Morgunblaðið - 14.06.2000, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 14.06.2000, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ starfi Þjóðminjasafnsins, bæjaryfirvalda og Byggða- safns bæjarins og sýndu bæj- aryfirvöld málinu fullan áhuga. Miðað við þau áform sem nú séu uppi í Hafnarfirði stefni í að málum verði komið í fyrirmyndarform í bænum. „Það er fullur áhugi á að koma í veg fyrir að þetta ger- ist aftur en þetta getur gerst og hefur gerst víða um land þar sem merkingum er áfátt,“ sagði Margrét. Morgunblaðið/Þorkell Skráðum fornleifum eytt og raskað í Aslandi Svæðið skipulagl yfír fornleifar SKRÁÐUM fornleifum hefur verið eytt og raskað við fram- kvæmdir í Aslandi í Hafnar- firði. Þjóðminjasafnið hefur skrifað bæjarstjórn bréf vegna málsins en Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminja- vörður segir að þessi mistök hafi verið gerð vegna þess að svæðið var skipulagt yfir fornleifarnar. Voru á skrá I bréfi þjóðminjavarðar til bæjaryfirvalda segir að forn- leifadeild Þjóðminjasafnsins hafi annast fornleifaskrán- ingu fyrir Hafnarfjarðarbæ vegna samkeppni um skipu- lag í Áslandi og Grísanesi. Auk skrár um fornleifar á svæðinu, m.a. um þær sem nú hafi verið spillt, séu í skýrsl- unni ítarlegar tilvísanir í lög, sem eigi að tryggja varð- veislu fornleifa og vernda þær fyrir raski. „Skipulagsyf- irvöldum í Hafnaiíirði mátti því vera vel kunnugt bæði um fornminjarnar og reglur sem um þær gilda,“ segir í bréfinu og jafnframt kemur fram að í inngangi skýrslunnar segi að eitt af markmiðum fornleifa- skráningar sé að sporna gegn því að minjar verði fyrir skemmdum af gáleysi eða að nauðsynjalausu. „Þjóðminja- varslan undrast að þessar ráðstafanir hafi reynst ófull- nægjandi og leyfir sér að fara fram á skýringar á því hvers vegna fyrrgreindum fornleif- um var raskað,“ segir í bréf- inu. Þar er óskað eftir við- ræðum við bæjarstjóra og fulltrúa bæjarskipulags vegna málsins og ítrekað að enn hafi ekki fengist fjárveit- ing til að Ijúka vettvangs- vinnu við fullnaðarskráningu fornleifa í landi Hafnarfjarð- ar sem þó sé komin nokkuð á veg. Fornleifarnar sem fram kemur í bréfi þjóðminjavarð- ar að hafi verið raskað eru bæjarstæði Stekkjar, sem er talinn hafa verið þurrabúð í Áslandi sem í örnefnaskrá segi að hafi fyrst byggst um 1830. Einnig stekkstúngarð- ur, sem í skráningarskýrsl- unni segir að sjáist enn greinilega og sé 80-120 sm hár og sjáist gijóthleðslur vel á köflum. Einnig hafi tóft í túngarðinum að norðanverðu verið raskað sem og tóftum útihúsa rétt innan við garðinn þar sem grjóthleðslur sjáist greinilega í veggjum. I samtali við Morgunblaðið sagði Margrét Hallgríms- dóttir þjóðminjavörður að þarna hefðu orðið mannleg mistök sem leitt hefðu til þess að fornleifarnar hefðu rask- ast við framkvæmdir. Ekki gert ráð fyrir minjunum „Það var ekki gert ráð fyrir þessum minjum og skipulagt yfir þær,“ sagði Margrét. „Við uppgötvuðum þetta þeg- ar við áttum leið fram hjá.“ Hún sagði að eftir viðræð- ur við bæjaryfirvöld væri ljóst að þar væri fullur hugur á að setja verklagsreglur til að forðast slys af þessu tagi og tryggja að fullt tillit yrði tekið til þekktra fornleifa og lokið yrði við að skrá og merkja óþekktar fornleifar í bæjarlandinu og gera minj- arnar um leið aðgengilegar fólki. Hún sagði að ákveðið hefði verið að gera átak í skráningu og merkingu fornleifa í sam- Morgunblaðið/Jim Smart Vinnuflokkur í sumarfríi NÚ þegar skólarnir eru í fríi eru nemendurnir að sinna ýmsum verk- efnum í gamni og alvöru. Þessi fríski og glaðlegi krakkahópur kemur saman í Laugardalnum, skammt frá Langholtsskóla, þar sem búið er að setja upp smíðavöll. Þar munda krakkarnir hamar, nagla og sög og dunda sér við að reisa margvíslegar byggingar. Laugardalur Ný bílastæði við Laugar- dalsvöll Laugardalur LOKS gefst gestum Laugar- dalsvallar kostur á almenni- legum bflastæðum erþeir sækja viðburði þar. Frá ár- inu 1957, en þá hófst starf- semi vallarins, hafa gestir þurft að gera sér malarstæði að góðu. Að sögn Jóhanns G. Kristinssonar, vallarstjóra Laugardalsvallar, hófust framkvæmdir um mitt fyrra- sumar og lauk þeim nú fyrir skemmstu. Bflastæðin eru 600 að tölu. Stæðin eru gestum til þæg- inda, en einnig er umhverfí vallarins snyrtilegra en áður eftir tilkomu þeirra. Hafnarfjörður Ibúar Kvisthaga ósáttir við breytt deiliskipulag Morgunblaðið/Jim Smart Ráðgert er að stækka lóð og byggja við Iljarðarhaga 45- 49, en húsið hefur lengst af verið kennt við Hagabúðina. Vesturbær 54 ÍBÚAR Kvisthaga hafa skrifað undir mótmæli vegna fyrirhugaðra breytinga við Hjarðarhaga. Ibúar krefjast þess að tillögunni verði hafn- að og segja hana m.a. brjóta í bága við skipulags- og byggingarlög og skipulags- reglugerð, auk þess að raska umhverfinu og kyrrðinni í hverfínu. Á fundi skipulags- og um- ferðarnefndar 6. mars 2000 var samþykkt að auglýsa til- lögu að breytingu á deili- skipulagi lóðarinnar við Hjarðarhaga 45, 47 og 49. Borgarráð samþykkti hinn 24. sama mánaðar bókun nefndarinnar. Tillagan var auglýst og lauk athuga- semdafresti 24. maí síðastlið- inn. Tillagan Um er að ræða húsnæði það sem löngum hefur verið kennt við Hagabúðina. Til- lagan felur í sér lítilsháttar stækkun lóðarinnar auk þess sem gert er ráð fyrir við- byggingu við húsið. Einnig er lagt til að byggt verði of- aná það að hluta til. Á neðri hæðinni mun verða starfrækt verslun. Á þeirri efri verður komið fyrir hverfisbundinni þjónustu og hefur tónskóli gjarnan verið nefndur. íbúar við Kvisthaga hafa gert fjölmargar athugasemd- ir við tillöguna. í bréfi íbúanna til skipu- lags- og umferðarnefndar, dagsett 22. maí 2000, eru gögn málsins sögð „með öllu ófullnægjandi". Ekki telja þeir skipulags- uppdráttinn fullnægja kröf- um skipulagsreglugerðar. Samkvæmt henni beri að koma fram á hinum auglýsta uppdrætti að um tillögu sveitarstjórnar sé að ræða, því ábyrgð og gerð deili- skipulags hafi verið á vegum hennar. Þess var þó hvergi getið. í skipulags- og byggingar- lögum segir að gera skuli húskönnun þegar unnið er deiliskipulag í byggðu hverfi. Engin slík könnun liggur fynr. I bréfinu benda íbúar á að samkvæmt skipulagsreglu- gerð beri að fara með breyt- inguna sem nýtt deiliskipu- lag. Því sé óheimilt að fjalla um eina afmarkaða lóð held- ur skuli taka allan deili- skipulagsuppdráttinn til end- urskoðunar. Gerð er athugasemd við að ekki hafi komið fram nægilegar upplýsingar um stærð hússins og hæð þess. Loks segir að ekkert samráð hafi verið haft við íbúa hverfisins um deiliskipulags- gerðina eins og skipulags- reglugerð kveður á um að gert sé. Hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur hefur verið brugðist við athugasemdun- um. Þar segir að ekki hafi verið talin þörf á að gerð væri húskönnun eins og ann- ars við deiliskipulag heilla reita þar sem aðeins var um eina lóð að ræða. Upplýsing- ar um stærð hússins eru sagðar koma skýrt fram á uppdrætti. Hámarkshæð hússins er 7,8 metrar. Vegna gagnrýni á að samráði við íbúa hafi verið ábótavant er bent á að málið hafi verið auglýst í blöðum eins og lög gera ráð fyrir auk þess sem íbúum Kvisthaga voru send kynningarbréf. Bflastæði „Synja ber tillögunni vegna skorts á bílastæðum", segir í bréfi íbúanna. Vísa íbúar til byggingarreglu- gerðar, en þar er kveðið á um að við verslunarhúsnæði skuli gera ráð fyrir a.m.k. einu bílastæði á hverja 35 fermetra húsnæðis. Ibúarnir telja þeim ki’öfum ekki verða fullnægt. Hjá Borgarskipulagi er þó bent á að hægt sé að ákveða annan fjölda bílastæða en byggingarreglugerð kveður á um. Ekki er talin þörf á að bílastæðafjöldi verði í sam- ræmi við byggingarreglu- gerð að þessu sinni þar sem gert er ráð fyrir að þeir sem nýti sér hverfisbundna þjón- ustu eins og tónskóla komi sjaldan á bifreið. Notkun annarrar hæðar Nefndur hefur verið sá kostur að starfrækja megi tónskóla á annarri hæð húss- ins. Ibúar Kvisthaga hafa lýst yfir áhyggjum vegna þess að hvergi kemur fram trygging fyrir því að slíkur skóli verði starfræktur í hús- næðinu. Engir samningar skólans, borgaryfirvalda og byggjanda hafa verið kynnt- ir íbúum hverfisins. Ekkert kemur fram um hvað taki við verði tónskóli ekki í húsnæð- inu. Ekki er hægt að tryggja að sú starfsemi sem þarna kemur verði einmitt sú starf- semi sem lagt hefur verið upp með, samkvæmt upplýs- ingum Borgarskipulags. Því var farin sú leið að setja í skilmála að starfsemin skuli vera hverfisbundin og nýtast aðallega íbúum hverfisins. Röskun umhverfis og kyrrðar íbúar Kvisthaga segja fyr- irhugaða tillögu raska um- hverfinu verulega sem og þeirri kyrrð sem þar hefur ríkt. Að lokum bæta þeir við: „Það er mat okkar að skipu- lags- og [umferðarjnefnd eigi ekki að láta gróðasjón- armið húseigandans, sem engar rætur á í þessu hverfi, ráða heldur viðhalda óbreyttu skipulagi. Þeirri hverfisbundnu þjónustu sem tillagan gerir ráð fyrir má koma fyrir annars staðar ... Það er krafa okkar að skipu- lags- og umferðarnefnd synji framkominni tillögu að breyttu deiliskipulagi." Málið var tekið fyrii- á fundi skipulags- og umferð- arnefndar 5. júní síðastlið- inn. Þar var því frestað. Næstkomandi fimmtudag mun fundur verða haldinn með íbúum Kvisthaga að sögn Árna Þórs Sigurðsson- ar, formanns skipulags- og umferðarnefndar, þar sem sjónarhorn íbúanna verða rædd.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.