Morgunblaðið - 01.04.2000, Síða 84
MORGUNBLAÐIÐ
84 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
FÓLK í FRÉTTUM
Philip Seymour Hoffman sýnir á sér nýja hlið í Flawless
MYNDBÖND
Kannski ég komi til Is- Nýbakað-
i i íii* ★ ★ ★ urpabbi
lands 02: skelli mer 1 bio —F
(BigDaddy)
PHILIP Seymour Hoffman
lítur ekki út fyrir að vera
vinsæll leikari í Holly-
wood. Hann kemur manni
fyrir sjónir eins og vænn bóndason-
,lir kominn í sparifötin og gæti allt
eins verið úr Húnavatnssýslunni og
frá Vesturheimi. Hann er örlítið
þreytulegur en ber það þó með sér
að hafa ríkulega kímnigáfu.
Blaðamaður byrjar á því að segja
þessum sérstaka leikara frá vin-
sældum myndar Todd Solondz,
„Happiness", á Kvikmyndahátið í
Reykjavík síðastliðið haust, þegar
hún var tekin til framhaldssýninga í
Regnboganum vegna mikilla vin-
sælda. Hann lítur á blaðamann í
forundran, en kinkar kolli hugsandi
og eins og framvindan sýnir sitja
þessar upplýsingar fast í karli.
En núna hefur Philip Seymour
Hoffman skilið við Allen og fer nú
með hlutverk kynskiptingsins Ru-
sty sem kallar ekki allt ömmu sína
og tekur sinn helsta óvin úr húsinu
sínu í söngtíma þegar skyldan kall-
ar.
Hvernig undirbjóstu þig fyrir
hlutverk dragdrottningarinnar
Rusty?
„Þar sem Rusty vinnur sem
dragdrottning ákvað ég að heim-
sækja skemmtistaði þar sem
dragdrottningar skemmta og kynna
mér þann heim og svo las ég mér til
og horfði á myndbönd um kynskipt-
' Inga því ég fann það strax að Rusty
er ekki hommi sem klæðir sig í
kjóla, heldur er hann kona í karl-
mannslíkama."
Var erfítt að setja sig í þessi
spor?
„Já, vissulega var það erfitt og ég
þurfti að æfa mig heilmikið til að ná
tökum á hlutverkinu...“
Það er þó ekki tilfínningin sem
rnaður fær þegar maður horfír á þig
í hlutverki Rusty. Það er næstum
því eins og þú hafír ekki gert annað
en klæða þig í kjóla og labba um á
háum hælum.
„Já, þá sérðu hvernig æfingin
skapar meistarann," segir Philip og
hlær.
* Fær aldrei stelpuna að lokum
Nú hefur þú leikið í fjölmörgum
myndum, en þó virðist túlkun þín á
sérstökum persónum vekja mesta
athygli. Þá er ég að tala um hlut-
verk hommans í „Boogie Nights“,
hins sveitta kynlífssvelta einfara í
„Happiness" og núna kynskiptings-
ins Rusty. Ertu ekkert hræddur um
að Hollywood setji á þig merkimiða
og þú festist í ákveðnum hlutverk-
um?
„Nei, í raun og veru ekki, þrátt
fyrir að oft gerist það að leikarar
festist í því að leika ákveðnar týpur
á hvíta tjaldinu. Ég hef náttúrulega
leikið svo mörg önnur hlutverk eins
og í „The Big Lebowski11, „Twister",
Scent of a Woman“, „The Talented
Mr. Ripley" og „Magnolia" og nýj-
asta hlutverk mitt er í nýjustu
mynd David Mamet, „State and
Main“, þar sem ég fer með róman-
tískt hlutverk, hvort sem þú trúir
því eða ekki,“ segir Philip kíminn á
svip. „En ég hef, guði sé lof, ekki
fengið á mig perrastimpil í Holly-
wood, ekki ennþá að minnsta kosti,“
bætir hann við og skellir upp úr.
„En hingað til hefur enginn beðið
mig um að leika sæta strákinn sem
fær stelpuna að lokum. Skrýtið!“
j En nú eru margir leikarar sem
hugsa svo stíft um ímynd sína að
þeir koma ekki nálægt hlutverkum
sem gætu gert þá ímynd tvíræða.
Mér er t.d. stórlega til efs að Leon-
ardo DiCaprio hefði tekið að sér
hlutverk Aliens í „Happiness"?
„Heldurðu það?“ segir Philip og
er greinilega skemmt við tilhugsun-
"|Jha. „En hlutverk Allens er frábær-
✓
I litlum hlutverkum hefur þessi rauðbirkni
leikari iðulega stolið senunni og nú fer
hann með aðalhlutverkið í „Flawless“ á
móti Robert De Niro sem frumsýnd var í
gær í Háskólabíói. Dóra Ósk Halldórsdóttir
hitti leikarann knáa sem fatast ekki
flugið á háum hælum.
hann hróðugur. „Þess vegna var
„Happiness" svona vinsæl, ekki
satt? ... Nei, best að haga sér al-
mennilega. Jú, það var frábært að
vinna með Schumacher og De Niro.
Mikill heiður. Mikill heiður!“
Samt segja margir að þú skyggir
heldur betur á gamla goðið De Niro
í myndinni.
„Ekki segja þetta upphátt!
Usss...!“
Það er ekki ofsögum sagt að við-
mælandinn sé kominn í einhvern
sérkennilegan gír í þessu viðtali og
ekki á það eftir að batna.
Hvert er draumahlutverkið þitt?
„Ég á mér þann draum að leika
þig!“ segh- Philip grafalvarlegur,
horfir djúpt í augu blaðamanns og
skellir síðan upp úr. „Leika persónu
sem kemur frá köldu landi þar sem
mikið er drukkið og stórfjölskyldan
safnast saman í bíó til að horfa á
„Happiness". Það er draumurinn,"
segir hann og springur úr hlátri en
bætir við þegar hláturskastið er í
rénun: „Draumahlutverkið mitt er
bara næsta góða hlutverk sem
býðst. Engar fyrirfram væntingar
heldur að gera eitthvað gott við það
sem maður hefur. Vel skrifaðar
persónur, alvöru fólk, skapandi og
gáfað fólk sem er í góðri sögu. Það
er draumurinn." Þrátt fyrir að svar-
ið hljómi afar spekingslega er
greinilega kominn púki í viðmæl-
andann.
Björk er best
Hoffman: „Af því að Rusty vinnur sem dragdrottning ákvað ég að heim-
sækja skemmtistaði þar sem dragdrottningar skemmta."
Myndin er úr Flawless.
Hoffman: „Hingað til hefur enginn beðið mig um
að leika sæta strákinn sem fær stelpuna
að lokum. Skrýtið!"
lega vel skrifað og
það var krefjandi
og skemmtilegt að
takast á við það á
sínum tíma. Ég
held að ef maður
tekur hvert hlut-
verk af mikilli al-
vöru, og reynir að
gera persónuna
eins trúverðuga og
manni er frekast
unnt, þá hljóti fólk
að gefa því gaum
frekar en að setja
samasem-merki
milli persónunnar
og leikarans.“
Bara ágætis
náungi
Þú hefur hlotið
einróma iof fyrir-
túlkun þína á
klæðskiptingnum
Rusty og á tímabiii
var talað um Óskarstilnefningu.
Þótt það hafí ekki gengið eftir er al-
veg ljóst að dyr frægðarinnar eru
að opnast...
„Vá, ég er að kíkja inn í dýrðina,"
grípur Philip fram í og skellihlær
en bætir við alvarlegri í bragði: „En
frægð er fyrirbæri sem enginn veit
hversu lengi stendur yfir. Þú getur
verið frægur í dag og gleymdur á
morgun. Það er oft mikil þrauta-
ganga fyrir leikara að vekja á sér
athygli og fá góð hlutverk. Ég hef
verið heppinn, þótt ég telji mig
einnig hafa unnið fyrir því. En
aðalmarkmið mitt er að fá góð hlut-
verk og geta stundað mína vinnu.“
Hvernig náigastu þær persónur
sem þú leikur?
„Ég kynni mér bakgrunn þeirra,
eins og ég gerði með Rusty, og síð-
an reyni ég alltaf að draga fram þau
atriði sem mér finnast áhugaverð-
ust í persónunni. Eins og þegar ég
lék Allen í „Happiness" var mér
mikið í mun að sýna hann ekki sem
algjörlega einhliða persónu, þótt ég
hafi reyndar verið dauðfeginn þeg-
ar ég gat kvatt hann þegar tökum
var lokið. Sama má segja um Rusty.
Það var virkilega krefjandi og
skemmtilegt að kynnast Rusty og
reyndi heilmikið á mig. Mér var
mikið í mun að fara ekki þá leið að
gera hann að einni stórri klisju,
heldur vildi ég umfram allt sýna að
þarna væri maður sem fyndist hann
hafa fæðst í röngum líkama.
Samskipti hans við „ofurkarl-
mennið" Walt (Robert De Niro)
reyna á þolrifin, en á sama tíma vill
Rusty að Walt sjái sitt innsta eðli,
sjái konuna í líkama karlmannsins.
En að því slepptu er Rusty líka
bara ágætis náungi. Manni fer að
þykja vænt um hann þegar maður
kynnist honum.“
Um drykkju og bíóferðir
Hvernig var að vinna með
Schumacher og De Niro?
Nú er Philip nóg boðið af þessu
spurningaílóði. Hann hallar sér í átt
að blaðamanni og spyr alvör-
uþrunginn: „Drekkur fólk mikið í
þínu heimalandi?"
Það er ekki laust við að það komi
á blaðamann við spurninguna og
skellihláturinn sem fylgir í kjölfa-
rið. „Þið gerið það, ekki satt?“ segir
Og engu máli skiptir hvort þetta
gáfufólk er íkjól eða buxum?
„Segðu, en ef ég á að vera alveg
hreinskilinn þa er hrikalegt að vera
í kjól. Púff! Ég var dauðfeginn að
komasþaftur í buxur! Það er sko al-
veg á hreinu að ég geymi ekki fatn-
aðinn úr þessari mynd!“
Þá vitum við það. Þótt Philip
Seymour Hoffman fari létt með
krefjandi hlutverk Rusty í
„Flawless" er það ekki af því að
hann hefur áralanga reynslu í því
að setja sig í háhæluð spor kvenna.
Hann er bara svona góður leikari.
Allt í einu beygir Philip sig fram
og hvíslar að blaðamanni: „Veistu,
ég er alveg dauðþreyttur. Ég er
búinn að tala um sjálfan mig í fleiri
klukkustundir. Geturðu ímyndað
þér?! Vissulega heillandi viðfangs-
efni, en það eru nú takmörk fyrir
öllu,“ segir hann og skellihlær.
„Tölum frekar um eitthvað allt ann-
að. Segðu mér frá Islandi. Ég væri
til í að koma þangað. En það er
bara spurningin með alla þessa
drykkju," segir hann sposkur á
svip. „Ætli ég þyldi það? En ég
væri til í að hitta Björk! Hún er al-
veg frábær og rosalega hæfileikar-
ík! Nú veit ég, á ég að segja þér
hverja ég held mest upp á?“
Já, af hverju ekki?
„Mér finnst hljómsveitin Stone
Temple Pilots alveg frábær, Dave
Matthew Band, Ricky Lee Jones,
Rufus Wainwright og svo auðvitað
Björk. Allt saman klassafólk. Og ef
við skoðum leikarana þá held ég
mikið upp á Sean Penn sem ég tel
vera einn af bestu leikurunum í dag.
Af leikstjórum er náttúrulega Paul
Thomas Anderson frábær, Cohen-
bræðurnir, Todd Solondz og...“ Nú
er leikarinn stöðvaður af ábúðar-
fullum manni sem gengur inn í her-
bergið. „Tíminn er búinn,“ segir
hann við blaðamann og á bak við
hann sést í annan blaðamann, vopn-
aðan upptökutæki og skriffærum,
svo Philip er ekki ennþá laus úr
prísundinni. Blaðamaður þakkar
Philip Seymour Hoffman fyrir
spjallið og stendur upp. Þegar
blaðamaður er að ganga út kallar
Philip á eftir honum: „Kannski ég
komi einhvern tíma til Islands og
skelli mér í bíó!“
GAMANMYNI)
★★
Leikstjóri: Dennis Dugan. Handrit:
Steve Franks, Tim Herlihy og
Adam Sandler. Aðalhlutverk:
Adam Sandler, Cole og Dylan
Sprouse, Joey Lauren Adams. (93
mín.) Bandaríkin. Skífan, mars
2000. Öllum leyfð.
ADAM Sandler hefur verið að
skríða upp stjömuhimininn síðustu
ár þrátt fyrir fremur takmarkaða
hæfileika sína. Nýj-
asta mynd hans,
Stóri pabbi, naut
mikilla vinsælda
vestan hafs. Þar
kynnumst við iðju-
leysingjanum Son-
ny Koufax, sem lok-
ið hefui'
lögfræðiprófi en
neitar að axla
ábyrgðina sem fylgir því að vera ful-
lorðinn. Hann hangir því heima allan
daginn og horfir á fótbolta, allt þar til
kærastan’ hótar skilnaði. Sonny
bregður þá á það ráð að ættleiða 6 ára
dreng til að sanna fyrir kærustunni
að hann sé tilbúinn í skuldbindingar.
Þessi samantekt er mjög lýsandi fyr-
ir hversu fáránleg atburðarás hennar
er. Þetta er léleg og illa skiifuð saga,
sem beitir augljósustu formúlubrögð-
um við að vinna hjörtu áhorfenda og
kreista fram bros og tár. Húmorinn
er í grunnatriðum frekar lágkúmleg-
ur en nær sér þó vel á strik inn á milli.
Aukapersónan sem Steve Buscemi
leikur er t.d. mjög skemmtileg sem
og ýmis smáleg gamanatriði sem
bjarga myndinni íyrir hom.
Heiða Jóhannsdóttir
----------------
Miskunnar-
laus mynd
MISKUNN
(Mercy)
S 1* EIV IV G M Y IVI)
★%
Leikstjórn og handrit: Damian
Harris. Aðalhlutverk: Ellen Barkin,
Wendy Crewson, Julian Sands. (113
mín.) Bandaríkin 1999. Háskólabió.
Bönnuð innan 16 ára.
ÞEGAR verið er að stæla aðrar
myndir em herfileg mistök að byrja
nákvæmlega eins. Það kemur áhorf-
andanum í þvílíkt
óstuð og gerir hon-
um erfitt fyrir að
setja sig í stellingar
fyrir framhaldið
jafnvel þótt það sé
alveg viðunandi
eins og í þessu til-
viki. Miskúnn, sem
fjallar um fjölda-
morðingja er myrð-
h- fórnarlömb sín í miðjum ástai-atlot-
um við þau, byijar þannig á keimlíkan
máta og önnur mun frambærilegri
mynd um sama efni, nefnilega Basic
Instinct. Munurinn er hins vegar sá
að í stað Michael Douglas er mætt
Ellen Barkin, sem hleypir svona les-
bískri fléttu í spilið. Atti eflaust að
vera voðalega sniðugt og djúpt.
Myndin er þó ekkert alvond þótt
klisjumar setji mann svona út af lag-
inu. Stígandinn er ágætur og myrk
stemmningin nokkuð sannfærandi.
Síðan nær hún að skapa talsverðan
óhugnað undir lokin í fremur óvæntri
fléttu. Verst að hinn frámunalega
slaki Julian Sands þurfti endilega að
fá að vera með. Hvenær hættir mað-
urinn eiginlega að fá hlutverk?
Skarphéðinn Guðmundsson