Morgunblaðið - 04.06.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2000 11
„Miðað við tölur úr norrænum borgum
mætti ætla að allt að 5-20 tilfelli
krabbameina á Reykjavikursvæðinu
gætu á ári hverju átt rætur að rekja til
mengunar frá umferð..."
vex hér á landi líkt og annars staðar í
heiminum. Arið 1972 nýttu samgöng-
ur 24,1% heildarorkunotkunar hér á
landi en árið 1996 var hlutur sam-
gangna orðinn 28,5%.
Að því er segir í skýrslunni er út-
blástur gróðurhúsalofttegunda á
borð við koltvísýring (CO2) mikill hér
á landi og vex. Útstreymi CO2 er um
9,26 tonn á hvem íbúa Islands en
meðaltalið í OECD löndunum er
11,14 tonn á íbúa. Heildarlosun CO2
frá innanlandssamgöngum árið 1990,
sem er viðmiðunarár Kyoto bókun-
arinnar, var um 619 þúsund tonn, þar
af 528 þúsund tonn frá bílum. A
næsta ári er búist við að þessi út-
blástur hafi aukist um 17% frá 1990
og spáð er 7% aukningu til viðbótar
til ársins 2010. Um
þetta segir m.a. í
skýrslunni: „Þá hefur
aukning vegna sam-
gangna orðið um fjórð-
ungur, sem er langt frá
takmörkum Ríó sam-
þykktarinnar. Ekki
leikur nokkur vafi á, að
grípa þarf til sérstakra
aðgerða til þess að ís-
land geti uppfyllt Ríó
samþykktina, jafnvel
þótt stefnt yrði að því
að upfylla hana ein-
vörðungu á sviði sam-
gangna.“ Enn fremur:
„Ljóst er að átak til
þess að hemja CO2 út-
streymi hér á landi þarf
að beinast að notkun
olíu 0g bensins í sam-
göngukerfi og fiskveið-
um.“
Bregðast þarf við
vandanum
Gert er ráð fyiir því
að íbúum á höfuðborg-
arsvæðinu fjölgi um 56
þúsund á næstu tut-
tugu árum samkvæmt
tillögum Samtaka
sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu að
svæðisskipulagi. Þétt-
ing byggðar getur tek-
ið við hluta þessarar
fjölgunar en ljóst er að
leggja þarf ný svæði undir byggð. í
skýrslunni segir m.a. um þróun
byggðar á höfuðborgarsvæðinu: ,A-t-
hyglisvert er að umferðarmengun
nýtur of lítillar athygli við áætlana-
gerð um þróun byggðar á svæðinu.
Samspil skipulags og samgangna
þarf að öðlast enn mikilvægari sess í
skipulagsmálum höfðuborgarsvæð-
isins.“ Bent er á nauðsyn þess að
kerfisgreina umferð samhliða
ákvörðunum um uppbyggingu sam-
göngumannvirkja.
Notkun almenningsvagna er hlut-
fallslega lítil í Reykjavík, t.d. miðað
við Osló þar sem almenningsvagnar
eru fjórfalt fleiri á hverja hundrað
þúsund íbúa. Bent er á það mat
margra að með sameiginlegri stjórn-
un almenningsvagnakerfisins á höf-
uðborgarsvæðinu mætti draga úr
heildarakstri og þar með mengun.
Enn ein leið til að draga úr umferð-
armengun er að beita upplýsinga- og
raftækni til að einfalda umferðar-
kerfið. „Með því t.d. að samhæfa öll
umferðarljós á höfuðborgarsvæðinu
er áætlað að hægt verði að minnka
útstreymi gróðurhúsalofttegunda
um 1%,“ segir í skýrslunni.
Kostir rafbfla
Orkuveita Reykjavíkur hefur
kannað kosti þess að reka rafbíla og
getu rafkerfisins til að reka hleðslu-
tæki slíkra farartækja. Starfshópur
Orkuveitunnar reiknaði út að að
meðaltali er hægt að fjórfalda álag á
raforkukerfið þegar hefðbundin
notkun þess er minnst og taka við
50% álagsaukningu við hátt álag. Því
þyrfti líklega að stýra notkun
hleðslutækja fyrir rafbíla með gjald-
skrá. Þá telur starfshópurinn að
Orkuveitan eigi að auðvelda við-
skiptavinum sínum eftir megni að
taka rafbíla í notkun.
Skýrsluhöfundar telja að þróun á
rafbílum verði ekki jafnhröð og á
öðrum umhverfisvænum farartækj-
um, til dæmis vetnisbílum.
Vistvænni bflar
Minnt er á tilraunaverkefni Vist-
orku hf. sem vinnur að uppbyggingu
vetnisknúins samgöngukerfis hér á
landi. í tilraunaskyni verða væntan-
lega þrír strætisvagnar SVR knúnir
vetni með hjálp efnarafals. Þá hafa
Sorpa og Aflvaki hf. stofnað dóttur-
fyrirtækið Metan hf. sem hyggst
vinna metangas úr sorphaugum í
Alfsnesi. Ráðgerir Sorpa að hefja
rekstur tuttugu bif-
reiða í fyrsta áfanga.
Metan telur að fyrir
hendi sé eldsneyti fyrir
þrjú til fjögur þúsund
bíla með sprengi-
hreyfli. Bílar sem
brenna metangasi
menga töluvert minna
en bflar sem nota bens-
ín eða díselolíu.
Víða um heim er et-
anóli, eða spíra, bland-
að í bensín. Það bætir
bruna bensíns og dísel-
olíu og myndast minna
CO og CO2 en væri
eldsneytið óblandað.
Skýrsluhöfundar
benda á að athuganir
íslenska lífsmassafé-
lagsins benda til þess
að hagkvæmt væri að
framleiða etanól úr lúp-
ínulífmassa og öðrum
íslenskum líímassa
með notkun jarðgufu
sem aðalorkugjafa.
Hægt væri að vinna
ýmis önnur verðmæt
efni úr íslenska lífmass-
anum með etanólið sem
eins konar aukaafurð.
Þá er hægt að
hreinsa útblástur far-
artækja með því að
nota „hreinna“ bensín
en nú. Bent er á að
Bandaríkjamenn telji
að notkun slíks bensíns fækki
krabbameins- og eitrunartilvikum
frá útblæstri um 15-40%.
Malbik eða steypa
Áætlað er að um átta þúsund tonn
af malbiki slitni vegna nagladekkja á
hverju ári. Mest af malbiksrykinu
skolast út í skólpi en töluvert endar
sem svifryk í andrúmsloftinu. í
skýrslunni segir m.a. „hættulega
mikið ryk fylgir aukinni umferð og
notkun nagladekkja. Minnstu agnir
af þessu ryki eru stórhættulegar
heilsu fólks.“ í Noregi er t.d. stefnt
að því að minnka notkun nagla niður
í 20% í stærstu borgum og bæjum og
skattleggja nagladekkin sérstak-
lega. Nagladekkin valda einnig
hávaðamengun.
Bent er á að „víða um heim hefur
orðið endurhvarf til notkunar stein-
steypu í vegi. Þá er um að ræða sér-
styrkt efni. Mælingar á sliti stein-
steypu á Norðurlöndum benda til
þess að slit steinsteypts vegar sér
helmingi minna en slit malbiksveg-
ar.“
Sigurður I. Skarphéðinsson
gatnamálstjóri sagði að Reykjavík-
urborg notaði nánast eingöngu mal-
bik sem slitlag á götur. Aðspurður
um hvort til greina kæmi að nota
steypt slitlag sagði Sigurður:
„Steypa er gjaman skoðuð þegar við
erum að vinna með götur þar sem
umferð er mest. Hún slitnar mun
minna en malbik og rykmyndun er
þar af leiðandi minni. Gallinn við
steypu er tvíþættur. Annars vegar
stofnkostnaður, sem er verulega
hærri en við malbik. Hins vegar ef
um endumýjun á eldra slitlagi er að
ræða þarf að loka götunni mun leng-
Þorsteinn Ingi
Sigfússon prófessor.
Sigurður Ingi
Skarphéðinsson
gatnamálastjóri.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.
Dýrkeypt
umferðar-
aukning
EIN af tillögum starfshóps
Orkuveitu Reylgavíkur er að
komið verði á fót samstarfshópi
ráðuneyta umhverfísmála og
samgangna annars vegar og
sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu hins vegar til þess að
fjalla um vistþætti samgangna.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, sagði
að undirbúningur að slíku sam-
starfí væri þegar hafínn af hálfu
sveitarfélaganna.
„Bæjarstjórarnir hér hafa ver-
ið að hittast og við höfum látið
taka saman greinargerð um al-
menningssamgöngur. Þar ósk-
um við eftir viðræðum við ráðu-
neyti samgöngumála, umhverf-
ismála og fjármála um aðkomu
ríkisins að þessum málum. Við
sendum bréf og skýrsluna um
vistvæna samgöngustefnu til
ráðuneytanna þann 26. maí sl.
og óskuðum eftir fundi hið
fyrsta.“
Dýrkeypt aukning
Ingibjörg Sólrún segir að með
auknum fólksflutningum til höf-
uðborgarsvæðisins sé fyrirsjáan-
leg mikil aukning á umferð. „Við
horfumst í augu við það að þessi
umferðaraukning fer að verða
okkur allt of dýrkeypt. Við eig-
um enn hefð fyrir almennings-
samgöngum og ef við byggjum
ekki á henni núna þá mun þetta
þróast á hinn verri veg.“
Má skilja það svo að nú séu
síðustu forvöð að bjarga almenn-
ingssamgöngum?
„Það er kannski nær að orða
það þannig að kostnaður sveitar-
félaganna sé of mikill og nýting
of lítil. Það hefur ekki orðið sú
aukning í notkun sem við hefð-
um viljað sjá. Við teljum að ein
forsenda þess, að aukning verði,
sé að almenningsvagnarnir fái
aukinn forgang í umferðinni.
Þannig hefur fólk beinan ávinn-
ing af því að nota vagnana."
Er þá verið að ræða um sér-
merktar akreinar?
„Það væri hægt að sjá það fyr-
ir sér á þessum helstu stofn-
brautum sem liggja inn í mið-
borgina úr úthverfum og öðrum
sveitarfélögum. En ríkið sem á
þessar stofnbrautir og Vega-
gerðin verður að koma að því
máli.“
Ingibjörg Sólrún sagði for-
svarsmenn sveitarfélaganna
telja það skjóta svolítið skökku
við að sveitarfélögin séu að
greiða hundruð milljóna á
hverju ári til að halda úti al-
menningssamgöngum en ríkið
hafi aftur á móti af þeim 120-
140 milljóna króna tekjur á ári í
formi skattlagningar. Sveitar-
félögin vilji því að ríkið felli nið-
ur gjöld af almenningssamgöng-
um.
Umferð skerðir lífsgæði
Borgarsljóri sagði að sér
þætti hugmyndin um grænt bók-
hald mjög áhugaverð. „Það kem-
ur svo vel í ljós þegar farið er að
færa þetta græna bókhald hvað
við notum mikið af þessum efn-
um og hvað mikið af þeim skilar
sér út í daglegt umhverfi okk-
ar,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Hún
taldi mjög mikiivægt að fólk
hefði þessar staðreyndir fyrir
framan sig. Fólk legði mikla
áherslu á lífsgæði, en þarna
sæist hvað við skerðum lífsgæði
okkar mikið með umgengni okk-
ar áþossu sviði.
„Eg upplifí mjög sterkt á
hverfafundum með borgarbúum
að fólki fínnst umferðin vera far-
in að skerða umhverfisgæði og
lífsgæði. Spurningin er hvernig
við getum tekið á því. Það verð-
ur ekki gert nema í samvinnu
sveitarfélaganna og ríkisins.“
Eru á döfínni einhverjar sér-
stakar aðgerðir gegn loftmeng-
un, ryki og hljóðmengun sem
stafar frá umferðinni?
„Við ráðum ekki við það nema
að hluta til. Við getum reynt að
fá fólk til þess að draga úr notk-
un nagladekkja og hugsanlega
farið eitthvað í að steypa götur.
Hluti af þessu snertir einnig
eldsneytið, Það er spurning
hvort á að gera enn frekari kröf-
ur um hreinleika eldsneytisins.
En það er ekki á hendi sveitarfé-
laganna heldur verður rfkið að
koma þar inn í myndina."
ur ef yfirborð hennar er steypt en ef
það er malbikað.“ Sigurður sagði að
reynt hafi verið að leggja steypt slit-
lag ofan á malbikaðar götur en það
hafi reynst vandasamt að ná nægi-
legri viðloðun milli undirlagsins og
steypunnar nema steypulagið væri
af tiltekinni þykkt. Því fylgi þau
vandkvæði að gatan hækki, sem sé
mjög óþægilegt, einkum inni í borg.
Þessi lausn geti því reynst kostnað-
arsöm.
Sigurður sagði að steypa væri
skoðuð sem raunhæfur valkostur við
malbik, fyrst og fremst við nýbygg-
ingar umferðarmestu gatna. „Slíkar
byggingar hafa ekki verið miklar á
vegum Reykjavíkurborgar undan-
farin ár. Þær nýbyggingar sem hafa
verið við borgina og í henni hafa ver-
ið þjóðvegir kostaðir af Vegagerð-
inni þótt um samstarfsverkefni
hennar og borgarinnar sé að ræða.“
En má búast við því að viðhorf
hins græna bókhalds og aðferðir til
að draga úr mengun setji mark sitt á
gatnagerð í Reykjavík á næstu ár-
um?
„Auðvitað tökum við tillit til þess-
ara hluta,“ sagði Sigurður. „Þau
sjónarmið sem koma þarna fram um
græna bókhaldið, minni mengun,
upphitun gatna og annað slíkt hljót-
um við að hafa til hliðsjónar. Það er
ekki spurning.“
Mengun veldur heilsutjóni
Mælingar Heilbrigðiseftirlitsins á
loftmengun sýna að köfnunarefnis-
tvíildi, NO2, er mesti mengunarvald-
urinn sem kemur úr útblæstri bíla
og sá sem fer oftast yfir viðmiðunar-
mörk. Loftmengunin er því alvar-
legri þar sem hún getur valdið
heilsutjóni.
„Miðað við mengunartölur frá
Norðurlöndum og mælingar á
Reykjavíkursvæðinu er unnt að
álykta, að loftmengun í Reykjavík
geti haft veruleg áhrif á heilsufar.
Til dæmis eru 3.800 tonn af NMVOC
efnum, sem berast út í andrúmsloft-
ið, ískyggilegt magn. Miðað við tölur
úr norrænum borgum mætti ætla að
allt að 5-20 tilfelli krabbameina á
Reykjavíkursvæðinu gætu á ári
hverju átt rætur að rekja til meng-
unar frá umferð Frekari fara-
ldsfræðilegar rannsóknir eru nauð-
synlegar til að greina þetta betur.“
Tillögur til úrbóta
Undirtitill skýrslunnar er Grein-
ing og tillögur. Lykilatriði greining-
arinnar er hið græna bókhald, sem
er ný leið til að meta umhverfisleg
áhrif nútíma samgangna. Þorsteinn
Ingi Sigfússon lagði áherslu á að það
hefði verið meginhlutverk skýrslu-
höfunda að framkvæma greining-
una, en ekki að móta stefnuna.
í lok skýrslunnar eru lagðar fram
38 tillögur, sem snerta flesta þætti
umferðarinnar. Ekki er unnt að
rekja hér efni allra tillagnanna, en
nokkrar valdar af handahófi. Hvatt
er til mótunar vistvænnar sam-
göngustefnu þar sem græna bók-
haldið gegni lykilhlutverki. Hvatt er
til þess að vel sé fylgst með þróun
véla og ökutækja, sem byggja á vist-
vænum orkugjöfum. Beita þurfi
hvetjandi aðgerðum og niðurfellingu
gjaldtöku hins opinbera á vistvæn
farartæki. Sveitarfélög og ríkið setji
á fót starfshóp til að fjalla um vist-
þætti samgangna; einnig að almenn-
ingur verði betur upplýstur um um-
ferðarmengun og kynnt ráð til að
draga úr henni. Hvatt er til stuðn-
ings við tilraunir með vistvæna
orkugjafa og prófanir á farartækj-
um sem þá nota. Þá er talið nauð-
synlegt að setja reglur um efnainni-
hald eldsneytis sem hér er selt.
Mælt er með hönnun umferðar-
mannvirkja sem draga úr mengun,
t.d. að nota frekar „svigður" en öld-
ur til að draga úr ökuhraða í íbúða-
hverfum, að umferðarljós verði sam-
hæfð svo bflar þurfi ekki að bíða á
ljósum, að dregið verði úr eyðingu
malbiks og rykmyndun. í því skyni
er mælt með mengunarskatti á
dekkjanagla og að stutt verði við til-
raunir með breiðari og léttari nagla
sem brjóta minna malbik. Að til-
raunum með harðkornadekk og önn-
ur gripgóð dekkjum verði lokið sem
fyrst. Hugað verði að notkun stein-
steypu í slitlag gatna og að gatnahit-
un þar sem fer saman götuhalli og
hálkumyndun. Notkun almennings-
vagna verði aukin og rekstur þeirra
gerður umhverfisvænni.