Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 18

Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Birgir ísleifur Gunnarsson afhjúpar Járnsmiðinn. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Frá opnun sögusýningarinnar á Súlheimum. Seifossi - Höggmyndagarðurinn á Sólheimum var opnaður formlega á laugardag. Bjöm Bjamason mennta- málaráðherra opnaði garðinn og kvaðst vona að sem flestir legðu leið sína að Sólheimum til að skoða mynd- imar og kynnast um leið starfsem- inni að Sólheimum. Birgir ísleifur Gunnarsson Seðlabankastjóri af- hjúpaði við þetta tækifæri högg- myndina Járnsmiðinn eftir Asmund Sveinsson og sagði að bankinn vildi bætast í hóp gefenda höggmynda í garðinum, en Járnsmiðurinn er tíunda myndin sem prýðir garðinn. Höggmyndagarður Sólheima opnaður Listsköpun hefur alltaf verið snar þáttur í starfseminni að Sólheimum og leitast hefur verið við að skapa fagurt og menningarlegt umhverfi fyrir íbúana á staðnum ásamt því að listsköpunin hefur gefið tækifæri til krefjandi verkefna svo sem á leiklist- arsviðinu. Með höggmyndagarðinum er leitast við að laða að fólk sem á leið um héraðið, til þess að skoða mynd- imar í garðinum og til að kynnast starfseminni og hugsanlega kaupa framleiðsluvörur íbúanna, sem eru af ýrnsu tagi. Á laugardag var einnig opnuð sögu- sýning sem spannar 70 ára sögu Sól- heima. Sýningin er í húsnæði sem verður útbúið sem kaffihús þar sem gestir sem koma að Sólheimum geta tyllt sér niður og keypt sér kaffi og meðlæti. Sögusýningin gefur gott yf- irlit yfir starfsemina og uppbygging- una á Sólheimum allt frá byrjun starf- seminnar þar, fram til dagsins í dag og síðan eru sýnd áform um uppbygg- ingu í náinni framtíð. í tilefni dagsins buðu Byrgismenn uppá grillveislu sem var vel þegin af viðstöddum. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Guðmundur Jónsson, forstöðumaður Byrgisins, fyrir framan gömlu radarstöðina í Rocville. Byrgið opnar starfsemi í Rocville Keflavík - „Skjólstæðingar okkar eru í dag um 60 sem er um 40 % af því sem verður þegar starfsemin verður komin í fullan gang í haust. Þörfin er mikil, það sýna biðlistar. Því leggjum við allt kapp okkar á að opna hér fyrir fulla starfsemi sem allra fyrst og segja má að hér hafi verið unnið sleitulaust að upp- byggingu og endurbótum," sagði Guðmundur Jónsson forstöðumaður Byrgisins sem á laugardaginn hafði opið hús og kynnti nýtt meðferðar- heimili fyrir áfengis- og fíkniefna- neytendur í Rocville, fyrrum radar- stöð Varnarliðsins á Miðnesheiði. Guðmundur Jónsson sagði að Byrgið hefði hafið starfsemi árið 1996. Þá hefði hann ásamt eigin- konu sinni Helgu Haraldsdóttur tekið drykkjufólk af götunni inn á sitt heimili en síðan hefði hann fengið leigt húsnæði til að hefja í starfsemi í Hafnarfirði. Þar væru nú rekin tvö áfangaheimili. Guð- mundur sagði að Byrgið væri opið öllum, en algengast væri að þangað kæmi fólk sem hefði reynt önnur meðferðarúrræði og meirihlutinn væri langt leiddir fíkniefnaneytend- ur af götum borgarinnar. Sumir hefðu farið í 20-40 meðferðir. „Þetta eru einstaklingar sem allir hafa gefist upp á, fólk sem hefur verið í neyslu árum eða áratugum saman. Afleiðingin er andlegt og fé- lagslegt niðurbrot, og í kjölfarið oft afbrotaferill og fangelsisvist í mörgum tilfellum. í Byrginu er fólk sem hefur misst maka sinn, fjöl- skyldur, böm.“ Endurbæturnar mun viðameiri en reiknað var með Um endurbyggingu Rocville sagði Guðmundur að menn hefðu ekki gert sér grein fyrir hversu miklu hefði þurft að kosta til þar. „Það var talað um að við þyrftum að glerja nokkra glugga og skipta um rafmagn og að kostnaður við það gæti numið um 10 milljónum króna. En annað kom á daginn. Endurbæturnar hafa orðið miklu viðameiri en menn gerðu sér í hug- arlund og kostnaður nú orðinn um 40 milljónir, en við áætum að hann verði 50-60 milljónir," sagði Guð- mundur Jónsson. Morgunblaðið/Daníel Hansen Margrét S. ísaksdóttir, skóla- stjóri og Jón Oddsson, formaður byggðasamlags Laugagerðis- skóla. Tölvuver í Laugagerð- isskóla Eyja- og Miklaholtshreppi - Nýlega var tekið í notkun nýtt tölvuver í Laugagerðisskóla. I þvi eru átta tölvur svo að það er nógu stórt fyrir alla bekki skólans en í skólanum voru 46 nemendur sl. vetur. Tölvu- verið er nettengt svo nemendur eiga auðvelt með að nýta sér það sem boðið er upp á á Netinu. í skólaslitaræðu Margrétar S. ísaksdóttur skólastjóra kom fram að miklar vonir eru bundnar við tölvuverið, ekki aðeins fyrir skól- ann heldur einnig fyrir íbúana á skólasvæðinu. í bígerð eru að bjóða upp á tölvunámskeið fyrir foreldra næsta vetur svo þeir geti fylgst með því sem börn þeirra eru að gera í skólanum og fái innsýn í tölvuheim- inn sem við erum komin i. Bókaðu í síma 570 3030 og 456 3000 ffH 8.730 kf. meSfluyvallarsköttum FLUGFÉLAG ÍSLANDS Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfeiag.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.