Morgunblaðið - 14.06.2000, Side 11

Morgunblaðið - 14.06.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 11 FRÉTTIR Æfíngunni Samverði 2000 lokið Seinni æfingin tókst mjög vel FJÖLÞJÓÐLEGU vettvangsæfing- unni Samverði 2000 lauk á sunnudag en á fjórtánda hundrað manns frá sjö löndum tóku þátt í æfingunni. Atburðarás æfingarinnar snerist um björgun úr hafsnauð og tókst æfing- in vel að sögn Sólveigar Þorvalds- dóttur framkvæmdastjóra Al- mannavarna ríkisins. Sagði hún ljóst að þeir sem störfuðu að almanna- vörnum hér á Islandi væru reynsl- unni ríkari og að draga mætti mik- inn lærdóm af æfingunni. „Við erum mjög ánægð en þetta er búið að vera gríðarleg vinna og álagið hefur verið mikið á starfsfólk Almannavarna,“ sagði Sólveig. Sjálf hafði hún yfirumsjón með skipulagningu æfingarinnar sem fól í sér björgun næstum 300 manns úr skipi í hafsnauð, flytja þurfti fólkið í land og veita því hjúkrun, svo eitt- hvað sé nefnt. Var í þessu skyni not- ast við ýmsan búnað sem þátttöku- þjóðirnar fluttu hingað til lands sérstaklega fyrir æfinguna. Jafn- framt komu bæði Landhelgisgæslan og Tilkynningaskyldan að æfingunni með allan sinn búnað og starfslið. Skýrsla væntanleg um lærdóm- inn sem má draga af æfíngunni Æfingin var keyrð tvisvar sinn- um, fyrst á laugardag en í lok dags- ins var farið yfir það sem aflaga hafði farið. „Að sjálfsögðu er alltaf eitthvað sem má betur fara,“ sagði Sólveig. „Þar má nefna upplýsinga- streymi frá vettvangi í stjórnstöðv- ar, notkunin á þyrlunum mátti vera markvissari og einnig var beðið um að fjarskiptin væru í ríkari mæli lát- in fara fram á ensku, sérstaklega varðandi bátana sem tóku þátt.“ A sunnudag var síðan æfingin endurtekin nánast frá byrjun og Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Hlilð að fdrnarlömbum ímyndaðs sjóslyss um helgina. gekk þá allt saman mun betur að sögn Sólveigar. í framhaldinu verð- ur gefin út skýrsla um vettvangsæf- inguna þar sem fram mun koma hvað má læra af æfingunni sem slíkri en Sólveig sagði að einhver tími myndi þó líða þar til skýrslan liti dagsins ljós. Ymis önnur verk sem hvíla á herðum Almannavarna hefðu þurft að sitja á hakanum vegna Samvarðar 2000 og í þau yrði ráðist núna. Verð frá 1.678.000 kr. Söluráðgjafar okkar gera það líka þessa dagana Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1220 Renault Laguna — með enn meiri búnaði Nú er retti túninn til að kaupa Renault Laguna því söluráðgjafar okkar eru í séretökum gír í tilefni sumarsins. Það þýðir að þrátt fyrir að Laguna sé hlaðin óvenjumiklum staðalbúnaði er aldrei að vita hvað fylgir með í kaupunum. Komdu og spjallaðu við söluráðgjafa Renault. Það er aldrei að vita hvað þeir gera fyrir þig. RENAULT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.