Morgunblaðið - 01.04.2000, Síða 78
78 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Ljóska
Smáfólk
This isthe storyof
a free-spirited doq.
Þetta er sagan af
kappsfullum hundi.
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík # Sími 569 1100 # Símbréf 569 1329
Númerunarhefð
á þjóðarleiðtoga
Frá Tryggva V. Líndal:
STUNDUM virðist mér að okkur ís-
lendinga bráðvanti eitthvert áreiðan-
legt fyrirkomulag til að minna okkur
á glæsta sögu þjóðarinnar.
Þannig hafa nágrannaþjóðir okkar
allar kóngafólk sitt til að styðjast við;
hvort heldur sem eru Danir, Norð-
menn, Svíar eða Kanadamenn. Þar
er um að ræða útvalda fjölskyldu
sem viðkomandi þjóðir hafa ákveðið
að láta sér þykja vænt um, gegnum
þykkt og þunnt. Og þegar einn kóng-
ur þeirra eða drottning deyr, er
yngri árgerð konungsættarinnar
bara dubbuð upp í staðinn, og fest á
hana nýtt númer. Það fer svo varla
hjá því að tilvera þessara leiðtoga
minni þjóð sína stöðugt á fortíð sína
langt aftur í aldir, í hvert sinn sem
hún hugsar til þeirra.
Hér á Islandi er hins vegar ekki
lengur kóngur, og hjá Forsetaemb-
ættinu sem er komið í staðinn, er
undir hælinn lagt hvort sá sem það
fyllir hverju sinni minni þjóð sína á
menningarlega fortíð sína, eða horfi
aðallega til framtíðar. A meðan
kemst los á tilflnningu þjóðarinnar
fyrir sambandi sínu við bókmenntir
sögualdarinnar; sem eru þó áfram
helsta forsendan til aðgreiningar
henni frá öðrum sjávarplássum við
Atlantsála.
Ég vil því gera það að tillögu minni
að reynt verði að minna íslendinga á
fortíð sína, með því að taka upp þá
hefð að helstu embættismenn þjóðar-
innar taki upp númer líkt og kónga-
fólkið erlendis; til notkunar við sem
flest tækifæri sem því verður við
komið; en ekld bara við innsetningar-
athafnir eins og nú tíðkast. Ætti það
þá að verða áhrifaríkt tæki til að
skapa kennd fyrir fortíð þjóðarinnar
meðal almennings. Dæmi:
Núverandi Forseti íslands yrði titl-
aður 5. Forseti íslands, eða Fimmti
Forseti Lýðveldisins. Biskupinn
myndi kallast (og ég nefni ágiskuð
númer hér á eftir); 51. Biskupinn yfir
íslandi, eða 21. lúterski Biskupinn yf-
ir Islandi. Forseti Alþingis gæti heitið
hæstvirtur 51. Forseti Alþingis Is-
lendinga, eða 21. Forseti Alþingis
Lýðveldisins íslands. Forseti Hæsta-
réttar gæti heitið 201. forseti Lög-
réttu eða 21. forseti Hæstaréttar
Fullveldisins Islands; eða 11. Forseti
Hæstaréttar Lýðveldisins.
Forsætisráðherra Islands gæti
verið 15. Forsætisráðherra íslands,
ef talið væri eftir persónum, (eða XV.
Forsætisráðherra íslands), en 21.
Forsætisráðherra íslands, ef talið
væri eftir ríkisstjómarmyndunum.
Sömuleiðis mætti nefna helstu
fjölmiðlastjómendur: 6. Utvarps-
stjóri RÚV, og 11. og 12. ritstjóri
Morgunblaðsins.
Rithöfundur gæti verið kynntur
sem 5. íslenski handhafi Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs.
Nýsleginn riddari Riddarakross
Fálkaorðunnar gæti verið kynntur
sem 81. Riddari Fálkaorðu Lýðveld-
isins.
Held ég að þá séu nefndar helstu
stöðumar sem skipta máli í þessu
sambandi. Mikilvægast held ég þó að
sé að rekja biskupsembættið með
þeim hætti; helst aftur á 12. öld.
Með þessum hætti væri hægt að
brúa gapið í sagnavitund þjóðarinnar
sem hefur kannski myndast þegar við
létum konunginn okkar róa, við Lýð-
veldisstofnunina 1944.
Líkt og okkur hefur tekist að minn-
ast hlutdeildar okkar í borgarmenn-
ingu Danaveldis með því að minnast
Hafnarstúdenta okkar á fyrri öldum,
getum við nú með ofangreindu núm-
erunarkerfi náð til baka einu af hlut-
verkum Konungdómsins yfir Islandi.
Væri það ekki þjóðþrifamál?
TRYGGVIV. LÍNDAL,
Skeggjagötu 3, Reykjavík.
Lítil umfjöllun
um Arna Gaut
Frá Gunnari Sigurðssyni:
ÉG ER þannig sinnaður að ég les allt-
af íþróttafréttir fyrst í þeim blöðum
sem éjg les, vegna áhuga míns á íþrótt-
um. Eg er ekki alltaf samþykkur því
sem þar kemur fram sem hlýtur að
vera eðliiegt því sem betur fer hafa
ekki allir sömu skoðun. En ég hef
samt aldrei áður orðið eins hissa á
fréttaflutningi eins og í dag, 23. mars
2000, þegar ég les Morgunblaðið. Þar
eru m.a. fyrirsagnimar „Heimir með
KA“, Ragnar á heimleið frá Valeneia“,
„Þorvarður Tjörvi aftur til liðs við
Hauka", „Axel Axelsson hættir hjá
IR“, „Ragnar áfram hjá Haukum", og
lengi væri hægt að halda áfram. En
viti menn, með minnsta letri sem
Morgunblaðið setur fram er umfjöllun
um leik í meistaradeild Evrópu - takið
eftir - meistaradeild Evrópu, C-riðill
er sagt 0-1 Rosenborg - Real Madrid.
Þetta er eina frásögn Morgunblaðs-
ins, blaðs okkar landsmanna af þess-
um leik þar sem íslendingurinn Ámi
Gautur Arason er markvörður.
Ami Gautur hefur verið nú um tíma
aðalmarkvörður Rosenborg í Noregi,
sem er langbesta lið Noregs, en hann
hefúr litla sem enga athygli fengið hjá
íslenskum fjölmiðlum, þrátt fyrir að
hann sé eini íslenski knattspymumað-
urinn sem hefur komist svo langt í
hinni nýju meistardeild Evrópu.
Kannske er það af því að Ami Gaut-
ur er einstakt ungmenni. Hann er
íþróttamaður af Guðs náð og hefði
getað valið hvaða íþróttagrein sem er
og náð góðum árangri. Ami Gautur
hefur alla tíð verið sér og sínum til fyr-
irmyndar og þá ekki síst fyrir unga
knattspymumenn.
Ef Morgunblaðið hefur ekki áhuga
á að fylgjast með afreksmönnum á við
Áma Gaut er ég hættur að skilja mitt
blað.
GUNNAR SIGURÐSSON,
Akranesi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.