Morgunblaðið - 14.06.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
134. TBL. 88. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FBI rannsakar hvarf tölvubúnaðar
með kjarnorkuleyndarmálum
Njósnir ekki
útilokaðar
Washington. AP, AFP, Reuters.
EMBÆTTISMENN bandaríska
vamarmálaráðuneytisins sögðu í gær
að „mannleg mistök" hefðu getað
valdið því að tölvubúnaðar með há-
leynilegum upplýsingum um banda-
rísk og hugsanlega einnig rússnesk
kjamavopn hvarf fyrir um mánuði.
Bandaríska alríkislögreglan (FBI)
rannsakar nú hvarf búnaðarins sem
var hýstur í hinni þekktu kjamorku-
rannsóknarstöð í Los Alamos-eyði-
mörldnni í Nýju Mexíkó. Um er að
ræða tvo harða diska sem sagðir em
hafa geymt upplýsingar um hvemig
gera megi rússneskar og bandarískar
kjarnorkusprengjur óvirkar. Upplýs-
ingamar vom ætlaðar til nota fyrir
sveit bandarískra sérfræðinga sem
þjálfaðir era í því að gera kjamorku-
sprengjur skaðlausar þegar hætta
stafar af þeim vegna hryðjuverka eða
slysa.
Þingmenn reiðir
„A þessari stundu er ekkert sem
bendir til þess að njósnastarfsemi
tengist málinu," sagði yfirmaður
gagnnjósnadeildar bandaríska orku-
málaráðuneytisins í gær. Aðrir em-
bættismenn á vegum ráðuneytisins
drógu einnig í efa að hvarf hör ðu disk-
anna tengdist njósnum en vildu þó
ekki útiloka það.
Margir þingmenn á Bandaríkja-
þingi hafa gagnrýnt ástand öryggis-
mála í Los Alamos-rannsóknarstöð-
inni vegna hvarfs upplýsinganna.
Þingmenn em einnig reiðir yfirmönn-
um stöðvarinnar fyrir að tilkynna
ekki um hvarfið fyrr en þremur vik-
um eftir að það uppgötvaðist. Yfir-
maður öryggismála í Los Alamos-
stöðinni, Eugene Habiger, sagði í gær
að ekki hefði verið hægt að fram-
kvæma leit í stöðinni vegna umhverf-
iselda sem geisuðu í nágrenni stöðv-
arinnar í síðasta mánuði. Flytja þurfti
alla starfsmenn á brott frá stöðinni
um tíma vegna eldanna.
A síðasta ári kom upp njósnamál í
Los Alamos-stöðinni þegar vísinda-
maður af kínverskum upprana var
handtekinn vegna grans um að hafa
látið Kínveijum í té upplýsingar um
kjarnorkuvígbúnað Bandaríkjanna.
Stöðin er annars þekktust fyrir að þai-
vora fyrstu kjamorkusprengjurnar
smíðaðar fyrir meira en hálfri öld.
Kista Assads borin um götur bæjarins Qardaha, æskustöðva forsetans, þar sem hann var borinn til grafar.
Assad Sýrlandsforseti
lagður til hinztu hvflu
Qardaha í Sýrlandi. Reuters.
HAFEZ al-Assad, fyrrverandi forseti Sýrlands, var lagður til hinztu hvílu í
grafhýsi fjölskyldu sinnar í bænum Qardaha í gær. Assad lézt sl. laugardag.
Mikil sorg ríkti um gervallt Sýrland og grátandi menn bitust um að fá að kyssa
kistu forsetans er komið var með hana til bæjarins, þar sem hann fæddist fyrir
69árum.
Sögulegur leiðtogafundur Suður- og Norður-Kóreu hófst í Pyongyang í gær
Talinn marka tímamót
í samskiptum ríkianna
‘yonffyang. AP, Reuters.
Pyongyang.
KIM Dae-jung, forseti Suður-Kóreu,
lýsti í gær yfir von um að þriggja
daga fundur hans og leiðtoga Norður-
Kóreu, Kim Jong-il, yrði til þess að
sameina aftur meira en milljón fjöl-
skyldur sem hafa verið sundraðar í
hálfa öld vegna átaka ríkjanna. Kim
Dae-Jung kom í gær í sögulega heim-
sókn til Pyongyang, höfuðborgar N-
Kóreu, og heilsuðust leiðtogamir
með handabandi á flugvelli borgar-
innar. Hann er fyrsti suður-kóreski
forsetinn sem heimsækir N-Kóreu en
ríkin hafa formlega átt í stríði síðan
árið 1950.
„Margir meðlimir sundraðra fjöl-
skyldna era að falla frá sökum elli og
við verðum að koma til móts við óskir
þeirra," sagði Kim Dae-jung í ræðu í
kvöldverðarboði í Pyongyang í gær.
Skýrendur telja að Kim Jong-il muni
verða reiðubúinn að fallast á að leyfa
endurfundi fleiri fjölskyldna en nú
era heimilaðir gegn því að S-Kóreu-
menn veiti N-Kóreu aukna efnahags-
aðstoð.
Fundur leiðtoganna er álitinn gríð-
arlega mikilvægt skref í átt til bættr-
ar sambúðar ríkjanna en flestir íbúar
Kóreuskaga líta svo á að þar búi ein
og sama þjóðin. Ríkin sömdu um
vopnahlé eftir þriggja ára styijöld ár-
ið 1953 og hefiir það tæknilega verið í
gildi síðan.
Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-il, og forseti Suður-Kóreu, Kim Dae-
jung, takast í hendur á flugvellinum í Pyongyang í gær.
Nokkuð kom á óvart að Kim Jong-
il skyldi sjálfur taka á móti suður-kór-
eska forsetanum og er sagt að mót-
tökuathöfnin á flugvellinum hafi í
heild verið mun íburðarmeiri en búist
hafði verið við. Herlúðrasveit lék
meðan leiðtogamir gengu fram hjá
heiðursverði hermanna og fylkingu
norður-kóreskra kvenna í þjóðbún-
ingum. Að athöfninni lokinni óku leið-
togamir saman inn í borgina og
hylltu þúsundir manna þá á gang-
stéttum og torgum.
Lagði til að landamærin
yrðu opnuð
f fylgdarliði S-Kóreuforseta era
meðal annarra fjármálaráðherra
landsins og forstjórar fjögurra
stærstu fyrirtækja S-Kóreu. Munu
þeir ræða viðskipti ríkjanna, efna-
hagssamvinnu og fjárfestingar suð-
ur-kóreskra fyrirtækja í N-Kóreu.
Kim Dae-jung sagðist í gær gera
sér vonir um að heimsóknin leiddi til
þess að friður kæmist á og legði
grann að sameiningu í-fkjanna. „Það
er von mín að með þessari heimsókn
muni 70 milljónir Kóreubúa losna
undan óttanum við mögulegt stríð,“
sagði forsetinn. Hann lét þó ekki hjá
líða að benda á að mörg alvarleg
ágreiningsmál spilltu enn samskipt-
um ríkjanna en að stefna bæri að því
að leysa þau eitt í einu. Stakk for-
setinn upp á því að vegir og aðrai-
samgönguæðar milli landanna yrðu
opnaðar. „Þegar það gerist munu allir
Kóreumenn geta ferðast óhindrað
milli landanna og vinna að sáttum,
samvinnu og, á endanum, samein-
ingu.“
Kim Jong-il, sem sjaldan tjáir sig
eða sést opinberlega, sagði að augu
heimsins fylgdust nú með fundi leið-
toganna. „Hvers vegna Kim forseti
kom til Norður-Kóreu og hvers vegna
ég féllst á að hann kæmi er ráðgáta,"
sagði norður-kóreski leiðtoginn. „Við
verðum að svara spumingunni á þeim
tveimur nóttum og þremur dögum
sem helguð era fundinum."
■ „Risastórt skref“/28
Sonur Assads, Bashar, stóð tein-
réttur á meðan syrgjendur hópuðust
umhverfis hann þar sem kistan stóð
sveipuð sýrlenzka fánanum. Bashar
er 34 ára og væntanlegur arftaki föð-
ur síns í embætti. Utförin var jafnt
heit um tryggð við Bashar sem athöfn
til að minnast ljónsins frá Damaskus,
eins og Assad var stundum nefndur.
Meðal þeirra sem stóðu við hlið
Bashars í gær var Emile Lahoud, for-
seti Líbanons, en hann var einn íárra
erlendra leiðtoga sem vora í líkfylgd
Assads alla leið til Qardaha, sem er
um 320 km norðvestur af Damaskus.
Aðrir fulltrúar erlendra ríkja vott-
uðu forsetanum látna virðingu sína
við athöfn í höfuðborginni fyrr um
daginn. Meðal þeirra vora Madeleine
Albright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Jacques Chirac, forseti
Frakklands, Robin Cook, utanríkis-
ráðherra Bretlands, Yasser Arafat,
forseti heimastjómar Palestínu-
manna, Hosni Mubarak, forseti
Egyptalands, Mohammad Khatami,
forseti írans, og Sheik Hassan
Nasrallah, leiðtogi Hizbollah-samtak-
anna.
Fæstir erlendu leiðtoganna þekkja
Bashar en við athöfnina gafst þeim
tækifæri til að ræða við hann. Al-
bright sagðist hafa dáðst mjög að því
hversu ákafur Bashar væri að feta í
fótspor föður síns.
Fréttaskýrendur segja að Assad
hafi í 30 ára stjómartíð sinni skapað
nauðsynlegan stöðugleika í Sýrlandi,
en ekki efnahagsframfarir. Þær, eins
og annað, hafi horfið í skuggann af
deilunum við Israel, og hafi Assad lit-
ið á sig sem arabískan þjóðernis-
sinna. Hann gaf hvergi eftir í deilun-
um um Gólanhæðir, sem Israelar
hertóku 1967 og Sýrlendingar krefj-
ast að verði skilað.
■ Arfleifd ljónsins/30
MORGUNBLAÐH) 14. JUNI 2000
690900 090000