíl hjarta rótt. Hvíl höndin þreytt. Þér himins styrk fær svefninn veitt. Hann gefur lúnum þrek og þrótt. Ó, þreytti maður, sof þú rótt. (ValdimarV. Snævarr.) Guðríður Steindórsdóttir. Góður samferðamaður, hann Gestur á blómabílnum, er látinn. Margir halda því fram að hann hafi verið einn _ af frumkvöðulum um torgsölu á íslandi Hann var fasta- gestur hér á Suðurnesjum í hverri viku í nær hálfa öld. Fyrir okkur Suðurnesjamenn er margs að minnast, hér var á ferð- inni sérstakt prúðmenni, sem sjálf- sagt sá aldrei neinn mann ganga ósáttan frá sér. Gestur hóf rekstur garðyrkjustöðvar í Hveragerði 1954 og árið eftir hóf hann að koma hingað til Suðurnesja með blóm og síðar grænmeti. Fyrst í stað gekk hann í hús og seldi að sumarlagi, en fljótlega breyttist þjónustan í að hann hóf sölu beint úr „Blómabíln- um“, eins og bíllinn er ávallt kallað- ur. Þessar ferðir hafa verið fastur liður hingað einu sinni í viku og eru það reyndar enn því nú hefur sonur Gests tekið við. Hvernig sem viðraði árið um kring, alltaf kom Gestur. Það var gott að koma til Gests í blómabíl- inn, alltaf var hann hress og glað- vær. Hann var afar hjálpsamur og ráðagóður við alla, það duldist eng- um að þar var á ferð mikill fagmað- ur við sín störf. Við stöndum í þakkarskuld við þann mæta mann sem Gestur var, því hann sá til þess að láglaunafólkið á Suðurnesjum átti þess kost að prýða heimili sitt með blómum og að á borðum þess var bæði ferkst og gott grænmeti án þess að setja fjárhag heimilisins úr skorðum. Gestur lét það ekki eitt duga að selja blóm, því um leið og kirkja var vígð í Ytri-Njarðvík hóf hann að gefa blóm á altari kirkjunnar í hverri viku og hélt þeim sið til æviloka. Fyrir hönd Suðurnesjabúa send- um við eftirlifandi eiginkonu og fjölskyldu hugheilar samuðarkveðj- ur með kærri þökk fyrir fórnfúst starf okkur öllum til heilla. Guðnin Anna Jóhannsdóttir og Kristján G. Gunnarsson, bæjarfulltrúi og formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis. Hann Gestur, einn af heiðursfé- lögum Leikfélags Hveragerðis, er horfinn yfir móðuna miklu eftir erf- ið veikindi síðustu árin. Um árabil rak hann ásamt fjölskyldu sinni garðyrkjustöð í Hveragerði. En þrátt fyrir langan vinnudag ein- yrkjans var Gestur virkur í menn- ingar- og félagslífi þessa litla sam- félags undir Hamrinum, sem á árum áður gekk undir nafninu garðyrkju- og listamannabær og bar nafn með rentu. Leikfélag Hveragerðis var stofn- að árið 1947 og hefur gegnum árin átt því láni að fagna að hafa góðum kröftum á að skipa. Einn af þeim var Gestur Eyjólfsson sem var um margra ára skeið einn af aðalleik- urum félagsins. Gesti var margt til lista lagt. Hann var söngmaður góður og leik- ari af Guðs náð. Margir minnast hans í alvarlegum hlutverkum, en ekki var hann mönnum síður minn- isstæður í gamanhlutverkum, enda var Gestur mikill grínisti og skemmtilega hnittinn í tilsvörum. Um leið og við félagarnir í leikfé- laginu kveðjum Gest með þakklæti fyrir hans mikla starf í þágu félags- ins sendum við fjölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur. Anna Jórunn, form. LH. Æviskeiði mannsins er hægt að líkja við fljót sem rennur til sjávar. í fyrstu er það lítill lækur sem lið- ast um brekkur og sameinast stærra vatnsfalli sem fellur í boða- föllum um gljúfur eða líður áfram í lygnri ró á leið sinni til sjávar. Ævi- gangan er mislöng og liggur um ólíkar slóðir og krappar flúðir og rastir setja oft mark sitt á líf ein- staklingsins. Gestur Eyjólfsson föð- urbróður minn fékk sinn skerf af áföllum lífsins strax á bernsku- skeiði en stóð samt keikur eftir og lét aldrei deigan síga. Gestur í Hveragerði var fæddur og uppalinn á Húsatóftum á Skeið- um og þriðji í röðinni af sex systk- inum barna þeirra Eyjólfs Gests- sonar og Guðrúnar Sigmundsdótt- ur. í dag eru aðeins tvö elstu börn- in á lífi, Guðmundur faðir minn og Helga systir hans. Gestur var afar glaðsinna barn og var umtöluð kátína hans og fjör. Þegar hann var sjö ára veiktist hann hastarlega og var ekki hugað líf í margar vikur. Læknar töldu að um heilahimnubólgu væri að ræða og fylgdu henni miklar höfuðkvalir. Móðir Gests vakti yfir honum daga og nætur og lagði bakstra við höf- uðið til þess að reyna að lina þraut- imar en faðir hans sat fyrir bílum á Húsatóftaholti í von um að hitta á lækna á ferð. Þeir litu á drenginn en allir voru ráðþrota. Ólafur ís- leifsson frá Þjórsártúni var sömu- leiðis kallaður til en hann fékkst við lækningar. Faðir minn man eftir Ólafi þar sem hann stóð við rúm- stokkinn og strauk kollinn á Gesti. Annað gat hann ekki gert. En kraftaverkið gerðist, drengnum batnaði og eftirköst veikindanna urðu ótrúlega lítil en gamla fólkið taldi að heldur hefði dregið úr hans mikla fjöri. Var það trú manna að læknar að handan hefðu bjargað lífi Gests. Aföllum lífsins var hér með ekki lokið, því tíu ára gamall verður hann fyrir sárum missi. Milli jóla og nýárs 1931, deyr móðir Gests úr berklum og var það mikið reiðar- slag fyrir alla fjölskylduna. Faðir hans hélt þó búi áfram. Yngstu drengirnir voru sendir til vanda- lausra en Gestur og eldri systkinin urðu áfram á Húsatóftum. Enn eitt reiðarslagið skall á frænda mínum er hann greindist með berkla, haustið eftir andlát móður hans. Var hann fluttur suður á sjúkrahús og lá þar í átta mánuði og missti heilan vetur úr skóla. Veikindi styttu líka nám hans í Reykholti nokkrum árum seinna en þá sprakk í honum botnlanginn og upp úr því fékk hann lífhimnubólgu. En alltaf náði frændi að rífa sig upp úr veik- ihdunum og jafnvel á efri árum þegar alvarleg veikindi gerðu vart við sig, gaf hann aldrei eftir og hélt fast í lífið allt til hinstu stundar. Gestur var fríður maður og ljós yfirlitum, léttur í lund og spaug- samur en gat verið dulur um sína hagi. Hann var smávaxinn, fimur og léttur í hreyfingum. Á yngri ár- um var hann þátttakandi í fimleika- flokki ungmennafélags Skeiða- manna sem sýndi á landsmótum UMFÍ. Gestur var sannkallaður lista- maður, hann hafði meðfædda leik- arahæfileika og lék í fjölmörgum leikritum hjá Leikfélagi Hvera- gerðis. Einnig hafði hann yndi af tónlist og góða söngrödd sem entist alla ævi. Gestur og Dóra kona hans bjuggu allan sinn búskap í Hvera- gerði og ráku garðyrkjustöð til margra ára. Þegar ég var telpa varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að dvelja í nokkra daga á heimili þeirra hjóna. Þar naut ég þeirrar einstöku gestrisni og hlýju sem alltaf hefur einkennt heimili Gests og Dóru. Við Sigrún dóttir þeirra skiptumst á frænkuheimsóknum á þessum árum og kom hún oftast til mín að Húsatóftum um sláttinn. Þá lágum við gjarnan ofan á heyvögn- unum og sungum hátt í röddum, þegar keyrt var heim í hlöðu með heyhlassið. En í Hveragerði gekk sveitastelpan kotroskin um götur og kynntist kaupstaðalífinu og and- aði að sér þessari undarlegu hvera- lykt sem einkennir staðinn. Þá fór- um við frænkur út í búð og stóðum í biðröð til þess að kaupa nokkra potta af mjólk í glerflöskum og nýbakaða snúða með glassúr. Þetta voru yndislegir dagar. Mér er minnisstætt þegar Gestur kom inn úr gróðurhúsunum í hádeginu. Þá settist hann oft við hljóðfærið í stofunni, við hlið dóttur sinnar, og sagði henni til í píanónáminu. Mikið dáðist ég að þessum frænda mínum sem lét hvorki hádegisfréttir né veðurfregnir trufla sig, heldur fór í hlutverk píanókennarans eða þegar hann brá á leik í vinnuskúrnum og setti upp þessi skemmtilegu og kímnu svipbrigði sem honum einum var lagið á meðan hann fór fimum höndum um rósirnar sínar. Komið er að kveðjustund, lífs- fljótið hans frænda míns hefur runnið til enda. Fjölskyldan frá Húsatóftum þakkar ljúfar sam- verustundir með Gesti um leið og við biðjum algóðan Guð að styðja og blessa Dóru og okkar kæra frændfólk og fjölskyldur þeirra. Minningin um góðan dreng mun lifa. Ingibjörg S. Guðmundsdóttir. Kom líknin heims, þú hljóða nótt, er hægum blundi felur drótt, og vefur mjúkum mundum. Við dagsins lok ég lofa þig, þú lagðir blessun yfir mig á ótal ævistundum. Það er góð minning sem kemur fram í hugann þegar ég set niður minningarbrot og kveð góðan fé- laga í Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna og samferða- mann, Gestur Eyjólfsson, garð- yrkjubónda í Hveragerði, sem lést eftir erfið veikindi. Kveðjuorðin eru fátækleg en minningin rík sem og upphafsversið sem kallar á eina af mörgum góðum stundum með Gesti. Kórinn var að æfa fyrir söng- ferð til Narvíkur í Noregi árið 1981 með þeim ágætu hjónum, dóttur og tengdasyni Gests, Sigrúnu Valgerði og Sigursveini Magnússyni. Sigur- sveinn stjórnandi kórsins lét kórinn á einni æfingunni mynda hópa með fjórum röddum í hverjum hópi og dreifa sér um kirkjuna og stilla raddirnar saman í sálminum. Ég var svo lánsöm að vera í hópi með Gesti, hann hafði fallega tenórrödd sem naut sín vel í söngnum. Hann var líka góður félagi og eigum við margar góðar og skondnar minn- ingar frá kórferðalögum. Gestur átti góða lund og kunni að kætast með vinum. Margar eftirminnilegar persónur túlkaði hann með Leikfé- laginu okkar. Lífið er ferðalag og ekki velur maður samferðamenn í litlu bæjar- félagi eins og Hveragerði, auðna ræður. Frá 1958 hef ég búið hér, kynnst nágrönnum, skólafélögum barna minna og í félagsstarfsemi fær maður nálægð samferðamanna, einn þeirra var Gestur Eyjólfsson og hans fjölskylda. Einu í fari Gests fann ég svo sterkt fyrir, það var hans elskusemi sem kom svo vel fram í nærveru og umhyggju til barna hans og annarra. Tregi fylgir á kveðjustund en ekki má gleyma að andhverfa hans er gleði og gleð- in að hafa átt Gest að samferða- manni og kórfélaga er það sem ég vil þakka fyrir og bið eiginkonu, börnum og fjölskyldum þeirra huggunar í harmi og vel lokaorðin í nafni kirkjukórsins á niðurlagi upp- hafsversins. Kom líknin heims, þú hljóða nótt! Hinn horfni dagur leið svo skjótt, en samt mig sækir þreyta. Ó, veit mér hvíld og höfga á brá, uns. helga dagsbrún má ég sjá á landi, er allir leita. Hvíl í friði, Jóna Einarsdóttir. KRISTIN BJÖRNSDÓTTIR + Kristín Björns- dóttir fæddist á Hofsósi 12. mars 1947. Hún lést 25. mars síðastliðinn. Kristín var dóttir hjónanna Steinunnar Agústsdóttur, f. 1. september 1909, og Bjöms Björnssonar, f. 17. janúar 1906, d. 25. desember 1998. Systkini Kristínar em Alfreð, f. 24. október 1929, d. 29. febrúar 1984; Vald- imar, f. 16. febrúar 1931; Sólberg, f. 7. nóvember 1932; Björn, f. 4. desember 1933; Guðbjörg Ágústa, f. 25. nóvember 1935; Sigurður, f. 29. febrúar 1940; og Fanney Björk, f. 10. deseinber 1943. Árið 1972 giftist Kristín Eiríki Han- sen og eignuðust þau þrjú börn, Friðrik Smára, f. 22. mars 1972; Atla Björn, f. 21. febrúar 1978; og Birnu, f. 5. desember 1980. Fyrir hjóna- band átti Kristín Hebu Baldvinsdótt- ur, f. 10. janúar 1968, d. 19. mars 1973. Utför Kristínar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Mágkona mín, hún Stína, kvaddi þennan heim á laugardaginn var. Hún háði stutta og hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm, sem engu eirir. Á nokkrum vikum heltók krabba- meinið hana, hún fór í aðgerð á Akur- eyri og síðan á Krabbameinsdeild Landspítalans, þar sem hún fékk þann dóm, að ekkert yrði við sjúk- dóminn ráðið. Hún tók þessum veik- indum og dauðadómi af æðruleysi og kjarki, og hún kaus að láta flytja sig norður í Skagafjörðinn og heyja lok- astríðið þar. Henni var búin ágæt vist á sjúkrahúsinu þar, og þar dó hún með mann sinn og börn hjá sér. Við höfum átt langa samleið í fjöl- skyldunni. Hún kom á sinn hógværa hátt inn í fjölskyldu mína, falleg ung kona með sitt hlýja bros. Henni fylgdi lítil stúlka, Heba, sem vann hug og hjörtu okkar og ekld síst Eir- íks bróður míns, sem reyndist henni sem besti faðir. Þeim fæddist síðan sonur, Friðrik Smári, en þegar Heba var fimm ára dró ský fyrir sólu, hún greindist með hjartagalla og lést eftir aðgerð í Lundúnum. Þeir, sem missa barn, verða aldrei samir, og fylgir sorgin þeim alla ævi. Gekk þessi missir afar nærri Stínu og mótaði eflaust líf hennar og fjöl- skyldunnar. Þau Eiríkur og Stína bjuggu alla tíð á Sauðárkróki og þar fæddust þeim tvö önnur börn, Átli Bjöm og Birna, og eru börn þeirra þrjú efnisfólk. Stína var mikil heimil- ismanneskja, mjög gestrisin og var gott að sækja þau heim. Heimilið var alltaf tandurhreint og fallegt og ég man hvað ég öfundaði oft mágkonu mína af myndarskap hennar, þegar hún var búin að Ijúka öllum jólaverk- unum snemma í desember en ég vart byrjuð á þeim. Hún Stína hafði svo marga góða eðliskosti, en í hógværð sinni nýtti hún þá ekki sem skyldi nema í sínum ranni. Hún var tónelsk og hafði gam- an af tónlist og söng og hafði góða kímnigáfu. Hún rækti fjölskylduna vel og var mjög náin foreldrum sín- um, en nú syrgir Steinunn, öldruð móðir hennar, yngsta bam sitt. Sömuleiðis var hún afar góð tengda- móður sinni og vildi henni allt gott gera svo og yngsta bróður okkar, sem löngum hefur verið sjúklingur. Margs er að minnast frá liðinni tíð og ekki datt mér í hug, þegar við sát- um í notalegu eldhúsinu þeirra í haust, að við sætum þar í síðasta sinn saman. Á köldum haustdegi með útsýni fram Skagafjörðinn fagra vorum við þá að syrgja og fylgja ungum frænda síðasta spölinn og má segja, að stutt sé milli stórra áfalla í fjölskyldunni. Sælir eru hógværir því að þeir munu landið erfa. - Nú á tímum er hógværð lítt metin sem dyggð, allir Gróðrarstööin mmfo ♦ Hús blómanna Blómaskrcytingar við öll tækifæri. Dalveg 32 Kópavogi sími: 564 2480 eiga að vera ákveðnir, framagjamir, frakkir, olnboga sig áfram og ýta ná- unganum til hliðar, en af orðum frelsarans má skilja annað og von- andi ríkja önnur gildi í landi hans. Ég veit að mágkona mín á þar góða heimkomu. Ég og fjölskylda mín þökkum henni samfylgdina, sem varð allt of stutt. Við þökkum henni órofa tryggð, umhyggju og vináttu alla tíð. Kæri Eiríkur, Atli Bjöm, Bima, Smári og Maja, kæra Steinunn. Við fjölskyldan sendum innilegar samúðarkveðjur okkar; megi Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Jósefína Friðriksdóttir. Kæra vinkona. Ég sit hér og trúi ekki að þú sért dáin. Þú þessi skemmtilega og góða kona. Minning- arnar hrannast upp. Ég man þegar við fluttum á Víðigrundina, hvað við vomm ánægðar með nýju íbúðirnar okkar og margar voru ferðirnar á milli íbúða á Víðigrundinni og margt var þar brallað. Elsku Stína mín, þú hafðir svo fal- lega söngrödd og þú varst svo músík- ölsk og þú hafðir svo gaman af því að hlusta á fallega tónlist. Þú varst ótrú- leg í öllum þínum veikindum og varst alltaf að hugsa um alla aðra en sjálfa þig- Elsku vinkona, ég vil þakka þér fyrir öll árin sem við vomm saman á Víðigrandinni, þau vom mörg og góð. Það er erfitt að sætta sig við að þú sért nú farin frá okkur en einhver til- gangur hlýtur að vera með þessu öllu. Elsku Eiríkur, Birna, Áth Björn, Smári og Maja, ykkar er missirinn - mestur. Megi algóður guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg.Við Ninni sendum ykkur og öðmm aðstandend- um innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minnig Kristínar Björnsdóttur. Erla Gígja Þorvaldsdóttir. Elsku Stína frænka. Þetta er okk- ar kveðja til þín. Ég veit þú heim ert horfin nú oghafinþrautiryfir, svo mæt, svo góð, svo trygg og trú og tállaus, falslaus reyndist þú ég veit þú látin lifir. (Höf.ók.) Elsku Eigó, Smári, Maja, Atli Bjöm og Birna, guð veiti ykkur styrk í sorginni. Snædís, Heba, Stefanía og Ólöf. | Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri I lEKl blómaverkstæði I iJPINNA^J Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sítni 551 9090.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.