Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 01.04.2000, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR I. APRÍL 2000 79 _____BRÉF TIL BLAÐSINS_ Mannréttindabrot Frá Ásmundi Brekkan: Á UNDANFÖRNUM vikum höfum við verið vakin til umhugsunar um einhver þau alverstu mannréttinda- brot, sem nútímasagan greinir, og i má þar, þótt ekki sé alveg samt við að líkja, minnast gyðingaútrýminga I fyrri heimsstyrjanldar. Sé nær litið í 1 sögunni er af nógu að taka í ójafnaði, kúgun og blóðsúthelling- um. Aidagömul stéttakúgun í Ind- landi, þar sem hundruð milljóna manna eru algjörlega svipt hvers- konar mannréttindum og eðlilegri hluttöku í þjóðfélaginu, var sumum okkar að vísu kunnug úr sögu og frásögnum. Þegar litið er til þeirrar barnaþrælkunar sem henni er sam- fara og athygli okkar hefur nú verið i beint að, má einu gilda hvort borið I er saman við harðskeytta aðskilnað- arstefnu Búa-nasista í Suður-Af- ríku, að mestu afloknu viðlíka atferli í Bandaríkjunum, og öllu líku mis- rétti og ofbeldi, þá slá þær frásagnir og sá vitnisburður, sem okkur hefur nú borist, öll met. Framgangur og árangur íslensku kirkjunnar til hjálpar þessum hópi, og einkum ; börnum verður að teljast með því merkasta, sem frá þeirri stofnun hefur frést um lengri tíma, ef þá nokkru sinni. Að vísu eru það ekki ýkja margir einstaklingar út úr öll- um milljónum stéttleysingja, sem hjálpað hefur verið með frelsiskaup- um svo ekki sé minnst á skólagöngu og menntun, dropinn holar steininn, og margfeldisáhrif af slíku starfi eru meiri en nokkurn skyldi gruna. Að- ferðir þær, sem lýst hefur verið við að ná sem mestri „nýtingu" og ára- ngri, eru einstakar og skila sér mun betur en „hefðbundnar“ hjálparað- ferðir. Það er því ekki undarlegt, þótt nokkur opinber umræða verði hér um þessa starfsemi og þau vanda- mál, sem hún beinist að, og er það sannarlega vel, enda hefi eg ekki heyrt (fyrr en nú í dag, 29. mars) annað en mjög jákvæðar undirtektir við áskorun biskups til þjóðarinnar um sérstakt átak í þeim tilgangi að leysa fleiri börn úr ánauð. Eg er í hjarta mínu alveg sammála skoðun Haraldar Blöndals í Mbl. 24.3., um að hætta mætti við opinbera heim- sókn forseta til Indlands og nota aurana til þessa verkefnis. Vissu- lega myndi það geta komið málefn- um stéttleysingja í Indlandi á frétta- kortið á áberandi hátt, og mikill yrði sá fjöldi, sem hægt væri að koma undir fótunum, bara fyrir þá upp- hæð, sem flugvél undir forseta og fylgdarlið myndi kosta. Hvað sem því líður, held eg, að hugmyndin sé ekki raunhæf, en hitt væri raunhæft og myndi ekki síður vekja athygli, ef forsetinn gerði heyrum kunnugt, að í stað þess að gefa pótentátum Ind- lands að eta eina máltíð, eins og tíðkast í slíkum heimsóknum, muni hann nota aurana til að frelsa svo eða svo mörg stéttleysingjabörn á starfssvæði íslensku kirkjunnar. Eg geri nefnilega ekki ráð fyrir því, að viðmælendur forsetans í Indlandi ljái máls á að ræða við hann um mál- efni stéttleysingjanna. Hinsvegar væri þetta heimsfrétt í þágu þeirra og í raun alls ekki „diplómatískt “ óleyfilegt áróðursbragð. Það sem hvatti mig til að skrifa ykkur þessar línur var hinsvegar undarleg grein í Mbl í dag frá konu í Reykjavík, sem fer mikinn í ávarpi til fyrrnefnds Haralds, auk skamma um presta og biskupa, sem málinu eru alls óviðkomandi. I rauninni er erfitt að henda neinar reiður á því, hvað konan er að fara, annað en að vekja athygli á því, að hún selji mublur frá Indlandi, en mér þykir samt rétt að árétta þá skoðun mína, að með fyrstnefndu átaki og góðri alþjóðlegri fréttaumfjöllun megi ná raunverulegum, varanlegum og markvissum áhrifum á stöðu stétt- leysingjabarna í Indlandi ÁSMUNDUR BREKKAN, Þorragötu 7, Reykjavík. ANTTK Www.isl r\IN I XN .com Sjáðu tilboð dagsins á heimsíðunni Fornhúsgögn er fjárfesting til framtíðar Hólshrauni 5 220 Hfj. S: 565 5858 Fyrir aftan Fjarðarkaup - Opið alla hegina - WWW.islantik.com Tiikum gömlu hárkolluna upp r nýja - Aðeins í apríl Glæsilegt hárkolluúrval Nýjar sendingar Hári^fiútiib£ð7 Fataprýði Álfheimum 74, Glæsibæ, símí 553 2347. íbúð á Spáni til sölu Staðsetning: Torrevieja 67 fermetra, 3ja herb. íbúð. Baðherbergi og gestasnyrting. Fullt innbú fylgir. Eignahlutur í sundlaug og tennisvelli. Mjög góð staðsetning. Stórmarkað- ur og lögreglustöð innan seil- ingar og stutt á ströndina. Nánari uppl. gefa Birgitt og Helgi í síma á Spáni 003496 680 6400 e-mail: subway- benidorm@ctv.es Avöxtur siðleysisins Frá Guðmundi Rúnari Guðbjarnar- syni: HVAÐA manni finnst svigrúm í dag, til þess að bjóða arðræningjunum, til stórveislu? Það finnst kannski mörg- um það gamaldags og hallærislegt, að tala um arðræningja í dag en það verður bara að hafa það, þeir hafa því miður ekki horfið, frekar en aðiir misyndismenn. Hvað er svo sem hægt að kalla þá annað, þegar þeir skilja ekki meir en svo eftir í vösum okkar, að það rétt nægir til þess að draga fram lífið? Eg hélt nú að fjárhagsstaða al- menns verkafólks, þyldi ekki frekari þrengingar en lengi má manninn reyna. Lægstlaunaða fólkinu er, með sultardropa í nefi, stillt upp fyrir framan okkur sem erum lítið betur settir, og það látið í veðri vaka að af- koma þess sé alfarið á okkar ábyrgð og ef við sættum okkur ekki við að láta hlunnfara okkur, séu við erki- óvinir fátæklinganna. Þetta er ekki smekkleg uppsetn- ing á hinni raunverulegu ástæðu ástandsins, þar sem við erum blóð- mjólkuð án þess að neitt sé að gert, úrræðaleysi er meginorsökin. Það er gerð skoðunarkönnum og síðan lagt af stað með svörin úr henni sem grundvöll að kjarasamningi. Hvað kemur næst, Gallup-stéttarfélag? Það er ekki allt í lagi í þessu félagi. Það er talað um styrk stærðarinn- ar, hvernig væri að sýna þann styrk eða er það bara tækifærisslagorð? Aukinn réttur til þess að vera heima hjá veiku barni um þrjá daga, hann er of háu verði greiddur, jafn sjálf- sagður og hann er. Þegar við höldum ekki í horfinu við verðbólguna, sem þó er með lægsta móti, þökk sé okk- ur, þá er þessi samningur sá léleg- asti sem sést hefur um áratugaskeið. Fjárhirðarnir eru svo vissir um foringjahollustu okkar, að hluta- bréfavísitalan snarhækkaði um leið og forystumenn Flóabandalagsins höfðu hælt honum í hástert. Þessar samningaviðræður voru al- veg átakalausar, er það nokkur furða þegar lagst er á hnén áður en við- ræður hefjast? Hver hefði trúað því, að eftir allt sameiningarferli verka- lýðsfélaganna á Reykjavíkursvæð- 'inu, sé ekki meira eftir en þetta plagg? Eg legg til að menn hafni samn- ingnum, vegna barna sinna og sóma síns vegna, GUÐMUNDURRÚNAR GUÐBJARNARSON, Björtuhlíð 16, Mosfellsbæ. í borðskreytingar: Borðar, tjull, organza og fóðurefni VIRKA Mörkin 3, sími 568 7477. Opið Mánud.-föstud. kl. 10-18, laugard. kl. 10-14. Enskunám í Englandi Á hagstæðu verði m.a. 12 vikna undirbúningsnámskeið fyrir próf (Cambridge First certificate). Húsnæði hjá enskri fjölskyldu og fullt fæði, 26,5 klst. kennsla á viku. í sumar tilboðsverð á markvissu enskunámi og sumarleyfisnámskeiðum. Scarborough International School. E-mail: admin@sischool.demon.co.uk http://www.myvebpage.net/sischool. Sími +44(0)1723362879. Fax +44(0)1723366458 Marteinn M. Jóhannsson, s. 557 6448 eða 897 3652. Gleraugnaverslunin Sjónarhóll www.sjonarholl.is BGtri heilsa Kínverjar hafa löngum verið þekktir fyrir langlífi og heilbrigðan lifnaðarhdtt. í gegnum órþúsundir hafa þeir þróað mjög fullkomnar aðferðir til eflingar líkama og heilsu. Fjttlbreytt nudd fíínversK inihfimi Eurniuave líhamsmeúrerö Mótun, grenning cellolite-meðferð, lyfting, stínning, bak- og vöðvaboígumeðferð. opiú Vill.il llílllil II:IIII kk = im I il IIII il I (I il II il 11)1111 K 0 ■ IIII ii ii n ii ii íi ii íi i■ u n i n ■ n ii fífnversK nálastunga I boði eru ýmis afbrigði af kínverskum heilsumeðferðum sem hjólpo þér gegn ýmsum streitukvillum, s.s. vöðvabólgu, bokveiki, gigt, ofnæmi, ulmennum stirðleika og fleirc. ll.G.lll. Leirvafningar U.C.W. leiivofningnmir hreinso og móto ollonn likomo þinn ón stiongroi megrunor eóo æfingo og gerir húðina ofor stinno og silkimjúko. J»JÍ .rSEf nihlliasayrtistod ,i f Kfnversh heilsulind Ármúla 17a • Sími 553 8282 IIOYII SKÓR FYRIR KARLMENN 20% af eldri gerðum STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLUNNI sími 5689212 PÓSTSENDUM SAMDÆ6URS 5% STAÐ6REIÐSLUAFSLÁTTUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.