Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flugmenn semja
Geta óskað
eftir starfs-
lokasamn-
ingi 60 ára
FLUGMENN geta, samkvæmt nýj-
um kjarasamningi Félags íslenskra
atvinnuflugmanna og Flugleiða, ósk-
að eftir starfslokasamningi 60 ára.
Flugmenn mega starfa til 65 ára
aldurs.
Kjarasamningur FÍA og Flug-
leiða var samþykktur í síðustu viku,
en samningurinn gildir til 15. sept-
ember 2003. Hann gerir ráð fyrir
hagræðingu í sambandi við hvíldir
og fleira. Vaktaálag er einnig hækk-
að.
Franz Ploder, formaður FÍA,
sagði að með samningnum væri búið
að búa til ramma um starfslok flug-
manna, en hann gerði ráð fyrir að
starfslok hvers og eins væru reiknuð
samkvæmt tilteknum forsendum.
Samningarnir gætu því verið mis-
munandi. Flugmenn ættu ekki
skýlausan rétt á starfslokum sextug-
ir heldur yrði að nást um það sam-
komulag við Flugleiðir. Frans sagði
að áhugi væri hjá ákveðnum hópi
manna að hætta fyrr m.a vegna þess
að álag á eldri flugmenn hefði aukist.
Franz sagði að kjarasamningur-
inn gerði einnig ráð fyrir þeirri nýj-
ung að flugmenn gætu verið í hluta-
störfum, en um væri að ræða ákvæði
svipað því sem hefði verið í kjara-
samningi flugfreyja.
FIA á eftir að gera samning við
Islandsflug. Franz segist ekki úti-
loka að kjaradeilunni verði vísað til
ríkissáttasemjara í dag.
Flugfreyjur sömdu við íslands-
flug um helgina og hefur félagið þar
með lokið að semja fyrir alla félags-
menn. Samningurinn, sem gildir til
september 2003, verður kynntur fyr-
ir félagsmönnum í vikunni. Hann
nær til tæplega 20 flugfreyja.
Frá hátíðarmessunni í Viðeyjarkirkju.
Morgunblaðið/Kristinn
Hátíðarmessa og sýn-
ingaropnun í Viðey
Á ANNAN í hvítasunnu var
óvenjuleg hátíðarmessa í Viðey
þegar í fyrsta sinn í lútherskum
sið hér á landi var líkt eftir þeim
móttökum er biskupar fengu er
þeir vísiteruðu klaustur í umdæm-
um sínum.
Skálholtsbiskup, Sigurður Sig-
urðarson, kom þá siglandi til Við-
eyjar á ferjunni Maríusúð í fullum
biskupsskrúða með mítur og bag-
al en staðarhaldari og dómkirkju-
prestar, organisti, kórfólk og
söfnuður fögnuðu honum sem
staðgenglar klausturfólks. Farið
var syngjandi við klukknahring-
ingu í prósessíu á móti biskupi og
fylgdarliði niður á bryggju. Þar
bauð staðarhaldari herra Sigurð
velkominn og að því Ioknu hélt
prósessían syngjandi til kirkju,
þar sem biskup prédikaði og þjón-
aði fyrir altari ásamt dómkirkju-
prestum. Messan var öll með
fornum hætti og meðal annars
lesið úr Nýjatestamenti Odds
Gottskálkssonar.
Að athöfn lokinni bauð Helgi
Hjörvar, forseti borgarstjórnar,
til veitinga í Viðeyjarstofu. Hann
opnaði síðan formlega sýninguna
Klaustur á íslandi sem sett hefur
verið upp í Viðeyjarskóla, en þar
er um að ræða fyrstu yfirlits-
sýninguna um klaustur á íslandi.
Aðsókn fram úr
björtustu vonum
Að sögn sr. Þóris Stephensen,
staðarhaldara í Viðey, fór aðsókn
að messunni fram úr björtustu
vonum, en 198 manns keyptu sér
far með ferjunni og heildarfjöldi
við athöfnina hefur því verið á
milli 210 og 220 manns. Þá spillti
veðrið heldur ekki fyrir, því sólin
skein á sund og fjallat inda er
biskup vék sér í Viðeyjarklaustur.
Norrænt almannatryggingamót hefst í Reykjavík í dag
Leitað nýrra lausna
í velferðarmálum
NÝ ÖLD - NÝJAR LAUSNIR er yfirskriftin á
Norrænu almannatryggingamóti sem haldið verð-
ur í Reykjavík dagana 14.-16. júní. Á mótinu verð-
ur fjallað um norræna velferðarkerfið og almanna-
tryggingar í breiðari skilningi en alla jafna er gert.
Um 30 fyrirlesarar, sem allir eru leiðandi á sínu
sviði, munu taka þátt í mótinu. Fjallað verður um
ýmis svið velferðarsamfélagsins, meðal annars
siðferðilegan grundvöll þess og áhrif aukinnar al-
þjóðavæðingar og tölvuvæðingar á almannatrygg-
ingar. Meðal fyrirlesara á mótinu verður Kári
Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar,
sem talar um áhrif erfðafræðilegra rannsókna á
almannatryggingakerfið.
Viðamikil og íjölntenn ráðstefna
Norræna almannatryggingamótið er fjölmenn-
asta og viðamesta ráðstefna sem haldin hefur ver-
ið á íslandi um þessi efni, en þátttakendur eru um
300 að tölu, flestir fulltrúar velferðarstofnana og
ráðuneyta á Norðurlöndunum. Jón Sigurðsson,
bankastjóri við Norræna fjárfestingarbankann,
verður aðalræðumaður mótsins og heldur opnun-
arerindið, en Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra mun setja mótið. í lok móts munu fag-
menn leitast rið að draga saman niðurstöður
mótsins og álykta út frá þeim.
Norræna almannatryggingarmótið er haldið á
fjögurra ára fresti og er þar fjallað um almanna-
ti-yggingar, félagslegt öryggi, atrinnuleysistrygg-
ingar og heilbrigðismál. Fyi-sta mótið var haldið
árið 1935 en 20 ár eru síðan mótið var síðast haldið
hér á landi. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið, Félagsmálaráðuneytið, Tryggingastofnun
ríkisins og Vinnumálastofnun hafa veg og vanda af
mótinu.
Hríseyjan siglir
með Islendingi
HRÍSEYJAN EA 410 verður
fylgdarskip víkingaskipsins ís-
lendings á ferð þess síðarnefnda
vestur um haf í sumar.
Hríseyjan er 461 brúttótonns
ísfisktogari úr flota Samherja,
en hún mun fá heldur breytt
hlutverk frá því að hún leggur,
ásamt íslendingi, úr höfn í
Reykjavík á þjóðhátíðardaginn
17. júní.
Að sögn Heimis Más Péturs-
sonar, framkvæmdastjóra verk-
efnisins „íslendings 2000“, verð-
ur meginhlutverk Hríseyjunnar
að tryggja öryggi skipverja á
íslendingi, en jafnframt verða
um borð í Hríseyjunni fjölmiðla-
menn og kvikmyndagerðarmenn
sem vinna munu að heimilda-
mynd um siglinguna.
Sigling íslendings hefst eins
og áður sagði 17. júní og áætlað
er að henni ljúki 5. október í
New York. Hafa fjölmargir er-
lendir fjölmiðlamenn boðað
komu sína hingað til lands til að
fylgjast með brottförinni, en
siglingin er farin í tilefni af 1000
ára landafundaafmælinu.
Jesúganga í
miðbænum
JESÚGANGA fór fram í mið-
bænum á laugardaginn og
stóðu íslensku söfnuðirnir Veg-
urinn, Ffladelfía, Krossinn,
Frelsið og íslenska kristkirkjan
fyrir henni.
Jesúgangan er alþjóðleg en
gengið er í nafni Jesú einu sinni
á ári víðsvegar um heiminn. Is-
lenskir göngumenn hittust á
Ingólfstorgi en þaðan var geng-
ið um miðbæinn og í kringum
Tjörnina. Að lokinni göngu var
haldin bænastund á Ingólfs-
torgi, þar sem meðal annars
var beðið fyrir landi og þjóð en
einnig fyrir börnum heims, sem
víða búa við mikla neyð.
Morgunblaðið/Kristinn
Göngumenn voru fjölmargir.
Þrjár
konur í
ránsleið-
angri
ÞRJÁR reykriskar rinkonur
um þrítugt voru handteknar í
Keflavík sl. föstudag með varn-
ing að verðmæti 30-40 þúsund
krónur sem þær höfðu hnuplað í
4-5 verslunum þar í bæ, að sögn
lögreglunnar í Reykjanesbæ.
Konurnar voru á bifreið og
leikur grunur á að ökumaður-
inn hafi bæði verið ölvaður og
undir áhrifum fíkniefna en
rannsókn á eftir að staðfesta
hvort sá grunur sé á rökum
reistur. Tilkynning barst til lög-
reglu úr einni versluninni sem
konurnar höfðu komið við í en
þær höfðu lagt leið sína í fata-
verslanir, gjafavöruverslun,
búsáhaldaverslun og matvöru-
verslun í leiðangrinum til Kefla-
víkur. Mestu verðmætin voru
talin vera í fatnaði sem þær
tóku ófrjálsri hendi í einni
verslun en annars voru konurn-
ar með ýmiss konar varning í
fóium sínum er þær voru hand-
teknar.
Konumar voru handteknar
síðdegis á föstudag og ristaðar í
fangaklefa þar til þær voru yfir-
heyrðar seinna um kvöldið. Að
loknum yfirheyrslum vai’ þeim
sleppt.
166 kærðir
fyrir of hrað-
an akstur
LÖGREGLAN á Blönduósi
kærði 166 ökumenn fyrir of
hraðan akstur um síðustu helgi.
Enn fleiri ökumenn voru stöðv-
aðir og upplýstir um hættuna af
hraðakstri og var það liður í
umferðarátaki lögreglunnar á
Blönduósi.
Að sögn lögreglu voru ekki
slegin met hvað varðar kærur
fyrir of hraðan akstur þessa
helgi þótt annasamt hafi verið.
Sá sem hraðast ók mældist á
143 km hraða og var hann jafn-
framt grunaður um ölvunar-
akstur.
Islandsmeist-
ari í gler-
kúluspili
íslandsmeistaramótinu í gler-
kúluspili lauk á mánudag, en
mótið var haldið var í Fjöl-
skyldu- og húsdýi’agarðinum í
Laugardal.
Um það bil 300 manns tóku
þátt í keppninni um helgina, en
á mánudag fór framlO manna,
hörkuspennandi úrslitakeppni.
Islandsmeistari varð 11 ára
drengur af Seltjarnarnesi,
Helgi Rúnar Heiðarsson. Helgi
sýndi góða takta og segja
keppnishaldarar hann eiga
góða möguleika í heimsmeist-
arakeppninni sem fram fer í
strandbænum Royan á vest-
urströnd Frakklands í ágúst.
Fannst
heill á hufí
TÓLF ára gamall drengur kom
í leitirnar um helgina en hans
hafði verið saknað síðan á
mánudag. Lögreglan í Reykja-
vík lýsti eftir drengnum en
hann kom í leitirnar sl. sunnu-
dag heill á húfi.