Morgunblaðið - 01.04.2000, Síða 83
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 83
FOLKI FRETTUM
Ungfrú punktur is
FEGURÐARSAMKEPPNI ís-
lands var haldin með nokkuð nýju
sniði að þessu sinni og var atburðin-
um sjónvarpað á Stöð 2 undir heit-
inu Ungfrú Island.is, en svo virðist
sem tölvuvæðingin sé smámsaman
að leiða af sér nýtt
tungumál, sem er
breytt að því leyti að
nú skal kveðið að
greinarmerkjum í
upplestri. Staðarlýsing á fegurðar-
samkeppnum kynni að verða svona í
náinni framtíð: Stúlkumar komu
komma allar í kjólum semikomma
nú er hætt að sýna í sundbolum
komma fram á sviðið og voru ungar
og sætar eins og vera ber og kepptu
allar að því komma mismagamiklar
í kjólum sínum komma að vera
kosnar Ungfrú ísland punktur is.
Það var gaman að horfa á keppnina
og dómnefndin stóð sig vel, þótt yf-
irdómnefndarmaður á fyrri tíð,
Thorolf Smith fréttamaður, sé
löngu genginn. Fengnar höfðu verið
tvær erlendar glæsipíur úr brans-
anum til að dæma í máli kvennanna
og góðir borgarar; m.a. maður sem
vann lengi að því á vegum Búnaðar-
félags íslands að selja lambakjöt til
Bandaríkjanna, fenginn þeim til að-
stoðar, eftir að fréttamenn höfðu
látið erlendu gestina gera hina sjálf-
sögðu játningu fyrir montna íslend-
inga og sjálfumglaða boltafíkla:
How Do You Like Iceland, sem
glæsipíumar gátu ekki svarað nema
á einn veg, annars hefði þeim verið
vísað úr landi.
Mikið ber á því
þessa mánuðina að fólk
komi í opinber galdra-
tæki, eins og útvarp og
sjónvarp; fólk með há-
skólagráður og kann ekki að fall-
beygja orðið kýr og boðar okkur til-
vist í heimsþorpinu. Allt í einu er
allt orðið svo yndislega alþjóðlegt.
Atriði, sem Island sigraðist á í geig-
vænlegum átökum á nú allt í einu að
afhenda einhverju bandalagi til ráð-
stöfunar. Það eru einkum jábræður
evrópskra sósíalista sem boða svona
kenningar. Þeir ættu að muna ferif
jábræðra sinna og forvera í Weim-
ar-lýðveldinu, sem stóðu uppi ráða-
lausir og blaðrandi, þangað til lið-
þjálfi úr Austurríki birtist og lagði
undir sig ráðalaust land með því
helst að lofa vegum, en olli síðar
versta slysi síðari alda. Heims-
hyggja margra menntaðra Islend-
inga á rætur í sama Evrópu-sósíal-
ismanum og réði Weimar og ræður
nú Evrópubandalaginu. Allt er fellt
í steingeldar skorður, uns menn
mega ekld lengur snýta sér öðruvísi
en hafa bréf upp á það frá einhverju
kansellíi. Þesskonar heimsþorp vifja
margir landsmenn og má heyra það
jafnt í útvarpi og sjónvarpi, þar sem
sósíalistar eru alltaf að viðra skoð-
anir sínar undir ýmiskonar for-
merkjum. Það má jafnvel ekki kjósa
formann í einhverri flokksdruslu
svo fjölmiðlar standi ekki á öndinni
dag eftir dag af því svo vill til að
flokkurinn er sósíalistaflokkur.
Þetta helst... er enn í fullu fjöri
hjá Hildi Helgu Sigurðardóttur,
Bimi Brynjúlfi og Steinunni Ólínu.
Hildur Helga er ættuð að vestan í
föðurætt og það var vel ráðið að fá
þá bræður, Sverri Hermannsson og
Halldór í þáttinn síðast, Þeir bræð-
ur eru báðir mælskumenn miklir
þegar tími gefst til að tala eða
ástæða er til og vel skoðanafastir,
sem þurfti þó ekki mikið á að halda í
þætti Helgu. Báðir þeir bræður eins
og fleiri úr þeirri mannmörgu fjöl-
skyldu frá Ogurbyggð hafa gengið
hraðan og þungan veg, þótt þeim
hafi ekki orðið áfallasamt. Gaman
var að sjá hvað þeir skemmtu sér
hjá Hildi, og enginn kom að tómum
kofunum þegar spurt var um Vest-
firði. Þeir minntu mig sannast
sagna á tvo gæðinga sem munaði í
heimahaga.
Indriði G. Þorsteinsson
SJÓNVARP Á
LAUGARDEGI
Emilíana hitar
iipp fyrir Sting !
„JÁ, STING bauð henni
að koma fram sem sinn
gestur á fernum tónleik-
um í Royal Albert Hall,“
segir Ami Benedikts-
son, umboðsmaður
Emilíönu Torrini. Tón-
leikamir em þeir síð-
ustu af ellefu sem Sting
spilar í Royal Albert
Hall í Lundúnum.
Fyrstu tónleikamir sem
Emilíana spilar á verða á
sunnudaginn, þeir næstu
á þriðjudag og svo báða
dagana eftir það. Emilíana deilir upp-
hitun tónleikaraðarinnar með Nitin
Sawhney, en nýjasta plata hans var
meðal annars kjörin plata síðasta árs
af tímaritinu EUe. Ami segir það frá-
bært að fá slíkt tækifæri til að spila
fyrir nýjan áhorfendahóp og segist
þess fuUviss að tónleikamir muni
færa Emilíönu aukna viðurkenningu
innan breska tónUstargeirans. „Fólk
hérna er farið að átta sig á þessum
gífurlegu hæfileUcum sem hún hefur.“
I seinni hluta maí kemur út ný
smáskífa af plötu Emilíönu, „Love in
the time of science“, sem ber nafnið
„Easý‘ og viU Ámi meina að þau hafi
nú þegar fundið fyrir
töluverðum áhuga fyrir
þeirri útgáfu. „Hún
[Emilíana] hefur fengið
mjög góða kynningu inn-
an iðnaðarins síðan við
byrjuðum á þessu út-
gáfupotí þannig að menn
vita almennt af henni
hérna. Það var bara
tímaspursmál hvenær, r
einn af þessum stóru köU-
um færi að setja nafn sitt
við þetta.“
Það er nóg um að vera
hjá Emilíönu þessa dagana því að eft-
ir að tónleikahaldi vikunnar lýkur er
farið beint í myndbandsupptökur fyr-
ir nýju smáskífuna og að þeim lokn-
um' ér hoppað upp í næstu vél til Los
Angeles. Einnig er búið að bóka þón-
okkra tónleika í löndum eins og
Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi og
Hollandi. í náinni framtíð fær EmU-
íana að hita upp fyrir fleiri þekkta
Ustamenn en einn þeirra er Lou
Reed. Það ætti ekki að vera leiðinlegt
fyrir stúlkuna því eins og alUr muna
söng hún tökulagið „Stephanie Says“
eftir hljómsveit hans, Velvet Under- ‘
ground.
Emilíana mun svo
sannarlega stinga í
stúf á tónleikunum
annað kvöld.
^GLERAUGAÐ 568 2662
glerauguaverj.lun
XXXreyri frumsýnd í Háskólabíói
Prakkaraskapur og áhugi
HEIMILDAMYNDIN „Sex í
Reykjavík" hefur hrist verulega upp í
þjóðinni og vakið athygU á aðgengi
klámefnis í höfuðborginni. En hvem-
ig skyldi málunum háttað á öðrum
stöðum á íslandi? Nektardans er
þegar útbreiddur á skemmtistöðum
landsbyggðarinnar en hvergi hefur
þeim fjölgað jafn ört á jafn stuttum
tíma og á Akureyri.
Snorri Ásmundsson, 34 ára kvik-
myndagerðarmaður, hefur síðasta ár-
ið ásamt Kára Schram verið að vinna
heimildamyndina „XXXreyri" sem
fjallar um klámmyndagerð á Akur-
eyri. Hann bendh’ á að þegar þefr
byrjuðu hafi nektarstaðimir enn ver-
ið óþekkt fyrirbæri í bænum. Myndin
verður sýnd á Stöð 2 í fystu viku
næsta mánaðar en frumsýnd í Há-
skólabíói um helgina. Einhver spyr
sig eflaust að því hvort framleiðsla
klámmynda á Ákureyri sé það mikil
(ef hún er einhver yfir höfuð) að
ástæða þyki til að ráðast í heimilda-
gerð um hana. „Já, svo sannarlega,"
svarar Snoi-ri ákveðinn. „Okkar sann-
leikur á eftir að koma í ljós í mynd-
inni. En auðvitað er farið frekar
frjálslega með heimildir."
u
TSALA
30% 50% 70%
Morgunblaðið/Sverrir
Snorri Ásmundsson (t.v.) og Kári
Schram unnu heimildamyndina
„XXXreyri" í sameiningu.
Hvað er klám?
Snorri segir að prakkaraskapur og
áhugi á málefninu hafi ýtt honum af
stað. Hann var m.a. fmmorsök sýn-
ingarinnar „Losti 2000“ sem hann og
Hannes Sigurðsson settu upp á Akur-
eyri snemma á þessu ári. „Tilgangur
myndarinnar er að koma róti á mann-
lífið og vekja upp ýmsar spurningar,
eins og; hvað er klám? Hvað er list?
Hvemig erum við mötuð og af hverj-
um?“
Skilgreiningar orðsins klám í ís-
lenskum orðabókum eru tvær:
1. Grófgert illa unnið verk eða
2. Gróft orð, klúryrði (einkum
um kynferðismál eða kyn-
færi), málfar, mynd eða annað
sem beinir athyglinni að kyn-
lífi eða kynfæmm án nauð-
synjar í listrænu samhengi,
fræðslu eða þess háttar.
Áhugi á því síðara hefur
verið að aukast gífurlega síð-
ustu ár og talar Snoni jafnvel
um tískubylgju. „Ég er full-
komlega sáttur við það. Sám-
kvæmt orðabókarskilgrein-
ingunni er klám í mörgu öðra
en kynlífsmyndum. Vond
mynd í bíó er klám og menn mála
málverk sem em hálfgert klám.“
Að hans matí hefur síðari skilgrein-
ing orðsins fest óþarfiega mikið við
kynlífsmarkaðinn. „Ég held að sú
skilgreining hafi verið fundin upp af
afar siðprúðum manni sem hefúr ein-
ungis þekkt eina atlotsaðferð og allt
annað hefur verið klám að hans mati.“
Mikill áhugi
Snoni segir að ekki hafi vantað
áhugann á viðfangsefninu. „Við tölum
við 40 einstaklinga sem ræða klám-
myndagerðina á Akureyi-i, við emm
ekki að fjalla um nektarstaðina. Við-
mælendur era frá ýmsum áttum, til
dæmis er rætt við Áma Bergmann,
Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur og
Súsönnu Svavarsdóttur. Einnig er
komið við í kvikmyndatökuveri þar
sem upptaka klámmyndar fer fram.“
Þrátt fyrir að á Akureyri sé minna
samfélag en á höfuðborginni vill
Snorri meina að þar sé framleiðsla
klámmynda mun meiri en marga
granar. „Að okkar mati er Akureyri
orðin af „Hollywood" klámsins á ís-
landi. Það era gerðar þúsundir
mynda þar á ári sem fara beint á er-
lendan rnarkað," fullyrðir Snorri.
AFSLÁTTUR A F GÆÐA UMGJÖRÐUM / ERUM MEÐ
HÁGÆÐA SJÓNGLER Á GÓÐU VERÐI / MJÖG
STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI / RECEPT GLERAUGU
AFHENT SAMDÆGURS* /
Sfuftar og síðar kápur
með eða án hettu,
mörg snið.
Ný/or vörur
Fallegar úlpur.
Hattar og húfur.
MIMISBAR
Lifandi tónlist
um helgina.
SÚLNASALUR
á laugardagskvöld:
Abba-sýning
og dansleikur með
Saga Klass.
Opið föstudags- og
laugardagskviild
’acf'AAÉ'x I
HOTELS & RESORTS
Radisson SAS Hótel Saga, sími 525 9900