Morgunblaðið - 01.04.2000, Side 66
MORGUNBLAÐIÐ
66 LAUGARDAGUR 1. AFRÍL 2000_________
* UMRÆÐAN
KIRKJUSTARF
Umhverfís-
mat
UMRÆÐUR um
virkjun á Eyjabökkum
hafa verið markaðar til-
finningum og trúarhita
meir en rökum á aðra
hlið, hins vegar af
nokkrum asa og e.t.v.
ráðríki þess sem veit
sig standa báðum fót-
^irn á rétti lýðræðislegs
valds og skyldu eftir að
hafa lofað kjósendum
skjótum framkvæmd-
um. Vissulega hafa
stuðningsmenn virkj-
unar margir rætt málið
af hófsemi, skýrt og Guðjón
málefnalega, m.a. á Al- Jónsson
þingi, og án efa fleiri en
unnt hefur verið að fylgjast með.
Morgunblaðið hefur gefið því mikið
rúm, og t.a.m. hefur Jakob Björns-
son ítrekað gert því þar afar góð skil,
svo að sæmilega læsir mótmælendur
hefðu átt að ná áttum. En slíkan
málflutning munu þeir
einmitt ekki kynna sér,
nema ef vera kynni líkt
og fjandinn er talinn
lesa Biblíuna. Þrátt
fyrir greinda ann-
marka hefur verkefnið
nú með þessum hætti
farið í umhverfismat, í
raun strangara en hið
lögformlega mat yrði
án slíkrar umræðu. Þá
hafa áköfustu „vemd-
arar náttúrunnar" enn
einu sinni sýnt hversu
vel þeim hæfir ljóð
Heines (í þýðingu H.
Hafsteins);
www.mbl.is
Pú vesalings Hallur á Hamri,
hræðilegtnautertþú,
að þú skulir þjást svona mikið
ogþaðfyrireinakú!
Kannski hefði aldrei þurft Fljóts-
dalsvirkjun ef hægt hefði verið að
virkja fyrr við Kárahnjúka og hefði
án efa verið miklu betra. En þess
yrði of langt að bíða. Og hvort sem er
sama stríðið þar við hina heilögu - út
af einni kú.
Mikið þótti við liggja að hraða und-
irbúningi virkjunar og væri því ekld
tími til að vinna lögformlegt mat.
Eftir á er þetta umdeilt og ef það var
rangt er hægt að fallast á, að rétt og
skynsamlegt hefði verið að setja allt
verkið í þetta mat. Það var bara ekki
Ijóst á réttri stundu. Væntanlega
hefði það engu breytt um niðurstöðu,
en það hefði slegið vopnin úr höndum
andstæðinganna og leitt til sátta við
þá, sem í alvöru vilja mat og lúta því
síðan. Hræsnaramir sem hafa þetta
að yfirskini einu munu berjast áfram
gegn framkvæmdum hver sem nið-
urstaðan yrði í mati. Sumir játa það,
reyna að bera fé á ungt fólk að safna
stuðningi og fara að dæmi fyrirlit-
inna forfeðra sem af álíka þjóðar-
stolti krapu útlenzkum biskupum
eða konungum á Sturlungaöld sér til
fulltingis. Þeir era á valdi trúar, eins
og öfgamenn islams eða kommúnist-
ar kalda stríðsins, enda úr þeim söfn-
uði margir komnir og sækja sem
endranær meginkraft baráttunnar í
sviðann í gömlum sáram, í smánina,
vonbrigði og eftirsjá að guði sínum
föllnum. Jafnframt eygja þeir von
um að ná sér niðri á andstæðingum,
Virkjanir
Þetta svæði, segir
Guðjón Jónsson, er
utan landskjálfta- og
eldgosahættu.
finna hnefum sínum höggstað og
vilja þá öllu til kosta, jafnvel lífinu, að
berja á yfirvöldum, hataðri ríkis-
stjórn og enn verri Framsókn. Gleðj-
ast þeir að vonum ákaflega þegar
fyrrverandi formaður þess flokks
gengur í lið með þeim, fer að dæmi
stéttarsystur í Bretlandi að hætta
ekki við starfslok að aga þjóð sína
heldur reyna að stýra úr aftursætinu
- að vilja hinna nýju félaga.
Steingrímur verður þeim þó ekki
þægur þjónn. Hann studdi þá til að
krefjast matsins. Því skyldi hann síð-
an lúta, sem og fyrsti þingmaður
flokksins í Reykjavík, samkyæmt
þeirra eigin orðum. Og kvaðst Ólafur
Óm raunar beygja sig fyrir löglegri
afgreiðslu Alþingis, þó að það gengi
móti vilja hans um mat. Sá þingvilji
er nú Ijós og þar með að sá meirihluti
og sú ríkisstjóm, sem lofaði miklu
fyrir kosningar og var kosin til að
efna þau heit, sýnir bæði styrk og
drengskap til að standa við þau, þrátt
íyrir allan mótblástur. I moldviðrinu
hlýtur almenningur að spyija sig,
hvemig myndi hafa látið í andstæð-
ingunum ef ríkisstjórnin hefði að
kosningum loknum svikið öll sín heit
og snúið frá þeirri stefnu að efla at-
vinnu og hagsæld í landinu. Hefði
blásið öðravísi ef þeir Steingrímur
og Steingrímur hefðu báðir setið í
stjórn, fúsir að styðja á starthnapp
allra V-stórvirkja: verksmiðja, virkj-
ana - og vegganga. Mótmælalaust!
En sigur er ekki í höfn. Ekki er
búið að semja við neinn og enn veit
enginn hvort grandvöllur verður fyr-
ir framkvæmdum. Mörgum þykir
ekki traustvekjandi hve risafyrir-
tækið norska ætlar sér lítinn hlut í
verkinu, og án allrar áhættu.
Kannski er Mka búið að hræða það
frá allri hlutdeild? Hvað sem því líð-
ur er það vítaverður málflutningur
að heimta „hnattræna hugsun“ af
öðram, en afneita henni fyrir sjálfan
sig, vísa stóriðju út í heim þar sem
hún yrði mikil, en banna hér við vist-
vænni orku og þar með minni meng-
un. Um þetta sem annað er vonlaust
að rökræða við öfgafólkið, en samt
lætur sá ágæti maður, Jakob Björns-
son, það yfir sig ganga af aðdáanlegri
þolinmæði enn og aftur (sjá t.d. Mbl.
9. jan. 1999 og 23. jan. sl.). Gegnir
furðu að hörðustu eintijáningar úr
þessum hópi skuli til þess valdir að
vera sérstakir ráðgjafar (!) umhverf-
isráðherra.
Um hvað er að ræða?
Krafan um umhverfismat er ekki
einungis krafa um að fylgt verði gild-
andi lögum í stað eldri laga um virkj-
un á Eyjabökkum, heldur hafa deil-
umar mjög snúizt um einstaka þætti,
eins og náttúrufegurð, dýr og gróð-
ur. Sumt af þessu, s.s. fegurð, er
smekksatriði og er út í hött að deila
um slíkt. Langtum mikilvægari at-
riði, markmiðin með þessum fram-
kvæmdum og öll rök fyrir þeim, þ. á
m. hin landfræðilegu, að þetta svæði
er utan landskjálfta- og eldgosa-
hættu, en þéttbýlið við Faxaflóa á
raunveralegu hættusvæði og sóma-
samlegt byggingarland á þrotum; öll
þessi og önnur meginatriði málsins
fara fyrir ofan garð og neðan í um-
ræðunni. Um þennan jarðfræðilega
þátt m.a. skrifaði Valdimar Kristins-
son viðskipta- og landfræðingur
mjög athyglisverða grein í Mbl. 6.
júní 1999 og væri full ástæða til að
birta hana á ný mönnum til upprifj-
unar og áminningar. Og vini mínum
flugmanninum, sem hringdi til mín
og ég þarf að svara betur en nú verð-
ur gert, vil ég að sinni benda á að lesa
þessa grein Valdimars Kristinsson-
ar.
Höfundur er fyrrverandi kennari.
*
Vinsælasti sleðinn á Islandi
Getum útvegað nokkur eintök
af Ski-doo MX Z 700, sleðanum
sem hefur slegið rækilega
í gegn í vetur.
koma!
4
Nú getur þu tryggt þer eldheitan og eldrauðan
Ski-doo MX Z 800 í sérstakri forsölu á 2001 árgerð.
Um er að ræða tvær gerðir: Adrenaline og X,
, sem eingöngu eru seldar í forsölu nú í apríl.
• ' Með í kaupunum fylgja kerrumerkingar,
jakki og derhúfa. Fyrstur kemur,
fyrstur fær.
CÍSLIJÓNSSON ehf
Bíldshöföa 14 Síml: 587 6644
* Mest seldi sleðlnn af
árg. 2000 skv. bifrelðaskrá.
Kristnihátíð
í Þor-
lákskirkju
Safnaðarstarf
KRISTNIHÁTÍÐ verður í Þorláks-
kirkju á morgun, sunnudaginn 2.
apríl, og hefst kl. 20.30. Burðarásar
í söng verða Söngfélag Þorláks-
hafnar undir stjórn Roberts Darl-
ings og Kirkjukór Hveragerðis- og
Kotstrandarsóknar undir stjórn
Jurgs Sondemanns. Sr. Heimir
Steinsson á Þingvöllum fjallar um
kristnitökuna og hefur sjónarhorn
sitt úr Ölfusinu. Þetta er framlag
Þorlákshafnarprestakalls til hátíð-
ar á þeim tíma þegar minnst er
2000 ára fæðingarártíð Jesú Krists
og eitt þúsund ára tíðar kristnitöku
í landinu og era Ölfusingar og aðrir
sem þetta sjá hvattir til að fara í
sitt fínasta púss og halda til hátíðar.
Kvöldmessa
í Hallgríms-
kirkju
Sunnudagskvöldið 2. apríl verður
kvöldmessa í Hallgrímskirkju kl.
20. Fyrsta sunnudag hvers mánað-
ar hafa verið kvöldmessur í Hall-
grímskirkju. Form kvöldmessunn-
ar er einfalt, lögð áhersla á söng,
bæn og íhugun, ekki síst hefur
mælst vel fyrir að söfnuðurinn hef-
ur fengið tækifæri til að ganga
fram að altarinu með bænaljós og
gera þannig bæn sína, einnig gefst
kostur á að skrá bænir á bænaseðla
eða ganga að ölturum kirkjunnar,
krjúpa þar til bæna eða biðja um
fyrirbæn. Að þessu sinni mun efni
kvöldmessunnar vera tengt kristni-
boðsstarfinu í Afríku. Ung hjón frá
Konsó í Eþíópíu, Beyene Keilassie
og Galle Sokka flytja vitnisburð og
söng sem tengist trúarapplifun
þeirra. Hanna Þórey Guðmunds-
dóttir les ritningarorð. Gunnar
Gunnarsson er organisti. Prestarn-
ir Láras Halldórsson og Jón Dalbú
Hróbjartsson þjóna við athöfnina.
Trúarviðhorf
íslenskra
barna
Á fræðslumorgni í Hallgríms-
kirkju á morgun, sunnudaginn 2.
apríl, mun Gunnar J. Gunnarsson,
lektor við Kennaraháskóla íslands,
flytja erindisem hann nefnir
„Trúarviðhorf og trúariðkun ís-
lenskra barna“. I erindi sínu mun
Gunnar kynna niðurstöður úr um-
fangsmikilli könnun á þessu efni
sem hann hefur unnið að undan-
farin ár.
Niðurstöður könnunarinnar
hljóta að vera forvitnilegar fyrir
alla þá sem telja trúaruppeldi
barna mikilvægt. Læra íslensk
börn ennþá bænir? Taka þau þátt í
kristilegu félagsstarfi? Á hvað trúa
þau? Án efa kann Gunnar svör við
þessum spurningum og fleiri spurn-
ingum sem snerta þetta efni. Allir
era velkomnir. Að fyrirlestrinum
loknum hefst guðsþjónusta kl. 11 í
umsjá séra Sigurðar Pálssonar. Við
messuna syngur Unglingakór Hall-
grímskirkju undir stjórn Bjarneyj-
ar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur.
Kirkjukór
Blönduóss
í heimsókn
á Nesinu
VON er á kirkjukór Blönduós-
kirkju ásamt sóknarprestinum séra
Sveinbirni Einarssyni í heimsókn
til Seltjarnarneskirkju nú um þessa
helgi. Kórinn mun syngja við guðs-
þjónustu sunnudaginn 2. apríl nk.
og séra Sveinbjörn Einarsson
predika. Séra Solveig Lára Guð-
mundsdóttir, sóknarprestur í Sel-