Morgunblaðið - 01.04.2000, Side 62
62 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
T
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Skynmat sem stjórntæki
í matvælafyrirtækjum
AÐ KYNNA nýja vöru og koma
henni á markað kostar bæði peninga
og fyrirhöfn. Þess vegna er afar
mikilvægt að vanda sem best allan
undirbúning áður en lagt er af stað í
slíkt kynningarátak. Fyrir kemur að
matvælafyrirtæki leggja út í auglýs-
ingaherferð án þess að hafa prófað
hina nýju vöru áður fyrir neytenda-
hóp í þeim tilgangi að fá svör við
nokkrum mikilvægum spurningum:
. :jEr varan jafn góð eða betri en vara
•'samkeppnisaðilans? Er hún alveg ný
á markaðinum og hvernig munu
neytendur taka henni? Hve lengi
geymist matvaran án þess að það
komi niður á bragði hennar og útliti?
Allt eru þetta spurningar sem verð-
ur að huga að, áður en varan er sett
á markað. Auglýsingar og kynning-
ar á vöru geta hæglega misst marks
ef vinnan við vöruþróunina er
ómarkviss og ófagmannlega unnin.
Mat á gæði matvæla
Flest okkar hafa einhvern tímann
keypt matvöru sem annaðhvort
reyndist gölluð eða lakari en vænt-
ingar stóðu til. Slík reynsla neyt-
enda getur reynst viðkomandi fram-
'Yeiðanda dýrkeypt. Framleiðandi
gölluðu vörunnar glatar trausti
neytandans sem getur verið erfítt að
vinna aftur. Reglubundið eftirlit
með vöru með viðurkenndum að-
ferðum er því mikilvægt. Skynmat
er ein mikilvægasta aðferð sem til er
í dag til að meta gæði matvæla og
engin önnur mæliaðferð getur túlk-
að eins vel smekk fólks.
Skynmat
Skynmat er aðferð sem byggist á
f^ví að nota skynfæri mannsins til að
meta matvöru og gefur nákvæmar
upplýsingar um styrk bragðs og
lyktar ásamt áferðar- og útlitseigin-
leikum matvæla. Skynmat er fram-
kvæmt af þjálfuðu fólki og við sem
bestu aðstæður. Sum matvælafyrir-
Flest matvælafyrirtæki,
segir Þyrí Valdi-
marsddttir, geta starf-
rækt eigin skyn-
matshóp.
tæki hafa þegar komið á fót skyn-
matshópum, sem hafa fengið þjálfun
við að meta vöru og gefa henni ein-
kunnir eftir mismunandi eiginleik-
um hennar. Niðurstöður úr skyn-
matsprófum eru síðan notaðar við
vöruþróun eða í framleiðslueftirliti á
gæðum vörunnar. Önnur fyrirtæki
kjósa að kaupa þessa þjónustu, t.d.
frá Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins, þar sem starfar skynmatshópur
sem samanstendur af 16-18 sér-
þjálfuðum einstaklingum. Þar er
einnig fullkomin aðstaða fyrir skyn-
mat, t.a.m. herbergi með aðskildum
básum, sérhannaðri lýsingu og loft-
ræstingu. Gagnasöfnun og úrvinnsla
er framkvæmd með nýjustu skyn-
matsforritum og góð aðstaða er til
að undirbúa og geyma matvælasýni.
Viðhorfs- og
neytendakannanir
Viðhorfskönnun er ein vinsælasta
leiðin til að kortleggja þarfir og
Lát hjarta
ráða for
HOLLVINASAM-
TÖK Háskóla íslands
hafa á undanfömum
árum gengizt fyrir
málþingum og fyrir-
lestraröðum fyrir al-
menning. Sú starfsemi
hefur tekið á sig ýmsar
^myndir eftir því hvert
viðfangsefnið og sam-
starfsaðilamir em.
f vetur bauðst Holl-
vinasamtökunum að
ganga til liðs við Land-
læknisembættið og
Hjartavernd vegna
málþings um hjarta- og
æðasjúkdóma. Þetta er
kærkomið tækifæri til
þess að nýta þá margþættu þekk-
ingu og tengslanet sem byggt hefur
Hollvinasamtök
Stuðningur sem fyrir-
tækin veita starfi Holl-
vinasamtakanna, segir
Sigríður Stefánsdottir,
er ómetanlegur.
verið upp innan Hollvinasamtakanna
á sl. fjómm ámm.
væntingar neytenda til matvöm. í
viðhorfskönnunum er fólk beðið um
að svara ýmsum spurningum um
neyslu og kaup á matvöm, s.s. hvar
tiltekin matvara var keypt, hvenær
hún var borðuð og með hvaða með-
læti. Einnig er gjarnan spurt um
framboð, verð, hollustu, merkingar,
traust, þægindi t.d. við matreiðslu,
pakkningar, vömmerki, verðlag og
annað sem vert er að kanna. Neyt-
endakannanir em dýrari og flóknari
í framkvæmd en skynmat, sem er
gert af þjálfuðum skynmatshópi, en
þær gefa jafnframt miklar upplýs-
ingar um væntingar og neyslu-
mynstur neytenda. Neytendakann-
anir em mikilvægar til að leggja mat
á markaðshæfi vöm áður en hún er
sett á markað. Neytendakannanir
má t.d. framkvæma á
stóram vinnustöðum, í
verslunum eða með því að
biðja fólk um að taka vör-
una með sér heim og
neyta hennar við heimilis-
aðstæður. Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins
hefur séð um að setja upp
og framkvæma slíkar
neytendakannanir eftir
óskum fyrirtækja.
Að hefjast handa
Flest matvælafyrir-
tæki, sem hafa yfir að
ráða 4-6 áhugasama
starfsmenn, geta starf-
rækt eigin skynmatshóp.
Starfsmennimir þurfa þó að upp-
fylla nokkur almenn skilyrði sem
talin era nauðsynleg til að gera þá að
góðum dómuram. Þeir þurfa t.d. að
vera áhugasamir, vera samvisku-
samir, vera við góða heilsu og hafa
eðlilegt næmi (bragð- og lyktarskyn)
svo að eitthvað sé nefnt. Mjög æski-
legt er að sérstök aðstaða eða her-
bergi sé til staðar
þar sem skynmatið
fer fram. Til þess að
skynmat nái tilgangi
sínum við fram-
leiðslueftirlit og
vöraþróun þarf að
skilgreina reglur við
sýnatöku og viðhafa
ákveðnar aðferðir
og vinnureglur við
framkvæmd matsins
þar sem einkunna-
stigar era skil-
greindir og skyn-
matsfólk þjálfað við
að meta eftir þeim.
Skynmatsstjóri sér
svo um að halda ut-
an um framkvæmd skynmatsins og
að túlka niðurstöður. Rf hefur boðið
upp á námskeið í uppsetningu og
framkvæmd skynmats sem sniðin
era að þörfum fyrirtækja.
Höfundur er sérfræðingur og
starfsmaður Rf.
Þyrí
Valdimarsdóttir
Innan Hollvinasam-
takanna starfa 12 holl-
vinafélög og þeirra á
meðal eru hollvinafélög
læknadeildar, náms-
brauta í hjúkranar-
fræði og sjúkraþjálfun.
Þessi félög stóðu fyr-
ir opnu húsi um for-
varnir í október sl. og
standa nú í dag að mál-
þingi í Norræna húsinu.
Það hefur færzt í
vöxt að samtök og ein-
staklingar leiti til
Hollvinasamtakanna
Sigríður um ýmsa fyrirgreiðslu.
Stefánsdóttir Einkum á þetta við um
fróðleik sem fólk hefur
áhuga á að koma til almennings í
landinu og liðveizlu við einstök verk-
efni. Hollvinasamtökin hafa lagt sig í
framkróka við að sinna slíkum verk-
efnum eftir föngum.
Allir landsmenn geta gerzt félagar
í Hollvinasamtökunum og þannig
haft betri aðgang að ýmsum upplýs-
ingum um innra starf Háskólans.
Á þessu ári tóku Hollvinasamtökm
upp þá nýbreytni að bjóða nokkrum
traustum fyrirtækjum til samvinnu
um rekstur samtakanna til þess að
geta eflt starfið enn frekar. Sam-
starfsaðilamir eru nefndir horn-
steinar samtakanna og era þeir í ár
Flugfélag íslands, Landsbankinn hf.
og Opin kerfi hf. Sá stuðningur sem
fyrirtækin veita starfi Hollvinasam-
takanna er ómetanlegur.
Við viljum að lokum hvetja alla þá
sem áhuga hafa á hjarta- og æða-
sjúkdómum til að leggja leið sína í
Norræna húsið í dag kl. 13.30, hlusta
á fróðleg erindi, taka þátt í umræð-
um og kynna sér starfsemi Hollvina-
samtakanna.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Hollvinasamtaka Háskóla íslands.
ISLENSKT MAL
Oft er erfitt að skýra, þegar
nöfn, sem voru öldum saman
sárasjaldgæf, taka skyndilega
undir sig stökk og komast í
hóp hina algengu. Stundum
eru ástæður þó augljósar.
Tökum hér tvö sýningardæmi,
nöfnin Haukur og Erla.
Þegar aðalmanntal var tekið
1910, sést þar engin Erla, en
við vitum um eina íslenska
stúlku sem skírð var Erla fyrir
1910, en hún var erlendis, þeg-
ar manntalið fór fram. Sú var
Ragnheiður Erla Einarsdóttir
Benediktssonar skálds. Einar
átti sex börn og hétu öll tveim-
ur nöfnum, og var hið síðara
alltaf fuglsnafn. Meira um það
síðar. Líða nú stundir fram.
Stefán hét maður Sigurðs-
son, fæddur á Hólmavík, en
fór síðar til vistar í Hvítadal í
Dölum og kenndi sig við þann
bæ. Hann bjó síðast í Bessa-
tungu þar vestra. Stefán sendi
frá sér fyrstu ljóðabók sína
1918, og þar er kvæðið Erla,
góða Erla. Bregður svo við að
árin 1921-1950 voru 808 meyj-
ar skírðar Erla, enda var
kvæði Stefáns sungið við mikl-
ar vinsældir um allt land.
Það er því ekki rétt sem
danski mannanafnafræðingur-
inn Eva Helgaard heldur
fram, að skyndileg breyting af
áðurnefndu tagi, eigi sér ekki
skýringar. Hún segir: Þetta
gerist bara einhvem veginn,
rétt eins og þegar vímspestir
skella á landslýðnum.
Nú er víst mál að snúa til
upphafs þáttarins og líta á
nafnið Haukur. Það er forn-
norrænt fulglsheiti, sjá lat.
capio=ég tek. Haukurinn var
ránfugl, sá sem hremmir, tek-
ur til sín, en fékk snemma
merkinguna snarmenni, glæsi-
menni, ef það er þá sama orð-
ið, segir Asgeir Blöndal Magn-
ússon. Haukur var ekki mjög
sjaldgæft hér í fyrnsku, sjö
em nefndir í Sturlungu og
tveir í Landnámu. En brátt
komst nafnið í lífshættu, þó
gott sé. í fyrsta allsherjar-
manntali á landi hér, 1703,
voru aðeins fjórir. Tæpri öld
síðar var aðeins einn, Haukur
Hannesson, 31 árs, Ausu,
Hvanneyrarsókn í Borgar-
fjarðarsýslu.
Nafnið dó aldrei út, en fór
ekki að hressast fyrr en undir
lok 19. aldar, en orðnir vom
Haukarnir 24 árið 1910, til-
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
1051.þáttur
tölulega flestir í Eyjafjarðar-
sfyslu. En brátt kemur stökkið.
Arin 1921-1950 fengu 477
skírnarnafnið Haukur, og nú
eru í þjóðskránni talsvert yfir
eitt þúsund. Skýringu á þessu
hef ég ekki á takteinum.
Meðal hinna fyrri manna,
sem Hauks-nafn báru, eru
kunnastur Haukur lögmaður
Erlendsson á Strönd í Selvogi.
Við hann er kennd mikil og
merk skinnbók, Hauksbók.
★
Einar Benediktsson hefur
ekki velkst í vafa um að fugls-
heitið haukur og mannsnafnið
Haukur væru eitt og sama orð,
því að einn sona hans hét Ólaf-
ur Haukur. Önnur börn hans,
sem ekki eru þegar nefnd,
vora Einar Valur, Margrét
Svala, Benedikt Örn og Katrín
Hrefna. Og þess skal getið, að
hrefna er ekki aðeins hvalfísk-
urinn hrafnreyður, heldur
merkir það einnig kvenhrafn.
Ekki var það fyrr en upp úr
1830, að tvínefnum tók að
fjölga að marki hérlendis. En
þeim hefur farið fjölgandi síð-
an. Árið 1910 eru þau um 20%,
árin 1921-50 er tæpur helm-
ingur barna skírður tveimur
nöfnum, og nú sýnist mér á
þeim gögnum, sem mér hafa
verið tiltæk, að tvínefningar
nálgist 70 af hundraði.
Kannski er toppinum náð. Ég
er ekki frá því, og þá taki hlut-
fallstalan að lækka, „því það er
svo bágt að standa í stað“,
sagði skáldið, eða með öðrum
orðum: Það fer hverjum aftur,
þegar honum er fullfarið fram.
★
Salómon sunnan sendir:
Gó, hundurinn halaklippti:
„ég held svo sem engu skipti
fyrir Jónatan lúða
og Lasarus kúða,
þó ég upp við þá lærinu lyfti.“
Að gefnu tilefni
Þegar fyrir umsjónarmanni
vefst að „úrskurða" „rétt“ eða
„rangt“ mál, er það hvorki af
viljaleysi né hugleysi, heldur
af eðli málsins sjálfu. „Rétt“
eða „rangt“ í tungumáli er að-
eins hægt að dæma út frá viss-
um gefnum forsendum. Ég get
sagt að einhver orðmynd sé
sögulega rétt, ef ég veit að hún
var mælt mál íslensku þjóðar-
innar fyrr á öldum. Ég get
sagt, að einhver orðmynd sé
„rétt“ nú, ef ég miða við hvað
yfirgnæfandi meiri hluti Is-
lendinga _ segir um þessar
mundir. Ég er nefnilega ekki
neinn hæstiréttur þegar dæma
skal um íslenskt mál, heldur
íslenska þjóðin, eins og hún
leggur sig. Það þýðir ekkert
fyrir mig að segja að þátíðin af
blóta „eigi“ að vera blét, eins
og í fornöld, af því að nú segja
allir Islendingar blótaði. Skýr-
um þetta aðeins betur. Hann
barg mér, var sagt fyrr á öld-
um. Þarna er barg sögulega
rétt þátíð af bjarga. Hins veg-
ar er bjargaði nú rétt, af því að
þannig talar hver maður. Báð-
ir lýsingarhættirnir, borgið og
bjargað, era svo „réttir“, því
að báðir era lifandi mál og
báðir „rétt“ myndaðir, miðað
við tilteknar gefnar málfræði-
legar forsendur. Það er sögu-
lega „rétt“ að stigbreyta
fjarri, firr, first, en það er
„rétt“ nú að stigbreyta fjarri,
fjær, fjærst. Jafnvel er hástig-
ið fjarst þriðji „rétti“ kostur-
inn.
★
Vilfríður vestan kvað:
Var Haraldur káttur og keikur,
en kannski á svellinu veikur.
Er kom hann frá konum,
var haft eftir honum:
„Það er dagsatt, að lífið er leikur.“
Auk þess fær Bjarni Eiríks-
son plús fyrir að „renna sér“
(ekki ?skíða). Og Morgunblað-
ið fyrir „spurn eftir veiðileyf-
um“ (baksíða 22. mars).
Þá ítrekar umsjónarmaður
tillögu sína um að „curling"
nefnist á íslensku krulla, enda
eru orðin af sama stofni, þótt
orðið hafi hljóðavíxl (meta-
thesis), og eðli leiksins gefur
efni til nafngiftarinnar krulla,
með rödduðum 1-um eins og í
Gulla og Palli.
Loks hef ég leyfi til að birta
úr bréfi Margrétar Þórsdóttur
Morgunblaðinu Akureyri til
Hólmkels Hreinssonar amts-
bókavarðar:
„Svo er annað sem við ætt-
um kannski að koma á fram-
færi - @ eða at-merkið í net-
föngum hefur lengi farið í
taugarnar á mér - hólmkell-
atakureyri og svo framvegis.
Ég heyrði ágætis orð um þetta
á dögunum, en það er skotta -
sem sagt a með skotti. Senni-
lega er þetta atkjaftæði orðið
þjóðinni of tamt til að hægt sé
að snúa henni frá atvillunni."