Morgunblaðið - 04.06.2000, Síða 48

Morgunblaðið - 04.06.2000, Síða 48
^8 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Ijóska Ferdinand Smáfólk MY 6RAMPA UJENT TO MI5 HI6H SCH00L'5 FORTIETH REUNION LAST NIGHT.. HE 5 AL50 6EEN TO A C0LLE6E REUNION ANP] ^ AN ARMV REUNION... HE HA5 A NEU) CAREER.. HE 60ES BACK.T0THIN65 Afi minn for í 40 ára útskriftarafmæli menntaskólans í gærkvöldi. Hann er líka búinn að fara á endurfundasamkomu í háskólanum og að hitta gömlu félagana úr hernum. Hann er kominn með nýtt starf.. Hann ferðast aftur í tímann. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Taka stjórnvöld mark á vísindaleg- um niðurstöðum? Krístján Tryggvason, jarðeðlis- fræðingur og framhaldsskólakenn- ari skrífar: VÍSINDALEGAR niðurstöður eru í mörgum tilfellum sá grunnur sem við byggjum á. Mörg dæmi eru þó um að þeim sé kastað á glæ og til- finningar, hagsmunir eða pólitík lát- in ráða. Sem dæmi má nefna að hval- veiðiþjóðir fá ekki að veiða tegundir sem vísindamenn telja óhætt að veiða. I meira en fjóra áratugi hafa legið fyrir marktækar niðurstöður ótal rannsókna um skaðsemi reykinga, tengsl þeirra við krabbamein, lungna-, hjarta- og æðasjúkdóma. Samt er það nú svo að stjórnvöld margra landa íhuga að fara í mál við tóbaksframleiðendur vegna skaðans. Það má vera að þetta sé klókt í heimi þar sem hægt er að vinna hin fárán- legustu mál og knésetja þannig tóbaksiðnaðinn. Þeir hefðu þá jafn- framt viðurkennt að hafa valdið miklum skaða sem væru skilaboð sem tekið yrði eftir. Hins vegar sætu stjórnvöld uppi með þann stimpil að hafa tekið óábyrga afstöðu undan- farna áratugi. Síðustu ár hefur framboð ólög- legra fíkniefna aukist mjög og ís- lensk stjórnvöld brugðist nokkuð hart við, m.a. með því að efla lögreglu og tollgæslu. Framboð reyktóbaks hefur hins vegar verið gott í marga áratugi og getur vart verið betra. Það er vel þekkt staðreynd að tengsl eru milli reykinga og eiturlyfja- neyslu. Segja má að með reykingum og snúsnotkun séu ungmenni búin að leggja grunninn að fikti við sterkari efni. Eiturlyfjaframleiðendum ekki síður en tóbaksframleiðendum er því mikið í mun að sala á þessum löglegu fíkniefnum gangi vel og sé óhindruð, framboð gott og dreifikerfið öflugt. Núverandi sölukerfi með nánast óteljandi útsölustöðum hlýtur því að vera draumastaða framleiðenda. Hægt er að kaupa t.d. sígarettur á mun fleiri stöðum en mjólkina og það sem meira er, að allt að 90% unglinga á aldrinum 15-17 ára geta óhindrað keypt tóbak. Óhjákvæmilega kemur upp í hugann orðið stjórnvald. Hvar er stjómin og valdið í þessu máli? Dreifing tóbaks (smásala) ætti að vera í höndum ríkisins ef menn ætla sér að minnka söluna - annað hlýtur að teljast mikið vantraust á einka- framtakið. Bara sú breyting að færa söluna til ríkisins gæfi skýr skilaboð sem öllum ættu að vera ljós og bæri jafnframt vott um umhyggju fyrir þegnunum. Það hlýtur líka að teljast skýr ábending um skaðsemi ef verð tóbaks hækkaði verulega. Skilaboðin í dag hljóta að vera þau að lítið mark sé takandi á vísindalegum niður- stöðum, hversu marktækar sem þær nú annars eru að sögn vísindamanna, á meðan hægt er að kaupa tóbak í nánast hvaða verslun sem er og á þokkalega lágu verði. Að lokum er verðugt að velta fyrir sér hvaða skilaboð eru fólgin í því að hafa lögleg fíkniefni inni í neysluvísi- tölunni. Ætli það stuðli að því að þjóðin nái settum markmiðum í fíkni- efnavömum? KRISTJÁN TRYGGVASON, Bakkasíðu 2, Akureyri. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Maestro ÞITT FE HVAR SEM ÞÚ ERT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.