Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000. MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skólaslit Tón- listarskólans í Reykjavík TÓNLISTARSKÓLANUM í Reykjavík var slitið 26. maí sl. í Háteigskirkju í 70. sinn. Strengja- sveit Tónlistarskólans, undir stjórn Mark Reedman, lék þrjá þætti úr Apollon Musagéte eftir Igor Strav- inskí. Skólastjórinn, Halldór Har- aldsson, flutti ræðu um helstu at- burði skólaársins og minntist frú Hermínu S. Kristjánsson sem lést í desember sl. 95 ára að aldri. Frú Hermína starfaði við skólann í 30 ár, stofnaði píanókennaradeild skólans og átti mikinn þátt í upp- byggingu hans. í lok ræðu sinnar minnti skólastjóri á að Tónlistar- skólinn verður 70 ára á þessu ári, en hann var stofnaður 5. október 1930. Haldið verður upp á sjötugs- afmæli skólans í haust, m.a. með hátíðartónleikum í Háskólabíói. Að lokinni ræðu afhenti Halldór þeim nemendum sem nú útskrifuðust skírteini sín. Að þessu sinni braut- skráðist 21 nemandi frá skólanum með 24 lokapróf en þrír nemendur luku tvenns konar prófum. Tveir nemendur luki tónmenntakennara- prófi, fimm nemendur blásarakenn- araprófi, einn fiðlukennaraprófi, fjórir píanókennaraprófi, fimm burtfararprófi, sex einleikaraprófi og einn lokaprófi frá tónfræðideild. Skólaárið hófst með námskeiði tveggja kennara frá Guildhall School of Music and Drama í skap- andi tónlist og tónlistarmiðlun. Námskeiðið var stærsta og fjöl- mennasta námskeiðið til þessa og lauk því með stórtónleikum í Ráð- húsi Reykjavíkur. A þessu skólaári sóttu ýmsir aðrir erlendir gestir skólann heim og héldu námskeið fyrir nemendur og kennara. Þar er helst að nefna námskeið pólska sellóleikarans Roman Jablonsky og píanóleikarans Martino Trimio sem hélt námskeið í skólanum í sam- vinnu við íslandsdeild EPTA. Föstudagsfyrirlestra héldu Gunn- hildur Ottósdóttir sjúkraþjálfari um helstu kvilla sem hrjá tónlistar- menn, leiðir til úrbóta og fyrir- byggjandi aðgerðir, Atli Heimir Sveinsson, tónskáld fræddi nem- endur um verk sitt Tíminn og vatn- ið, Runólfur Þórðarson verkfræð- ingur kynnti nemendum upptökur af þekktum tónskáldum leika verk sín og dr. Arni Björnsson þjóð- háttafræðingur hélt fyrirlestur sem hann nefndi Wagner og Völsungar og fjallaði um Niflungahring Richard Wagners. .. Nemendur sem brautskráðust frá Tönlistarskólanum í Reykjavík ásamt skólastjóranum, Halldóri Haraldssyni. Tónleikahald var með mesta móti á þessu skólaári en 60 tónleikar voru haldnir á vegum skólans, þar af 25 opinberir tónleikar utan skól- ans og 35 innan hans. Af þessum tónleikum voru tvennir hljómsveit- artónleikar þar sem m.a. voru flutt- ar Eroica sinfónía Beethovens og Pathétique sinfónía Tjaíkovskís, tvennir strengjasveitartónleikar, tvennir kammertónleikar og at- hyglisverðir tónleikar tónfræði- deildar þar sem tónskáld skólans kynntu ný verk sín. Á skólaslitunum veitti Listasjóð- ur Tónlistarskólans í Reykjavík þremur nemendum viðurkenningu með bókagjöf fyrir framúrskarandi árangur í námi, þeim Margréti Árnadóttur, sem lauk einleikara- prófi, Steinunni Arnbjörgu Stef- ánsdóttur, sem einnig lauk einleik- araprófi og Birnu Helgadóttur, sem lauk píanókennaraprófi. Fyrir hönd nemenda sem nú brautskráðust talaði Ingunn Jóns- dóttir, en nemendurnir gáfu skól- anum vandaðan geislaspilara ásamt myndarlegri gjöf geisladiska. Að þessu sinni gaf 60 ára júbílant Anna Sigríður Björnsdóttir, sem útskrifaðist úr skólanum 1940, skólanum sögulega mynd og grein um tónlistarmál fyrr á öldinni. Ingvar Jónasson 50 ára júbílant ávarpaði kennara og nemendur og gaf skólanum þjóðlagasafn séra Bjarna Þorsteinssonar. Árni Arin- bjarnarson var fulltrúi 40 ára júbíl- anta sem gáfu skólanum myndavél. Að lokum flutti svo Jónas Ingi- mundarson ræðu fyrir hönd 35 ára júbílanta sem gáfu safni skólans peningagjöf til bóka- eða diska- kaupa. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti útskrifar 202 nemendur Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Nýstúdentar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja setja upp hvfta kollinn eftir að hafa verið brautskráðir frá skólanum en að þessu sinni lauk 51 nem- andi stúdentsprófi. Fjölbrautaskóla Suðurnesja 81 nemandi brautskráður á vorönn Morgunblaðið/Jón Svavarsson Brautskráning í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti fór fram 26. maí sl. og hlutu þessir nemendur viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Keflavík - Fjölbrautaskóla Suður- nesja var nýlega slitið við hátíð- lega athöfn að viðstöddu fjölmenni á sal skólans. Að þessu sinni voru brautskráðir nemendur 81 og þar af var 51 sem lauk stúdentsprófi. Alls voru 680 nemendur í dagskóla á vorönninni en nemendur í öld- ungadeild voru 170. Ásdís Jóhannesdóttir hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi en hún útskrifaðist af þrem brautum, eðlisfræði-, náttúru- og málabraut. Ásdís hlaut viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í íslensku, dönsku, ensku, þýsku, frönsku og í raungreinum. Aðrir nemendur sem hlutu við- urkenningar á stúdentsprófi voru: Jakob Snævar Ólafsson fyrir góð- an árangur í þýsku og hagfræði- greinum, Kolbrún Fanngeirsdóttir fyrir þýsku, stærðfræði og raun- greinar og Svava M. Sigurðardótt- ir fyrir íslensku, efnafræði, þýsku, stærðfræði og dönsku. Að venju stóðu nemendur skól- ans sjálfir að skemmtidagskránni við athöfnina og þar komu fram: Jón Björnsson nýstúdent sem lék á valdhorn við undirleik Ragnheið- ar Skúladóttur og Heimir Sverris- son nýstúdent lék á harmonikku. Ólafur Jón Arnbjörnsson skóla- meistari brautskráði nemendur og Kristján Ásmundsson aðstoðar- skólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. FJÖLBRAUTASKÓLANUM í Breiðholti var slitið 26. maí sl. Þetta var í 53. sinn sem skólinn útskrifar nemendur, en hann verður 25 ára næsta haust. I yfirlitsræðu Kristínar Arnalds skólameistara kom eftirfarandi fram: 1357 nemendur innrituðust í dag- skóla á þessari vorönn og um 840 nemendur í kvöldskóla. Kennarar og starfsfólk eru um 140. Að þessu sinni fá 202 nemendur afhent lokaprófs- skírteini, af þeim eru 71 nemandi á starfsnámsbrautum og 120 nemend- ur sem Ijúka stúdentsprófi. Samtals hafa því 323 nemendur fengið afhent lokaprófsskírteini á þessu skólaári. í vor skiptast útskriftarnemendur eftir brautum sem hér segir: 18 nem- endur luku prófum af eins árs braut- um, 11 nemendur af tveggja ára brautum, 53 nemendur af þriggja ára brautum og loks luku 120 nem- endur stúdentsprófi. Erlend samskipti eru vaxandi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. 15 manns frá fjölmörgum löndum komu í heimsókn í október. Hópurinn var að kynna sér starfið á starfsbraut FB og var þetta liður í evrópsku verkefni. 40 Norðmenn komu á eigin vegum til að kynna sér áfangakerfið. Nemendur frá Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Ítalíu og Álandseyjum komu á vegum listasviðs, heilbrigðis- sviðs, viðskiptabrautar og tréiðna- brautar. Nemendur og kennarar snyrti- brautar F.B. stóðu íyrir glæsilegri aldamótasýningu í apríl. Sýnd var fórðun, hárgreiðsla, fatnaður og um- gjörð allt frá tímum Egypta fram til dagsins í dag og reyndar aðeins lengra fram í tímann. Undirbúningur hafinn að námi í arkitektúr Mikil gróska er á listasviði skól- ans. Á þessari önn hófst undirbún- ingsnám fyrir arkitektúr, en slíkt nám hefur ekki verið í boði hérlendis áður. Nemendur fengu 1. verðlaun í samkeppni um framtíðarskipulag Reykjavíkur sam haldin var á vor- önn, en einn af kennurum skólans fór á haustönn til Danmerkur til þess að kynna sér uppbyggingu námsins. UT-braut Fyrir ári síðan gerði menntamála- ráðuneytið samning tO fjögurra ára við Fjölbrautaskólann í Breiðholti um tilraunakennslu á Upplýsinga- og tæknibraut. Verkefnið felur í sér námskrárgerð, þróun nýrra kennsluhátta og tilraunakennslu. Upplýsinga- og tæknibraut er ætlað að koma til móts við nemendur sem hafa brennandi áhuga á tækninámi og vilja ljúka stúdentsprófi. Þessi braut er nú eingöngu í boði við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti, en ef vel tekst til verður hún væntanlega í boði við aðra framhaldsskóla. Skólinn fékk fyrir nokkrum dög- um 2 milljónir króna til þess að vinna að 4 verkefnum á sviði þróunarmála. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er fyrsti og í dag eini framhaldsskólinn sem stendur fyiir skipulegu al- mennu námi í sumarskóla. I sumar verður boðið upp á 50 námsáfanga og stunda rúmlega 450 nemendur nám við skólann. Hinn 4. október nk. eru 25 ár síðan Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hóf starfsemi sína. Verður þessara tíma- móta minnst með margvíslegum hætti dagana 4.-7. október nk. Myndlistarsýningar núverandi og fyrrverandi nemenda verða haldnar svo og sögusýning, tónlistarkvöld og menningarkvöld. Ópið hús verður í tengslum við afmælið til að kynna Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Af- mælisrit verður gefið út og geisla- diskur með lögum nemenda skólans. Hátíðinni lýkur síðan með afmælis- dansleik í íþróttahúsi FB. ,Agætu nemendur, sem útskrifist frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í dag. Þið hafið nú hvert ykkar náð ákveðnum áfanga á menntabraut- inni, sem eru mjög ólíkir vegna þess hve skólinn hefur getað boðið upp á fjölbreytilegt nám. Sumir ykkar láta hér e.t.v. staðar numið og halda út í lífsbaráttuna, en aðrir huga á frek- ara nám. Hvom kostinn sem þið velj- ið, þá er það ósk mín að það vega- nesti sem þið hafið fengið í skólanum megi nýtast ykkur vel, sagði Kristín Arnalds m.a. í skólaslitaræðu sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.