Morgunblaðið - 14.06.2000, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 31
George
Speight.
Suva, Fídjí, Honiara, Salómonseyjum. AP, AFP.
FRANK Bainimarama, herforingi
og yfirmaður hers Fídjí-eyja, sem
fyrir nokkru lýsti yfir herlögum á
eyjunum, mun á næstu dögum til-
nefna nýja ríkisstjórn Fídjí.
Hvorki George Speight leiðtogi
valdaránsmanna né stuðningsmenn
hans munu að
sögn Bainimar-
ama eiga sæti í
stjórninni þrátt
fyrir þá kröfu
Speight að hann
fari fyrir nýrri
ríkisstjórn.
Að sögn Eroni
Volavola, tals-
manns hersins,
munu ráðherrar
hinna nýju
stjórnar ekki heldur koma úr röð-
um hersins, en Volavola sagði
Bainimarama kynna niðurstöðu
sína fyrir lok þessarar viku. Lítið
hefur hreyfst í samningaviðræðum
Bainimarama og Speight sl. viku
þó herinn hafi komið til móts við
ýmsar kröfur Speights, m.a. þá að
stjórnarskráin verði felld úr gildi
og Speight og helstu stuðnings-
mönnum hans veitt friðhelgi vegna
valdaránsins. Speight, sem heldur
yfir 30 manns, þar af fjölda þing-
manna og fyrrum forsætisráð-
herra, í gíslingu í þinghúsinu í
Suva, segist hins vegar ekki láta
gísla sína lausa fyrr en herinn
samþykki hann sem leiðtoga næstu
ríkisstjórnar Fídjí.
Krefst afsökunarbeiðni
fyrir líflátstilraun
Auk kröfunnar um embætti leið-
toga krefst Speight nú einnig
skriflegrar afsökunarbeiðni eftir
að hermenn hófu skothríð á bíl
hans nú á mánudag. Speight var á
leið til þinghúss Fídjí-eyja er at-
vikið átti sér stað og hæfðu skotin
bílinn en ekki Speight. „Þetta var
tilraun til að ráða mig af dögum,“
sagði Speight í gær og krafðist
skriflegrar afsökunarbeiðni frá
Bainimarama. „Ef eitthvað kemur
fyrir mig eða mína menn þá mun
það koma niður á gíslunum," sagði
Speight á fréttamannafundi í gær
og kvað líf gíslanna augljóslega í
hættu.
Að sögn Volavola voru ástæður
skotárásarinnar hins vegar slök
dómgreind hennanna í eftirlitsstöð,
þar sem bíll Speight brunaði fram
hjá án þess að stöðva. Nokkrir
stuðningsmanna Speight voru
handteknir í kjölfar þessa, en þeim
sleppt eftir að valdaránsmenn hót-
uðu að skaða gíslana sem hafa nú
verið í haldi í rúmar þrjár vikur.
Afsagnar Ulufa’alu
að vænta á morgun
Á Salómonseyjum, þar sem til
vopnaðara átaka hefur komið und-
anfarið, tilkynnti Bartholomew
Ulufa’alu forsætisráðherra eyjanna
í gær að hann muni segja af sér
embætti á fímmtudag hver sem
niðurstaða vantrauststillögu þings-
ins verði. Ulufa’alu sagði afsögn
sína kunna að hafa í för með sér
aukin átök, en sagði í viðtali við
AP-fréttastofuna að afsögn væri
sinn eini kostur þar sem hann ótt-
aðist að uppreisnarmenn ynnu
bæði fjölskyldu sinni og ráðherrum
stjórnarinnar mein sæti hann
áfram í embætti.
Vopnahlé hefur ríkt síðan á
föstudag eftir að uppreisnarmenn
samþykktu að leggja niður vopn sín
til að gi'eiða fyrir friðarviðræðum.
Þeir höfðu áður tekið Ulufa’alu í
gíslingu og krafíst afsagnar hans,
en létu hann lausan nokkrum dög-
um síðar á meðan þingheimur
ákvað framtíð hans í embætti.
Að sögn Ulufa’alu leitast upp-
reisnarmennirnir þar með við að
láta leiðtogaskiptin líta löglega út
þó afsögn hans sé í raun fengin
með þvingunum.
Rabbínarnir, sem eru í forystu Shas-flokks strangtrúaði-a gyðinga, á fundi í Jerúsalem í gær.
Shas-flokkurinn hætt
ir stjórnarþátttöku
Jcrúsalcm, Washington. AP, Reuters.
SHAS-FLOKKURINN, harðlínu-
flokkur strangtrúaðra gyðinga, til-
kynnti í gær að hann myndi hætta
þátttöku sinni í samsteypustjórn
Ehuds Baraks, forsætisráðherra
Israels, eftir að stjórnin hafnaði
ki'öfum flokksins um aukið fjár-
magn til menntakerfis landsins. Ef
flokkurinn lætur verða af hótun
sinni er eins árs gömul ríkisstjórn
Baraks í hættu og friðarsamningar
við Palestínumenn í uppnámi.
Rabbínarnir
gefa fyrirmæli
„Ríkisstjórnin hefur ítrekað
reynt að skaða mpnntun (rétt-
trúaðra) barna í ísrael,“ sagði
Rafael Pinhasi, talsmaður flokks-
ins, í gær. „Okkur fínnst sem þeir
taki félagsleg mál ekki nægilega
alvarlega."
Rabbínarnir, sem eru í forystu
flokksins, gáfu þingmönnum sínum
þau fyrirmæli að senda afsagnar-
bréf sín til þingsins nk. sunnudag
og myndu afsagnir þeirra taka
gildi tveimur dögum síðar. Mun
þetta gefa Barak viku frest til
samningaumleitana svo starfhæfur
meirihluti komist á að nýju.
Shas-flokkurinn hefur krafið
ríkisstjórnina um háar viðbótar-
upphæðir til að viðhalda mennta-
kerfi sínu sem þegar er gjaldþrota
og hefur sætt gagnrýni vegna
Norsk-rú ssneska
fiskveiðinefndin
Búist við
hörðum
deilum
Ósló, Morgunblaöið.
BÚIST er við hörðum deilum á
fundi norsk-rússnesku fískveiði-
nefndarinnar í Múrmansk í dag og
á morgun en þar verður rætt um
ástand þorskstofnsins í Barents-
hafi og líklegan kvóta á næsta ári.
Þorskkvótinn verður ekki end-
anlega ákveðinn fyrr en í nóvem-
ber næstkomandi en víst þykir að
Rússar vilji skella skollaeyrum við
viðvörunum fiskifræðinga, sem
telja ástand þorskstofnins mjög al-
varlegt. Norska hafrannsókna-
stofnunin lagði til í fyrra að heild-
arkvótinn yi'ði 260.000 tonn en þá
var hann ákveðinn 390.000 tonn og
vildu Rússar þó að hann yrði
30.000 tonnum meiri. Ekki-er talið
óhugsandi að á Múrmansk-fundin-
um fari Rússar fram á að kvótinn
á þessu ári verði enn aukinn.
Á fyrstu fimm mánuðum þessa
árs dróst þorskaflinn í Barentshafí
saman um 13% en landanir er-
lendra skipa í Noregi, aðallega
rússneskra, hafa aukist um 15% á
einu ári og um 33% frá 1998. Af
rússneska þorskinum eru 43%
undir einu kílói og 48% á bilinu 1-
2,5 kíló. Af norsku skipunum eru
aðeins 5% undir einu kílói, 41% 1-
2,5 kg og 54% þar yfir.
tírslit sveitarstjórnarkosninga í
Svartfjallalandi valda áhyggjum
Setja sjálfstæðis-
stefnunni skorður
spillingarmála. Hefur þetta mætt
mikilli mótstöðu stjórnar Baraks
sem nú er talin leita allra leiða til
að mynda stjórn án þátttöku full-
trúa trúarsamtaka.
Óvissa um framhald
friðarviðræðna
Ef Shas-flokkurinn heldur fast
við ákvörðun sína mun óvissa ríkja
um framhald friðarviðræðna við
Palestínumenn en fyrir liggur að
endanlegt friðarsamkomulag verði
undirritað eftir þrjá mánuði. Áður
en að því kemur mun atkvæða-
greiðsla fara fram á ísraelska
þinginu.
Þrátt fyrir pólitískan óróa í
ísrael hófu ísraelskir og palest-
ínskir embættismenn samningavið-
ræður sínar í Washington í gær.
Stefnt er að því að komast að sam-
komulagi um öll stærstu málin
sem enn eru óuppgerð milli ísra-
elsstjórnar og stjórnar Palestínu-
manna, þ.á m. framtíð Jerúsalem,
landtöku Israela á herteknu svæð-
unum og landamæri ríkis Palest-
ínumanna.
Podgorica. Reuters.
KJÓSENDUR í Svartfjallalandi,
öðm sambandsríkja Júgóslavíu, vii'ð-
ist vera klofnii- í afstöðu sinni til ríkis-
stjómar umbótasinnans Milo Djuk-
anovics, forseta landsins, eftir
sveitarstjórnarkosningar í landinu
um helgina. Stjórnarflokkarnir sigr-
uðu í höfuðborginni Podgorica en
stjórnarandstaðan, sem fylgir
Slobodan Milosevic Júgóslavíufor-
seta að málum, sigraði í hafnarborg-
inni Herceg Novi. Hafa niðurstöðurn-
ar valdið nokkram áhyggjum og era
þær taldar geta sett sjálfstæðisstefnu
Djukanovics skorður á næstunni.
„Betra líf‘, bandalag stjórnar-
flokkanna, hlaut mikinn mehihluta
atkvæða í Podgorica en „Júgóslavía",
kosningabandalag stjómarandstöð-
unnai', sigraði í Herceg Novi. „Það er
mikið áfall að stuðningmenn Milosev-
ics sigraðu í borginni," sagði Milka
Tadic, ritstjóri vikuritsins Monitor, í
gær.
Miomir Mugosa, talsmaður stjórn-
arinnar, kenndi serbneskum flótta-
mönnum um stuðninginn við stjórn-
arandstöðuna en þeir ásamt elli-
lífeyrisþegum og fyrram hermönnum
Júgóslavíuhers era fjölmennir í
Herceg Novi. „Þeir studdu mann sem
AP
Stuðningsmenn stjörnvalda í Svartfjallalandi fagna niðurstöðu sveitar-
stjórnarkosninganna í Podgorica.
hefur eyðilagt allt sem var þeirra,"
sagði hún á fréttamannafundi í gær.
Stjóm Svartfjallalands hefur leitast
við að fjarlægjast sambandsríkið og
stefnu Milosevics undanfarin tvö ár
og hefur Djukanovic forseta orðið
mikið ágengt í að afla stefnu sinni
stuðnings á Vesturlöndum. Telja
stjórnmálaskýrendur að forsetinn
kunni nú að hægja á sjálfstæðisstefnu
sinni en hann hefur hótað stjómvöld-
um í Belgrad að efna til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Svart-
fjallalands.
SUtnUORF
ÞÓR HF
Reykjavfk - Akureyrl
Reykjavlk: Ármúla 11 - Sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Sími 461-1070
Ný ríkisstjórn
Fídjí verði til-
nefnd í vikunni