Morgunblaðið - 01.04.2000, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 75
Flísar & lím
opnuð í dag-
FLÍSAR & lím, ný 400 fermetra
verslun, verður opnuð á Dvergs-
höfða 27 í dag, laugardaginn 1. apr-
íl. Flísar og lím munu bjóða vand-
aðar vörur frá framleiðendum svo
sem Peronda, Puma, Ravini o.fl.
Á laugardaginn verða ýmis opn-
unartilboð í gangi og veittur allt að
25% afsláttur á flísum í tilefni opn-
unarinnar.
Flísar & lím munu veita sér-
hæfða þjónustu öllum þeim aðilum
sem að framkvæmdum einstakl-
inga, fyrirtækja og stofnana koma
á öllum stigum svo sem arkitekt-
um, byggingameisturum, verktök-
um o.fl., segir í fréttatilkynningu.
----------------
Tjaldvagna-
land opnað
í dag
OPNUNARSÝNING verður í dag,
1. apríl, og á morgun í Tjaldvagna-
landi Seglagerðarinnar við Eyjar-
slóð 7 í Reykjavík.
Á sýningunni verður úrval tjald-
vagna, fellihýsa og fellihjólhýsa.
Þar verður einnig hægt að skoða
það nýjasta á þessum markaði,
heilsársbústaði á hjólum!
Frá og með 1. apríl verður hægt
að nálgast allar upplýsingar um
tjaldvagna, fellihýsi og fellihjólhýsi
sem Tjaldvagnaland er með til
sölu í sumar á slóðin www.segla-
gerdin.is. Á heimasíðu Seglagerð-
arinnar er einnig að finna allar
upplýsingar um fyrirtækið, þjón-
ustu og deildir.
----------------
Borgara-
fundur í
Hlégarði
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Mosfell-
inga heldur borgarafund í Hlégarði
mánudaginn 3. apríl kl. 20.
Á fundinn koma þingmenn þeirra
stjómmálaflokka sem eiga þing-
menn í Reykjaneskjördæmi.
Fmmmælendur ern: Sturla Böð-
varsson, Jónas Snæbjörnsson, Vega-
gerðinni, Sigríður Anna Þórðardótt-
ir, Hjálmar Ámason, Sigríður
Jóhannesdóttir. Fundarstjóri er
Pétur Fenger.
------♦-♦-♦------
Grímudans-
leikur Dans-
ráðs Islands
DANSRÁÐ íslands, sem er fagfélag
danskennara á íslandi, stendur fyrir
grímudansleik eða furðufataballi
sunnudaginn 2. apríl á Brodway
Hótel Islandi.
Á dansleiknum verður boðið upp á
danssýningar frá fimm dansskólum,
Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar,
Dansskóla Jóns Péturs og Köm,
Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar,
Danssmiðjunni og Djassballettskóla
Bára. Auk sýningaratriða verða
ýmsar uppákomur og veitt verða
verðlaun fyrir framlegustu búning-
ana.
Húsið verður opnað kl. 12.30 og
hefst dagskrá kl. 13.30 og lýkur kl.
15.30. Aðgangseyirr er 600 kr. fyrir 5
ára og eldri. Allir velkomnir.
------♦-♦-♦------
Frítt í bíó á
Selfossi
í TILEFNI þess að nú er hafinn
undirbúningur að framkvæmdum í
Selfossbíói býður Hótel Selfoss
frítt á barnamyndina Kóngurinn
og ég meðan húsrúm leyfir. Sýn-
ingin hefst klukkan 15 sunnudag-
inn 2. apríl.
N ámstefna um sótt-
varnir í landbúnaði og
matvælaframleiðslu
HEILBRIGÐISEFTIRLIT og heil-
brigðisnefnd Suðurlands vinna nú
að undirbúningi að námstefnu um
sóttvarnir í landbúnaði og mat-
vælaframleiðslu. Námstefnan verð-
ur haldin föstudaginn 28. apríl nk.
10.15-17.05 í húsakynnum Garð-
yrkjuskóla ríkisins að Reykjum í
Ölfusi.
Á námstefnunni verður fjallað
um vágesti í landbúnaði og fyrir-
byggjandi aðgerðir til að koma í
veg fyrir sýkingar og meindýr, sem
skaða valda í frumframleiðslu og
við framlciðslu matvæla. Verður
fjallað um ýmsa óboðna gesti eins
og salmonellu og kampfýla. Yfirlit
verður um dýrasmitsjúkdóma og
sýkingar til manna. Fjallað verður
um gæðastýringu í framleiðslu og
fyrirbyggjandi varnir gegn óboðn-
um gestum og hvernig hægt er að
koma í veg fyrir tjón og vinna að
úrbótum. Erindi verða um förgun
lífræns úrgangs og fyrirbyggjandi
umhverfisaðgerðir auk þess að
skýrt verður frá störfum nefndar
landbúnaðarráðuneytisins, sem nú
vinnur að aðgerðum til að útrýma
salmonellu og fleirum vágestum
sem hafa herjað m.a. á sunnlensk-
an búpening.
Námstefnan er sérstaklega snið-
in fyrir bændur, matvælaframleið-
endur og þá sem vinna við fyrir-
byggjandi aðgerðir í heilbrigðis-,
hrænlætis- og sóttvarnamálum í
landbúnaði; Meindýraeyða, sorp-
hirða, heilbrigðisfulltrúa og dýra-
lækna. Gert er ráð fyrir stuttum
fyrirspurnum við lok hvers fyrir-
lesturs og umræðum í lok dag-
skrár.
Þátttökugjald er 1.500 kr., inn-
ifalið, auk námstefnugagna, hádeg-
isverður og kaffi. Heilbrigðiseftir-
lit Suðurlands annast undirbúning
og skráningu þátttakenda.
Félag stj ornmálafræðing-a
Konur og stjórnmál
DR. AUÐUR Styrkársdóttir, verk-
efnisstjóri hjá Skrefi fyrir skref,
kynnir doktorsritgerð sína „Frá
feminisma til stéttarstjórnmála" á
fundi hjá Félagi stjórnmálafræð-
inga, þriðjudaginn 4. aprfl nk. í Nor-
ræna húsinu og hefst fundurinn kl.
17:15.
í ritgerðinni er leitað svara við
þremur meginspurningum: 1) hvers
vegna unnu konur kosningarétt svo
langt á eftir karlmönnum? 2) hvers
vegna leið svo langur tími þar til
konur tóku sæti á þjóðþingum í ein-
hverjum mæli? 3) hvaða áhrif hafa
konur haft á stjómmál og í stjórn-
málum? Höfundur beitir sjónarhomi
stofnanakenninga (institutional app-
roach), en bendir jafnframt á að hlut-
ur einstaklinga og hugmynda skiptir
mun meira máli en stofnanakenning-
ar gera ráð fyrir.
Áuður Styrkársdóttir lauk BA
prófi í þjóðfélagsfræði frá Háskóla
Islands og MA prófi frá University
of Sussex. Hún kenndi um árabil í
stjórnmálafræðiskor Háskóla Is-
lands en starfar nú sem verkefnis-
stjóri hjá Skrefi fyrir skref ehf. í
Reykjavík.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Danskar barnamyndir
í Norræna húsinu
DANSKAR stuttmyndir fyrir börn
verða sýndar í fundarsal Norræna
hússins sunnudaginn 2. apríl kl. 14.
Myndirnar eru með dönsku tali og
aðgangur er ókeypis. Myndirnar
heita Mortens badebold, Helmut
Olsens Mave og Mis med de blá
0jne.
Mortens badebold er leikin mynd
fyrir alla aldurshópa, Helmut 01-
sens Mave er teiknimyndaröð með
sjö umhverfismyndum fyrir lítil
börn. Þar segir frá Helmut Olsen
og framlagi hans til umhverfis-
verndar. Kötturinn með bláu augun
eða (Mis med de blá pjne) er teikni-
mynd og segir frá ævintýrum sem
lítil kisa með blá augu lendir í.
Ef þú kaupir
margskipt
gleraugu
fylsja
lesgleraugu
með
- þetei
aprigÉbbl
BLERAUBNAVERSLUN
LAUGAVEGI 61
SÍMI 511 3232
Notum eingöngu
bestu fáanlegu
gler og umgjarðir!
www.mbl.is
Nature’s Prescription For Shine
og hárið glampar
ogglansar!!!
Nú eru þær komnar til íslands amerísku úrvals CITRÉ SHINE
hársnyrtivörurnar sem m.a. eru unnar úr safa og berki sérvalinna
sítrusávaxta sem stuðla að auknum gljáa hársins og
gefa því heilbrigt og lifandi útlit.
CITRÉ SHINE vörurnar eru á sérlega hagstæðu verði, en í háum
gæðaflokki og standast fyllilega samanburð við aðrar dýrari tegundir
hársnyrtivara.
CITRÉ SHINE hársnyrtivörurnar fást á yfir 50.000 sölustöðum í
Bandaríkjunum einum saman, auk þess sem þær eru fáanlegar
víðar um heim, svo sem í Suður-Ameríku, Kanada, Ástralíu, Evrópu,
þar á meðal á hinum Norðurlöndunum, í Austurlöndum
- og nú á íslandi!
Margir fslandingar kannast við suma þekkta sölustaði CITRÉ SHINE
í Bandaríkjunum og má þar t.d. nefna risafyrirtækin K-Mart,
Walgreens, Revco, Eckard, Rite Aid, CVS og Albertsons.
Hm !WH|li8ppte
CITRÉ
REVfTAUZÍNG
fOR AU hair tvpes
SÖLUSTAÐIR:
iraaEl
Þverholti 2, Mosfellsbæ
Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi
Smáratorgi 1, Kópavogi
Spönginni 13, Reykjavík
Kringlunni 8-12, Reykjavík
Fjarðargötu 13-15, Hafnarfirði
Iðufelli 14, Reykjavík
Smiðjuvegi 2, Kópavogi
Njarðvíkum
Hárgreiðslustofan Scala, Lágmúla 5, Reykjavík
Pétursbúð, Ránargötu 15, Reykjavík
Verslunin Kjötborg, Hofsvallagötu 19, Reykjavík
Verslunin Áskjör, Ásgarði 22, Reykjavík
Hiíðarkjör, Eskihlíð 10, Reykjavík
Kjörbúð Reykjavíkur, Bræðraborgarstíg 43
Apótek Garðabæjar, Garðatorgi, Garðabæ
Norðurbæjarapótek, Miðvangi 41, Hafnarfirði
Skipholtsapótek, Skipholti 50C, Reykjavík
Síðumúla 17 • 108 Reykjavík
Sími: 588 3630 • Fax: 588 3731
Netfang: kosmeta@kosmeta.is
Netverslun (Amerlsku undrakremin): www.kosmeta.is
GAUKUR