Morgunblaðið - 14.06.2000, Síða 33

Morgunblaðið - 14.06.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000 33 Þar sem orðið hættir William Harper frá Bandaríkjunum verður í sviðsljósinu á fimmta tónskáldaþinginu á há- tíðinni Menning og nátt- úruauðæfí í Grindavík í dag kl. 17. Atli Heimir Sveinsson fjallar um starfsbróður sinn. ÉG hitti William Harper fyrst í Reykjavík fyrir nokkrum árum. Ég man ekki í hvaða erindagjörðum hann var, en Guðmundur Emilsson kynnti okkur. Hann var sem sé einn af þessum mörgu vinum Guð- mundar utan úr heimi, sem hingað leggja leið sína af og til. Gott ef Guðmundur var ekki að láta flytja eitthvað eftir hann hérna heima á einhverri tónlistarhátíð sem hann stóð fyrir. Guðmundur fær alls konar hug- myndir, og það sem meira er, hann kemur mörgum þeirra í verk og er seigur við að virkja skapandi menn til samstarfs. Hann tekur gjarnan að sér ljósmóðurhlutverkið við til- urð listaverka. En þá kynntumst við William Harper nokkuð, snæddum saman og ræddum eilífðarmál listarinnar. Þetta var athugull maður, með sí- hvikul augu, sem fátt fór framhjá. Hann hafði fágaða framkomu, en bar með sér þá opinskáu einlægni sem einkennir marga menntaða ameríkana. Og William var prýðilega vel að sér í nútímalistum og fylgdist vel með ýmsu því sem var að gerast í öðrum listgreinum en tónlist. Ég minnist áhugaverðra og skarplegi'a athugasemda hans um nóbelsverð- launahöfundinn Saul Bellow, Chieago-skáldið mikla, en William er búsettur í þeirri stóru og annál- uðu borg. Við töluðum líka um óperugerð, en hann hafði samið nokkrar og sýn hans á vandamál ópenjgerðar á okkar tímum var frumleg og skýr. Hann sendi mér geisladiska með tónlist sinni, sem ég hlustaði á af mikilli athygli. Næst hitti ég Willi- am í fyrra í Brown- háskólanum. Þar var frumflutt magnað verk eftir hann, Mar- líðendur, við mikil- fenglegt ljóð Jóhanns Hjálmarssonar. Kam- mersveit Baltnesku Filharmóníunnar lék af miklum næmleika með háskólakórnum og slagverkarar tóku einnig þátt í leiknum. Guðmundur Emils- son stjórnaði. New York Times fór mörg- um fögrum orðum um þennan flutning. Það var áhifarík stund þegar skáldið sté fram og flutti ljóð sitt í upphafi. En tónlist Williams og ljóð Jóhanns runnu saman í eina heild. Tónskáldið semur verk sitt við tilbúið ljóðið og það er tónskáldsins að túlka það og útmála í tónlist, koma andblæ þess til skila og skýra innihald þess með þeim óskilgreinanléga miðli sem tónlistin er. Ljóðið Marlíðendur segir frá Fróðárundrunum sem sagt er frá í Eyrbyggju. Þetta er svæsin draugasaga sem túlka má á marga vegu. Og það gerir Jóhann. Það vitnar um innsæi Harpers og listamannslund hvað honum tókst að hitta naglann á höfuðið. Tónlistin þjónaði orðinu eins og í TENGSLUM við hina árlegu hvalahátíð á Húsavík verður opnuð myndlistarsýning japönsku lista- konunnar Namiyo Kubo í húsnæði Hvalamiðstöðvarinnar á morgun, fimmtudag. Namiyo Kubo er vel þekkt lista- kona í heimalandi sínu og víðar. Hún hefur haldið fjölmargar sýn- ingar í Bandaríkjunum þar sem hún er nú búsett. Síðasta stóra sýningin hennar var á Kúbu. Namyio hefur m.a. málað margar veggskreyting- ar og útilistaverk í fjölda borga í Mozart ætlaðist til. En um leið helt hún áfram að yrkja kvæðið, þar sem orðið hættir, en það sagði Schopenhau- er að væri leyndar- dómur tónlistarinnar. Stfll Williams er yf- irvegaður og sparsam- ur. Hann er litríkur, en hógvær. Tónlistin er eðlileg og tilgerðarlaus. Höf- undurinn kann vel að beita kór og manns- röddum. Áferð strengjanna persónu- leg og hlutur ásláttar- hljóðfæranna ávallt hluti af myndinni en ekki skraut eða effekt, sem Wagner kallaði áhrif án ástæðu. Og William Harper tókst að fíla í botn og hefja í æðra veldi gamla ís- lenska hryllings- og spennusögu í túlkun nútímaskálds á Islandi. Sagt er að listin þekki engin landa- mæri og að tónlistin sé alþjóðleg tungumál. Marlíðendur sannaði að höfundarnir eru alþjóðlegir lista- menn og andi þeirra flýgur vítt um heima alla. Þetta verk Williams Harpers hefur auðgað okkar menn- ingu. Auk Marlíðenda verður flutt nýtt hljóðrit af Requiem Hai-pers í Eld- borg í Svartsengi kl. 17:00 síðdegis í dag. Bæði þessi verk eiga erindi við íslenska tónlistarunnendur. Japan og í Bandaríkjunum. Árið 1998 kom Namiyo í fyrsta sinn til Islands og málaði þá listaverk í barnahorni Hvalamiðstöðvarinnar en hún hefur verið sérstakur vel- unnari Hvalamiðstöðvarinnar und- anfarin ár. Meðan á dvöl hennar stendur mun hún mála stórt útilistaverk á vegg framtíðarhúsnæðis Hvalamið- stöðvarinnar. Sýningin verður opin til og með 22. júní á opnunartíma Hvalamið- stöðvarinnar. Sveinsson Málverkasýning’ á hvalahátíð Menning og náttúru- auðæfí - Grindavík Miðvikudagur 14. júní. Eldborg í Svartsengi. Kl. 17. Námur 1987-2000. Tónskálda- þing í Illahrauni (V): Frummælandi: William Harper. Heimsfrumflutningur nýrra hljóðr- ita og aðfararorð tónskálds: Requ- iem og Marlíðendur í flutningi Kórs Lettneska Ríkisútvarpsins, Kam- mersveitar Baltnesku Fflharmón- íunnar og Drengjakórsins í Riga. Jó- hann Hjálmarsson flytur framort ljóð sitt Marlíðendur á undan tón- verki Williams Harpers. Útitónleikar uppi á hól við Þor- bjarnarfell. Kl. 20. Námur 1987-2000. Tónskáldaþing í Illahrauni (VI). Tilbrigði um útistef. Frammælendur: Davíð Franzson, Gyða Valtýsdóttir, Mark Phillips, William Harper. Fjögur raftónverk, byggð á hljóðmyndum úr Grindavík og Illahrauni, flutt undir beram himni, hvort heldur í roki, rigningu eða kvöldsól. Verkin byggja á sömu hljóðmyndum og Atli Heimir Sveins- son lagði til grandvallar Grindavík- urgjörningi sínum, Hafgúum. Léttur og meðfærilegur með iniibyggðum prentara Hægt að kaupa eða leigja [ Les allar tegundir greiðslukorta sem notuð eru á Islandi Er með lesara fyrir Hlíðasmára 10 Kópavogi Sími 544 5060 Fax 544 5061 snjallkort og segulrandarkort Hraðvirkur hljóðlátur prentari Gunnar Bernhard ehf. ORHfiGUR OG FJOLSKYLDUVÆNN HONDA Clvlc 5 dyra VTEC 115 hestöfl, 1500 vél, 2 loftpúðar, ABS, styrktarbitar I hurðum, sparneýtinn, I blönduðum akstri 6,51/100 km 1.495.000kr.- Vatnagörðum 24 • s. 520 1100 AKRANES: Bilver sf„ sími 431 1985. AKUREYRI: Höldur hf„ sími 4513000. KEFLAVÍK: Bílasalan Bílavik, sími 421 7800. VESTMANNAEYJAR: Bilaverkstæðið Bragginn, simi 481 1535.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.