Morgunblaðið - 04.06.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.06.2000, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Á ferð með Atla Heimi Fyrsta tónskáldaþingið af sex á hátíðinni Menning og náttúru- auðæfí í Grindavík fer fram annað kvöld. Tónskáldin sem fram koma, sex að tölu, munu rita greinar í Morgunblaðið hvert um annað. Bandaríkjamaðurinn Gerald Shapiro ríður á vaðið og skrifar um Atla Heimi Sveinsson. / G kynntist hinu virta íslenska tón- skáldi Atla Heimi Sveinssyni í Voyages tónleikaferð í Bandaríkj- unum sl. haust. Mér vildi það til happs að við Atli Heimir ókum saman frá Washington til New York. Þegar ég síðan heimsótti Island fyrir tveimur mánuðum var hann svo vinsamlegur að vera leiðsögumaður minn á skoðunarferð um landið. Það er ekki hægt að finna betri ferðafélaga en Atla Heimi. Hann er hrífandi, félagslynd- ur og orðheppinn á þægilegan máta, þó þar leynist stundum háð. Athygli hans og ákafi eru síbreytileg og hjá Atla Heimi fljúga hug- myndir og sögur hjá í takt við hraða bílsins. Sé honum látið eftir að ráða för samræðn- anna getur hann vísvitandi haldið uppi ein- tali, hér um bil án afláts. Um leið og ferðafé- lagar Atla Heimis mæla síðan þagnar hann og hlustar af slíkum áhuga að það getur sett fólk út af laginu. Þegar ég var beðinn að skrifa stutta kynn- ingu á Atla Heimi og tónlist hans brást ég við með því að setja saman brot minninga af ferðum okkar saman. Þegar við ökum til New Jersey ræðir Atli Heimir um tónlist. Tónlist sem hann hefur samið, tónlist sem hann var að semja á þeim tíma, tónlist sem hann ætlar sér að semja og tónlist annarra. Náin tengsl hans við hljóma eru augljós. Þegar Atli Heimir lýsir tónverki verður hlustandanum ljóst að hann er að lýsa einhverju sem er honum mjög svo raunveru- legt. Hlut sem er áþreifanlegur eyranu á sama hátt og vatn er flngrum. Þessi áþreifanleiki kemur skýrt fram í tónlist Atla Heimis. Hún býr yfír þeim eigin- leikum sem tónskáld nefna „vel hljómandi“, sem þýðir að Atli Heimir sér tónana ná- kvæmlega fyrir sér við samningu hvers tón- verks. Lesandi kann að spyrja hvort öll tón- skáld þurfi ekki að búa yfir þessari getu? Líkist hún ekki teiknigetu listamannsins? Að vissu leyti má segja að svo sé. Við öll - bæði tónskáld og myndlistarmenn - gerum okkar besta til að ná hugmyndinni ljóslifandi fram. Þetta er eitt af grundvallaratriðum góðs listaverks, þó það nægi ekki eitt sér. Sum okkar eru þó bara fær um að ná útlínum þessara hugmynda, á meðan tóniist Atla Heimis nær full- kominni nálægð við hugmyndir hans og er sem slík sönn ánægja á að hlýða. Við förum til Þingvalla og ökum umhverfis vatnið. Þó nú sé síðla aprílmánaðar er hráslagalegt úti fyrir. Tóftir fornra húsa gægj- ast í gegnum slydduna, en þrátt fyrir það er Atli Heimir í góðu skapi. „Sjáðu, þarna er refur - enn í vetrarfeldi sínum.“ Gleði hans er mikil og barnsleg. Ég minnist þess skyndilega er við ókum eftir þjóðvegi nokkrum í Bandaríkjunum, það kann að hafa verið í Maryland, eða e.t.v. Delaware. Áður en ég kynntist Atla Heimi sjálfum var ég einungis kunnur einu tón- verka hans, „Dal Regno del Silenzio," sem var samið fyrir selló. Þegar ég heyrði þetta verk fyrst fyrir nokkrum árum náði það tök- um á mér þannig að ég hlustaði á það aftur og aftur. Þetta verk er í senn dapurlegt og sérlega áhrifamik- ið. Þögn titilsins er þungamiðja verksins sjálfs. Það snerti ein- hverjar taugar í mér. Skyndilega seg- ir Atli Heimir eitt- hvað sem minnir mig á verkið, en ég hafði ekki hugsað um það a.m.k. í tvö ár. Ég reyni að segja honum að tónlist hans sé mér einhvers virði, en hann gerir lítið úr því af einskærri hógværð. Nú get ég séð glitta í vissan alvarleika, jafnvel svolítinn dapurleik, í þeirri þögn myndast í annars glaðlegu ein- tali hans. Við erum staddir nærri ströndinni. Það er 1. maí og erfitt að finna opinn veitingastað. Atli Heimir, sem hinn sanni gestgjafi, hefur hins vegar pantað borð fyrir fram. Atli Heimir er sannur menntamaður og sannarlega fjölfróður. Fjölbreytni hans og ástríða á hugðarefnum sínum er ótrúleg og samt eru kröfur hans sjálfs svo litlar. Hann talar um að finna sér kyrrlátari stað til að lesa og semja tónlist og líkt og áður eru áform hans margvísleg: Island, Ohio, Prag? „Við erum svo heppnir," segir hann og finnur af örlæti sínu rúm fyrir mig í hugarheimi sín- um. „Allt sem við þurfum á að halda eru nokkrar bækur, kyrrlátur staður og við erum fullkomlega hamingjusamir." Hann ræðir um tónlistarmenn og mér virðist sem Atli Heimir hafi þekkt persónu- lega hvern einasta markverða evrópska og bandaríska tónlistarmann sl. 50 ára. Heilu fjölskyldur tónlistarmanna, kynslóðir og tónlistarstefnur allt frá Vín til Parísar og Sao Paulo. Mikilsvirtur tónlistarfræðingur við háskól- ann minn, sem fæddur var í Ungverjalandi, sagði eitt sinn við mig með kankvíst bros mið-Evrópubúa á vör: „Að vera sagnfræð- ingur er að vera vel að sér í gömlum kjafta- sögum.“ Þannig er Atli Heimir. Þegar við ökum í gegnum göng á leið til New York ræðir Atli Heimir um verk mitt fyrir Voyages tónleikaferðina. Skynjun hans er svo næm, svo nákvæm. Hann veit ná- kvæmlega hvað er rétt og hvað þarfnast frekari vinnu. Hve gaman það væri að hafa hann fyrir tónsmíðakennara. Verk Atla Heimis fyrir tónleikaferðina nefnist Dolorosa. Þetta er annað dapurlegt verk, ekki ólíkt sellóverkinu að sumu leyti. Það er fullt af þögn sem ristir dýpra en hljóð- in sem hana umkringir. Þessi tónlist byggir á einfaldleika, ekki í líkingu við einfaldleika „New York Repetitious School", heldur hef- ur hér allt nema nauðsynlegustu frumþættir verið þurrkað út þannig að eftir stendur átakamikill kjarninn... sterkasta tjáningin. Atli Heimir andvarpar þegar við ökum inn í illa viðhaldið úthverfi Manhattan en hress- ist síðan aftur og fer að vísa mér leiðina að íbúð vinar hans þar sem leiðir okkar skiljast. Hann ræðir um dvöl sína í New York, vinina sem hann heimsækir, veitingastaðina, bóka- búðirnar og söfnin. Hann segir að við munum hittast fljótlega aftur og ég vona að svo verði. Má ekki taka sig of hátíðlega Brúðubílinn: Helga Steffensen, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigrún Erla Sigurðardóttir og Frímann Sigurðsson. „HAFGÚUR er eins konar gjörn- ingur sem ég hef sett saman fyrir slipphljóðfæri, togara, flugelda, hal- íukrana, eimpípur og aðra hljóðgjafa sem tengjast atvinnustarfsemi og náttúruauðæfum Grindavíkur," seg- ir tónskáldið Atli Heimir Sveinsson, sem undanfarið hefur ásamt heima- mönnum unnið að undirbúningi Grindavíkurgjörningsins Hafgúur. Verður hann fluttur við Grindavík- urhöfn í dag kl. 14.45. „Þátttakendur í þessu með mér eru skólabörn og aðrir íbúar Grinda- víkur ásamt nokkrum bæjarstofnun- um eins og t.d. slökkviliðinu. Tón- listarmennirnir Guðni Franzson og Edvard Fredrikssen leika af fingr- um fram á á ýmis hljóðfæri, s.s. eins og didjerídú og básúnur. Þarna verður blandað saman umhverfis- hljóðum úr Grindavík, sem segja kannski eitthvað um bæinn, og ein- hverju úr mínum verkum í bland. Sumt er fastákveðið og annað spilast eftir hendinni. Eins og gjörninga er siður er þessu ætlað að grípa inn í hið daglega amstur og sýna hvers- dagsleikann í nýju ljósi. Þessu er líka ætlað að vera fólki til skemmt- unar og ánægju og minna á að ekki eigi að taka sjálfan sig of hátíðlega. Mér hefur oft fundist nútíminn taka sig of hátíðlega, neysluþjóðfélagið tekur sig ákaflega hátíðlega og vís- indin taka sig geysilega hátíðlega með vísindagrobbi og vísindamonti. Einna verstir eru náttúrlega fjöl- miðlarnir, sem halda að þeir séu burðarás alls, og þennan gjörning má gjarnan líta á sem svolitla æf- ingu í því að stunda hinn óbærilega léttleika tilverunnar," segir Atli Heimir. Hlými á tónskáldaþingi Mánudaginn 5. júní kl. 17 verður haldið tónskáldaþing í Illahrauni. Þar flytur Atli Heimir aðfaraorð að heimsfrumflutningi á hljóðupptöku Sinfóníuhljómsveitar Pólska út- varpsins og Baltnesku fílharmón- íunnar á einu fyrsta verki Atla Heimis er hann nefndi Hlými og var frumflutt af Musica Nova á tónleik- um á Hótel Sögu árið 1965. „Ýmsum þótti þetta ekki góð list og töldu að menn ættu ekki skrifa svona músík og urðu mjög reiðir yfir þessu. Is- lenskt tónlistarlíf var á þeim tíma mjög lokað og menn voru svolítið innilokaðir í sinni sjálfsánægju og vildu lítið fylgjast með. Þeir voru hræddir við að ganga á hólm við samtímann og fannst allt vont. Þessu fylgdi öryggisleysi sem sner- ist upp í hroka og sjálfumgleði. Ég var nýkominn frá Evrópu og hafði drukkið í mig það sem þar var að gerast. Það má segja að í Hlými kristallist þeir samtímastraumar sterkar en í verkum annarra ís- lenskra tónskálda á þeim tíma.“ Sem dæmi um hversu sterkt menn snerust gegn þessu verki Atla Heimis fékkst verkið ekki hljóðritað eða flutt í Ríkisútvarpinu. „Það kom engin umfjöllun um verkið en Morg- unblaðið birti skopmyndir af mér tvo daga í röð. Hins vegar vissi ég aldrei hvað var svona voðalegt við verkið og hafði satt að segja engar áhyggjur af þessu. Ég hafði svo sterka trú á því sem ég var að gera að ég lét þetta ekkert á mig fá.“ Hlými var svo flutt tveimur árum síðar á Norrænum músíkdögum og vakti mikla hrifningu og var flutt af Sinfóníuhljómsveit Islands nokkrum árum síðar. „Þegar ég hlusta á þessa upptöku núna heyrist mér þetta næstum því vera impressjónismi, seríalismi þessara ára, þunglyndis- legt með ævintýrablæ. Mér þykir vænt um að Hlými er nú til á hljóm- diski. Ég hef alltaf saknað þess að geta ekki hlustað á þetta verk,“ seg- ir tónskáldið Atli Heimir Sveinsson. LEIKHÚS Helgu Steffensen hefur séð um sýningar Brúðubflsins í 20 ár. Sýningin á afmælisárinu heitir Brúðu-kabarett og verður frum- sýnd á gæsluvellinum við Amar- bakka í Breiðholti, á morgun, mánudag, kl. 14. Einnig verða sýndir valdir kaflar úr sýningum fyrri ára ásamt nýjum þáttum. Hið nýja leikrit er eftir Helgu Steffensen og Sigrúnu Eddu Bjömsdóttur, sem er leikstjóri sýn- ingarinnar, en þetta er í fimmta sinn sem Sigrún Edda Ieikstýrir Brúðubílnum. Brúðumar hannar Helga og stjómar þeim ásamt Sig- rúnu Erlu Sigurðardóttur og Frí- manni Sigurðssyni. Tónlistarstjóri er Vilhjálmur Guðjónsson. Helga Steffensen segir að í dag- Ný sýning á 20 ára afmælisári skrá leikhússins rúmist bæði skemmtun og fræðsla: Sögur, gaml- ar og nýjar, leikrit, dans og söngur. í sumar munu mæta bæði gamlir fé- lagar og nýir bætast í hópinn. Sýn- ingar í Reykjavík verða alls um 70, á öllum gæsluvöllum og nokkrum útivistarsvæðum. Einnig verður sýnt í nágrannabæjunum og út um landsbyggðina. En sýningar Brúðu- bflsins eru yfír 100 á ári hverju. Næstu sýningar verða í Austur- bæjarskóla og Barðavogi 6. júní, í Bleikjukvísl 7. júní, 8. júní í Brekkuhúsi og Fannafold, 9. júní í Skeijafirði v. Reykjavíkurveg og á Freyjugötu, 13. júní í Fífuseli og við Árbæjarsafn, 14. júní í Fróðengi og Frostaslqóli, 15. júní við Hlað- hamra og í Malarási, 16. júní í Ljós- heimum, 19. júní á Njálsgötu og í Safamýri, 20. júní á Kjalarnesi og í Rofabæ, 21. júní í Stakkahlíð og í Rauðalæk, 22. júní í Vesturbergi, 23. júní á Tunguvegi, 26. júní á Vesturgötu og á Kambsvegi. Sýningin í júlí heitir Dýrin í Afríku. Sýningar Brúðubflsins eru á veg- um fþrótta- og tómstundráðs og er aðgangur ókeypis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.