Morgunblaðið - 14.06.2000, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
-
FRÉTTIR
Ingibjörg Narfadóttir hélt upp á 100 ára afmælið í gær
er allt
lífinu“
„Pað
gottí
INGIBJÖRG Narfadóttir hélt upp
á 100 ára afmæli sitt í Kópavogi í
gær ásamt ættingjum, vinum og
venslafólki. Ingibjörg var hress
og kát á afmælisdaginn og tók
undir söng með gestunum en hún
er við ágæta heilsu þó heyrnin sé
farin að daprast. Hún var sér-
staklega ánægð með að fá svo
mörg barnabörn og barnabarna-
börn í afmælisveisluna en Ingi-
björg segir að það sé orðið erfitt
að halda tölu á þeim öllum.
Ingibjörg fæddist þann 13. júní
árið 1900 í Hverakoti x' Grímsnesi
þar sem nú eru Sólheimar en ólst
að mestu upp í Kiðjabergi í
Grímsnesi. Árið 1925 giftist hún
Frímanni Kristófer Schram
Ingvasyni og hóf með honum bú-
skap. Með honum eignaðist hún
fjögur börn sem af er kominn
mikill ættbogi. Ingibjörg fylgist
vel með og les dagblöðin á hverj-
um degi en hún er þó hætt þeirri
iðju sinni að klippa út myndir af
kóngafólki úr blöðunum eins og
hún gerði til margra ára.
Frá því Ingibjörg hóf búskap
hefur hún verið húsmóðir, lengst
af á Grettisgötu 53a en eftir lát
ciginmanns hennar flutti hún að
Hófgerði 20 í Kópavogi þar sem
hún býr með dóttur sinni Katrínu.
„Það er allt gott í lífinu, mér
hefur alltaf liðið vel og ég þakka
Guði fyrir því honum er jú allt að
þakka“ sagði Ingibjörg.
Morgunblaðið/Þorkell
Ingibjörg Narfadóttir hélt í gær upp á 100 ára afmæli sitt ásamt vinum
og vandamönnum.
6árastúlka i
hætt kom-
in í koju
UMBOÐSMANNI barna barst í
morgun erindi um sex ára stúlku
sem lenti í stórhættu um hvítasunnu-
helgina þegar hún og fjölskylda |
hennar dvöldu í sumarbústað sem
þau höfðu tekið á leigu.
Málavextir eru þeir að stúlkan,
sem var sofandi í efri koju, hafði í
svefni runnið undir öryggisgrind í
kojunni með þeim afleiðingum að
hún hékk á höfðinu en haka hennar
hafði skorðast milli rimla á öryggis-
grindinni.
Stúlkan gat varla komið frá sér
hljóði en eldri bróðir hennar vaknaði
við uml og gat bjargað henni, að því |
er segii- í fréttatilkynningu frá Ar- |
vekni, átaksverkefni um slysavarnir
barna og unglinga, en þangað sendi *
umboðsmaður barna erindið.
Hvetur Árvekni fólk til að huga að
því að bil í öryggisgrindum á kojum
séu ekki á stærðarbilinu 9-23 senti-
metrar því það sé það bil sem börn
geti auðveldlega hengst í.
Framkvæmdum miðar vel við Grafarvogskirkju
Kirkjuklukkur og gler-
listaverk komin upp
GLERLISTAVERKI eftir Leif Breiðfjörð, sem verða
mun eitt af megindjásnum Grafarvogskirkju, var komið
fyrir á endanlegum stað í kirkjunni um hvítasunnuhelg-
ina. Listaverkið sem ber nafnið „Kristnitakan" er gjöf
frá ríkisstjóm íslands til Grafarvogssöfnuðar og þá sér í
lagi bama safnaðarins. Verður verkið formlega afhent
við vígslumessu kirkjunnar næstkomandi sunnudag, 18.
júní.
Listaverkið er um fimmtán metrar á hæð og sex
metrar á breidd og mun þjóna sem hvort tveggja, altar-
isgluggi og altaristafla kirkjunnar. Það sýnir kristnitök-
una árið 1000 og fer vel á því að mati sr. Vigfúsar Þórs
Amasonar sóknarprests að á kristnihátíðarári fái fjöl-
mennasti, yngsti og bamflesti söfnuður landsins slíka
gjöf.
fwmái&mis
Kirkjuklukkur settar upp í gær
Morgunblaðið/Jim Smart
í gærmorgun var tekið á móti nýjum kirkjuklukkum
Grafarvogskirlgu og þeim komið fyrir á sínum endan-
lega stað í kirkjuturni. Er hér um að ræða þrjár klukkur
sem smíðaðar voru í Belgíu. Á tvær þeirra em letruð er-
indi úr sálmi sem Sigurbjörn Einarsson biskup orti sér-
staklega sem gjöf til Grafarvogsbúa á þessum tímamótum
en á þeirri þriðju er sálmur Helga Hálfdanarsonar, „Nú
gjaldi Guði þökk“. Verður sálmur Sigurbjarnar frumfluttur
við lag Þorkels Sigurbjömssonar í vígslumessunni sem
verður, eins og áður sagði, sunnudaginn 18. júní kl. 13:30.
Hafnarey
fékk á sig
brotsjó
SKUTTOGARINN Hafnarey SF 36
fr á Höfn í Hornafirði fékk á sig brot-
sjó um 80 mílur suður af Færeyjum
um sexleytið í gærmorgun. Gert var
ráð fyrir að togarinn næði landi á
Hjaltlandseyjum um eða eftir mið-
nætti liðna nótt.
Sjö era í áhöfn Hafnareynnar og
sakaði ekki. Rúður í brúargluggum
togarans brotnuðu hins vegar og
sjór komst að siglingatækjum, sem
era ónýt. Skemmdir urðu þó ekki á
stýri eða vélarbúnaði og fyrir vikið
gat togarinn siglt fyrir eigin afli til
næstu hafnar.
Hafnarey var á leið til Hull á Eng-
landi í söluferð með um 50 tonna afla,
ýsu og þorsk. Hún er 150 tonn, í eigu
Krosseyjar ehf. á Hornafirði.
Danska varðskipið Triton fylgdi
togaranum til hafnar.
Andlát
OTTÓ A.
MICHELSEN
LÁTINN er í Reykja-
vik Ottó A. Michelsen
fr. forstjóri IBM á
íslandi 80 ára að aldri.
Ottó var fæddur 10.
júní árið 1920 á Sauð-
árkróki. Foreldrar
hans voru Jörgen
Frank Michelsen
úrsmiður á Sauðár-
króki, fæddur árið
1882 í Horsens í
Danmörku og Guðrún
Pálsdóttir fædd árið
1886 á Draflastöðum í
Eyjafjarðarsýslu.
Ottó nam skriftvéla-
tækni í Þýskalandi og Danmörku
auk þess sem hann sótti nám um
gerð skýrslutæknivéla. Við heim-
komuna stofnaði Ottó Skrifstofu-
vélar hf. og gegndi stöðu fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins frá
árinu 1946 til 1967. Ottó varð for-
stjóri IBM á íslandi árið 1967 þeg-
ar sjálfstætt útibú fyrirtækisins
var sett á fót hér á landi. Árið
1987 seldi Ottó fyrirtæki sitt Skrif-
stofuvélar hf. Frá þeim tíma til
dauðadags var hann stjórnar-
formaður eignarhaldsfélagsins
Ottó ehf. Ottó flutti
til landsins fyrsta raf-
reikninn, IBM 1620, |
og var brautryðjandi
á sviði tölvuvæðingar
á íslandi.
Ottó gegndi fjölda
trúnaðarstarfa fyrir
þjóðkirkjuna, Reykja-
víkurborg, hið opin-
bera og samtök at-
vinnulífsins.
Árið 1997 komu út
æviminningar Ottós í
samantekt Jóhannes- |
ar Helga.
Árið 1983 var Ottó
sæmdur Riddarakrossi Hinnar ís-
lensku fálkaorðu. Heiðursfélagi í
Skýrslutæknifélagi íslands 1988
og íslenska mannfræðifélaginu
1989. Kjörinn í heiðursráð Krabba-
meinsfélags íslands árið 1990.
Ottó hlaut fjölda annarra viður-
kenninga fyrir störf að þjóðfélags-
og líknarmálum.
Eftirlifandi eiginkona Ottós er
Gyða Jónsdóttir, heimilisiðnaðar-
kennari. Ottó lætur eftir sig sex
uppkomin börn.
KOLBEINN
FRIÐBJARNARSON
KOLBEINN Frið-
bjarnarson, fyrrver-
andi formaður Verka-
lýðsfélagsins Vöku og
bæjarfulltrúi á Siglu-
firði, lést á heimili
sínu hvítasunnudaginn
11. júní síðastliðinn,
68 ára að aldri.
Kolbeinn fæddist 3.
október 1931 á Siglu-
firði. Foreldrar hans
voru hjónin Friðbjörn
Níelsson, skósmiður,
kaupmaður og bæjar-
gjaldkeri og Sigríður
Stefánsdóttir, frá Mó-
skógum í Fljótum í Skagafirði. Kol-
beinn varð gagnfræðingur árið
1947. Hann starfaði við sjó-
mennsku og sem verkamaður á
Siglufirði þar til hann hóf störf hjá
Verkalýðsfélaginu Vöku og Lífeyr-
issjóði verkalýðsfélaganna á Norð-
urlandi.
Kolbeinn var kosinn í stjórn
Verkamannafélagsins Þróttar
1961, en það var síðar sameinað
Verkakvennafélaginu
Brynju og gefið nafnið
Verkalýðsfélagið
Vaka. Var Kolbeinn
formaður Vöku frá
1974 til 1986. Hann
átti einnig sæti um
áratugaskeið í sam-
bandsstjórn Alþýðu-
sambands Norðui'-
lands frá árinu 1963
og var í miðstjórn þess
frá 1969. Kolbeinn átti
einnig sæti í sam-
bandsstjórn ASÍ um
langt árabil frá árinu
1977 og í sambands-
stjórn Verkamannasambands ís-
lands frá 1977. Kolbeinn var kjör-
inn bæjarfulltrúi á Siglufirði 1966
fyrir Alþýðubandalagið og átti sæti
í bæjarstjórn í nokkur kjörtímabil.
Kolbeinn kvæntist Guðnýju
Soffíu Þorvaldsdóttur 30. desem-
ber 1958. Lifir hún mann sinn.
Eignuðust þau fjögur börn og eru
þrjú þeirra á lífi. Kolbeinn átti eina
dóttur fyrir hjónaband.