Morgunblaðið - 01.04.2000, Side 80
80 LAUGAKDAGUR 1. APRÍL 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Askorun frá Neytendasamtökunum
Landssíminn
endurskoði
gjaldskrá
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Neytendasamtökun-
um:
„Neytendasamtökin skora á stjóm
Landssímans, að endurskoða gjald-
skrá fyrirtækisins, sem taka á gildi þ.
1. apríl nk. til þess að lækka verð á al-
mennri símþjónustu á móti boðaðri
gífurlegri hækkun á mánaðargjaldi,
sem hækkar um tæp 100% um þessi
mánaðamót en boðuð er meiri hækk-
un þ. 1.1.2001.
Neytendasamtökin hafa kynnt sér
nýja gjaldskrá Landssímans og telja,
að stjóm fyrirtækisins fari ekki að til-
mælum Póst- og fjarskiptastofnunar,
um að lækka önnur talsímagjöld til
móts við hækkun fastagjaldsins.
Neytendasamtökin telja, að sú gjald-
skrárbreyting sem boðuð er þ. 1.4. nk.
feli í sér stórauknar tekjur fyrir
Landssímann þvert á það sem Póst og
fjarskiptastofnun gerir ráð fyrir í
' - greinargerð sinni sem kynnt var þ. 28.
mars s.l.
Ný gjaldskrá Landssímans verður
til að stórhækka símkostnað þorra
símnotenda. Neytendasamtökin
vekja athygli á, að um almenna hækk-
un er að ræða á alla línutengda tals-
íma og því hefði verið rétt, að koma á
almennri lækkun símgjalda hjá not-
endum línutengdra talsíma. Eðlileg-
ast hefði verið í því sambandi, að fella
niður upphafsgjald símtala, sem nú er
kr. 3.20 við upphaf hvers símtals. Þá
• hefði einnig verið rétt, að lækka mín-
útugjald almennra talsima. Með þeim
hætti hefði Landssíminn farið að til-
mælum Póst- og fjarskiptastofnunar
og þá hefðu lækkanir símgjalda verið
almennar á móti almennum hækkun-
um. Þess í stað fer Landssíminn þá
leið að veita sértækar lækkanir, sem
aðallega koma fram í millilandasím-
tölum og ákveðnum afsláttarkjörum,
sem erfítt er að gera sér grein fyrir
hvort hafi mikla þýðingu fyrir al-
menning.
Neytendasanjtökin benda á, að með
þessum gjaldskrárbreytingum er
Landssíminn, að nýta gríðarlega
hækkun fastagjalda til að lækka sím-
gjöld þar sem um samkeppni er að
ræða á sama tíma og símgjöld al-
mennra talsímanotenda stórhækka.
Sllkt er óviðunandi.
Neytendasamtökin benda á, að þar
sem Landssíminn hefur einokun á
talsímamarkaði innanlands og um er
að ræða fyrirtæki, sem er alfarið í
eigu ríkisins ber stjómvöldum að
hlutast til um sérstakt eftirlit með
verðlagningu fyrirtækisins þar sem
það hefur einokunarstöðu eða alger-
lega markaðsráðandi stöðu. Sjái
stjóm Landssímans ekki að sér og
beiti almennum lækkimum símgjalda
á móti boðuðum almennum hækkun-
um þeirra, skora Neytendasamtökin á
ríkisstjómina að knýja fyrirtæki sitt
til að lækka símgjöld á móti þeim
hækkunum sem verða á fastagjaldinu.
Neytendasamtökin benda á, að
símgjöld em orðinn verulegur hluti
kostnaðar hvers heimilis og símkostn-
aður er nú hlutfallslega stærri liður í
heimilisútgjöldum en áður var vegna
aukinnar símnotkunar og hækkana
símgjalda. Mikilvægt er að stjómvöld
tryggi, að þessi þjónusta sé boðin á
sem allra hagstæðustu verði.
Neytendasamtökin krefjast því að
upphafsgjald á símtöl falli niður og
mínútugjald verði lækkað í almennum
talsímum.“
Margvíslegar upplýsing-
ar um framhaldsskóla
BJÖRN Bjamason menntamálaráð-
herra hefur lagt fyrir Alþingi skýrslu
um framkvæmd skólahalds í fram-
haldsskólum skólaárin 1996/1997,
1997/1998 og 1998/1999. í lögum um
framhaldsskóla frá 1996 er kveðið á
um að menntamálaráðherra skuli
gera Alþingi grein fyrir framkvæmd
skólastarfs í framhaldsskólum á
þriggja ára fresti.
I skýrslunni er að finna margvísleg-
ar upplýsingar um skólastarf á fram-
haldsskólastigi, t.d. um fjölda skóla,
nemenda og kennara, skiptingu nem-
enda á námsbrautir, brautskráningar,
reiknilíkan, skólasamninga og fjár-
veitíngar til framhaldsskóla.
"í kjölfar lagasetningarinnar hafa
verið settar fjölmargar reglugerðir við
lögin, m.a. reglugerð um söfnun og
dreifingu upplýsinga um skólastarf á
framhaldsskólastigi, reglugerð um
eftírlit með starfi framhaldsskóla og
'* námsefni og um ráðgjöf vegna
kennslu og þróunarstarfa, reglugerð
um námssamninga og starfsþjálfún og
reglugerð um kennslu fatlaðra nem-
enda í framhaldsskólum. Stofnuð hef-
ur verið ný deild í menntamálaráðu-
neytinu, mats- og eftirlitsdeild, og er
henni m.a. ætlað að hafa umsjón með
upplýsingaöflun um skólahald, sjá um
úttekt á sjálfsmatsaðferðum skóla og
úttekt á einstökum skólum og tiltekn-
um þáttum skólastarfs.
Menntamálaráðherra gaf út sér-
staka stefnu í notkun upplýsingatækni
^ á sviðinn mennta og menningar árið
1996. í fjárlögum 1999 var sérstakri
fjárveitingu í fyrsta skiptí veitt til
málaflokksins, sem rann m.a. til
menntunar kennara á sviði upplýs-
ingatækni, þróunar kennsluhugbún-
aðar og tækjakaupa, auk þess sem
hluta fjárins var varið til að þróa að-
ferðir við notkun upplýsingatækni í
^ skólum.
Gerð nýrrar aðalnámskrár fyrir
framhaldsskóla hófst haustíð 1996 og
lauk vorið 1999 en alls komu á þriðja
hundrað kennara að þeirri vinnu. I
fyrsta skipti í sögunni var unnið sam-
hliða að gerð námskráa fyrir leikskóla,
grunnskóla og framhaldsskóla í þeim
tilgangi að koma á samfellu milli þess-
ara skólastiga. Skólastefna mennta-
málaráðherra, Enn betri skóli. Þeirra
réttur - okkar skylda, var gefin út í
febrúar 1998 og er hún grundvöllurinn
að nýjum námskrám fyrir öll skóla-
stígin.
Ný námskrá fyrir framhaldsskóla
tók gildi 1. júní 1999 og á hún að vera
komin til fullrar framkvæmdar í öllu
starfi framhaldsskóla eigi síðar en
fimm árum frá gildistöku. Almennur
hluti námskrárinnar tók þó að mestu
leyti gildi í öllum framhaldsskólum
skólaárið 1999/2000. Þeim hluta nám-
skrárinnar sem snýr að starfsnámi er
ekki lokið en 14 starfsgreinaráð vinna
nú að gerð tillagna að námskrám fyrir
einstakar starfsgreinar og greina-
flokka.
Unnið hefur verið að því að koma á
skýrari verkaskiptingu og aukinni
samvinnu milli framhaldsskóla og
skapa með því grundvöll að betri nýt-
ingu fjármuna og auknum gæðum
náms.
Frá árinu 1998 hafa niðurstöður
reiknilíkans í samræmi við 39. gr. laga
um framhaldsskóla verið grundvöllur
tillagna til fjárlaga og skólasamninga
milli hvers framhaldsskóla og mennta-
málaráðuneytis. Skólasamningamir
kveða á um samskiptí skóla og ráðu-
neytis vegna fjárframlaga, námsfram-
boðs, markmiða í starfi, upplýsinga-
gjafar o.fl.,“ segir í fréttatilkynningu
frá menntamálaráðuneytinu.
Skýrslan er birt í heild sinni á
heimasíðu menntamálaráðuneytisins:
www.mm.stjr.is
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir
HULDA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
koma á framfæri þökkum
til starfsfólks Verslunar
Bjöms Ragnarssonar í
Dalshrauni 6, Hafnarfirði.
Hulda keypti hjá þeim rúm
fyrir stuttu og langar hana
að þakka starfsfólkinu fyrir
einstaka lipurð, þó sérstak-
lega Þórarni starfsmanni
fyrir frábæra lipurð, hlý-
leika og góða þjónustu.
Hann var boðinn og búinn
að hjálpa henni á alla lund.
Verslunin getur verið stolt
af því að hafa svona ein-
stakan starfsmann. Hulda
sendir þeim sínar bestu
þakkir.
Sýnum kurteisi
HINN 23. sl. var hvítur bíll
frá Tæknivali, EG-619, að
leggja af stað af stæði
skammt frá Hallgríms-
kirkju. Bílstjórinn, sem var
með gleráugu og skegg,
spólaði af stað og jós yfir
mig slabbinu. Bílstjórinn sá
mig en hló bara, veifaði og
ók á brott.
Ég býst ekki við að ég fái
fötin mín hreinsuð en það
væri að minnsta kosti hægt
að senda mér tvo pakka af
þvottaefni. Vil ég benda bíl-
stjóranum á að ef hann
lendir í þessu aftur þá er
það lágmarkskurteisi að
stoppa og biðjast afsökun-
ar.
Virðingarfyllst,
Nicklas Gustafson.
Tapad/fundið
Skfrnarhúfa
týndist
UM miðjan janúar týndist
við Alftamýri eða Kapla-
skjólsveg skírnarhúfa. Húf-
an er úr silki, kremlituð og
öll í bróderuðum blómum í
sama lit. Finnandi vinsa-
mlegast hringið í síma 564-
5998. Fundarlaun.
Vagnsvunta
týndist
DÖKKGRÆN vagnsvunta
af Silver Cross bamavagni
týndist, annaðhvort í vest-
urbænum eða á Seltjamar-
nesi. Upplýsingar í síma
551-8363.
Svart Trek-strákahjól
SVART Trek-strákahjól
með rauðum stöfum var
tekið fyrir utan Stórholt 12
fyrir skömmu. Ef einhver
hefur orðið var við hjólið er
sá hinn sami vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 551-0085 eða 864-
3414.
\ /ilMiaK f 1 J
\ vJft ■ i Jf U ,'liá W& í■/ V ■■ ■. V h
Morgunblaðið/Jón Sig/Blöndósi
Stúlka í tré.
Víkverji skrifar...
AÐ er skammt öfganna á milli í
veðurfarinu hér á landi, eins og
raunar í sjálfri þjóðarsálinni. Eftir
einn harðasta vetur í manna minn-
um skiptu veðurguðirnir snarlega
um skoðun nú í vikunni með þeim af-
leiðingum að hlýrra var á Hall-
ormsstað en í rómuðum sólarlanda-
borgum svo sem Róm og Miami.
Víkverji er hins vegar orðinn svo
hvekktur á veðurfarinu og tortrygg-
inn gagnvart öllum duttlungum
náttúrunnar að hann á alveg eins
von á að þessi umskipti séu illur fyr-
irboði.
Veðurfarið undanfamar vikur og
mánuði hefur minnt okkur íslend-
inga rækilega á hvar á jarðkringl-
unni við búum og að allra veðra sé
von, hvar sem er og hvenær sem er.
Og við getum alveg eins átt von á því
að næsti vetur verði jafnvel ennþá
harðari en sá sem nú er að líða og að
veturinn í vetur hafi bara verið lítið
sýnishorn af því sem bíður okkar
þegar ný ísöld læsir helkaldri kló
sinni yfir hauður og haf.
í athyglisverðu Reykjavíkurbréfi
Morgunblaðsins síðastliðinn sunnu-
dag er vitnað til nýútkominnar bók-
ar, „The Coming Global Super-
storm“, sem fjallar um veðurfar á
jörðinni, yfirvofandi ofúrstorma og
nýja ísöld sem að dómi höfunda gæti
skollið á fyrr en nokkum gmnar.
Þar segir: „Slíkir ofurstormar, eða
froststormar, kæmu í kjölfar hlývið-
risskeiðs af völdum svokallaðra
gróðurhúsalofttegunda en ýmsir
fræðimenn telja að það skeið sé nú
hafið á jörðinni.“
Ennfremur segir síðar í Reykja-
víkurbréfinu: „Lýsingar bókarhöf-
unda eru einhverskonar hrollvekja
og framtíðarsýnin ægileg. En þetta
ferli er víst hægt að stöðva, ef heim-
urinn fengist til að draga úr brennsl-
unni og þar með gróðurhúsaáhrifun-
um. En hver getur haft vit fyrir
heiminum? Enginn! Enn er verið að
brenna skóga, framleiða stærri bíla;
reisa fleiri verksmiðjur sem ganga
ekki fyrir vistvænni orku ..."
XXX
EKKI era tök á að fara hér nánar
ofan í saumana á umræddu
Reykjavíkurbréfi, en þeir lesendur,
sem einhverra hluta vegna hafa látið
það framhjá sér fara, era hér með
hvattir til að kynna sér efnisinnihald
þess. Víkverji vill ennfremur hvetja
til þess að endursýndir verði sjón-
varpsþættir, sem sendir vora út á
einhverri sjónvarpsstöðinni nýverið,
og fjalla um hættuna, eða réttara
sagt líkurnar á því að ný ísöld geti
skollið á áður en varir. I þáttunum
er bent á að ýmsir vísindamenn séu
þeirrar skoðunar að hlýnandi veður-
far á jörðinni, ekki síst vegna gróð-
urhúsaáhrifa, leiði óhjákvæmilega af
sér nýja ísöld og það fyrr en síðar.
Ástæðan sé sú að í kjölfar hlýinda
bráðni ísinn á norður- og suður-
skautinu með þeim afleiðingum að
ósalt vatn renni í höfin, sem aftur
veldur því að „færibandið" svokall-
aða í Atlantshafi stöðvast. Við það
myndi heimskautaloftslag færast yf-
ir alla Norður- og Mið-Evrópu, Kan-
ada og norðurhluta Bandaríkjanna,
og þetta getur gerst á örfáum áram.
Og það þarf engan speking til að sjá
í hendi sér hver yrðu örlög okkar ís-
lendinga við þessar aðstæður.
Víkverji hefur orðið var við í
kunningjahópi sínum að margir
virðast hafa misst af þessum þáttum
og því er hér með hvatt til þess að
þeir verðir endursýndir, og sýning-
artíminn rækilega auglýstur, því
þetta er mál sem allir verða að taka
til sín og fara að hugsa um í fullri al-
vöra. Ekki er ráð nema í tíma sé tek-
ið og kannski tímabært að fara að
huga að því að koma þessu litla sem
maður á í verð og færa sig eitthvað
suður á bóginn?
xxx
VÍKVERJI fylgdist með um-
ræðuþætti um klám í Reykja-
vík á Stöð 2 síðastliðið miðvikudags-
kvöld og hefur í sjálfu sér engu við
að bæta varðandi þær skiptu skoð-
anir sem þar komu fram. Það sem
hins vegar vakti athygli Víkverja
var það sem á eftir kom á skjánum.
Fyrst var það auglýsing fyrir
Nissan-bifreiðir, þar sem sýndur var
fagurrauður bíll, sem hossaðist upp
og niður, eins og að í honum færi
fram ástarleikur, en líklega hefur
auglýsingin átt að minna fólk á
hversu góðir „demparar" era undir
bílnum. Víkverja finnst þessi auglýs-
ing smekklaus, svo ekki sé meira
sagt. Þó keyrði smekkleysan fyrst
um þverbak í þættinum sem á eftir
kom, það er „nærbuxnaþætti" Fóst-
bræðra. Að mati Víkverja er alveg á
mörkunum að hægt sé að bjóða fólki
upp á svona sjónvarpsefni. Er ekki
kominn tími til að gefa þessum pilt-
um frí í einhvem tíma?