Morgunblaðið - 14.06.2000, Síða 22

Morgunblaðið - 14.06.2000, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Starfsmönnum TölvuMynda boðnir kaupréttarsamningar HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ TölvuMyndir mun bjóða öllu starfsfólki sínu að gera samning um kauprétt á hlutabréfum í fyrir- taekinu, en hjá fyrirtækinu starfa nú um 160 manns. Kaupþing hf. tók að sér að hanna kaupréttarkerfi fyrir Tölvu- Myndir og var það formlega kynnt starfsfólki á föstudag. Markmið TölvuMynda með kaupréttarkerf- inu er að stuðla að því að starfs- fólk geti eignast hlutabréf í fyrir- tækinu og að bættur hagur fyrirtækisins í framtíðinni muni því skila sér beint til starfsfólks- ins, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu. Guðmar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri stjórnunarsviðs TölvuMynda, segir í samtali við Morgunblaðið að gengið verði frá samningum á næstu vikum. Þeir verði einstaklingsbundnir og ekki sé hægt að segja til um gengi eða upphæðir. Guðmar segir að stjórn- endur TölvuMynda hafi beðið laga- breytinganna sem nú hafa tekið gildi. „Við viljum meina að kauprétt- arkerfíð hjá TölvuMyndum sé eitt af fyrstu kerfunum sem tekin verða í notkun og uppfylla ákvæði laganna.“ Lögin kveða m.a. á um að tekjur vegna kaupréttarsamn- inga verði skattlagðar sem fjár- magnstekjur, öllu starfsfólki skuli boðinn kaupréttur og ef ágóði starfsmanns af samningi fari yfir 600 þúsund krónur á ári, beri hann venjulegan tekjuskatt. Guðmar segir að ágóði einhverra starfs- manna muni væntanlega fara yfír nefnda upphæð. „Það telst til tíðinda að svo stórt fyrirtæki hér á landi bjóði öllum starfsmönnum kauprétt en kaup- réttur er yfirleitt aðeins boðinn nokkrum lykilmönnum í fyrirtækj- um,“ segir í tilkynningunni. TölvuMyndir hafa ákveðið að stefna að því að starfsmenn geti nýtt sér skattahagræðið og hafa því látið sníða kerfið að nýju lög- unum. „Kaupréttur byggist á því að starfsmanni er boðið að kaupa ákveðið magn bréfa á tilteknu gengi en hann getur hins vegar ekki nýtt réttinn fyrr en að til- teknum tíma liðnum. Hafí gengið hækkað á tímabilinu hagnast starfsmaðurinn, en hafi gengið lækkað þá getur starfsmaðurinn einfaldlega kosið að nýta sér ekki réttinn - enda er lykilatriði að hann hefur val um hvort hann nýt- ir kaupréttinn eða ekki,“ segir í tilkynningunni. Maxon MX-2450 Tilboð: Listaverð: 19.980,- 15.980,- LéttkaupSímans 3.980,- út og í.ooo kr. á mán. í ár SlMINh www.siminn.is Fáðu nánari upplýsingar um NMT í gjaldfrjáísu númeri j 800 7000 ■ eða á netinu Níi ber vel í veíðil Ekkert Stofnojald í júní ogjúlí erekkert stofngjald í NMT farsímakerfinu. NMT - langdrægafarsímakerfið Hátt verð í Danmörku MARGIR hafa orðið til þess að gagnrýna niðurstöður nýlegrar skýrslu samkeppnisstofnunarinnar í Danmörku, að því er segir í grein í Dansk handelsblad. í niðurstöðum skýrslunnar kemur m.a. fram að verðsamkeppni á matvörumarkaði sé ekki eins mikil og æskilegt væri, hagnaður matvöruverslananna hafi aukist verulega hin síðari ár og að verð á matvöru sé um fimm prósent- um hærra en í samanburðarlöndum. Hafa gagnrýnendur bent á að í skýrslunni megi einnig lesa að álagn- ing sem hlutfall af veltu í matvöni- verslunum í Danmörku sé lægri en viðmiðunarlöndunum innan Evrópu- sambandsins eða 20% á móti 21%, en það bendi til þess að samkeppnin sé virk í Danmörku og að niðurstöður samkeppnisstofnunarinnar séu ekki réttar. Úndir þetta sjónarmið tekur Niels Jorgensen, prófessor við Há- skóla Suður-Danmerkur sem lengi hefur fylgst með matvörumarkaðn- um í Danmörku. „Ég skil ekki að samkeppni á matvörumarkaðnum sé minni hér í Danmörku en annars staðar og að verslanimar hagnist um of. Við fyrstu sýn virðist mér opnun- artími verslana, verðtilboð og auglýsingar þeirra benda til annars. Þá má einnig nefna að bensínstöðv- arnar hafa í auknum mæli verið að reyna að ná markaðshlutdeild frá matvöruverslunum og mér virðist því allt benda til þess að samkeppnin sé virk.“ í skýrslunni er einnig bent á að álagning matvöruverslana sem hlut- fall af veltu hafi hækkað úr 16% árið 1977 í 19% árið 1997. Framkvæmda- stjóri samtaka danskra kaupmanna segir í Dansk handelsblad að þær miklu fjárfestingar sem stórmarkað- imar hafi lagt í til þess að mæta kröf- um viðskiptavina um aukna þjónustu og ferskleika vöm sé meginástæðan fyrir hærri álagningu nú en fyrir tveimur áratugum. Morgunblaöió/Jim Smart Á fyrsta fundi First Tuesday á íslandi voru saman komnir frumkvöðlar ásamt bakhjörlum á borð við Qárfesta og þá sem vinna að almannatengslum. Nýr vettvangur fyrir frumkvööla FYRSTA þriðjudag hvers mánað- ar eru haldnir fundir í fjölda borga víða um heim á vegum fyrirtækis- ins First Tuesday. Tilgangur fund- anna er að vera vettvangur fyrir frumkvöðla, fjárfesta og aðra sem tengjast rekstri og nýsköpun í tæknigeiranum, sérstaklega á sviði hugbúnaðarþróunar, vefverslunar, fjarskipta og vefþjónustu. Andrés Jónsson er forsvarsmað- ur First Tuesday á íslandi og seg- ir hann að fyrirtækið sé grasrótar- fyrirtæki. Það hafi byrjað sem óformlegur félagsskapur í London til að auðvelda mönnum í tækni- geiranum að ná sambandi hverjum við aðra, en hafi þróast út í það að nú sé fyrirtæki í London sem haldi utanum starfsemina þó félögin í hverri borg fyrir sig séu sjálfstæð og ekki rekin með hagnað í huga. Læra hverjir af öðrum Fyrsti fundur félagsins hér á landi var haldinn nýverið og kveðst Andrés ánægður með hann. Yfir eitt hundrað manns hafi sótt fundinn, þar af um helmingur frumkvöðlar, tæpur helmingur fjárfestar og nokkrir sem starfi í tengslum við þennan iðnað og veiti honum þjónustu. Andrés segir fundina hafa mest gildi fyrir frumkvöðlana sjálfa, þar sem þeir geti margt lært hver af öðrum. Frumkvöðlar sem séu að stíga sín fyrstu skref með sitt fyrsta verkefni viti ekki endilega hvernig þeir eigi að bera sig að við að afla fjármagns eða tengsla er- lendis og því sé þeim mikilvægt að hafa vettvang á borð við First Tuesday til að bera saman bækur sínar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.